Morgunblaðið - 23.02.2000, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- og tryggingaráðherra lagði á það
áherslu að ekki væri fyrirhugað að draga úr þjónustu við geðsjúka.
Morgunblaðið/Þorkell
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir alþingismaður gagnrýndi niður-
skurð á geðdeildum á sama tíma og fleira fólk leitar aðstoðar.
Heilbrigðisráðherra við utandagskrárumræðu um málefni geðsjúkra
Segir ekki standa til að
draga úr þj ónustu
INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð-
is- og tryggingaráðherra lagði
áherslu á það við utandagskrárum-
ræðu um fyrirhugaðan niðurskurð á
þjónustu við geðsjúka, sem fram fór á
Alþingi í gær, að þjónusta við geð-
sjúka myndi ekki dragast saman og
að skjólstæðingar geðsviða stóru
sjúkrahúsanna fengju örugga þjón-
ustu, hér eftir sem hingað til. Sagði
Ingibjörg að forsvarsmenn sjúkra-
húsanna hefðu fullvissað sig um að í
heild stæði alls ekki til að draga úr
þjónustu við sjúklinga heldur væri
markmiðið að nýta aðstöðu og mann-
afla sem best í þágu sjúklinga.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
þingmaður Samfylkingar, hafði farið
fram á utandagskrárumræðuna og
vitnaði hún í upphafi máls síns til
frétta í fjölmiðlum um að lagt hefði
verið til að skorið yrði niður um 100
milljónir á geðsviði Sjúkrahúss
Reykjavíkur. Sagði Ásta að þetta
væri fjórðungur af rekstrarfé deild-
arinnar og ljóst að hún stæði ekki
undir nafni eftir hann.
„Þessar niðurskurðartillögur
koma á sama tíma og landlæknir er
með kynningarátak til að beijast við
þunglyndi og gegn sjálfsvígum, átak
ALÞINGI
til að minnka fordóma gegn geðsjúk-
dómum. Átak sem hefur aukið gífur-
lega álagið á geðdeildum, hjá geð-
læknum og hjá Geðhjálp. Greinilegt
er að mjög margir hafa ekki fengið
læknishjálp, sem nú eru að koma
fram í kjölfar átaksins,“ sagði Ásta.
Sagði hún að eðlilegra væri að efla
geðlæknisþjónustu í kjölfar átaks
sem þessa, heldur en draga úr henni.
Engu síður væri nú rætt um spamað,
fyrst 100 milljónir en nú skyndilega
töluðu menn um 50 milljónir. Velti
Ásta því fyrir sér hvers konar vinnu-
brögð það væru eiginlega þó að hún
fagnaði því að þrýstingur utan frá
hefði haft áhrif og orðið til að tillög-
urnar voru mildaðar.
Ráðherra kemur ekki að
ákvörðunum um forgangsröðun
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra kvaðst að gefnu tilefni vilja
að það kæmi fram strax að þjónusta
við geðsjúka myndi ekki dragast
saman. „Forsvarsmenn geðsviða
sjúkrahúsanna í Reykjavík hafa fullv-
issað mig um að í heild stendur alls
ekki til að draga úr þjónustu við
sjúklinga,“ sagði hún. „Markmið
þeirrar vinnu sem nú er í gangi innan
sjúkrahúsanna er að nýta aðstöðu og
mannafla sem best í þágu sjúklinga
og það kann vel að hafa í för með sér
að þjónustan flytjist til í húsum og
milli húsa en hún minnkar ekki.“
Hvað varðaði umræðu um með-
ferðarheimilin á Gunnarsholti og
Amarholti þá yrði sú starfsemi ekki
lögð niður. Sagði Ingibjörg að þar
yrðu engar breytingar gerðar nema
tryggt væri að vel yrði séð fyrir þeim
sem þar dveldu. Hún væri hins vegar
alveg tilbúin til að skoða hvort sú
starfsemi sem þar væri stunduð ætti
fremur heima undir merkjum heil-
brigðisþjónustunnar eða hluti hennar
hugsanlega sem félagsleg þjónusta.
Ingibjörg sagði ennfremur að fjár-
veiting til sjúkrahúsanna væri í fullu
samræmi við fjárhagsáætlanir
þeirra. Stjómendur stærstu sjúkra-
húsanna réðu yfir miklum fjármun-
um og tækju ákvarðanir um nýtingu
þeirra, ekki síst er vörðuðu forgangs-
röðun verkefna á starfssviði þeirra.
