Morgunblaðið - 14.11.1999, Síða 42
Jl2 SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1999
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
INGUNN
JÓNASDÓTTIR
+ Ingiinn Jónas-
dóttir var fædd
28. nóvember 1909.
Hún lést á Sólvangi
í Hafnarfirði _ 29.
október sl. títför
Ingunnar fór fram
frá Langholtskirkju
föstudaginn 5. nóv-
ember sl.
Elsku amma í Ljósó.
Þrátt fyrir háan ald-
iur og ég hafí vitað að
hverju stefndi, gerði ég
mér enga grein fyrir
hve sárt er að kveðja þig. Þú varst
yndisleg manneskja á þinn einstaka
hátt, tókst alltaf vel á móti okkur
með bros á vör og gleði í hjarta. Þú
elskaðir okkur öll án skilyrða með
öllum okkar kostum og göllum um
leið og þú einblíndir á allt hið já-
kvæða og góða í fari okkar. Þú
kenndir okkur að trúa á hið góða í
lífinu og að aldur er afstæður, með
þínu innsæi og einstæða jákvæða
viðmóti sem einkenndist af framsýni
og trú á unga fólkinu. Á 75 ára af-
mæli þínu hélstu meira að segja
partý fyrir okkur barnabörnin og
maka, enda varstu hrókur alls fagn-
kaðar og ávallt með þeim fyrstu þegar
fjölskyldan kom saman til að gera
sér glaðan dag.
Elsku amma mín. Ég geymi í
minningunni góðviðrisdaginn í ágúst
síðastliðnum þegar þú heimsóttir
okkur í Mururimann og við sátum úti
í góða veðrinu. Þú lékst á als oddi og
sagðist vilja fara í heita pottinn, þó þú
værir að verða níræð. Svona varst þú.
Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna,
og varst þér sjálfri hh'fðarlaus og hörð.
Þú vaktir yfir velferð bama þinna.
Þú vildir rækta þeirra ættarjörð.
Frá æsku varst þú gædd þeim góða anda,
sem gefur þjóðum ást til sinna landa
og eykur þeirra afl og trú.
En það er eðli mjúkra móðurhanda,
að miðla gjöfúm - eins og þú.
(Davíð Stefánsson)
Minningin um þig lifir í hjörtum
okkar.
Guðrún, Jökull og börn.
Mæt kona og móðir hefur kvatt
þennan heim og skroppið á annað til-
verustig. Já, alveg eins og hún mátti
til með að skjótast í tilverunni því
virkari og annasamari konu hef ég
_>ekki kynnst.
v/ ’Fossvogskii'Ujw^a^ð
“ Sími. 554 0500
Kynni okkar voru ein
af þessum tilviljunum í
tilverunni; dóttir henn-
ar og þáverandi hjúkr-
unarfræðinemi við
Hjúkrunarskóla Is-
lands, Margrét Magn-
úsdóttir, bauð mér,
skólasystur sinni og
vinkonu, að leigja með
sér í Ljósheimum 6.
Það átti eftir að verða
gjöful ákvörðun mín að
taka þessu, því gjöfulla
spor hef ég vart stigið á
ævinni. Þetta reyndist
allmikið stærri heimur
en ég sá fyrir mér í litlu herbergi
uppi á 9. hæð í stórborgarblokk.
Dóttirin átti sem sagt heimili sitt hjá
einstakri móður. „Já, kallaðu mig
bara Ingu og láttu eins og þú sért
heima hjá þér.“ Þetta var bara eitt af
mörgum tilsvörum þessarar eld-
hressu konu. Þau voru í senn stutt,
hnitmiðuð, kímin og ekkert verið að
skafa utan af hlutunum, enda Ing-
unn af Reykhólasveitarætt einni
stórbrotinni. Auk þess var hún níu
barna móðir og þar af fæddust henni
yndislegar eftirlíkingar, þ.e. tvíbura-
dætur, báðar hárgreiðslumeistarar
og naut ég „sjálfsagðra" starfskrafta
þeiira. Það var allt svo sjálfgert í lífi
Ingunnar minnar elskulegrar. Að fá
sniðinn einn kjól hjá vinkonu hennar
var sjálfsagt mál, þótt hún byggi
suður í Garðabæ. Ekkert fékk ég að
greiða eftir veturinn og eftirlét Ing-
unni fábrotnar hannyrðir og fátæk-
lega listsköpun sem veturinn skildi
eftir ásamt yndislegum samveru-
stundum með þeim mæðgum, með,
NB, útsýni til Snæfellsjökuls. Ing-
unn var ákafiega glaðsinna kona sem
kunni þá list að „sækja kraft í lífíð“.
