Morgunblaðið - 14.11.1999, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
__________LISTIR________
Grisham, vænti ég?
ERLEIVDAR
BÆKUR
Spennusaga
ERFÐASKRÁIN „THE
TESTAMENT"
eftir John Grisham, Island Books
1999. 533 síður
NÝJASTI lögfræðitryllir banda-
ríska spennusagnahöfundarins
John Grishams, Erfðaskráin eða
„The Testament", kom fyrir
skemmstu út hjá Islands Books í
vasabroti og er fyrir það fyrsta
alls enginn lagatryllir. Grisham er
að verða heilagastur bandarískra
spennusagnahöfunda. Hann er
hættur að segja skemmtilegar
sögur af lögfræðingum á æsilegum
flótta undan óþokkum sem stunda
peningaþvætti eða myrða hæsta-
réttardómara. Núna segir hann
sögur hlaðnar ódýrum boðskap af
lögfræðingum sem snúa baki við
auði og völdum og ómerkilegu
lagaþjarki og næstum því hverfa
aftur til náttúrunnar og finna guð
sinn, já verða allt að því trúaðir.
Þessi nýjasta saga Grishams ger-
ist mikið til í frumskógum Brasilíu
og segir frá hjartahreinum trú-
boða sem lítur ekki við ellefu millj-
örðum dollara!
Ótæti allt
Hvað er Grisham að gera í Brasil-
íu? Og höfum við áhuga á að vita
það? Tæpast. Mikill hluti nýju sög-
unnar er lýsing á leiðangri einnar
aðalpersónunnar, lögfræðingsins
og drykkjumannsfins fyrrverandi
Nate O’Rileys, í gegnum óbyggðir
og ógreiðfært brasilískt fenja- og
frumskógasvæði og það verður að
segjast eins og er að sá hluti allur
er heldur óspennandi og gerir
þessa 533 síðna sögu óþarflega
langa. Hún tekur hins vegar strax
við sér þegar Grisham snýr sér
aftur að því sem hann kann best
sem er karp á milli lögfræðinga
um allt það sem viðkemur erfða-
skránni og spaugileg lýsing á erf-
ingjum hins látna, sem satt er
segja er „ótæti allt".
Erfðaski-áin er tíunda metsölubók
John Grishams sem eins og kunn-
ugt er stundaði áður lögfræði og
nýtti sér mjög þekkingu sína í
þeim fræðum þegar hann ákvað að
gerast spennusagnahöfundur fyrir
eins og áratug. Bækur hans allar
hafa notið gríðarlegra vinsælda
allt frá fyrstu sögunum, Dauðasök
og Firmanu, til þessarar nýjustu.
Þær hafa verið kvikmyndaðar
næstum um leið og þær hafa kom-
ið úr prentsmiðjunni en kvik-
myndaútgáfurnar hafa verið ákaf-
lega misjafnar að gæðum („The
Rainmaker" eftir Francis Coppola
líklega einna best heppnuð).
Erfðaskráin hefst á dauða auðkýf-
ingsins Troy Phelans, tíunda rík-
asta manni Bandaríkjanna hvorki
meira né minna. Hann er margfrá-
skilinn og á böm sem hann þolir
ekki og gætir þess áður en hann
tekur líf sitt að þau fái ekki cent
frá honum. Allur auðurinn fer til
læknisins og mannvinarins Rakel-
ar Lane, sem stundar kristilegt
trúboð í myrk(viðum Brasilíu og
er eina bamið sem millinn átti ut-
an hjónabands.
Brokkgeng
Uppi verður fótur og fit meðal erf-
ingjanna er ráða sér her lögfræð-
inga sem eiga að sjá til þess að
erfðaskráin verði dæmd ógild á
þeim forsendum að sá gamli hafi
verið galinn þegar hann samdi
hana. A meðan er áðurnefndur
Nate O’Riley sendur suður á bóg-
inn að hafa uppi á nýja milljarða-
mæringnum.
Stundum er eins og Grisham sé
að skrifa um Stanley og Liv-
ing(stone. Hann hefur kynnt sér
talsvert nákvæmlega sögusviðið
suðurfrá enda segist hann hafa
ferðast um óbyggðir BrasOíu í
tvígang og ætli sér aftur við fyrsta
tækifæri. I bókinni kemur hann
fram sem náttúruvemdar- og um-
hverfissinni, fyrirlítur auðhyggju
en mælir fyrir einfaldara, fallegra
lífi, einskonar sjálfsþurftarbúskap
með kristilegu ívafi. John Gris-
ham?