„Ráðherra kemur ekki að ákvörðun-
um um slíka forgangsröðun nema í
undantekningartilvikum en ég hef oft
ítrekað að mér finnst mikilvægt að
geðsviðin hafi ákveðinn forgang og
það hafa þau haft í minni tíð sem ráð-
herra.“
ítrekaði Ingibjörg að staðreyndin
væri sú að ekki stæði til að draga úr
þjónustu við sjúklinga. Sagði hún það
jafnframt öfugmæli að halda því fram
í tíma og ótíma að verið sé að skera
niður á sjúkrahúsunum í Reykjavík,
það væri ekki niðurskurður þegar
framlögin væm aukin úr 14 milljörð-
um í 19 milljarða á þremm- fjárlaga-
árum.
Við umræðuna í gær sagði Mar-
grét Sverrisdóttir, varaþingmaðm-
Fijálslynda flokksins, m.a. að hag-
ræðing sú sem ætti að nást með sam-
einingu geðsviða stóru sjúkrahús-
anna tveggja þýddi í raun að verið
væri að leggja geðdeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur niður. Vonaði hún þó að
yfirlýsing heilbrigðisráðherra þýddi
að ekki yrði af niðurskurði. Þuríður
Backman, þingmaður vinstri-
grænna, sagði umræðuna hafa verið
gagnlega ef ekki til annars en fá fram
yfirlýsingu ráðherra. Kolbrún Hall-
dórsdóttir, vinstri-grænum, sagði
hins vegar að þótt ráðherra hefði full-
yrt að ekki ætti að minnka þjónustu
við geðsjúka ætti í öllu falli ekki að
auka hana.
Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins, benti á að sameining
sjúkrahúsanna leiddi til skipulags-
breytinga sem líklega myndu varða
allar deildir þeirra. Aftur á móti hefði
sannleikurinn verið skrumskældur í
umræðu um hvemig auka mætti hag-
kvæmni en tryggja jafnframt þjón-
ustu við sjúklinga. Hið rétta væri
nefnilega að á undanfömum árum
hefði hagur geðsjúkra verið bættur
með margvíslegum hætti. í sama
streng tók Katrín Fjeldsted, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, og benti á
að fjöldi sjúkrarúma væri ekki endi-
lega mælikvarði á magn og gæði
þjónustunnar.
Hjálmar Ámason, þingmaður
Framsóknarflokksins, sagði í sinni
ræðu að málflutningur Astu Ragn-
heiðar væri einfaldlega ekki sæm-
andi. Þingmaðurinn gengi fram með
upphrópunum en kysi að láta sig
engu varða faglegar upplýsingar um
stöðu heilbrigðismála, sem og upplýs-
ingar um hvemig staðið væri að
ákvörðunum í þessum málum. Sigríð-
ur Jóhannesdóttir, þingmaður Sam-
fylkingar, sagði niðurskurð hins veg-
ar koma verst niður á þeim sem
veikastir væm fyrir og Þómnn Svein-
bjamardóttir, Samfylkingu, lagði
áherslu á að heilbrigðisráðherra yrði
að sjá til þess að innanhússpólitík
stóm sjúkrahúsanna leiddi ekki til
þess að notkun hátækni við lækning-
ar yrði aukin á kostnað þjónustu við
geðsjúka. Sagði hún ráðherra ekki
geta vikist undan því að taka pólitíska
ábyrgð á forgangsröðun í heilbrigðis-
kerfinu.
í lokaorðum sínum sagði Ásta Ragn-
heiður að það væri ánægjuefni að ráð-
herra skyldi lýsa því yfir að þjónusta
við geðsjúka myndi ekki dragast sam-
an og sagðist hún skilja þá yfirlýsingu
þannig að ráðherra myndi ekki ljá nið-
urskurðartiUögum stuðning. Nú væri
hins vegar að sjá hvort staðið yrði við
yfirlýsingamar. Ingibjörg Pálmadóttir
ítrekaði hins vegar að staðreyndin væri
sú að undanfarið hefði þjónusta við geð-
sjúka verið bætt Svo virtist hins vegar
að það sem væri gott og færi batnandi
væri í huga Ástu Ragnheiðar vont og
færi versnandi. „Við slíku hugarfari
duga engin rök,“ sagði ráðherrann.
Staða þolenda
kynferðisaf-
brota verði bætt
Morgunblaðið/Ásdís
Jóhanna Sigurðardóttir leggur til að skipuð verði nefnd sérfræðinga til
að kanna og gera tillögur um bætta stöðu þolenda kynferðisafbrota.
|Alþingi
FYRIRSPURNATÍMI er á Al-
þingi í dag eins og venjulega á mið-
vikudögum. Þessi mál em á dagskrá
fundarins, sem hefst kl. 13.30:
1. Reglur um sölu áfengis, frh. fyrri
umræðu (atkvgr.)
