Morgunblaðið - 21.11.1999, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 15/11 - 21/11
►í NÝJU frumvarpi Páls
Péturssonar félagsmálaráð-
herra til laga um breytingar
á atvinnuréttindum útlend-
inga er nektardans ekki skil-
greindur sem listgrein. Þetta
hafði þau áhrif á starfsemi
nektarstaða í landinu að for-
svarsmenn þyrftu að sækja
um atvinnuleyfi fyrir dans-
ara komi þeir frá löndum ut-
an Evrópskra efnahagssvæð-
isins. Þar með þyrftu dans-
ararnir að gangast undir
Iæknisrannsókn, standa skil
á sköttum og fleira.
►HÆSTIRÉTTUR hefur
dæmt verktaka bætur vegna
missis hagnaðar þar sem
ákveðið var að hafna tilboði
hans í gerð þaks á Borgar-
holtsskóla. Þakeiningar þær
scm verktaki bauð fram
voru norskar en kveðið var á
um íslenska smíð. Leitaði
Hæstiréttur álits EFTA-dóm-
stólsins við úrlausn málsins
en í Ijós koma að krafa um
íslenska smiði var andstæð
EES-samingi.
Hald lagt á 30 kg
af hassi
HALD var lagt á 30 kg af hassi á
Spáni sem átti að fara sjóleiðis til Is-
lands. Samstarf íslenskra og
spænskra lögregluyfíi’valda leiddi til
handtöku þriggja íslenskra manna
sem búsettir eru á Islandi og aðila á
Spáni. Þeir voru úrskurðaðir í gæslu-
varðhald. Rannsókn málsins spannar
yfir langt tímabil, en það var tekið til
meðferðar í mars á síðasta ári.
Há tíðni camp-
ylobacter í
kjúklingum
I SKÝRSLU sem unnin var fyrir um-
hverfisráðherra kemur fram mikil
campylobacter-sýking í eldishópum í
kjúklingabúum. Þrettán af sautján bú-
um reyndust smitlaus en bakterían
greindist í fjórum búum og þar var
hlutfallið 25-48%. Tvö þessara fjög-
urra búa hafa 65% markaðshlutdeild
kjúklingamarkaði. Krafist verður þess
af hálfu umhverfísráðuneytis að hlut-
fallinu verði náð niður í 10% á næsta
ári.
►NOTENDAGJÖLD í innan-
landsflugi yrðu að vera að
meðaltali um 2.200 krónur á
hvem fluglegg hjá fullorðn-
um og 1.100 krónur hjá
börnum ef endurheimta ætti
að fullu kostnað ríkisins af
fluginu.
►FYLGI Vinstrihreyfingar-
innar-græns framboðs hefur
aukist mikið frá kosningum
ef marka má nýja könnun Fé-
lagsvísindastofnunar sem
gerð var fyrir Morgunblaðið.
Fylgi flokksins mældist
18,9%. Fylgi Sjálfstæðis-
flokksins mældist 46,3%, Sam-
fylkingarinnar 16,6%, Fram-
sóknarflokksins 15,4% og
Frjálslynda flokksins 1,9%.
Aðild að Alþjóða-
hvalveiðiráðinu
hugsanleg
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sagði á Alþingi að vaxandi líkur
væru á því að íslendingar gengju aftur
í Alþjóðahvalveiðiráðið. En ástæður
þess væru, m.a. að aðild að ráðinu
væri forsenda þess að Islendingar
gætu selt öðrum hvalaafurðir. Til-
gangur með inngöngunni yrði, að mati
Halldórs, að vera sá að nýta hvala-
stofna við ísland og vinna með öðrum
þjóðum í heiminum að því að koma
upp á nýjan leik sjálfbærri nýtingu á
sjávarspendýrum. íslendingar gengu
úr ráðinu 1992 en hafa haft áheyrnar-
fulltrúa síðan.
Röng skýring á
örlögum EgyptAir-
þotunnar?
BANDARÍSKIR sérfræðingar sem
unnið hafa að rannsókn á hljóðrita Eg-
yptAir þotunnar sem fórst í lok október
voru í vikunni sannfærðir um að annar
afleysingaflugmaður þotunnar, Gamail
al-Batouti, hefði viljandi valdið því að
þotan hrapaði í hafið. Ástæðan voru
ummæli sem talið var að maðurinn
hefði látið falla og rannsóknarmenn
sögðust hafa greint öðrum hljóðrita vél-
arinnar. „Ég hef tekið ákvörðun, ég fel
mig Allah á vald,“ var haft eftir Batouti
í þann mund er slökkt var á sjálfstýr-
ingu þotunnar og henni stefnt niður á
við.
