Morgunblaðið - 23.02.2000, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000 1 9
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sigríður Kristinsdóttir
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Þorsteinn Olafsson framkvæmdastjóri Styrktarfélags Krabbameins-
sjúkra barna tekur við ávísun frá Hrekkjalómafélaginu sem Ásmundur
Friðriksson afhenti. Viðstaddir eru nokkrir Hrekkjalómar.
Félagar úr Slysavarnafélaginu Landsbjörg með heimamönnum við nýja bifreið björgunarsveitarinnar Oks.
Björgunarsveitin Ok í Borgarfírði fær heimsókn
Slysavarnafélagið Lands-
björg kynnir nýja stjórn
Reykholti - Um helgina var björg-
unarsveitin OK í Borgarfirði sótt
heim af félögum úr stjórn Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar.
Við sameiningu Landsbjargar,
landssambands björgunarsveita, og
Slysavarnafélags Islands á s.l. ári
var mynduð ein 22 manna stjórn
úr stjórnum beggja félaganna, með
9 manna framkvæmdastjórn.
Kristbjörn Oli Guðmundsson,
framkvæmdastjóri félagsins, segir
í samtali við blaðið að stefnan sé að
fara í óformlegar heimsóknir til
björgunarsveita og deilda um land-
ið til að hitta fólk og kynna hina
nýju stjórn. Fyrsta heimsóknin var
í janúar s.l. en þá var farið um
Suðurnes og í kjölfarið var heilsað
uppá sveitir í nágrenni Reykjavík-
ur. Nú á laugardaginn var svo far-
ið um Borgarfjörð og fjórar sveitir
heimsóttar, ásamt deildum sem
starfa á svæðinu.
Félagar í Björgunarsveitinni Ok
voru einmitt þennan dag með hús-
næði sitt fyllt blómvöndum, en þeir
hugsa fyrir skyldum eiginmanna í
sínu sveitarfélagi og selja þeim
konudagsblóm.
Ok fékk nýjan bíl á s.l. sumri,
Toyota Landcruiser sem var hann-
aður sérstaklega fyrir störf við leit
og björgun. Áður hafði sveitin end-
urnýjað sjúkrabifreið sína, sem nú
er af gerðinni Volkswagen Tran-
sporter árgerð 1998.
Hrekkjalómar
afhenda styrk
HREKKJALÓMAFÉLAG Vest-
mannaeyja stormaði til höfuðborg-
arinnar ásamt mökum 11. febrúar
sl. til helgarfagnaðar sem mun vera
nokkuð reglulegur en þó sjaldgæf-
ur viðburður. Fyrsti viðkomustaður
hópsins var skrifstofa SKB en þar
afhenti Ásmundur Friðriksson fyrir
hönd Hrekkjalómanna styrk að
upphæð 100.000 krónur. Eftir að
hafa þegið fræðslu um starfsemi
SKB og fleira er varðar börn með
krabbamein hélt hópurinn út í upp-
haf óveðursins sem nú er þekkt en
ef að líkum lætur hafa Eyjamenn og
-konur ekki látið það á sig fá. „Þótt
stormur strjúki vanga það stælir
karlmannslund“!
Spariskírteini til innlausnar
1.FL.D 1995-5 árverðtryggð (RS00-0210/K)
1.FL.D 1995-5 árEcu-tengd (RS00-0210/KX)
25. febrúar
er síðasti skiptidagur
Morgunblaðið/Jón Guðjónsson
Nokkrir nemenda á tölvunám-
skeiðinu í Árneshreppi.
Tölvunám-
skeið í Ar-
neshreppi
á Ströndum
Árneshreppi - Tölvunámskeið var
haldið hér í hreppnum fyrir
skömmu. Var námskeiðið vel sótt
eða 14 manns ungir sem aldnir.
Kennt var um tölvugrunn og um
vefinn og tölvupóst.
Leiðbeinandi var Jón Arnar frá
Tölvuskólanum Snerpu á Vest-
fjörðum og var hann mjög ánægð-
ur með þátttökuna enda er greini-
lega mikill áhugi á tölvukunnáttu í
fámennum byggðarlögum sem
þéttbýlum.