Morgunblaðið - 22.01.2000, Page 35

Morgunblaðið - 22.01.2000, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 35 MENNTUN NEYTENDUR Mikilvægt að nota umbúðir á réttan hátt Það er mikilvægt að framleiðendur mat- væla velji réttar umbúðir fyrir vörur sínar en Astfríður Sigurðardóttir matvælafræð- ingur segir að það sé ekki síður mikilvægt að neytendur noti umbúðir á réttan hátt þegar heim er komið. Morgunblaðið/Ami Sæberg Hvað er að vera fljúg- andi fær? VIÐMIÐ eða vísitöhir, samkvæmt reynslunni í Morningside, á því hvað nemandinn þarf að vinna hratt til að frammistaðan teljist vera hiklaus og reiprennandi: • Les tölustafi og segir þá upp- hátt. Hraði tvöfaldast þar til hrað- anum 180 til 200 tölustöfum á mín- útu er náð. • Les bókstafi og segir hljóð þeirra upphátt. Hraði tvöfaldast þar til hraðanum 80 til 100 hljóð- um á mínútu er náð. • Les og skrifar texta í óbundnu máli. Hraði eykst 1,25 sinnum þar til hraðanum 160 til 180 stöfum á mi'nútu er náð. • Heyrir tölustafi sagða og skrifar þá. Hraði eykst 1,25 sinn- um þar til hraðanum 130 til 150 tölustöfum á mínútu er náð. Upplýsinga- skrifstofur um Evrópumál Annað útboð verkefnisstyrkja í IST áætlun ESB um upplýsingatækni- samfélagið var formlega opnað 1. október á heimasíðu IST áætlunar- innar. Aðaláhersla þessa útboðs er á aðgerðir á tíu afmörkuðum sviðum sem eru: Stjórnun flutningatækni; Nýir vinnuhættir og rafræn við- skipti; Margmiðlunarútgáfukerfi; Einstaklingsbundin kennsla og þjálfun; Fjöltyngd tungutækni, staf- rænt efni og þjónusta; Hugbúnaðar- kerfiseiningar; Opin háþróuð við- mót/skil; Aðgengi að og tilraunir með nauðsynlega tækni og innviði; Tilraunir með skjákerfi, örkerfi og örtölvutækni; Úttektir/mat á hálf- leiðarabúnaði sem er að komast á framleiðslustig. Nánari upplýsingar má fá hjá Rannsóknarráði Islands s. 562 1320 Margmiðlun og kvikmyndir MEDIA II. Styrkir til margmiðl- unarverkefna, kvik-, heimilda- og teiknimynda. Næsti skilafrestur til undirbún- ings margmiðlunarverkefna og kvik-, heimilda- og teiknimynda er 14. aprfl. Næsti skilafrestur fyrir dreifingu kvikmynda er 28. janúar, fyrir dreifingu sjónvarpsefnis 21. janúar, fyiir dreifingu myndbanda og margmiðlunarverkefna 7. aprfl. MEDIA PLUS 2001-2005 MEDIA PLUS, ný sjónvarps-, kvikmynda- og margmiðlunaráætlun var samþykkt á þingi Evrópusam; bandsins þann 14. desember sl. í áætlunina verða veittar 400 milljónir Evra á tímabilinu. Helstu breytingar frá MEDIA II eru þær að veittir verða styrkir til að gefa út tónlist úr evrópskum bíómyndum og að komið verður á sjálfvirku kerfi fyrir dreif- ingu á evrópskum myndböndum og DVD. Einnig verður hleypt af stokk- unum tilraunaverkefni til að styrkja kvikmyndasöfn til að koma efni á stafrænt form. Aukin áhersla verður lögð á margmiðlun og nýja tækni. Umsóknargögn og nánari upplýs- ingar í síma 562 6366, netfang media- desk@centrum.is Ungt fólk í Evrópu Ungt fólk í Evrópu og Evrópsk sjálfboðaþjónusta hafa nú runnið sitt skeið á enda. Áætlað er að ný áætl- un, YOUTH, hefjist