Morgunblaðið - 21.11.1999, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 21.11.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBBR 1999 43 - MINNINGAR aldrei á slíku en reynir eftir megni að lifa með því sem orðið er. I langvarandi veikindum Hreins hefur mikið álag verið lagt á herðar Valdísar. I þessari baráttu hefur Valdís sýnt fádæma dugnað og út- hald og annast Hrein af mikilli alúð og kostgæfni. Við vottum Valdísi, Asmundi, Fjólu, Pétri og fjölskyldum þeirra, Þorgerði Pétursdóttur, aldraðri móður Hreins, og öðrum aðstand- endum okkar dýpstu samúð og biðjum góðan Guð um að styrkja þau og styðja. Hilmar F. Thorarensen og íjölskylda. Haustið er liðið og hvítur Esju- kollurinn er staðfesting þess að vet- ur konungur er nálægur. Mér hafði haustið verið milt og hlýtt, svo milt að ég hafði trassað og slegið á frest að rækta garðinn minn þannig að hann væri árstíðaskiptunum til- búinn. Ég hafði staðnað í sólríku sumri og ekki gætt minna haust- verka sem skyldi, þeirra verka sem eru gildi lífsins, að hlú að sínum blómum, þannig að garðurinn sé vel undirbúinn öllum veðrabrigðum. Þannig lét ég andlátsfregn góðs vinar mæta mér óviðbúnum þótt ég hefði átt að vita hvert stefndi. Það haustaði alltof snemma í lífi Hreins Hermannssonar. Erfið veikindi urðu þess valdandi að lífs- sumar hans dvínaði. Hann varð að hætta í góðu en krefjandi starfi sem hann hafði ánægju af, starfi þar sem meðfædd greind hans og hæfi- leikar nutu sín. Hann var heiðurs- maður af gamla skólanum, heiðurs- maður sem aldrei mátti vamm sitt vita og var ekki endilega ginn- keyptur fyrir tískusveiflum nútíma þjóðfélags. Hann var hvers manns hugljúfi, íþróttamaður á yngri ár- um, glæsilegur á velli, og hafði mikla persónutöfra. Það var gaman að sitja með honum og Valdísi og spjalla. Umræðurnar snerust þá oftar en ekki um einhver þjóðfé- lagsmál, en á þeim hafði Hreinn oftast mjög fastar skoðanir sem gaman var að hlusta eftir, þó ekki færu þær kannski alltaf saman við mínar. Þessar skoðanir hans, þó ákveðnar væru, voru ekki mótaðar af stefnu einhvers stjórnmálaflokks eða annarra utanaðkomandi afla, heldur af góðum gáfum hans, víðsýni og tillitssemi til allra þátta. Kynni okkar Hreins hófust fyrst af alvöru þegar ég sem ungur mað- ur hleypti heimdraganum og leitaði tækifæranna í höfuðborginni. Hreinn hafði leitað suður nokkrum árum fyrr og var farinn að bera með sér heimsmannslegt yfirbragð. Hann og Þorgerður móðir hans, sem bjuggu við Snorrabrautina, tóku mér vel og má segja að ég hafi lifað í skjóli þeirra þann vetur. Þessi vetur var líka örlagavaldur í lífi Valdísar og Hreins, því alla tíð síðan hafaþau staðið hvort við ann- ars hlið. A eftir komu fjöldamörg skemmtileg ár þar sem við hvor í sínu lagi byggðum okkur heimili og fórum að eignast börn. Vart leið sú helgi að fjölskyldur okkar hittust ekki og gekk það allt þar til Valdís og Hreinn fluttu út á land. Þá tóku við ár skemmtilegra heimsókna austur á firði í sumarleyfum. Við fylgdumst vel með uppvexti barna hvors annars þótt úr fjarlægð væri. Það var Valdísi og Hreini mikið áfall þegar Trausti, yngsti sonur, þeirra lést af slysförum árið 1989. Þar var veitt djúpt sár sem Hreinn bar alla tíð í huga sér. Ég veit að það er nú gróið um heilt við endur- fundi á víðlendum eilífðarinnar. Genginn er hejlsteyptur maður, sem með ró