Morgunblaðið - 22.01.2000, Side 30
30 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
# Lesið í málverk
FÓSTRA
KJARVALS
Jóhannes Sveinsson Kjarval
k <wwiiBa«BSBg!^^r--L^............................-—:.. '. „vr:^.a^ViijTFf^'Sfi^fgSggg^Masi'JÍ
Fóstra Kjarvals, olía á léreft 86x94, ókunnugt um ártal.
ÞAU hjónin Þorvaldur Guðmunds-
son og Ingibjörg Guðmundsdóttir
tóku snemma ástfóstri við hinum
sérstaka myndheimi Kjarv;ds, og
urðu með tíð og tíma eigendur
viðamesta úrvals verka hans á
landinu. Þar á meðal er hið merki-
lega Lífshlaup úr vinnustofu
málarans í Austurstræti, sem er
líkast til það næsta sem nýjar kyn-
slóðir komast að hugarheimi og
verksviði eins brautryðjenda ís-
lenzkrar myndlistar, og fyrir það
eitt þjóðargersemar. Frumstæðar
málaratrönur og annað tilheyrandi
sanna, svo ekki verður um villst, að
ekki þarf fínar græjur né fullkom-
in tól til að skapa mikil listaverk,
þannig segir sagan okkur að í sum-
um tilvikum urðu slík til á gólfinu
(Jackson Pollock). Þá eru til dæmi
um heimsþekkta máJara sem eign-
uðust trönur seint og jafnvel aldrei
(Asger Jorn). Mikil listaverk hafa
lika verið máluð með óekta litum á
vondan grunn og afleitum penslum
(Kjarval). Framúrskarandi grafik-
verk hafa svo verið rist í tréplötu
með brotnum vasahníf (Edvard
Munch). Listaverk spyr þannig síð-
ur um aðstæður kringum tilorðn-
ingu sína og upphaf, það verður til
fyrir sköpunarkraft og þau lögmál
sem kveikir líf, þarf einungis þær
umbúðir og skilyrði sem eru
grunnur lífs, jafnt í mannheimi
sem minnstu öreind.
Af mörgum framúrskarandi
myndverkum Kjarvals á sýning-
unni í Listasafni Kópavogs, hugn-
ast mér að velja olíumálverkið,
Fóstra Kjarvals, til lestrar, vegna
þess hve myndin afhjúpar mikið af
honum sjálfum, hugarheimi, til-
finningalífí og Iist. Málverkið hefur
ekkert ártal, en gæti hafa orðið til
seint á þriðja áratugnum eða
snemma á þeim fjórða, ef ekki
hvorutveggja, meira en sennilegt
að listamaðurinn hafl lengi verið
að krukka í það, líkt og Lífshlaup-
ið, jafnvel samfara því. 011 pensil-
för myndarinnar afhjúpa hinn
mikla artista og allistamann sem
Kjarval var öðru fremur, að því
leyti öllum samtíðarmönnum
fremri.
Hugtakið artisti í málaralist,
hefur með þá eiginleika að gera
sem markar skynrænar kenndir og
ósjálfráðan vinnumáta frekar en
yfirvegað vitsmunalegt ferli. Hér
eru engar beinar stærðfræðilegar
vangaveltur á myndflöt og rými né
langar yflrlegur á ferð, allir þeir
þættir skynræns eðlis og afrakstur
áralangrar þjálfunar, spretta
svona nokkurn veginn fyrirhafnar-
lítið fram, líkast nauðsyn og
óhagganlegum staðreyndum.
Listamaðurinn fer gjarnan ham-
fórum, þokast síður að markinu,
þótt ekkert geti verið til fyrirstöðu
að artisti sé lengi með mynd,
krukki í hana árum saman. Hefur
minna með það að gera, að fullgera
mynd í einni lotu, sem er alls ann-
ars eðlis og séreiginleiki, artistan-
um er hins vegar ekkert heilagt,
hann á sér margar hliðar og vinnu-
ferlið fer eftir eðli og skaphita
hverju sinni. Þannig eru sum verk
Kjarvals, lfkust yfirgengilegri þol-
inmæðisvinnu völundarins og sam-
standa af óteljandi mergð smá-
doppa, sem bornar eru á dúkinn af
mikilli nákvæmni svo Ifkist ffn-
gerðustu bróderingu, aðrar hafa
bersýnilega orðið til á einum vett-
vangi, fyrirhafnarlaust. Og þó bera
þær f báðum tilvikum jafn mikinn
svip af artistanum, hér er tíminn
afstæður, leiðin að markinu önnur.
Það er lfkast sem hraðari hjart-
sláttur og örari tilflnningagos ein-
kenni vinnubrögð artistans, að
hann sé með allar árstíðirnar í
blóðinu, en þau tímahvörf Iúti
engri fastri reglu né mörkuðum
gangi himintungla, einungis geð-
hrifúm hans hverju sinni. Þá er
auðvelt að hrífast af artistanum,
vegna þcss hve allt er létt og yfir-
máta lifandi í verkum hans, eitt-
hvað jafn eðlilegt og fyrirhafnar-
laust og sunnanþeyrinn eða
norðangarrinn, eldgosið ekki síður
en freri túndrunnar og önnur
sköpunarverk almættisins, sem þó
lúta hvert um sig ákveðnum lög-
málum sem hluti allífsins.
