Morgunblaðið - 23.02.2000, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Kári Einarsson og Einar Sverrisson, sig-urvegarar í fyrstu Ilönnunar-
keppni grunnskóla.
Morgunblaðið/Jim Smart
Verðlaunabfllinn BMW Z-19.
„Erfið-
ari
keppni
en við
héldum“
FYRSTU Hönnunarkeppni grunn-
skóla lauk í gærkvöldi í Réttar-
holtsskóla, þar sem lið frá Réttar-
holtsskóla og Hagaskóla kepptu.
Sigurvegarar kvöldsins voru fé-
lagarnir Einar Sverrisson og Kári
Einarsson, báðir nemendur í 8.
Þ.J. í Réttarhoitsskóla, með verð-
launabflinn BMW Z-19 eins og
þeir kalla heillagripinn sinn. I
verðlaun fengu þeir prentara og
25 þúsund króna úttekt hjá Máli
og menningu, auk farandbikars
og bikars til eignar.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífs-
ins lagði til fyrstu og önnur verð-
laun og Opin kerfi prentara, sem
einnig voru veittir keppanda fyrir
frumleika.
BMW-inn átti, eins og aðrir bfl-
ar í keppninni, að leysa þá þraut
að aka niður fláa af 60 cm háum
palli, slá í tennisbolta sem stóð á
bretti yfír brautinni, grípa bolt-
ann og aka upp fláa upp á 40 cm
háan pall.
„BMW Z-19 er ekki til og þess
vegna ætlum við að fara með
smíðina upp í B&L og selja hug-
myndina," sögðu Einar og Kári
sigurreifír í gærkvöldi þegar úr-
slitin höfðu verið kunngjörð.
Teikningum skilað
inn fyrir jól
Fyrirmyndin að hönnunar-
keppninni er svipuð keppni hjá
háskólastúdentum og á sér nokk-
uð langan aðdraganda. Skráningu
í keppnina lauk fyrir jól og urðu
nemendur að skila inn tcikningu
að tækjum sínum áður en farið
var að vinna úr hugmyndum.
Mikill áhugi sýndi sig meðal nem-
enda og um tuttugu nemendur
skráðu sig í keppnina. Þegar kom
að smíði keppnistækjanna heltust
hins vegar nokkrir úr lestinni uns
níu keppendur voru eftir með
fullbúna bfla. Þeir leiddu siðan
saman hesta sfna í gærkvöldi og
gat þar að líta ýmsar útfærslur.
Frumleikaverðlaun fengu þeir
Höskuldur Pétur Halldórsson og
Björn Guðmundsson í 9. bekk H.J.
í Réttarholtsskóla og önnur verð-
laun fékk Ólafur Daði Bjarnason í
8. bekk J.P.Z. í Réttarholtsskóla.
Sigurvegararnir Einar og Kári
sögðust hafa smíðað verðlaunabíl-
inn í bflskúr hjá bróður Einars,
sem er blikksmiður.
„Við tókum járn og ýmsan ann-
an efnivið og fengum að rafsjóða
í bflskúrnum með aðstoð bróður
míns, sem gætti þess að við gerð-
um enga vitleysu,“ útskýrði Ein-
ar. Kári bætti því við að smíði
bflsins hefði tekið um þrjár vikur
en fjöldi vinnustunda sem fóru í
bílinn er þó á huldu. Þeir voru þó
sammála um að þær hefðu verið
ófáar.
„Þátttaka í þessari keppni var
miklu erfíðari en við héldum,"
viðurkenndu þeir og minntu á af-
föllin sem urðu meðal þeirra sem
skráðu sig til keppni.
BMW-inn náði nánast að leysa
þrautina óaðfinnanlega en aðeins
herslumuninn vantaði upp á að
hann kæmist upp seinni brekkuna
með tennisboltann innanborðs.
„Fyrst var bíllinn eingöngu
búinn rúðuþurrkumótor auk
dekkjanna, en járn, sem sett var
ofan á hann síðar, virðist hafa
þyngt hann þannig að hann komst
ekki alveg upp,“ sögðu þeir.
