Morgunblaðið - 21.11.1999, Page 2
2 SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bréf frá yfírlækni á Litla-Hrauni
til Fangelsismálastofnunar
Telur geðheilsu
manna í ein-
angrun í hættu
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Nýsjálenskur rúningsmaður á Islandi
Islenskt sauðfé
óvenju kraftmikið
ÞÓRARINN H. Þorbergsson, yfír-
læknir á Litla-Hrauni, hefur sent
Fangelsismálastofnun bréf í tilefni
af framlengingu á gæsluvarðhaldi
nokkurra einstaklinga í tengslum
við stóra fíkniefnamálið, sem þegar
hafa setið lengi í gæsluvarðhalds-
einangrun. I bréfínu segir Þórarinn
að heilsa þeirra einstaklinga sem
setið hafa í einangrun í meira en
mánuð, hvað þá tvo mánuði, sé í
mikilli hættu. Óskar hann tafar-
laust eftir þeim aðgerðum sem
leyfa rof einangrunarinnar hið
fyrsta. Fangelsismálastofnun sendi
Lögreglustjóraembættinu í
Reykjavík erindið. Tveir menn hafa
verið leystir úr einangrun.
Þórarinn kveðst ekki geta sagt
hvernig ástand mannanna er núna
en það hafí rekið hann til að skrifa
bréfið, að menn eru í hættu sem
hafa verið í gæsluvarðhaldsein-
angrun svo lengi. Hann vísar í at-
huganir Ólafs Ölafssonar, fyrrver-
andi landlæknis, um áhrif einangr-
unar á fólk. Þar kemur m.a. fram,
að frá heilsufarslegu sjónarmiði sé
óráðlegt að einangra fanga lengur
en 3-4 vikur. I athugun Ólafs er
m.a. vísað í norska rannsókn þar
sem fram kemur að geðheilsu fanga
stafar ógn af einangrun.
„Menn eru í langtímahættu á
geðrænum og líkamlegum vanda-
málum. Það sem rekur mig til að
SVERRIR Hermannsson, formað-
ur Frjálslynda flokksins, sagði við
upphaf aukalandsþings flokksins í
gær að lífsspursmál væri að tækist
að stemma stigu við framrás frjáls-
hyggjunnar, sem tröllriði landinu
nú um stundir og reri að því öllum
árum að mylja þjóðarauðinn undir
örfáa útvalda, eins og hann komst
að orði. Við setningu þingsins fluttu
Matthías Bjamason, fyrrverandi
ráðherra, Guðmundur G. Þórarins-
son og Jón Armann Héðinsson,
fyrrverandi alþingismenn, og Jón
Sigurðsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri, ávörp þar sem hart
var deilt á núgildandi fiskveiði-
stjómunarkerfí.
Sverrir Hermannsson sagði, er
hann ræddi stjómmálaviðhorfið við
þingsetninguna, fíjálshyggjuna
ræna einstaklinginn rétti hans til að
nýta sér gögn landsins og gæði og
frelsinu tii athafna. Hún beygði ein-
staklinginn undir hæl lénsherra sem
færður sé íslandsauður á silfurfati.
skrifa bréfið er gæsluvarðhaldsúr-
skurður áfram til 15. mars. Ég geri
ekki ráð fyrir að þeir sitji í einangr-
un allan þennan tíma en það er ekk-
ert í þeim úrskurði sem mælir gegn
því að þeir geri það. Flestir hafa
setið í einum litlum klefa í einangr-
un í á þriðja mánuð. Þetta er auð-
vitað komið út fyrir viss skynsemis-
mörk,“ segir Þórarinn.
Þórarinn kveðst alltaf hafa það
úrræði að leggja gæsluvarðhalds-
fanga inn á sjúkrastofnun séu þeir
komnir á ystu nöf í heilsufarslegu
tilliti.