Málverkið Fóstra listamannsins
stendur fyrir mörgum eðlisþáttum
Kjarvals, hún ber í sér minningar
sem hann hefur mikið sótt í, eins og
margar fleiri myndir hans eru til
vitnis um, en á annan hátt. Hugar-
þel fóstrunnar er eins og tvinnað
inn í myndflötinn, litir heitir og
blæbrigðaríkir, í þeim Ijarrænt yf-
irbragð í bland. Þótt dökkir séu á
köflum bera þeir í sér mögn nálg-
unar, hita mildi og ástúðar. Frá
hvftum flötum og doppum inni f
heildinni stafar lýsandi birtumögn-
um líkt og þau persónugeri fóstr-
una, jafnt ástaijátningu sem minn-
ingaleiftur úr fortíð. Þá er
vinnulag listamannsins auð-
þekkjanlegt, hin svonefnda pensil-
skrift, og í það miklum mæli að
áritun er næsta óþörf. Myndin er
létt og leikandi máluð, í henni allt í
senn, tregi, fortíðarþrá sem tilfinn-
ing fyrir nálægum lífsmögnum,
verundinni og ljósbrigðum dags-
ins, jafnt í lofti sem gróandi mold-
arinnar. Hér hefur engin kortlagn-
ing ytri umbúða og smáatriða verið
aðkallandi né nauðsynleg, því
myndin tjáir af djúphygli skyn-
ræna tilfinningu málarans til við-
fangsefnisins og það telst allri
venjulegri portrettmyndagerð
æðra. Merkilegast við þetta allt er
Iþó að hér er málarinn að móta sögu
á vetfvangi myndlistarinnar og er
langt á undan hérlendum samtfð-
armönnum sfnum. Segir okkur að
listasagan er ekki tilbúin né tillærð
hugmyndafræði heldur, og mun
frekar, rökrétt aflciðing vinnuferl-
is listamanna, er sömuleiðis skýrt
dæmi þess að myndverkið kemur á
undan, fræðin á eftir, því hér brýt-
ur sértæk nauðsyn sköpunarferlis
hefðbundna sýn. Það þarf ekki
ýkja skarpan mann til að sjá að f
þessari mynd koma jafnt fram ein-
kenni kúbisma fortíðar og Cobra,
sem enn hafði ekki litið dagsins Ijós
þá myndin var máluð, þar sem hið
hlutvakta er líkast felumynd en
framsetningin og heildin varðar
öllu. Og meginveigurinn í mynd-
ferlinu er einmitt sértæk, abstrakt,
sýn á viðfangsefnið. Sú fullyrðing
Kjarvals, að hann hafi í íraun verið
fyrsti abstraktmálari á Islandi, er
þannig engan veginn út í hött.
Bragi Ásgeirsson
I
i
\
Nýtt útisýningarsvæði Stöðlakots
Höggmyndir úr
steini og stáli
BURNHAM INTERNATIONAl
VEROBRÉFAFYRIRTÆKI
SÍMI 510 1600
NÝTT útisýningarsvæði verður
opnað í bakgarði Stöðlakots á Bók-
hlöðustíg 6 í Reykjavík í dag kl.
15. Þar verða til sýnis næstu tvo
mánuðina fimm ný verk úr steini
og stáli eftir Grím Marinó Stein-
dórsson myndhöggvara, unnin á
árunum 1998-1999.
I Stöðlakoti ræður ríkjum Hulda
Jósefsdóttir, sem heldur á þessu
ári upp á tólf ára afmæli gallerís-
ins og færir nú út kvíarnar með
Daníelsbók - Námskeið
Námskeið um efni spádómsbókar Daníels hefst 23. janúar
í Boðunarkirkjunni að Hlíðasmára 9, Kópavogi. Það verður
á sunnudögum kl.17. Þátttaka og námsgögn eru ókeypis.
Leiðbeinandi verður
Dr. Steinþór Þórðarson.
Allir eru velkomnir!
Morgunblaðið/Golli
Skúlptúrsýning Gríms Marinós Steindórssonar verður opnuð á nýju úti-
sýningarsvæði Stöðlakots í dag kl. 15.
því að tengja garðinn gallerírým-
inu. „Skúlptúrsýningin í garðinum
sést gegnum gluggana, þannig að
garðurinn verður eins og framhald
á galleríinu. Jafnvel þó að vitlaust
veður sé úti getum við verið inni í
hlýjunni og virt fyrir okkur verk-
in,“ segir Hulda.
Við framkvæmdina í garðinum
leitaði hún ráða hjá húsadeild Ár-
bæjarsafns, en Stöðlakot er einn
fárra steinbæja sem eftir standa í
Reykjavík.
Sýning Gríms Marinós mun
standa næstu tvo mánuði. „Svo er
meiningin að láta það þróast
hvernig skúlptúrfólk nýtir sér að-
stöðuna,“ segir Hulda.
Nýjar bækur
P
• íslandsskógar - hundrað ára |
saga heitir ný bók eftir Sigurð
Blöndal, fyrrverandi skógræktar- “
stjóra, og Skúla Björn Gunnarsson
íslenskufræðing. I kynningu segir:
íslandsskógar er mikið yfirlitsrit
um skóg og skógrækt á íslandi.
Bókin er samin í tilefni af 100 ára
afmæli skipulagðrar skógræktar,
að tilhlutan Skógræktar ríkisins.
Umbrot og myndvinnsla: Mál og
mynd. Kápa: Guðjón Ketilsson. L
Prentun: Steindórsprent-Guten-
berg hf. Bókband. Félagsbókband-
ið-BókfelI hf.