Morgunblaðið - 23.02.2000, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stúdentaráðskosningar fara
fram í dag
Hækkun
skólagjalda
áhyggjuefni
NEMENDUR í Háskóla íslands
kjósa í dag til stúdentaráðs og
stendur valið, sem fyrr, á milli
Röskvu, samtaka félagshyggju-
fólks og Vöku, félags lýðræðissinn-
aðra stúdenta, en síðastliðin 9 ár
hefur Röskva farið með sigur af
hólmi. I hádeginu í gær var síðasti
framboðsfundur fylkinganna hald-
inn í sal 4 í Háskólabíói, en um 150
manns sóttu fundinn. Þar komu
fram mismunandi áherslur fylking-
anna í ýmsum málefnum.
Inga Lind Karlsdóttir, sem skip-
ar 1. sæti á kosningalista Vöku,
lagði í ræðu sinni í gær megin-
áhersluna á kennslumál, námsnet
og nýtt líf við Háskólann. Hún
sagði stöðnun ríkja í stúdentaráði
og vill hún að stúdentar taki frum-
kvæði í því að gæða Háskólann
nýju lífi.
„Gerum Háskólann að eftirsókn-
arverðum dvalarstað en ekki nauð-
synlegum áningarstað á leið okkar
til æðri menntunar,“ sagði Inga
Lind.
Inga Lind sagði að varðandi
kennslumál legði Vaka til að gerð-
ar yrðu kennslukannanir tvisvar á
misseri. Þannig myndu stúdentar
veita kennurum sínum jákvætt og
uppbyggilegt aðhald, sem þeir
gætu síðan nýtt til að bæta sig.
Að sögn Ingu Lindar er mjög
mikilvægt að koma á og þróa svo-
kallað námsnet, þar sem hvert
námskeið í Háskólanum hefði
heimasíðu og nemendur gætu nálg-
ast upplýsingar um viðkomandi
námskeið, glósur, gömul próf o.fl.
Mismunandi skoðanir
á málefnum LIN
Þorvarður Tjörvi Ólafsson, sem
skipar 1. sæti á kosningalista
Röskvu, sagði í ræðu sinni að
Röskva hefði ávallt lagt áherslu á
jafnrétti til náms og því væri sú
þróun, sem nú ætti sér stað, visst
áhvggjuefni og vísaði hann til fyrir-
ætlana Háskólans um að innheimta
hærri skólagjöld fyrir MBA-nám.
Þorvarður lagði einnig nokkra
áherslu á aukið hlutverk Netsins
við kennslu og mikilvægi þess að
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Um 150 manns sóttu síðasta framboðsfundinn fyrir stúdentaráðs-
kosningarnar, en hann var haldinn í Háskólabíói í gær.
hlutur rannsókna við Háskólann
verði efldur.
„I þessum málum er það mikil-
vægt að fylkingarnar leggist á eitt
og hrindi þessum málum í fram-
kvæmd,“ sagði Þorvarður Tjörvi,
en bætti því við að að öðru leyti
væri grundvallarmunur á stefnu-
málum fylkinganna.
„Við höfum staðið dyggan vörð
um Lánasjóð íslenskra náms-
manna til að tryggja það að allir
geti sótt sér menntun án tillits til
efnahags," sagði Þoi’varður Tjörvi.
Fylkingarnar, þ.e. Röskva og
Vaka, hafa mismunandi skoðanir á
Lánasjóði íslenskra námsmanna.
Báðar vilja þær hækka frítekju-
markið, sem nú er 250.000 krónur,
en Vaka leggur síðan megináhersl-
una á að lækka skerðingarhlutfall-
ið, sem nú er 50% af tekjum um-
fram 250.000, en Röskva vill hækka
grunnframfærsluna.
Að framboðsræðunum loknum
svöruðu fulltrúar fylkinganna fyr-
irspurnum úr salnum og voru þeir
m.a. spurðir að því hvort fylking-
arnar hefðu nokkurn tímann þegið
styrki frá stjórnmálaflokkunum.
Þórhndur Kjartansson, sem sæti á
í stúdentaráði fyrir hönd Vöku,
sagði svo ekki vera og Þorvarður
Tjörvi neitaði því einnig.
Séra Gunn-
ari verði
fundið ann-
að starf
ÁFRÝJUNARNEFND hefur ákveð-
ið að leggja til að biskup íslands skuli
flytja séra Gunnai' Bjömsson, sókn-
arprest í Holtsprestakalii í Önundar-
firði, úr því embætti og í annað starf
innan þjóðkirkjunnar. Einnig hefur
nefndin fallist á að leggja til að honum
skuli veitt áminning.
Deilur komu upp á síðasta árí milli
séra Gunnars og sóknarbama og
kærðu nokkur sóknarbörn hann
vegna embættisfærslu. Var sam-
þykkt á almennum safnaðarfundi í
nóvember að kirkjustjórnin skyldi
veita presjinum tímabundið leyfi frá
störfum. Úrskurðamefnd beindi mál-
inu til biskups og málsaðiiar, þ.e.
sóknarbömin og sóknarpresturinn,
vísuðu því til áfrýjunamefndar. Jafn-
framt greip Karl Sigurbjömsson
biskup til þess ráðs í byrjun desem-
ber að fiytja séra Gunnar í annað
starf tímabundið. Hefur hann gegnt
embætti sérþjónustuprests og haft
ýmis sérverkefni með höndum en set-
ið á prestssetrinu að Holti. Hefur
helgihald á meðan verið á ábyrgð séra
Agnesar Sigurðardóttur, prófasts
Isafjarðarprófastsdæmis. Þessi ráð-
stöfun skyldi standa í þrjá mánuði eða
þar til niðurstaða áfrýjunamefndai'
lægi fyrir. Hún barst biskupsstofu í
gær en formaður nefndarinnar er
Jónatan Þórmundsson prófessor.