áður en árið er hálfnað. Þessi nýja áætlun mun bjóða upp á samskonar verkefni og undanfarar hennar. Landsskrifstofa Ungs fólks í Evrópu og Evrópskrar sjálfboða- þjónustu er enn starfandi í Hinu Húsinu, enda mörgu ólokið varðandi frágang áætlananna og sumum verk- efnum langt frá því lokið. Undirbún- ingur varðandi YOUTH er að sjálf- sögðu í fullum gangi. Nánari uþplýsingar í síma 551 5353. UMBÚÐUM er ætlað að varð- veita öryggi og gæði matvæla, svo sem útlit, samsetningu og næring- argildi og að vernda þau fyrir ut- anaðkomandi mengun og skemmdum. Einnig er æskilegt að varan sé meðfærileg, auðveld í flutningum og aðlaðandi í augum neytenda. A umbúðum þurfa jafn- framt að koma fram upplýsingar um innihaldið. Síðast en ekki síst þarf að gæta þess að umbúðirnar valdi ekki meng- un þ.e. að ekki séu í þeim óæski- leg efni sem geta borist í matvælin og valdið heilsu- tjóni. Umbúðir á að nota á réttan hátt og aðeins í samræmi við merkingar. Ef umbúðir eru aðeins gerðar til að geyma ákveðna teg- und matvæla á það að koma fram í merkingu umbúðanna, þar sem röng notkun, t.d. pökkun fituríkari matvæla og/eða geymsla við of hátt hitastig, getur leitt til þess að efni úr umbúðum berast í of miklu magni í matvælin. Helstu þættir sem geta haft áhrif á slíkt flæði eru eiginleikar og samsetning um- búðanna sjálfra, hitastig við geymslu og tími, gerð matvæl- anna, einkum magn fitu og hlut- Gestir í sjónvarpsþættinum Eld- hús sannleikans, sem sýndur var í gærkvöldi, voru Margrét Frí- mannsdóttir alþingiskona og Steingrímur J. Sigfússon alþing- ismaður. Svona gerir Steingrímur: Saltkiöt ad norðan 1,2 kg vænir saltkjötsbitar _____ 4 lárviðarlauf________ 6 korn allrahanda *______ _________6 hvít piparkorn_______ 1 teningur grænmetiskraftur Saltkjötið er skolað undir kaldri vatnsbunu. Setjið vatn í pott+lárviðarlauf, allrahanda, pipar og grænmetis- kraft. Þegar grænmetisteningurinn hefur leyst upp í vatninu er kjötið sett í pottinn og það soðið við vægan hita í 60 mín. Með kjötinu er haft gott græn- meti - gulrætur, rófur, kartöflur, blómkál, spergilkál og sykur- baunir eða það grænmeti sem í boði er. Útáhelling (sósa) Rífið niður vel af piparrót eða 1 msk. á mann. Takið 2 1/2 dl af soðinu af saltkjötinu og setjið í pott. Leysið 3 msk. af smjöri upp í soðinu og svo eru 2-4 msk. (eftir fallsleg stærð yfirborðs sem er í snertingu við matvælin. Rétt og rangt Það er nauðsynlegt að framleið- endur matvæla velji réttar um- búðir fyrir framleiðsluna í samráði við umbúðaframleiðendur en það er ekki síður mikilvægt að neyt- endur noti umbúðir á réttan hátt þegar heim er komið. Það eru sjálfsagt margir sem muna eftir því þegar dag- blöð voru notuð til að vefja utan um eitt og annað, t.d. fisk. Slíkt sést ekki í dag enda á prent- sverta ekki að komast í snert- ingu við matvæli. Það er góð regla að nota eingöngu umbúðir sem mega vera í beinni snertingu við matvæli. Innkaupapokar eru dæmi um umbúðir sem ekki eru ætlaðar til þess og geta innihaldið óæskileg aukefni svo sem