sinni og yfirvegun veitti samferðafólki sínu hlýju og öryggi. En hann var líka þyggjandi. Hann átti sína Valdísi og börnin og það voru þau sem gáfu honum lífs- gildin sem hann lifði fyrir. Þegar heilsan þvarr var gott að hafa sína nánustu til að styðjast við. Því láni átti Hreinn að fagna í erfiðu veik- indastríði. Elsku Valdís, megi góður Guð styrkja þig og börnin þín í sorg ykkar. Þér, Þorgerður mín, bið ég hins sama. Ingjaldur Ásvaldsson. Laugarás - Dyngjuvegur Byggingarlóð f. 700 rúmmetra hús. V. 6 m. Eskihlíð - 3 herb. Ágæt íbúð á 3. hæð, útsýni. V. 8,4 m. Furugrund, Kópav. 3 herb. Rúmgóð og falleg íbúð á efstu hæð. V. 8,3 m. Meistaravellir - 3 herb. Ágæt íbúð á 3. hæð, áhugaverð eign. V. 8,5 m. Álfheimar - 4-5 herb. Endum. íbúð, 106,1 fm, á efstu hæð. V. 9 Búland - Raðhús Raðhús á 2 hæðum, 275,4 fm. Innb. bílskúr, 24 fm. Fyrir fjárfesta/ byggingaraðila Stigahús með sex, 2ja herbergja íbúðum auk sameignar. LAUFÁS Fasteignasala Suðurlandsbraut I2 SÍMI: 533 * 1111 fax 533 1115 Duiðskiptastofan Reykiavíkurvegi 60 ehf. sími u. ,. , SÍMI 565 5522 Atvmnuhusnæöi - Fyrirtækjasala 565 5522 Viðskiptastofan býður upp á víðtækan þjónustubakgrunn fyrir kaupendur/seljendur fyrirtækia- og atvinnuhúsnæðis. IVIeðal annars er öll skjalagerð og lögfræðiráogjöf í höndum Lögmanna HafnarfírQi, ráðgjóf við mat á ástandi bókhalds í höndum Bokhaldsstofunnar. Óll almenn ráðgjöf við rekstur og mat á verðmæti fyrirtækja í höndum Ráðgjafarstofunnar, auk sérþekkingar á tasteignamarkaði hjá Hóli Hafnarfirði. Atvinnuhúsnæöi Hlíðasmári - Kóp. Vorum að fá í einkasölu mjög gott atvinnu- húsnæði í ört stækkandi hverfi í Kópavogi. Gott skrifstofuplóss ásamt stóru lagerplássi. Miklir og góðir möguleikar á breytingum. Hentar mjög vel undir heildsölu og þess háttar starfsemi. Flatahraun Vorum að fá í sölu stórglæsilegt verslunar- og skrifstofu- húsnæði á besta stað í Hafnarf. Um er að ræða rúmlega 1.000 fm húsnæði á tveimur hæðum með lyftu.. Afh. fokhelt að innan, fullklárað að utan og malbikuð bílastæði. Nánari uppl. og teikningar á Hóli Hafn. Hvaleyrarbraut Mjög gott verslunar-, iðnaðar- og skrifstofuhúsn. til sölu/leigu á frábærum stað við höfnina í Hafnarfirði. Húsið er byggt sam- kvæmt EB-stöðlum og uppfyllir öll skilyrði varðandi matvælavinnslu. Þetta er vert að líta betur á. Uppl. á skrifstofu. Hvaleyrarbraut Vorum að fá í sölu mjög gott atvhúsnæði á tveim- ur hæðum sem hentar sérstaklega vei undir léttan iðnað. Örstutt frá at- hafnasvæði nýju hafnarinnar. Skilast fullbúið að utan og fokhelt að innan í ágúst 2000. Teikn. og uppl. á skrifstofu. Lyngás Til sölu/leigu mjög gott atvhúsnæði, ca 1.335 fm. Húsnæðið býður upp á mikla möguleika. Góð skrifstofu- og starfsmannaaðstaða með sturtum. Tveir stórir vinnusalir með hlaupaköttum. Þrennar inn- keyrsludyr. Góð loftræsting. Reykjavíkurvegur Til leigu mjög rúmgott atvinnuhúsnæði á fyrstu hæð á mjög sýnilegum stað. Nýtt húsnæði. Mjög góðir gluggar sem snúa að Reykjavíkurvegi. Skeiðarás Vorum að fá stórglæsilegt þjónustu-, verslunar- og skrif- stofuhúsn. á skrá. Frábær staðsetning. Hægt að fá einingar í ýmsum stærðum. Góð bílastæði. Uppl. og teikn. á skrifstofu. Stapahraun Vorum að fá í einkasölu 77 fm atvhúsnæði á þessum góða stað. Góðar innkeyrsludyr (4,10 m) og góð lofthæð. Á millilofti er kaffi/skrifstofuaðstaða ásamt salemi. EIGNABORG * 5641500 FASTEIGNASALA íf Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030. Jóhann Hálfaánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar GEISLALIND 204 fm parhús á tveimur hæðum. 