Morgunblaðið - 23.02.2000, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000 1 3
FRÉTTIR
Framhliðin
glerjuð
VERIÐ er að gleija framhlið húss-
ins við Lækjargötu, þar sem Baug-
ur mun opna nýja verslun á tveimur
neðstu hæðunum í næsta mánuði.
Að sögn Pálma Kristinssonar,
framkvæmdastjóra Smáralindar,
hafa framkvæmdir gengið að ósk-
um eftir tafir sem urðu í fyrstu.
Gert er ráð fyrir að lokið verði að
mestu við þann hluta hússins sem
snýr að Lækjargötu í næstu viku.
„Jarðvinna og vinna við kjallara, en
þar er gólfið undir sjávarmáli, var
tafsöm en þegar komið var upp úr
kjallaranum fór allt að ganga vel,“
sagði Pálmi. Tvær efstu hæðir
hússins verða teknar í notkun síðar.
Morgunblaðið/Jðn Stefánsson
Ekki liggur fyrir hvað
ríkið vill styrkja sauð-
fj árframleiðsluna
EKKI skýrðist á fundi samninga-
nefnda íikisvaldsins og bænda í gær
hvort ríkið væri tilbúið til að auka
stuðning við sauðfjárframleiðsluna
eins og Mtrúar bænda hafa farið
fram á.
Samninganefndir bænda og rikis-
ins gengu frá drögum að nýjum sjö
ára samningi um sauðfjárframleiðsl-
una fyrir þremur vikum, að öðru leyti
en því að ekki lá fyrir hvað ríkisvaldið
væri tilbúið að veita sauðfjárbændum
mikinn stuðning á samningstímabil-
inu. Samkvæmt núgildandi samningi
fá bændur í beinar greiðslur um 1.480
milljónir kr. á ári á verðlagi ársins
1995. Samninganefnd ríkisins hafði
umboð til að bjóða hækkun í takt við
vísitölu neysluverðs, eða um 1.650
milljónir kr. á ári. Bændur telja
sanngjamara að miða við þróun launa
og hafa í samræmi við það óskað eftir
að fá um 1.900 milljónir árlega í
beingreiðslur til sauðfjárbænda.
Málið hefúr síðan verið til umíjöll-
unar hjá samninganefnd ríkisins og
ráðherrum ríkisstjómarinnar. Niður-
staða lá ekki fyrir á fundi samninga-
nefndanna í gær, að sögn Ara Teits-
sonar, formanns Bændasamtaka ís-
lands. Hann segir að það hafi komið
fram á fundinum að umfjöllun væri
ekki lokið af hálfu ríkisvaldsins en
henni yrði haldið áfram. Ari segir að
það valdi vonbrigðum að niðurstaða
skuli ekki fást. Rætt er um að boða til
nýs samningafundar öðmm hvomm
megin við næstu helgi og vonast Ari
eftir skýrari niðurstöðu af þeim fúndi.
Foreldrar ou börnl
Mætum saman á ráðstefnuna
Fjölskyldan og Internetið
Ráðstefnan verður haldin á vegum Heimilis og skóla og Símans-lnternet á
Hótel Loftleiðum laugardaginn 26. febrúar frá kl. 10 til 14.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir hádegi föstudaginn 25. febrúar í síma
562 7475, á faxi 552 2721 eða á netfangið heimskol@heimskol.is
10:00 Jónína Bjartmarz formaður Heimilis og skóla setur ráðstefnuna.
10:10 Ólafur Stephensen forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála Símans: Netið og fjölskyldulífframtíðarinnar.
10:30 Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur: Unglingurinn og netnotkun. Þöifá árvekni foreldra.
11:00 Guðmann Bragi BirgissonforstöðumaðurSímans-lnternet: Óæskilegt efni á Internetinu og síur.
11:30 Hádegishlé, léttarveitingarí boði Símans. Sýning á tölvum á vegum ACO.
12:20 Sigrún Gunnarsdóttir verkefnastjóri hjá rannsóknardeild Símans: Verkefni á vegum Eurescom: Félagsleg áhrif upplýsingatækninnar á skóla, heimili og samfélagið.
12:40 Hafsteinn Karlsson skólastjóri: Samskiptifjölskyldna og skóla á Netinu.
13:00 Pallborðsumræður.
SÍMINNintérneT
LANDSSAMTÖKIN
iéheim|5m
'ólí
AÐALFUNDUR 2000
Aðalfundur Skeljungs hf. verður haldinn þriðju-
daginn 14. mars 2000 i Gullteigi á Grand Hótel
Reykjavik, Sigtúni 38, og hefst fundurinn kl. 15.00
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 17. gr.
samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, tillögur og reikningar félagsins liggja
frammi á aðalskrifstofu félagsins, hluthöfum til
sýnis, viku fyrir aðalfund.
Aögöngumiðar og fundargögn eru afhent á
aðalskrifstofu félagsins, að Suðurlandsbraut 4,
5. hæð, frá og meö hádegi 6. mars til hádegis á
fundardag, en eftir það á fundarstað.
Að loknum aöalfundarstörfum verður móttaka
fyrir hluthafa í Setrinu á sama stað.
www.shell.is
Benidorm
með Heimsferðum
frá
kr. 39.855
alla þriðjudaga í sumar
■ bÓKUNM^'
1000
Bókaðu strax
ogtryggðuþér
J0.000 kr.
40.000 kr
tií Benidorm
Heimsferðir hafa aldrei fyrr boðið
jafn hagstæð kjör á ferðum til
Benidorm eins og í sumar. Með
beinu vikulegu flugi og úrvals
gististöðum í hjarta Benidorm hefur
úrvalið aldrei verið betra né ferðamátinn þægilegri til þessa
vinsæla áfangastaðar. Heimsferðir kynna nú annað árið í röð,
íslendingahótelið Picasso, þar sem hundruðir íslendinga eyddu
sumarleyfinu í fyrra. Að auki getur þú valið um hótel á bæði
Levante- og Poniente-ströndinni, eða góðar loftkældar íbúðir í
gamla bænum, við ströndina. Fararstjórar Heimsferða taka á
móti þér á flugvellinum og á meðan á dvölinni stendur eru í
boði margar spennandi kynnisferðir ásamt hinum vinsæla
bamaklúbbi Heimsferða.
Aldrei lægra verð
Verð kr.
27.155
Flugsæti til Alicante, ef bókað fyrir
15. mars eða fyrstu 300 sætin,
Félag húseigenda á Spáni.
Verð kr.
39.855
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára,
Picasso, 16. maf, 2 vikur með
40.000 kr. afslætti.
Beint flug alla
þriðjudaga
- engin millilending-
Heimsferðir bjóða nú í sumar
beint flug án millilendingar,
alla þriðjudaga í sumar og
frábæran brottfarartíma. Farið
frá Keflavík kl. 7. að morgni,
og þú ert kominn í friið kl. 2 í
eftirmiðdaginn á Benidorm.
Verð kr.
49.990
M.v. 2 í íbúð, 2 vikur, Picasso, ef
bókað fyrir 15. mars, 20. júnf
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is