litarefni. Það sama gildir um ruslapoka. Á umbúðum fyrir matvæli má gjarn- an sjá glas-og-gaffal-merkið sem vísar til notkunar fyrir matvæli en einnig getur staðið „ætlað fyrir matvæli" eða það komið fram í nafni vörunnar, t.d. nestispokar eða bökunarpappír. Mikilvægt er smekk) hrært saman við soðið. *Allrahanda er krydd sem stundum er kallað pimento. Svona gerir Margrét: Humarhalar (um 3-4 á mann) _________1 rauð paprika________ _____________Smjör_____________ Salt _____________Pipar_____________ _________2 1 /2 dl rjómi_______ _________Tómatkraftur__________ 1 teningur kjúklingakraftur Orlítið af hvítvíni (má sleppa) Nokkrar smjördeigskollur ____________Agúrka_____________ ____________Tómatar____________ _______Salathöfuð (iœberg)_____ Paprikan léttsteikt á pönnu í smjöri. Humarhalarnir eru skel- flettir, þeir kryddaðir með salti og pipar og steiktir á pönnu ásamt paprikunni. Rjóma er hellt yfir og örlitlum tómatakrafti bætt út í, svo og ten- ingi af kjúklingakrafti og hvítvíni ef það er notað. Humrinum hellt í heitar smjör- deigskollur. Skreytt með agúrku, tómötum og salatblöðum. að plastfilma með mýkingarefni sé notuð á viðeigandi hátt og reynt að komast hjá því að hún komist í beina snertingu við fiturík mat- væli eða heit matvæli. Slíka filmu skal ekki nota í örbylgjuofn. Fyrir fiturík matvæli er t.d. hægt að nota polyetylenfilmu eða -poka („venjulegir" plastpokar) eða ál- pappír. Heit matvæli er betra að setja í skál og breiða filmu yfir. Álpappír hentar vel fyrir margvís- leg matvæli en með ákveðnum undantekningum þó. Forðast ber að nota hann fyrir súr matvæli svo sem sítrónur eða niðurlögð mat- væli þar sem ál getur losnað úr umbúðum við slíkar aðstæður. Af sömu ástæðu ber einnig að varast að nota álpotta fyrir súr matvæli, t.d. ávaxtagi’aut. Slík matvæli geymast best í gleri, postulíni eða plastílátum. Endurnotkun Margvísleg flát, einkum úr ýmiskonar plasti, má nota til að geyma matvæli en þó með það í huga að samsetning matvælanna og sýrustig sé ekki mjög frá- brugðið því sem áður var í umbúð- unum og hitastig sé svipað. Plast- ílát undan ís eða mjólkurvörum eru t.d. mjög hentug fyrir matvæli til frystingar eða geymslu í kæli. Forðast ætti að nota mjúkt og/eða litað plast fyrir feit og heit mat- væli. Glerflöskur sem ekki fara til endurvinnslu má nota heima við eftir tilheyrandi þvott. ★Athugið merki á umbúðum ★Fylgið leiðbeiningum um notkun ★Athugið vel hvaða hitastig umbúðirnar þola ★Endurnotið aðeins það sem hæft er og við svipaðar aðstæður Höfundur er matvælafræðingur hjá Hollustuvemd ríkisins. í Húsasmidjuimi H3 Electrolux • Kælir og frystir • Hæð 200 sm j • Tvær pressur • Digital stiórnborð • Hlióðlátur • Viðvörunarkerfi fyrir frysti HÚSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is Margir muna eftir því þegar dagblöð voru not- uð til að vefja utan um t.d. fisk. Slíkt sést ekki i dag enda á prentsverta ekki að komast í snert- ingu við matvæli Eldhús sannleikans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.