Egill Stephensen, saksóknari hjá
lögreglunni í Reykjavík, segir að
erindi yfirlæknisins hafi verið skoð-
að og einangrun hafi verið aflétt af
tveimur mönnum. Enn em sex
menn í einangrun. Þessir tveir
menn hafa verið í einangrun frá því
þeir vora úrskurðaðir í gæsluvarð-
haid síðla í september. Hinir sex
hafa verið í einangrun allt frá því í
september.
„Yfirlæknirinn nafngreinir engan
og stöðunni er ekki lýst eins og hún
er. Ég veit ekki hvort bréf hans lýsi
hættuástandi varðandi þá alla. Við
höfum einfaldlega farið yfir stöðuna
hjá okkur núna og metum það svo,
að ekki sé ástæða til að halda þess-
um tveimur mönnum í einangran
lengur miðað við stöðu rannsóknar-
innar,“ segir Egill.
Sverrir gat þess í upphafi ræðu
sinnar að rétt ár væri liðið frá stofn-
un Frjálslynda flokksins og benti á
að flokkurinn hefði mikið verk að
vinna. Ljóst væri að flokkurinn ætti
brýnt erindi í íslensk stjórnmál.
„Við höfum náð fótfestu og munum
nýta hana til hins ítrasta tO að ná
markmiðum okkar,“ sagði Sverrir.
Sverrir sagði að þrátt fyrir að
sjávarútvegsmálin væru helstu bar-
áttumál Frjálslynda flokksins fjall-
aði flokkurinn um alla höfuðþætti
þjóðmálanna. I ræðu sinni drap
hann meðal annars á efnahagsmál.
„Það era váboðar í íslensku efna-
hagslífi og hrollvekja framundan ef
ekki verður bragðist við,“ sagði
Sverrir. Hann minntist einnig á hlut
þeirra verst settu í þjóðfélaginu og
sagði mikilvægt að huga að þeim.
Sverrir benti á að menn gætu
ekki vænst almennra skattalækk-
ana á þenslutímum, Frjálslyndi
flokkurinn myndi ekki beita sér fyr-
ir þeim. Þá gagnrýndi formaðurinn
Fagradal- Nú er sá tími að bænd-
ur eru að taka ær sinar á hús og
fara að gefa þeim. Margir bændur
taka ærnar og rýja þær strax.
Það þarf að gerast mjög fljótt eft-
ir að ærnar eru teknar á hús því
þær verða fljótlega skítugar. Þeg-
ar fréttaritari Morgunblaðsins
kom í Kerlingadal í Mýrdal var þó
sú nýbreytni á að Karl Pálmason
bóndi hafði fengið rúningsmann
frá Nýja-Sjálandi, Darryl Kennan,
en hann hefur rúið hér á landi
sfðastliðin tvö ár. Það hefur hann
framkvæmd við sölu á eignarhlut
ríkisins í FBA.
Sverrir sagði í tilefni af ummæl-
um sem viðhöfð hafa verið um
ÍSLAND hefur verið kjörið til setu í
stjórn Matvæla- og landbúnaðar-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna,
FAO, til þriggja ára. Kosningar fóru
fram á aðalráðstefnu FAO, sem nú
stendur yfir í höfuðstöðvum stofnun-
arinnar í Róm. Tekur ísland þar með
í fyrsta sinn sæti í stjórn FAO með
stuðningi annarra Norðurlanda. I
tengslum við setuna í stjórninni hef-
ur verið skipaður sérstakur staðar-
fulltrúi Islands í Róm til að sinna þar
daglegum störfum. Fastafulltrúi Is-
lands hjá stofnuninni er sendiherra
Islands í París.
gert víða í Evrópu en þó aðallega
á Ítalíu. Hann afkastar í kring um
200-300 ám á dag og er gríðar-
lega fijótur, þó telur hann að ís-
lensku ærnar séu óvenju kröftug-
ar og erfiðara að halda þeim en
öðrum ám. Með honum að rýja
var Sigmundur Jóhannesson frá
Syðra-Langholti en hann hefur
séð um að taka niður pantanir og
fá leyfi frá dýralæknum til að
fara á milli svæða, en Ieyfin eru
háð mjög ströngum skilyrðum um
sótthreinsun á öllum tækjum.
byggðastefnu í tengslum við bygg-
ingu álvers á Austurlandi: „Éina
byggðastefnan er að leyfa fólkinu
um landið að sækja sjó.“
Störf FAO á sviði landbúnaðar og
sjávarútvegs eru Islendingum sér-
staklega mikilvæg. I því sambandi
má nefna umræður um sjálfbæran
landbúnað og byggðaþróun, sérstöðu
landbúnaðar í heimsviðskiptum og
skynsamlega nýtingu sjávarauðlinda
í krafti öflugrar fiskveiðistjórnunar.