Hún lét sig sjaldan vanta á gömlu
dansana og þess á milli setti hún
plötu á fóninn og steig dansspor við
heima í stofu. Inga komst fljótlega
að því að ég var heimakærari en
dóttirin og þá sagði sú gamla:
„Drífðu þig út á lífíð manneskja, þið
getið það þessar ungu!“ Aldrei
þreyttist hún á því að stappa í okkur
stálinu varðandi námið og lagði góð
orð með öllu. Eftir útivinnuna sína í
mötuneyti símans lagði hún sig
augnablik og var þá aftur full orku,
þurfti endilega af afgreiða nokkur
símtöl til stóra vinar- og ættarhrings
síns. En það var nú bara dropi í haf-
ið. Þá er eftir að telja öll kaffi- og
matarboðin sem hún stóð fyrir, öll
prjónuðu sjölin sem hún afkastaði
inn á milli þvottavéla. Kaffísopar síð-
ar, urðu ekki bara „komdu í kleinur,
manneskja, hvað er þetta, ætlarðu
ekki að fara að láta sjá þig“. Hún var
mér sem engill. Um leið og ég votta
kærum afkomendum hluttekningu,
langar mig til að láta fylgja með ljóð
Stgr. Thorsteinssonar, Verndi þig
englar.
Vemdi þig englar, elskan raín, þá augun
fógru lykjast þín,
líði þeir kring um hvílu hljótt á hvítum
vængjum um miðja nótt.
Nei, nei, það varla óhætt er, englum að
trúa fyrir þér,
engill ert þú og englum þá of vel kann þig
að lítast á
Karóh'na Hdlm.
JOHANNES
JÓNSSON
+ Jóhannes Jóns-
son var fæddur
á Hóli í Höfðahverfí
15. maí 1904. Hann
Iést á Grenilundi á
Grenivík 1. nóvem-
ber. títför Jóhann-
esar fór fram frá
Grenivikurkirkju
þriðjudaginn 9. nóv-
ember sl.
Genginn er mikill
öðlingur og merkur
bóndi. Jóhannes á Hóli
fannst mér alltaf vera
mikill frændi, enda við nánir vensla-
menn, þar sem faðir hans var bróðir
fóðurafa míns og móðir hans systir
föðurömmu minnar. Nær verður vart
komist að skyldleika í annan og
þriðja lið. Jóhannes tók sterkan ætt-
arsvip föðurættar okkar. Hann var
lágur meðalmaður á hæð, nokkuð lot-
inn í herðum írá því ég man hann
fyrst, sterkiegur, samanrekinn og
aflmikill. Hann var ljós yfírlitum,
nokkuð þunnhærður, með óstýrlátar,
PrárjLll* íilldiíií hrit Llí) íl! juduiii
Útfararstofan annast meginhluta allra útfara á höfuðborgarsvæðinu. Þar starfa nú 15 manns við útfararþjónustu og kistuframleiðslu.
Alúileg þjónusta sem byggir á langri reynsíu
nrorv
Útfararstofa Kirkjugarðanna ehf. mör
Vesturhlíð 2-Fossvogi-Sími 551 1266-www.utfarastofa.com
LEGSTEINAR t Marmari
Islenskframleiðsla Grunít
Vönduð vinna, gott verð Blácrýti
Sendum myndalista Gabbró
MOSAIK Líparít
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík 1
sími 5871960, fax 5871986
þykkar augabrúnir, sem
voru mjög lifandi, þegar
hann hló sínum rólynda
hlátri, sem breiddist á
sérstæðan, feimnislegan
hátt um andlitið og gerði
það að verkum, að
manni leið vel í návist
hans. Hann var afskap-
lega hæverskur og kurt-
eis í viðmóti, en stóð þó
mjög fast á sínu, án þess
að valta yfir aðra. Hann
hafði fremur hægan
talanda og syngjandi
framsetningu, sem bar
vel uppi létta kímni
hans. Handtakið var þétt og fullt.