4 rúmgóð svefnherbergi. 26 fm bíl- skúr. Afhent tilbúið að utan án máln- ingar, fokhelt að innan. (1302) ALFATUN 100 fm á 1. hæð, 3 svefnherbergi með skápum, parket á stofu og herb. Eldhús með beykiinnréttingu. Sérlóð. 26 fm bílskúr. (756) FASTEIGNA i* MARKAÐURINN OÐINSGOTU 4. SIMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540 OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9-18. Netfang: http://habii.is/fmark/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. ÁRNARÁS 1-3, GÁRÐABÆ NÝBYGGING Vorum að fá í sölu skemmtilegt tveggja hæða 8 íbúða fjöl- býlishús sem er að rísa í Ásahverfi í Garðabæ. Um er að ræða tvær 84 fm 2ja herb. íbúðir, fjórar 106 fm 3ja herb. íbúðir og tvær 125 fm 4ra herb. íbúðir og er sérinngangur í hverja íbúð. Sérgeymsla fylgir hverri íbúð. íbúðirnar verða afh. í júní árið 2000, fullbúnar með vönduðum innrétt- ingum án gólfefna en baðherbergi flísalagt. Hús að utan og lóð afhendist fullfrágengin. Teikningar og allar frekari upplýsingar á skrifstofu. SÓLHEIMAR - BÍLSKÚR Rúmgóð 134 fm neðri sérhæð með sérinngangi ásamt sérb. 28 fm bílskúr með hita og rafm. Forstofuherb., 2 svefnherb., 2 stofur. Tvennar svalir. Hús klætt að utan og í góðu ástandi. Laus fljótlega. 9760 SOGAVEGUR - RIS Glæsilega innréttuð 3ja-4ra herb. risíbúð í tvíbýli með sérinngangi. 2 stofur, 2 svefnherb. Eikarparket og flísar. Áhv. 4,8 millj. Verð 10,7 millj. LAUGARNESVEGUR Góð 3ja herb. íb. á 2. hæð í fjölb. sem skiptist í stofu, tvö góð svefnherb., baðherb. allt endurnýjað. Stærð 73 fm. Áhv. 3,5 millj. Verð 7,5 millj. 9767 KAPLASKJÓLSVEGUR - LAUS Vorum að fá í sölu góða 96 fm íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýlishúsi ásamt íbúðarherb. í kj. með aðgangi að snyrt- ingu. 3 svefnherb. Yfirbyggðar suðursv. Hús nýl. endurgert. Verð 9,8 millj. LAUS STRAX. 9791 GAUKSHÓLAR - PENTHOUSE Glæsileg 5-6 herb. íb. á tveimur hæðum í lyftuhúsi með frábæru útsýni í allar áttir. Ib. er öll nýl. standsett með 4 svefnherb. 2 stofur. Stærð 148 fm. Eikarparket og flísar. Tvennar svalir. Björt og góð íbúð. Frábært útsýni. 9800 STARARIMI. Nýlegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð ásamt innb. tvöf. bílsk. Sérsmíðaðar innréttingar. Parket og flísar. Stærð 196 fm samtals. Glæsilegt útsýni. ATH. Skipti mögul. á sérhæð eða íbúð í lyftu- húsi. Allar nánari uppl. á skrifst. 9805 LANGITANGI. Fallega innr. og vandað einbýli ásamt tvöf. bílskúr. ( kj. er 2ja herb. íb. með sérinng. Á efri hæð eru 3-4 svefnherb., góðar stofur, arinn, sólstofa. Stærð 217 fm + 54 fm bílsk. Húsið er i mjög góðu ástandi. Verðlaunagarður. Hiti í stéttum og plani. 9792 GARÐABÆR. Vorum að fá í sölu gott og vel staðsett einbýlishús sem stendur á hornlóð, með faliegum garði og verönd. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Arinn í stofu. Gufubað, heitur pottur. Innb. stór bílskúr. Stærð 321 fm. Allar nánari uppl. á skrifst. 9790 OPIÐ í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 12-14 Sími 533 4040 Fax 588 8366 Ármúla 21 DAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fasteignasali.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.