Frændi Einars hefur keppt
þrisvar í svipaðri keppni háskól-
astúdenta og hefur Einar horft til
frammistöðu frænda síns og vafa-
lítið lært sitthvað af honum í
gegnum tíðina. Kári hefur hins
vegar fylgst með sömu keppni í
Nýjustu tækni og vísindum í
Sjónvarpinu. „Mig hefur alltaf
langað að taka þátt í svona
keppni og ætla að fá mömmu til
að skrá sig í næstu keppni í há-
skólanum, því hún er nemandi
þar, og ætla að smíða bfl fyrir
hana með aðstoð bróður míns,“
sagði Einar.
Þessi fyrsta hönnunarkeppni
sinnar tegundar á grunnskóla-
stiginu, sem fékk styrk frá
menntamálaráðuneytinu, er hug-
mynd Jóns Péturs Ziemsens,
kennara við Réttarholtsskóla, og
Brynjars Ólafssonar, eðlis-
fræðikennara við Hagaskóla.
Hvatt til frumkvæðis
nemenda
Brynjar sagði að markmið
keppninnar væri að hvetja nem-
endur til að sýna frumkvæði og
skapa ákveðinn hlut frá grunni
og vel hefði gengið að virkja
nemendurna til þátttöku, þótt
margir hefðu hætt við á síðari
stigum.
„Þessi keppni er í takt við nýja
aðalnámskrá fyrir grunnskólana,
þar sem markmiðið er ekki ein-
göngu að kenna bókleg fræði,
heldur einnig að hvetja til ný-
sköpunar," sagði Brynjar. „Hug-
myndin er sú að halda þessa
keppni að ári og þá ætlum við að
reyna að virkja sem flesta grunn-
skóla til að vera með.“
Björgvin Ragnarsson í 8. bekk
L í Hagaskóla var meðal kepp-
enda og sagði Morgunblaðinu frá
áhuga sínum á keppninni og
gengi sínu í henni.
„Eg hef oft fylgst með svona
ÍSLANDSBANKI áformar að
bjóða sambærilega þjónustu og
Búnaðarbankinn kynnti í gær varð-
andi greiðslu á gíróseðlum á Netinu.
Búnaðarbankinn reiknar með að
fleiri fyrirtæki bætist við þjónustu
þeirra á næstu dögum og vikum.
Ingi Örn Geirsson, forstöðumað-
ur tölvuþjónustu Búnaðarbankans,
sagðist hafa orðið var við mikinn
áhuga fyrirtækja á að tengjast þess-
ari nýju þjónustu, en bankinn hóf í
gær að bjóða viðskiptavinum þá
þjónustu að greiða gíróseðla á Net-
inu. Hann sagðist því gera ráð fyrir
að fleiri fyrirtæki myndu bætast við
mjög fljótlega, en enn sem komið er
er einungis hægt að borga símreikn-
inga frá Landssímanum, afnota-
gjöld RÚV og fasteignagjöld
Reykjavíkurborgar. Hann sagði að
önnur sveitarfélög hefðu ekki tengst
þessari þjónustu, en við þau yrði
rætt á allra næstu dögum. Sama
ætti við um fyrirtæki eins og Orku-
veitu Reykjavíkur.
Ingi Órn sagði að fyrirtækin
myndu áfram senda gíróseðlana
heim til fólks, en það gæti síðan val-
ið um hvort það greiddi þá í banka
eða á Netinu. Hann sagði líklegt að
þróunin yrði sú að fólk sem greiddi
gíróseðla á Netinu hætti að fá
heimsenda gíróseðla. Hægt væri að
ná fram verulegum sparnaði ef tæk-
ist að fækka gíróseðlum. Arlega
væru gefnir út um 13 milljónir gíró-
seðla hér á landi, en þar af væri
Landssíminn með um þriðjung allra
seðla. Þess má geta að hver gíróseð-
ill kostar 45 krónur, en þá á eftir að
reikna póstburðargjald og af-
greiðslukostnað.
Ingi Örn sagði að þegar greiðandi
greiddi gíróseðil á Netinu færðist
greiðslan með sjálfvirkum hætti af
reikningi greiðanda og til fyrirtæk-
isins. Ekki væri því þörf fyrir að
bankinn sendi fyrirtækinu greiðslu-
tilkynningu.