Jóhannes var vitur maður, vel les-
inn og hafði yndi af bókum. Ekki
komst hann hjá þvi að vera valinn til
forustustarfa og var meðal annars
oddviti og hreppstjóri í sinni sveit.
Hann gerðist bóndi strax ungur mað-
ur og var svo þar til lúinn sótti nokk-
uð að honum og lungann úr ævinni
bjó hann -á ættaróðalinu Hóli, að frá-
töldu fyrsta búskaparárinu er hann
sat Sund, skammt vestan túnfótarins
ofar í Höfðanum. Jóhannes stundaði
ekki ferðalög en sat að búi sínu.
Kindur áttu hug hans allan. Hann var
með afbrigðum fjárglöggur, þótti
vænt um kindurnar og gaf þeim vel á
garðann. Leið honum alltaf best að
haustinu, þegar vel verkuð taðan náði
upp í hlöðurjáfrið.
Sem ungur drengur bældi ég oft
hey hans, en á seinni stríðsárunum
dvaldi ég nokkur sumur með systkin-
um mínum og móður í Hlíð í Höfðan-
um og vorum við því mörgum stund-
um heima á Hóli og sóttum þangað
mjólk. Man ég, að ég fór oft í lófa
Joja frænda til að ná mér í hlýju. Blá-
berin hans voru og lokkandi á haustin
og marga lófafylli bárum við heim til
okkar frá honum inn á Akureyri.
Nú þegar vænn maður er allur
bærist í brjósti mínu þakklæti til
hans, fyrir alla hlýjuna og viskuna,
sem hann bar mér úr nægtabrunni
sínum, því þrátt íyrir mikinn kær-
leika til barna sinna átti hann næga
hlýju til handa stútungi, sem hafði
órólegar hugsanir vegna fóður síns,
sem sigldi þá með físk til Bretlands.
Þá voru brosviprur Jóhannesar
frænda mér mikils virði. Kveð þig af
kæru hjarta, frændi minn.
Eiríkur Sveinsson.
INGA BRYNJA
GUÐMUNDSDÓTTIR
+ Inga Brynja
Guðmundsdóttir
fæddist á Akranesi
10. janúar 1947.
Hún varð bráð-
kvödd á heimili sínu
8. október síðastlið-
inn og fór útför
hennar fram frá
Akraneskirkju 15.
október.
Alltaf setur mann
hljóðan er maður
heyrii’ um andlát vin-
ar, minningarnar
hrannast upp í huganum.
Við Inga Brynja kynntumst þeg-
ar við vorum ungar stúlkur og unn-
um í frystihúsinu heima á Akra-
nesi. Einn daginn datt okkur í hug
að fara í ævintýraleit og vai’ð
Akureyri fyrir valinu. Þar vorum
við í rúmt ár. Þá fór ég á Blönduós
að vinna, en hún varð eftir í smá
tíma. Þetta ævintýri okkar endaði
svo aftur heima. Og fannst okkur
báðum þetta hafa verið gaman og
lærdómsríkt. Oft í gegnum árin
skoðuðum við Inga Brynja myndir
og töluðum um þetta ævintýri okk-
ar höfðum gaman af.
Ég kynntist foreldrum Ingu
Brynju. Alltaf tóku þau á móti mér
með hlýju og góðsemi og var ekki
hægt annað en að þykja vænt um
þau. Blessuð sé minning þeirra
beggja. Inga Brynja erfði þessa
hlýju og góðvild frá þeim.
Já, við Inga Brynja áttum góðar
minningar frá þessu tímabili. Svo
kom að því að við uxum úr grasi og
þurftum að takast á við lífíð. Inga
Brynja eignaðist tvö böm, þau
Kjartan og Sdlu. Fékk ég að njóta
þess að sjá þau dafna fyrstu árin.
