Morgunblaðið - 23.02.2000, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 23.02.2000, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000 11 FRÉTTIR Hugsanleg sala á léttum vínum og bjór í matvöruverslunum rædd á Alþingi Þingflokkar klofnir í afstöðu sinni til málsins í UMRÆÐUM sem fram fóru á Al- þingi í gær um þingsályktunartil- lögu sem felur í sér að unnið verði í þá átt að leyfð verði sala á léttum vínum og bjór í matvöruverslunum á íslandi kom m.a. berlega í ljós að þingflokkar Samfylkingar og Sjálf- stæðisflokks eru klofnir í afstöðu sinni í málinu. Þingmenn Vinstri- hreyfingarinnar - græns framboðs lýstu sig andsnúna hugmyndunum en framsóknarmenn og frjálslyndir tóku ekki þátt í umræðunum í gær. Þingsályktunartillagan er lögð fram af fimm þingmönnum Sam- fylkingar en hún felur í sér að Al- þingi álykti að fela fjármálaráð- herra að skipa nefnd er vinni að endurskoðun reglna um sölu áfengis svo að heimila megi sölu á léttum vínum og bjór í matvöruverslunum. Þá athugi nefndin hvort unnt sé að hafa áhrif á neysluvenjur Islendinga með breyttri verðlagningu á áfengi og aðgengi að léttum vínum og bjór. Fyrsti flutningsmaður tillögunn- ar, Lúðvík Bergvinsson, sagði í framsögu sinni í gær að eðlilegt væri að menn veltu fyrir sér hvort ekki væri tímabært að endurskoða stefnu í áfengismálum. „Það er ekk- ert launungarmál," sagði Lúðvík, „að hér er verið að leggja til að skoð- að verði gaumgæfilega hvort rétt sé að auka aðgengi að áfengi frá því sem nú er, einkum að því er varðar létt vín og bjór, auk þess sem lagt er til að verðstefna sú sem hér hefur verið rekin um langt skeið verði endurskoðuð. Það er heldur ekkert launungarmál að við teljum það hollara íslenskri þjóð að alast upp við það að áfengi sé eðlilegur hluti tilverunnar og koma fram við það sem slíkt í stað þess tvískinnungs- háttar sem hefur verið íslenskri þjóð leiðarljós allt frá því að bann- lögin voru numin úr gildi.“ Bætti Lúðvík því m.a. við að það væri trú þeirra, sem að þessu máli stæðu, að íslenskri þjóð væri ekki síður treystandi en öðrum Evrópu- þjóðum til að umgangast áfengi og hafa svipað aðgengi og aðrar þjóðir sem íslendingar vildu bera sig sam- an við. Það væri einnig trú flutn- ingsmanna að öðrum en ríkinu væri fullkomlega treystandi til að hafa vöruna á boðstólum. Flutningsmenn tillögunnar - sem auk Lúðvíks eru þau Bryndís Hlöð- versdóttir, Þórunn Sveinbjarnar- dóttir, Svanfríður Jónasdóttir og Björgvin G. Sigurðsson - eru öll þingmenn eða varaþingmenn Sam- fylkingar. Fram kom hins vegar í máli Rannveigar Guðmundsdóttur, þingflokksformanns Samfylkingar, að tillagan væri ekki lögð fram af þingflokki Samfylkingar og kvaðst hún sjálf ekki hlynnt tillögunni. Hið sama gerðu Sigríður Jóhannesdótt- ir, Karl V. Matthíasson og Kristján L. Möller, sem sitja á þingi fyrir Samfylkingu, þótt Kristján tæki fram að hann teldi ekki útilokað að afstaða hans myndi breytast á næstu 5-10 árum. Málið ekki flokkspólitískt Ljóst var annars af umræðunni í gær að málið er ekki flokkspólitískt. Allir þingmenn vinstri-grænna, sem þátt tóku í umræðunni, lýstu sig að vísu mótfallna tillögunni og fór Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, hörðum orðum um hana. Lýsti hann því yfir að hann myndi beita sér gegn tillögunni ef hún kæmi til afgreiðslu Alþingis, og harmaði hann að Samfylkingin skyldi með þessum hætti leggjast á sveif með íhaldsöflunum í landinu, Útsala Allar vetrarvörur á útsölu • síðustu dagar Schwinn spinning fatnaður og skór minnst —, _ 60% 1£TTSRM>DI!S minnst afsláttur 60% afsláttur Barnahúfur, -vettlingar, -treflar, -eyrnabönd minnst 50% afsláttur Verðdæmi Verð Útsöluverð Sprengiverð Bomsur 12.900 9.995 6.450 Bama fleece 2.990 1.950 995 Russell fleecepeysur 6.990 2.495 1.995 Russell fleecebuxur 4.990 2.495 1.995 Barnaúlpur 8.900 4.450 1.995 Columbia úlpur 9.900 7.995 4.950 HREYSTI ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL --Skeifunni 19 - S. 568 1717 — Brrr»«oDi!$ CONVERT Columbia Sportswear Company* fS RUSSELL sem leynt og ljóst hefðu unnið að því að leggja ÁTVR í rúst svo draumur hægrimanna um að fá að höndla áfengisgróðann mætti rætast. Hjálmar Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, komst þannig að orði að í þessu máli væri hann í sama liði og íhaldsmaðurinn Stein- grímur J. Sigfússon. Sagðist hann ekki skilja í hvaða heimi flutnings- menn lifðu og taldi hann mega berj- ast fyrir ýmsum öðrum og mikil- vægari réttindum en þeim að auka aðgengi að áfengi, enda væri víst að aukið aðgengi yki þann vanda sem hlytist af áfengisneyslu. I sama streng tók Árni Johnsen en hann gekk svo langt að fullyrða að áfengi Morgunblaðið/Ásdís Rannveig Guðmundsdóttir benti á að tillagan um léttvíns- og bjórsölu í matvöruverslun- um væri ekki frá þingflokki Samfýlkingar, Árni Johnsen sagði áfengi og tóbak vera verstu óvini landsins en Guðmundur Hallvarðsson kvað eðlilegt að ræða tillöguna. og tóbak væru versti óvinur lands- ins. Sagði hann að flutningsmönnum hefði orðið tíðrætt um „vínmenningu" en staðreyndin væri sú að áfengi íylgdi ekki menn- ing heldur ómenning. Taldi hann nóg áfengi flæða manna á meðal á íslandi þótt ekki væri því komið fyr- ir í matvöruverslunum. Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins tóku tillögunni hins vegar öllu betur og m.a. sagði Guðmundur Hallvarðsson að honum fyndist full- komlega eðlilegt að ræða þessi mál þó að hann teldi reyndar að tillagan sem slík væri illa unnin. Pétur H. Blöndal lýsti yflr stuðningi við til- löguna og sagði hana þó lítið skref í rétta átt og Ásta Möller sagðist fyr- ir sitt leyti geta fallist á að nefnd væri skipuð, eins og kveðið væri á um í þingsályktunartillögunni, en að hún væri ekki hlynnt því að áfengi yrði selt í matvöruverslunum. Skynsamlegra væri að þessi sala færi fram í sérverslunum og að um hana giltu sérstakar reglur. Hins vegar teldi hún einkarétt ríkisins á áfengi tímaskekkju, selja ætti ÁTVR einkaaðilum eða leggja niður.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.