2. Bætt staða þolenda kynferðisaf-
brota, frh. fyrri umræðu (atkvgr.)
3. Réttarstaða örorku- og ellilífeyr-
isþega, frh. fyrri umræðu (atkvgr.)
4. Aukin fjölbreytni atvinnulífs í
dreifbýli, framhald fyrri umræðu
(atkvgr.)
5. Fjarvinnslustörf í Ólafsfirði, fsp.
til forsætisráðherra.
6. Notkun íslenska skjaldarmerkis-
ins, fsp. til forsætisráðherra.
7. Notkun þjóðfánans, fsp. til for-
sætisráðherra.
8. Ferskt vatn í Flugstöð Leifs Eir-
íkssonar, fsp. til utanrfldsráðherra.
9. Aðgerðir NATO í Júgóslavíu
1999, fsp. til utanríkisráðherra.
10. Fjármögnunarkerfi sjúkra-
húsa, fsp. til heilbrigðisráðherra.
11. Rekstur nýs hjúkmnarheimilis
við Sóltún, fsp. til heilbrigðisráðherra.
12. Póstburður, fsp. til samgöngu-
ráðherra.
13.Skattlagning slysabóta, fsp. til
íj ármálaráðherra.
14. Skattlagning á umferð, fsp. til
fjármálaráðherra.
15. Sala Sementsverksmiðjunnar
hf., fsp. til iðnaðarráðherra.
16. Þriggja fasa rafmagn, fsp. til
iðnaðarráðherra.
17. Olíuleit við ísland, fsp. til iðnað-
arráðherra.
JÓHANNA Sigurðardóttir, þing-
maður Samfylkingar, mælti á Al-
þingi í gær fyrir tillögu til þings-
ályktunar um bætta stöðu þolenda
kynferðisafbrota en tillagan gerir
ráð fyrir að dómsmálaráðherra
verði falið að skipa nefnd sérfræð-
inga sem hafi það verkefni að
kanna og gera tillögur um bætta
stöðu þolenda kynferðisafbrota,
einkum barna og unglinga.
í framsöguræðu sinni sagði Jó-
hanna m.a. að kynferðisafbrot gegn
börnum þjóðarinnar væru einn al-
varlegasti glæpur sem hægt væri
að fremja, enda væri ljóst að hann
gæti eyðilagt líf þolenda. Jafnframt
kemur fram í greinargerð með til-
lögunni að ljóst sé að alvarleg
brotalöm sé í réttarfarinu varðandi
kynferðisafbrotamál sem nauðsyn-
lega þurfi að gera úttekt á og end-
urskoða. Sömuleiðis sé brýn þörf á
því að bæta stuðning og meðferð-
arúrræði fyrir fórnarlömb kynferð-
isafbrota.
I greinargerðinni segir einnig að
tryggja verði aðbúnað og aðstöðu
þeirra sem leita réttar síns vegna
kynferðisbrota, enda sé ljóst að hér
sé um mjög vandmeðfarin tilfinn-
ingamál að ræða og opinberum að-
ilum beri skylda til að auðvelda
þolendum kæru- og dómsferilinn
eins og kostur er. Gerði Jóhanna í
gær að umtalsefni í þessu sam-
bandi hugmyndir um að leggja
Barnahús niður - en í Barnahúsi
hafa yfirheyrslur á börnum vegna
kynferðisafbrotamála farið fram -
en fréttir þar að lútandi voru flutt-
ar í fjölmiðlum skömmu fyrir jól.
Kolbrún Halldórsdóttir, þing-
maður Vinstrihreyfmgarinnar -
græns framboðs, lýsti yfir fullum
stuðningi við tillöguna í umræðum í
gær og sagði það þyngra en tárum
tæki hversu illa dómsvaldinu hefði
tekist að taka á kynferðisafbrotum
gegn börnum. Lagði hún einnig
áherslu á að bjarga yrði Barnahús-
inu, en Kolbrún sagði aðförina að
því ekki hafa verið dómsmálaráð-
herra til sóma. Stuðningi við tillögu
Jóhönnu lýstu einnig þær Rann-
veig Guðmundsdóttir, Samfylkingu,
Þuríður Backman, Vinstri-græn-
um, og Margrét Sverrisdóttir,
Frjálslynda flokknum.
I andsvari við ræðu Kolbrúnar
vakti Ásta Möller, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, hins vegar at-
hygli á því að skýrt hefði komið
fram í máli Sólveigar Pétursdóttur
dómsmálaráðherra í umræðum fyr-
ir jól að þótt koma ætti upp að-
stöðu í dómshúsum væru ekki uppi
áform um að leggja niður Barna-
hús. Hræðsla þar að lútandi ætti
ekki við rök að styðjast.