Embættismaður bandaríska sam-
gönguöryggisráðsins viðurkenndi hins
vegar síðar að setningin hefði aldrei
verið sögð og að maðurinn hefði aðeins
mælt nokkur trúarleg orð. Mikil reiði
hefur verið í Egyptalandi vegna máls-
ins og hafa egypsk dagblöð sakað
Bandaríkjamenn um að reyna koma
sök yfir á EgyptAir.
Leiðtogafundur ÖSE
Á LEIÐTOGAFUNDI Öryggis: og
samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE)
náðu Rússar og Vesturlönd málamiðlun
um að Knut Vollebæk, utanríkisráð-
herra Noregs og yfírmaður ÖSE,
reyndi að leita sátta í Tsjetsjníustríð-
inu. Á fundinum voru Rússar
gangrýndir fyrir árásir á óbreytta
borgara í Tsjetsjníu en Jeltsín Rúss-
landsforseti varði stefnu rússneskra
stjórnvalda og gekk síðar af fundi fyrr
en áætlað hafði verið. Á fundinum voru
undimtaðir tveir sáttmálar sem ætlað
er að stuðla að friði og öryggi í Evrópu.
Annar þeirra, Öryggissáttmáli Evrópu,
staðfestir hlutverk ÓSE í öryggismál-
um álfunnar og eykur vald stofnunar-
innar til grípa til aðgerða til að koma í
veg fyrir átök. Hinn sáttmálinn tak-
markar hefðbundinn herafla á landa-
mærum aðildarríkja um.
►AÐ MINNSTA kosti 705
manns létust og yílr 5000
særðus í jarðskjálfta sem
reið yfir Norðvestur-Tyrk-
land 12. nóvember. I vikunni
fannst 42 ára gömul kona á
lífi í rústunum eftir að hafa
legið þar í meira en eitt-
hundrað klukkustundir.
►GEORGE Mitchell, sátta-
semjari í deilu lýðveldissinna
og sambandssinna á Norður-
írlandi, er vongóður um að
samkomulag um framkvæmd
friðarsamkomulagsins frá
1998 sé í augsýn. Mitchell
hélt á brott frá Norður-ír-
landi á fimmtudag eftir að
hafa í 11 vikur reynt að
miðla málum milli deiluaðila.
►BANDARIKIN og Kína
undirrituðu á mánudag við-
skiptasamning sem talinn er
marka tímamót í samskipt-
um ríkjanna og greiða leið
Kínveija inn í Heimsvið-
skiptastofnunina (WTO). Sér-
fræðingar hafa sagt samn-
inginn torvelda ESB að
semja við Kínverja um að-
gang evrópskra fyrirtækja
að kínverskum markaði.
► SAMEIGINLEGUR fundur
utanríkis- og varnarmálaráð-
herra ESB-ríkja á þriðjudag
er talinn hafa verið mikil-
vægt skref í þá áttað gera
Vestur-Evrópusambandið að
varnararmi ESB.
► GÖRAN Persson, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, sagði í
vikunni að ómögulegt væri
fyrir Svía að hafna alfarið
EMU-aðild. Persson sagði að
Svíar ættu aðeins tvo kosti -
að ganga í Efnahags- og
myntbandalagið nú eða
ganga í það síðar.
Óvissa ríkir um hvort tiiboði SH og fleiri í FPI á
Nýfundnalandi verður tekið
Hafna hluthafa-
fundi um jólin
NOKKUR óvissa ríkir um fram-
vindu mála vegna tilraunar
NEOS-samsteypunnar til yfirtöku
á sjávarútvegsfyrirtækinu FPI á
Nýfundnalandi, en Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna er einn þriggja
aðila samsteypunnar. Tilboð
NEOS stendur til 30. desember og
beðið hefur verið um hluthafafund
28. desember til að fjalla um málið.
Framkvæmdastjóri FPI hafnar
þeim fundartíma og telur heppi-
legra að halda hluthafafund í janú-
ar.
Þetta kemur fram í blaðinu The
Telegram, sem gefið er út í St.
John’s á Nýfundnalandi. Þar kem-
ur einnig fram að annars tilboðs í
hlutabréf FPI kunni að vera að
vænta.
A hluthafafundinum er ætlunin
að taka afstöðu til þess hvort
heppilegt sé að breyta lögum er
takmarka eignaraðild aðila utan
Nýfundnalands að fyrirtækinu, en
það er forsenda þess að af yfirtök-
unni geti orðið. Victor Young,
framkvæmdastjóri FPI, hefur lýst
sig fylgjandi lagabreytingu, en
hann telur 28. desember alls ekki
koma til greina fyrir hluthafafund.