Svo sá ég þau sjaldnar. Allt í einu
voru þau orðin stór og sjálf komin
með fjölskyldur en Inga Brynja
sýndi mér alltaf nýjar og nýjar
myndir af þeim og leyndi stoltið
sér ekki er hún talaði um þau, enda
mátti hún vera stolt. Hún lagði alla
tíð mikla natni og ástúð við börnin
sín og síðar barnabörnin, sem hún
elskaði svo mikið enda fékk hún
ríkulega til baka ástúð, hlýju og
góðvild þeirra.
Maður sér í dag
speglast í börnum
Ingu Brynju þessa
ástúð og hlýju er ein-
kenndi Ingu Brynju
vinkonu mína.
Og ég bið:
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta
skalt
Elsku Kjartan, Hlíf
og litlu dætur ykkar, Silla og litla
Inga Elín, Guðný og fjölskylda og
Maddý og fjölskylda, Guð gefi ykk-
ur allan þann styrk sem hægt er að
gefa í ykkar miklu sorg.
Við munum öll geyma minningu
Ingu Brynju í hjörtum okkar og
enginn mun geta tekið hana frá
okkur. Guð og gæfan fylgi ykkur
öllum og hugsum um að:
Við getum ei breytt því
sem frelsarinn hefur að segja.
Um hver fær að lifa,
og hver á svo næstur að deyja.
Þau örlög sem við höfum hlotið,
það verður að skilja.
Svo auðmjúk og hljóð,
við lútum að frelsarans vilja.
Þó sorgin sé sár,
og erfitt er við hana að una.
Við verðum að skilja,
og alltaf við verðum að muna,
að Guð hann er góður,
og veit hvað er best fyrir sína.
Því treysti ég nú,
að hann geymi vel sálina þína.
Þótt farinn þú sért
og horfmn ert burt þessum heimi.
Eg minningu þína,
þá ávallt í hjarta mér geymi.
Astvini þína, ég bið síðan
Guð minn að styðja,
og þerra burt tárin,
ég ætíð skal fyrir þeim biðja.
(Bryndís Jónsd.)
Og þannig kveð ég mína kæru
vinu.
Magnea Grímsdóttir.
HLIF
GUNNLA UGSDÓTTIR
+ Hlíf Gunnlaugs-
dóttir fæddist í
Meiri Hattardal í
Álftafirði við Djúp
9. mars 1911. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 23.
ágúst sfðastliðinn
og fór útför hennar
fram í kyrrþey.
Elsku amma, við
systurnar kveðjum
þig með miklum sökn-
uði og við eigum oft
eftir að minnast þín og
þeirrar hlýju sem við fengum er
við heimsóttum þig. Við þökkum
þér fyrir allar yndislegu stundirn-
ar sem við áttum saman og þegar
þú sagðir okkur margar sögur að
vestan. Elsku amma á Æsó, eins
og þú vildir að við kölluðum þig þó
svo að þú værir langamma okkar
þá voru það forréttindi að fá að
kynnast þér og hafa þig svona
lengi hjá okkur. Alltaf var gaman
að heyra hvað þú hafðir að segja
okkur frá þinni æsku
og hvernig það var
öðruvísi í gamla daga
heldur en er orðið
núna. Það er gott að
vita af þér á góðum
stað, þar sem þér líður
vel og ert komin í ná-
vist Hjalta afa. Við
áttum dýrmætar
stundir með þér sem
hverfa aldrei úr huga
okkar.
Elsku amma á Æsó,
við viljum minnast þín
með þessum erindum:
Er sárasta sorg okkar mætir
og söknuður hug okkar grætir,
þá líður sem leiftur af skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(Hallgr. J. Hallgr.)
En stundum kemur þögnin
og þylur gömul (jóð.
Þá þrái ég enn að þakka
hvað þú varst mild og góð.
(Tómas Guðm.)
Heiðrún Jóna, Kolbrún Halla
og Guðrún Æsa.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka
svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper-
fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1116, eða á
netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem
viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.