Morgunblaðið - 21.11.1999, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 21.11.1999, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Jf Dýraglens Hundalíf Smáfólk CHARLIE BROWN í YOUVE 60T EXTRA P065! ARE THET FREETl'LLTAKETWO! 9-2* Kalli Bjama. Þú átt marga hunda. Eru þeir ókeypis. Eg tek tvo. Sjáðu mamma, ókeypis hundar. 50RRY..M0M WON'T LET ME HAVE A 006.. \Zc LIFE 15 FOLL OF PI5APP0IHTMENT5 Því miður. Mamma vill ekki leyfa mér að eiga hund. Lífið er sneisafullt af vonbrigðum. BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Virkjun á Austurlandi Frá Sölva Ólasyni: LENGI getur vont versnað var það sem mér datt í hug, þegar ég las grein Valdimars Lárussonar í Degi 6. okt. sl. um Fljótsdalsvirkjun. Hann segir þar, að ef af virkjun verði þá verði eyðilagt eitt fegursta svæði hálendisins og lífríki þess. Þvílíkt bull. Veit maðurinn ekki um hvað hann er að skrifa? Veit hann ekki, að þessi fegurð sem þarna var, er nú eyðilögð einmitt af þeim sem mest dásömuðu þetta svæði? Þessa perlu. Já, perlur eru brot- hættar, og vilja gjarnan týnast. Sr. Davíð á Eskifrði bendir á, að á Austfjörðum séu ótal náttúruperl- ur, en Eyjabakkasvæðið sé aðeins brot af perlu. Valdimar hefir áhyggjur af fuglum og fénaði. Eg geri ráð fyrir að þar sé hann að tala um gæsina margumtöluðu, sauðfé og hreindýr. Hvílík brjóstgæði. Eg held að gæsin haldi áfram að synda, og frekar fagni því að fá þama stærra lón. Þá getur hún bet- ur varið sig fyrir skotmönnum og öðrum ágangi. Er Valdimar ef til vill, að hugsa um skotmennina en ekki gæsina eftir allt saman? Nú liggur það fyrir, að þetta svæði er hættulegt öllum fénaði. Þama hafa á hverju ári drukknað mörg hreindýr og enn meira af sauðfé. Það sem hann segir um ráðherr- ana Halldór, Finn og Siv er ekki svaravert. Vísan sem hann kemur með í lokin er leirburður í sama anda. Valdimar kemst að þeirri nið- urstöðu að framsóknarmenn ætli að keyra þetta virkjunamál í gegn- um þingið með aðstoð fávísra sjálf- stæðismanna. Eg er ekki viss um að þeir séu honum sammála um að þeir séu fávísir. Svona skrifa ekki menn nema með mjög skerta dóm- greind. Þessi umræða er búin að vera á svo lágu plani að undrum saetir. í Degi 22. október sl. er grein eft- ir Pál Imsland jarðfræðing. Hann færir rök fyrir því að nánast öll um- ræðan um þessi virkjunarmál sé á röngum forsendum. Hann segir að verið sé að rugla saman umhverfis- vernd og náttúruvernd. Hann færir rök fyrir því að lögin fjalli eingöngu um umhverfisvernd. Um náttúru- vernd séu engin lög og þess vegna eru umræður um þessi mál einskis virði. I ræðu og riti birtist hver um- ræðan eftir aðra allar á sama veg, ekki má virkja. Þegar eftir er geng- ið, hvað annað gæti orðið til að efla atvinnu og byggð á Austurlandi í sama mæli og virkjun og stóriðja er fátt um svör. Þó kom Kolbrún Hall- dórsdóttir alþingismaður með þá uppástungu í sjónvarpsþætti, að Austfirðingar ættu bara að fara í beijamó og tína fjallagrös. Meiri lítilsvirðingu getur alþingismaður ekki sýnt einum landsfjórðungi. Þó ættum við ekki að láta okkur svíða undan þessari niðurlægingu frá Kolbrúnu, vegna þess að þetta lýsir henni sjálfri betur en nokkuð ann- að. Það mætti benda Kolbrúnu og fleirum á, að lesa góða grein eftir Jakob Bjömsson, fv. orkumálast- jóra, í Morgunblaðinu 8. nóv. sl. Þar komu fram staðreyndir sem margir hefðu gott af að kynna sér. Ef litið er yfir málflutning þeirra sem eru á móti virkjunum og stór- iðju þá finnst manni að það vanti alla rökhyggju og dómgreind. Manni virðist eins og þeir sem eru á móti þeim áformum sem eru uppi á Austurlandi um uppbygg- ingu iðjuvera, ætli að beita öllum ráðum til að koma í veg fyrir að þau nái fram að ganga. Þau koma með þetta í dag og annað á morgun. Væri nú ekki ráð að það fólk sem hefur talað á móti þessum áform- um, oft með óheiðarlegum málf- lutningi, hefði nú sama háttinn á og séra Sigvaldi í leikritinu Manni og konu, þegar hann var búinn að missa illa fenginn auðinn, embættið og æruna, að nú væri komið mál að biðja guð að hjálpa sér. SÖLVIÓLASON, Fáskrúðsfirði. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. | Þekkirðu Í56 Þekkirðu einhvern í Kína? Þá ertu heppin(n)! 1- J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.