íslandsbanki ætlar að bjóða
þessa þjónustu um helgina
Haukur Oddsson, framkvæmda-
stjóri upplýsingatæknisviðs ís-
landsbanka, sagði að íslandsbanki
keppni í sjónvarpinu og finnst
mjög gaman að henni. Eg tók í
sundur fjarstýrðan bíl og fann
si'ðan rúðuþurrkumótor og notaði
hann sem mótor og fékk hjálp frá
afa mínum og pabba,“ sagði
Björgvin. „Hins vegar féll stöng-
in, sem átti að ýta boltanum, aft-
ur án þess að hitta hann og því
hefði ég átt að festa hana betur,“
bætti hann við aðspurður um
byði nú þegar upp á sambærilega
þjónustu og Búnaðarbankinn kynnti
í gær. Þannig byði bankinn við-
skiptavinum sínum að ná í og greiða
ógreiddar kröfur á Netinu og einnig
gæti fólk stofnað beingreiðslur í
gegnum Netbankann. Þá þjónustu
notfærðu margir sér í dag. Haukur
sagði að þessari þjónustu Búnaðar-
bankans svipaði til viðbóta sem Is-
landsbanki hefði í undirbúningi eða
svokallaðra NetGreiðslna. Þær
byggðust ekki á gírógreiðslum held-
ur á beingreiðslum þar sem er farið
að svokölluðum EDIFACT-staðli.
Aðspurður sagði Haukur að hann
gerði ráð fyrir að Islandsbanki héldi
sínu striki og byði upp á netgreiðsl-
ur öðrum hvorum megin við næstu
helgi. Islandsbanki myndi leggja
áherslu á að þróa beingreiðsluþjón-
ustuna frekar með því að gefa við-
skiptavinum færi á að merkja
beingreiðsluna þannig að hún bók-
aðist ekki sjálfkrafa heldur bókaði
viðkomandi hana sem NetGreiðslu
eftir eigin höfði í Netbankanum.
Ólafur Haraldsson, framkvæmda-
stjóri hjá Sparisjóði Reykjavíkur og
nágrennis, sagði að sparisjóðirnir
gengi sitt.
Því miður lenti enginn kepp-
andi frá Hagaskóla í verðlauna-
sæti þrátt fyrir dyggan stuðning
þeirra Harðar Óla Níelssonar og
Arnars Ágústssonar í Hagaskóla,
sem vildu ólmir verða viðmælend-
ur Morgunblaðsins. Þeim leist vel
á keppnina og þótti að sjálfsögðu
sinn fugl fagur.
sæju mikla hagræðingarmöguleika í
greiðslumiðlun hér á landi.
Sparisjóðirnir telja tæknilegt
samstarf æskilegt
í skýrslu sem hefði verið tekin
saman á þeirra vegum og kynnt var
í fyrra hefði komið fram að hægt
væri að spara um einn milljarð
króna með breytingum á greiðslu-
miðlun. Til að ná þessu markmiði
þyrftu bankar og sparisjóðir að
koma sér saman um ákveðið tækni-
legt samstarf. Sparisjóðirnir hefðu
kallað eftir slíku samstarfi, en ekki
væri útséð um hvort af því yrði.
Þessi nýja þjónusta Búnaðarbank-
ans væri góðra gjalda verð, en æski-
legra hefði verið ef bankar og spari-
sjóðir hefðu komið sér saman um að
fyrirtækin beindu greiðslukröfum
til eins aðila frekar en að þau beindu
þeim til hvers fyrir sig. Sparisjóð-
irnir myndu hins vegar halda áfram
að þróa þá netþjónustu sem þeir
hefðu byggt upp og horfa í svipaða
átt og Búnaðarbankinn í þeim efn-
um.
Ekki náðist í fulltrúa Landsbank-
ans í gær.
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 570 4500, FAX 570 4505
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9-18. Netfang: http://habil.is/fmark/
Einbýlishús í vesturbænum
Vorum aö fá í sölu vel skipulagt einbýlishús í Vesturbæn-
um. Húsið, sem er vel staðsett, er ca 266 fm að stærð og
skiptist í kjallara, tvær hæðir og ris. Þarfnast standsetn-
ingar. Ýmsir möguleikar fyrir hendi.
Teikningar og allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
Aðrir bankar undirbúa að bjóða svipaða þjónustu
Hægft að spara mikið
í greiðslumiðluninni