Hann er í það minnsta skemmti-
legri aflestrar þegar hann lýsir
lögfræðingagenginu og hinum ein-
staklega gráðuga og iðjulausa
fyllibyttu- og dóplýð sem er af-
komendur millans. Þá er hann í
essinu sínu og ef hann hefði haldið
sig þar hefði lang(dregin og að
mörgu leyti brokkgeng sagan hans
ugglaust orðið mun betri.
Arnaldur Indriðason
SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1999 23
brottflutnings elnstakur I
Jeep Wrangler
Laredo árg. '94,
nýskráöur í maí
'95, ek. aöeins
58 þús. km, uél
4.0, beinsk., 5
gíra, rauöur. 4}
Bíllinn er s \ >
innfluttur nýr af /%
umboöi og i eigu
sama aöila frá M,
upphafi. Tjónlaus K'
og reyklaus.
Bíllinn er til sýnis og sölu hjá Bílasölunni, Skeifunni 5,
síma 568 5020. Upplýsingar einnig í síma 897 2646.
Feng-Shui er forn kínversk aðferð sem jafnor „Chi" (lífsorku) í umhverfi okkar. Feng-
Shui hefur óhrif ó heilsu, samskipti og farsæld.
AfstaSan er mæld með kínverskum „lopan" (óttavita) til að nó fram því besta í hverju
húsi, heimili eða fyrirtæki. Grundvallarlögmól Feng-Shui er uð skapa jufnvægi í
kringum okkur svo að umhverfið styðji og vinni með okkur en ekki fyrir ó móti
Athena er fædd í Kanada en hefur verið búsett ó íslandi í mörg úr og talar íslensku.
Hún fer um allt land og heimsækir heimahús og fyrirtæki til oð bæta og auka heilsu,
hamingju og farsæld í peningamólum.
Athena lærði Feng-Shui í American Feng-Shui Institute undir leiðsögn Larry Sang,
heimsþekkts Feng-Shui meistara. Hún starfar með og er i stöðugu sambandi við
stofnunina. Athena hefur einnig verið í einkakennslu hjó Kartar Diamond sem er mjög
þekktur rúðgjafi fræga fólksins í Los Angeles.
Skýrsla og úbendingar eru ó íslensku eða ensku ef óskað er.
- RÁÐGJÖF -
Athena Spielberg
sími 862 4477
fax 561 5130
E-mail: arnio@est.is
Námskeið, fyrirlestrar og róðgjöf
mmm
tfp&tý3ííH}Btr fyrír sfcfípsfefg&i fríí&
ftmkiffMtrHr
tíWiýsinqar fyftr s
Mrttfiftkr
iíWfá&Hgatr ■3575. wHMWKl
ímirtfciwíf
fíagfeilfer, S®te6p4ttíft$ai.i$ pmter táWéÝgetáÍ
Up&týútt&r em 3ö$® firéðMifltyaic^ar, íséirfséfá®wf&tíogs
Ösftur ktimmt* K
Ferðatilboð á Flugleiðavefnum:
Netklúbburinn
Á Flugleiðavefnum eru birt reglulega freistandi
ferðatilboð vikunnar. Með því að gerast félagi í
Netklúbbi Flugleiða - á vefnum - gefst þér
svo kostur á enn fleiri hagstæðum ferðatilboðum.
Opnaðu þína eigin ferðaskrifstofu:
www.
icelandair.is
A nýja Flugleiðavefnum, www.icelandair.is,
býðst þér alhliða ferðaþjónusta inni
á þínu eigin heimili eða á vinnustað.
■ A www.icelandair.is færðu allar nauðsynlegar upplýsingar
um áfangastaði og flugáædun
■ A www.icelandair.is geturðu pantað dugfar, hótelgistingu
og bdaleigubd.
■ A www.icelandair.is geturðu bókað á Saga Buisness Class
- meiri hagkvæmni og minni kostnaður.
Velkomin um borð - á vef Flugleiða
ICELANDAIR
www.icelandair.is