Niðurstaða hennar er sú að lagt er
til að séra Gunnar verði fluttur úr
embætti sóknarprests í Holtspresta-
kalli í annað starf á vegum þjóðldrkj-
unnar.
Séra Gunnar hafði ekki séð úr-
skurðinn og vildi því ekki tjá sig.
TJPPKaUP
Uppkaup verðtiyggðra
spaiiskírteinameð tilboðs-
fyrirkomulagi s?3. febrúar 3000
Flokkur
RS04 - 0410/K
RS10 - 0115/KI
Gjalddagi Lánstími
io.apríl:?oo4 4,íár
15. janúaraoio 9,9 ár
Lánasýsla ríkisins óskar eftir að kaupa verðtryggð spariskírteini í framangreindum
flokki með tilboðsfyrirkomulagi. Öllum er heimilt að gera sölutilboð að því tilskildu
að lágmarksfjárhæð tilboðsins sé ekki lægri en 10 milljónir króna að söluverði.
Heildarfjárhæð útboðsins er áætluð á bilinu 3oo - 1.000 milljónirkrónaað söluvirði.
Sölutilboð þurfa að hafa borist Lánasýslu rikisins fyrir kl. 14:00 i dag, miðvikudaginn
?3. febrúar.
Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar era veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu
6,ísíma56?4070.
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 4070 • Fax: 562 6068
Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: utbod@lanasysla.is
íslenskt fyrirtæki framleiddi 3000 m2
veltiskilti í Þúsaldarhvelfínguna
Alstærsta skilti
frá Nota bene
UNDIR Þúsaldarhvelfingunni í
London er að finna þrjú þúsund fer-
metra flettiskilti, sem skilur að svæði
náms og starfs. Skilti þetta er íslensk
framleiðsla úr smiðju fyrirtækisins
Nota Bene og sagði Víðir Pétursson,
kynningarstjóri fyrirtækisins, að
þetta væri rúmlega tífalt stærra en
nokkurt skilti sem fyrirtækið hefði
áður framleitt.
Víðir sagði að Nota Bene hefði
verið í samstarfi við sænskt velti-
skiltafyrirtæki, Prisma Worldsign,
frá árinu 1996 og hefði framleiðslan
fyrir það farið stigvaxandi.
„Þessi aðili er einn af stærstu
veltiskiltaframleiðendum í heimi,“
sagði Víðir. „Þeir fengu samning við
Þúsaldarhvelfinguna um þetta gríð-
arstóra veltiskilti og það lá kannski
beinast við að þeir leituðu til okkar
fyrst þar sem við framleiðum mjög
mikið fyrir þá. Eitt leiddi af öðru og
þetta er alstærsta skilti sem við höf-
um nokkurn tíma unnið.“
Víðir sagði að skiltið myndaði tvo
útveggi og inngangsvegg, sem sam-
tals væru þrjú þúsund fermetrar.
Efa um fslenska
fagmennsku eytt
Á ýmsu gekk á meðan Nota Bene
var að vinna verkefnið og um tíma
munaði minnstu að öðram aðilja tæk-
ist að ná því til sín.
„Menn voru kannski efins um að
fyrirtæki uppi á íslandi gæti leyst
þessa hluti,“ sagði hann. „En við
sýndum með prufu að við væram
færir um að leysa þetta.“
Að sögn Víðis komu hins vegar
upp í millitíðinni tæknileg vandamál
vegna þess að þegar verið væri að
stækka ljósmyndir mörgþúsundfalt
glötuðust ókveðin gæði.
„Þeir áttu erfitt með að skilja að
það vantaði hreinlega upplýsingar til
að prenta inn í ljósmyndina," sagði
hann. „Á meðan komu tveir erlendir
prentaðiljar inn í verkið og við vorum
að missa þetta þegar við ákváðum að
fara út og sýna þeim svart á hvítu
hvað væri að gerast og eftir það var
allt í lagi. Þetta sýnir að tæknistigið
hér á íslandi er þó nokkuð hátt og öll
tæknikunnáttan sömuleiðis. í krafti
þess gátum við farið út til London og
tryggt okkur verkið. Það var að
mörgu leyti mjög gaman og staðfesti
það að við erum mjög framarlega
hér.“
Ekkert hefur verið rætt um að
setja upp nýjar myndir á skiltunum í
Þúsaldarhöllinni. Hún var reist með
því fororði að hún ætti að standa í tvö
ár og sagði Víðir að skiltið hefði verið
framleitt með því fororði að það ætti
að vera hægt að eyða því.
„Það veit í raun enginn hvað tekur
við hjá Þúsaldarhöllinni, en maður á
ekki von á því að hún verði rifin eftir
tvö ár,“ sagði hann. „Maður á miklu
frekar von á því að það verði eins og
með Eiffel-turninn og hún standi
áfram. Klárlega koma þeir til með að
breyta eftir nokkur ár og vilji þeir
breyta til geta þeir leitað til okkar, en
myndirnar eiga að duga í nokkur ár.“
Með skilti í Líbýu
og Burkina Faso
Að sögn Víðis hefur Nota Bene
unnið verkefni fyrir Prisma Worlds-
ign fyrir svokallaða jaðannarkaði.
Nefndi hann sem dæmi að skilti frá
fyrirtækinu hefðu verið sett upp í
Rússlandi, Líbýu, Nígeríu, Burkina
Faso og Argentínu.
„Þetta er í rauninni aukageta,"
sagði Víðir um erlendu verkefnin.