Guðni Ágústsson, landbúnaðarráð-
hen-a og formaður íslensku sendi-
nefndarinnar, skýrði frá þeim
ákvörðun ríkisstjórnar íslands að
bjóða FAO að halda alþjóðlega ráð-
stefnu á Islandi haustið 2001 um
sjálfbærar fiskveiðar í vistkerfinu.
Andleg stóriðja
► Samkeppni um viðskiptaáætlan-
ir sem haldin var í fyrra hlaut fá-
dæma góðar undirtektir. Rætt er
við nokkra sem fengu viður-
kennin,gu þá. /10
Strandhögg í Stoke
► Kaup íslenskra fjárfesta á
Stoke City eru miklu meira en enn
eitt dæmið um útrás íslenskra
fjárfesta. /22
A skal að ósi stemma
► Rifjaðar upp umræður á þingi
þegar lögin um lögformlegt um-
hverfismat voru samþykkt
1993./26
Styrkur og sér-
staða í gæðakerfi
►Viðskiptaviðtalið er við Ara
Arnalds, framkvæmdastjóra VKS,
sem hlaut íslensku gæðaverð-
launin. /30
►1-36
Af gæsku guð oss
kvelur
► Myrkrahöfðinginn, áttunda
kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar
fyrir breiðtjald, verður senn frum-
sýnd. Verkið hefur verið að mót-
ast í kollinum á Hrafni í 32 ár. /1
Hefur ræktað
vel sinn garð
► Lífíð í öllum sínum margbreyti-
leik er umræðuefnið í heimsókn tii
Guðrúnar Jóhannesdóttur, hús-
móður í Eystra-Fíflholti. /8
Með opnum huga
►Elínóra Inga Sigurðardóttir er
fjögurra barna móðir á miðjum
flmmtugsaldri, menntaður jarð-
fræðingur, hjúkrunarfræðingur og
kennari. Og hún er formaður í
Landssambandi hugvitsmanna. /18
FERÐALÖG
► l-4
Kvöldið fyrir 4 átti að
kosta 1 milljón
►Á veitingahúsi í New York á
gamlárskvöld. /2
70 jeppar í Land
Rover-lestinni
►Af fjölskylduferð sem virðist
hafa spurst út. /4
D BÍLAR
► 1-4
Rúmt ár frá yfirtöku
Volvo á Samsung
►Volvo eykur hlutdeild sína í
tækjum. /2
Reynsluakstur
► Kia Sephia - Með hagsýnina að
leiðarljósi. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► l-20
Ráðstefna um umferð-
armannvirki
► Hvað kosta umferðarmannvirk-
in og umferðarkerfið þjóðina á
hverju ári? /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Hugvekja 50
Leiðari 32 Brids 50
Helgispjall 32 Stjörnuspá 50
Reykjavíkurbréf 32 Skák 50
Skoðun 34 Fólk í fréttum 54
Viðhorf 38 Utv/sjónv. 52,62
Minningar 38 Dagbók/veður 63
Myndasögur 48 Mannlstr. 20b
Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 32b
ídag 50
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6
Formaður Frjálslynda flokksins gagnrýndi frjálshyggjuna á landsþingi flokksins
Hart deilt á fískveiðistefnuna
Morgunblaðið/Ásdís
Sverrir Hermannsson kvað sterkt að orði í ræðu sinni á
aukalandsþingi Frjálslynda flokksins í gær.
ísland kjörio til
setu í stjórn FAO