Jólin séu ekki rétti tíminn til þess,
því það setji hluthöfum utan að
landi og af meginlandinu skorður
við ferðalögum.
Brian Tobin, forsætisráðherra
Nýfundnalands, hefur sagt að ann-
að tilboð í FPI kynni að vera á
leiðinni, en vill ekki láta meira eftir
sér hafa um það. Young segist á
hinn bóginn ekki vita til þess að
svo kunni að vera.
Efasemdir meðal
heimamanna
Young segir ennfremur að eng-
ar viðræður hafi átt sér stað milli
fulltrúa FPI og NEOS fyrir utan
fimm mínútna fund, þegar tilboð
NEOS var kynnt og gerir lítið úr
bjartsýni og yfirlýsingum fulltrúa
NEOS um jákvæða afstöðu FPI til
kauptilboðs NEOS.
Verkalýðsforystan á Nýfundna-
landi hefur lýst yfir efasemdum
sínum um það að yfirtaka NEOS
leiði til fjölgunar starfa hjá FPI.
Earle McCurdi, formaður verka-
lýðssamtakanna FFAW, segir í
samtali við The Telegram að hann
sjái engin merki um fleiri störf og
með yfirlýsingum um slíkt sé
NEOS-samsteypan að etja saman
atvinnulausum Nýfundlendingum
og þeim, sem nú starfa hjá FPI-
Samtök sjómanna á grunnsævi
hafa þegar lýst andstöðu við yfir-
tökunni. Þau telja að með henni
myndist alltof öflug eining, sem
muni geta þrýst fiskverði niður og
náð yfirburðastöðu í sjávarútvegi á
Nýfundnalandi.
Vilja auka samvinnu milli
endurhæfíngastofnanna
Morgunblaðið/Sverrir
Læknamir sem sömdu greinargerðina. (F.v.) Ludvig Guðmundsson,
Guðmundur Bjömsson, Magnús Ólason, Olöf H. Bjarnadóttir. Sitjandi
er Gunnar Kr. Guðmundsson.
Laugavegi 18 • Slmi 51S 2500 • Síðumúla 7 • Slmi 510 2500
FÉLAG íslenskra endurhæfinga-
lækna sendi nýlega frá sér greinar-
gerð þar sem eru lagðar tillögur að
framtíðarstefnu í endurhæfingu á
íslandi. Gunnar Kr. Guðmundsson
formaður félagsins segir að helstu
áherslurnar í skýrslunni séu að
samvinna milli endurhæfingastofn-
ana verði aukin og verkaskipting
þeirra skýrari.
„Þetta hefur verið þannig að
menn hafa verið að vinna hver í sínu
horni. Við teljum nauðsynlegt að
menn hafi meira samstarf sín á milli
í þessum málum. Við höfum meðal
annars stungið upp á því við yfir-
völd að sett verði á laggirnar eins-
konar endurhæfingaráð, sem yrði
þá samstarfsvettvangur þeirra aðila
sem vinna að þessum rnálurn."
í greinargerðinni er einnig lögð
áhersla að þáttur göngu- og dag-
deildarþjónustu verði aukinn í end-
urhæfingu. Gunnar segir að það
auki sveigjanleika og geri læknum
kleyft að fylgjast betur með sjúk-
lingum. „Það eru ýmsar gallar a
kerfinu eins og það er í dag. Til a
mynda á Reykjarlundi er daggjalda
kerfi. Það þýðir að við fáum borgað
fyi-ir sjúkling einungis ef hann ligg-
ur í rúmi. Það er ekki í anda endur-
hæfingar því markmið hennar er að
gera fólk sjálfbjarga og aðlaga ein-
staklinga að umhverfinu á nýjan
leik.“
Greinargerðin var send til heil-
brigðisráðherra í sumar en Gunnar
segir að engin viðbrögð hafí enn
borist við henni.
------♦ ♦ ♦ ....-
Skýrr kaup-
ir mennta-
netið
FRAMKVÆMDANEFND um
einkavæðingu hefur lagt til við
menntamálaráðuneytið að tilboði
Skýrr hf. í íslenska menntanetið
verði tekið. Tvö tilboð í rekstur og
eignir menntanetsins bárust til Rík-
iskaupa. Skýrr bauð 12,1 milljón
króna en Hringiðjan ehf. bauð 3,1
milljón.