Morgunblaðið - 21.11.1999, Page 25

Morgunblaðið - 21.11.1999, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1999 25 Morgunblaðið/RAX John Daley (með skeggið) er einn af hörðustu stuðningsmönnum Stoke. Hann hefur séð alla leiki liðsins síð- an 15. janúar 1968 nema einn. Hann var á sjúkrahúsi í eitt skiptið og fékk ekki leyfi til að fara á ieikinn. • heimaleiki liðsins síðan hann var lítill gutti, telur ennfremur að ís- lendingar gætu aukið strax aðsókn- ina á leiki Stoke City. Hvernig? - Jú, með lækkun miðaverðsins. „Það er allt of dýrt að fara á völlinn hér,“ segir hann og heldur áfram: „Það kostar fimmtán pund (sextán hund- ruð krónur) að fara á völlinn fyrir fullorðna og um þúsund krónur fyr- ir böm. Það segir sig sjálft að margir á þessu svæði hafa ekki efni á miðanum. Fáir fara einir á leiki og ef fjölskyldan er öll tekin með segir sig sjálft að fáir hafa efni á þessu. Það væri miklu skynsam- legra að lækka miðaverðið aðeins, gefa börnum einnig meiri afslátt og fylla völlinn af þakklátum stuðn- ingsmönnum. Það myndi marg- borga sig,“ segir hann. Einn starfsmanna Britannia-leik- vangsins tekur í sama streng og leggur sérstaka áherslu á verð á barnamiðum. „Það verður að lækka. Það verður sérstakt afsláttarverð fyrir böm á næsta heimaleik og vonandi getum við gert slíkt oftar. Ekki aðeins taka bömin foreldra sína með, heldur er gifurlega mikil- vægt að fá þau á völlinn og kenna þeim að lifa sig inn í stemmninguna. Takist það ekki er illa komið fyrir félaginu. Það þarf að ala upp stuðn- ingsmenn framtíðarinnar. Fjöl- breytt afþreying er í boði og margt sem glepur hugann," bendir hann á. Pottararnir eru vingjarnlegt fólk og vilja allt fyrir gesti sína gera. Fjölbreytt úrval í verslun- um og blómlegt menningarlíf benda til stórhugs íbúanna og sí- fellt fleiri gera sér grein fyrir nýj- um tækifærum á sviði ferða- mannaþjónustu og hátækniiðnað- ar. Það eru sóknarfæri í Stoke, verð á húsnæði, vörum og þjón- ustu er enn í lægra lagi og sífellt fleiri gera sér grein fyrir því að mikill munur er t.d. á verði merkjavöru í Miðlöndum Eng- lands og í höfuðborginni London. Séu þessi svæði borin frekar saman er þess að geta að á fleir- um sviðum er enn margt Mið- löndunum í hag. Þar er England enn hæfilega enskt . Krárnar eru eins og þær hafa ugglaust alltaf verið og á knattspyrnu- leikjum er stemmningin engu lík. Hvort þessi séreinkenni haldast á tímum samruna í Evrópu verð- ur tíminn að leiða í ljós. Er á meðan er. Ævintýri Ekki þarf að orðlengja það að kaup íslensku fjárfestanna á Stoke City eru eitt allsherjar ævintýri. Mikil einföldun væri að segja að gamalt og lúið knattspyrnufélag hafi þar aðeins verið til skiptanna. Málin eru miklu flóknari en svo. Með kaupunum á Stoke City eru íslenskir aðilar að setja mark sitt svo um munar á margbrotið og flókið samfélag. Ensk knatt- spyrnufélög eru miklu meira en að- eins félög, þau eru stofnanir. Um þau gilda sérstakar reglur - oft eni þeirra stærstu stundir einnig þær eftirminnilegustu í hjörtum íbú- anna, aðdáendanna. Hvort ævinýri þetta hafi farsælan og hamingju- ríkan endi skal ósagt látið, úr því getur framtíðin ein skorið. En víst er að ísland og íslendingar hafa gert magnað strandhögg í Stoke og gaman verður að fylgjast með ný- stárlegri samvinnu beggja þjóða á næstu mánuðum og árum. Morgunblaðið/RAX íslenskir leikmenn hjá Stoke Þorvaldur Örlygsson var fyrsti Islendingurinn til að leika með Stoke. Liðið keypti hann frá Nottingham Forest 1993, seldi hann siðan til Oldham 1995. Lárus Orri Sigurðsson gerðist leikmaður með Stoke 1994, en var seldur til WBA í vetur. Bróðir hans Kristján hefur leikið með unglinga- og varaliði Stoke tvö sl. keppnistímabil. Nú eru þeir Sigursteinn Gislason og Einar Þór Damelsson komnir í herbúðir Stoke - voru lánaðir frá KR til 1. aprfl. Hér á myndinni eru þeir Kristján og Sigursteinn, eftir að þeir fögnuðu sigri á Mansfield í æfingaleik á föstudaginn, 3:0. Morgunblaðið/RAX Það er komin jólastemmning í Stoke-on-Trent og íbúar byrjaðir að gera innkaup til jólanna. Hér má sjá fjórar stúlkur ræða saman á fórn- pm vegi. FLEXImobile® parar penmgana V V 'J M mmmmm _y Áreiöanleg og skilvirk skjalageymsla er ekki einungis tímasparandi heldur nýtir þú hús- næðið mun betur en ella. Skjöl og ýmis gögn getur verið hentugt að nálgast fljótt og örugglega og umfram allt á ódýran hátt því leitin að einu skjali í óreiðunni getur verið ærið kostnaðarsöm. Með FLEXImobile® hjólaskápum geturðu útvíkkað hið minnsta pláss margfaldlega og komið skipulagi á skjala- og gagna- geymsluna. Hringdu, sendu fax eða tölvupóst og fáðu bæklinginn sendan til þín. Hvað viltu íá út úr hillukerfínu þínu? • Flesta mögulega hillumetra 6 sem fœsta fermetra. • Aö geta stækkaö kerfiö í lengd og breidd. • Aö geta fengiö mismunandi dýpt, hœö og breidd. • Aö hillukerfiö só öruggt og só meö innbyggöu öryggiskerfi. • Aö hillurnar sóu fallegar og passi ínnf umhverfiö ó þfnum vinnustaö. • Aö kerfiö só notendavœnt. • Aö hægt só aö setja kerfiö saman og flytja hillurnar 6n þess aö gólfiö veröi fyrir skemmdum • Allt þetta getur þú fengiö í FLEXImobile hjólaskápunum. ®FOfnasmiðjan Hátelgsvegi 7 • 105 Reykjavfk • Síml C li 511 1100 Fax 511 1110* ofnasmldjanOofn.is •www.ofn.la

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.