Morgunblaðið - 23.02.2000, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Methagnaðnr hjá Sparisjóðnum i Keflavík á síðasta ári
Hagnaðurinn 191,5
milljónir króna
Sparisjóður Keflavíkur
Úr ársreikningi 1999
fíekstrarreikningur 1999 1998 Breyting
Vaxtatekjur Milljónir króna 1.212,2 871,1 +39,2%
Vaxtagjöld 781,0 500,1 +56,2%
Hreinar rekstrartekjur 431,2 371,0 +16,2%
Aðrar rekstrartekjur 396,7 215,1 +84,4%
Önnur rekstrargjöld 493,1 422,7 +16,7%
Framlag til afskriftarr. útlána 78,6 52,3 +50,2%
Hagn. f. skatta og óreglul. liði 256,3 111,2 +130,6%
Reiknaður tekjuskattur -62,9 -28,5 +121,1%
Eignaskattur -1,9 -2,4 -19,1%
Óreglulegir liðir -43,5 0,0
Hagnaður ársins 148,0 80,3 +84,2%
Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 11.445,7 9.331,0 +22,7%
Eigið fé 959,2 603,9 +58,8%
Skuldir og skuldbindingar 10.486.5 8.727.1 +20.2%
Skuldir og eigið fé samtals 11.445,7 9.331,0 +22,7%
METHAGNAÐUR var hjá Spari-
sjóðnum í Keflavík á síðasta ári ann-
að árið í röð og nam hagnaður Spari-
sjóðsins 256,3 milljónum króna fyrir
skatta og óreglulega liði, sem er
aukning um 145,1 milljón eða 130,6%
frá árinu áður. Að teknu tilliti til
skatta og óreglulegra liða var hagn-
aður ársins 1999 148 milljónir króna.
Auknar tekjur af hlutabréfum
í tilkynningu frá Sparisjóðnum í
Keflavík segir að bætta afkomu megi
fyrst og fremst rekja til aukinna
tekna af hlutabréfum og öðrum eign-
arhlutum ásamt gengishagnaði. Arð-
semi eigin fjár var 24,5%. Stjórn
Sparisjóðsins í Keflavík hefur ákveð-
ið að gera tillögu á aðalfundi að
greiða 10% arð ásamt verðtryggingu
á stofnfé sparisjóðsins.
Víixtatekjur Sparisjóðsins námu á
árinu 1.212 milljónum króna og
vaxtagjöld Sparisjóðsins ui’ðu 781
milljón króna á árinu. Hreinar vaxta-
tekjur námu því á árinu 431,2 millj-
ónum króna samanborið við 371
milljón króna árið 1998.
Framlag í afskriftareikning útlána
var 78,6 milljónir króna en var 52,3
milljónir króna á síðasta ári. Sem
hlutfall af niðurstöðu efnahagsreikn-
ings var framlagið 0,69% en var
0,56% árið áður.
Heildarinnlán í Sparisjóðnum í
árslok 1999 ásamt lántöku námu um
síðustu áramót 9.085 milljónum
króna. Þannig jukust innlán um
1.164 milljónir króna eða um 14,7%.
Utlán Sparisjóðsins ásamt mark-
aðsskuldabréfum námu 9.551 milljón
króna í árslok 1999 og höfðu aukist
um 1.941 milljón króna eða um
25,5%. Breyting varð á fullnustu-
eignum, sá liður lækkaði um 12,3%
og nam verðgildi þeirra 106,5 millj-
ónum króna.
I árslok var niðurstöðutala efna-
hagsreiknings 11.456 milljónir króna
og hafði hún hækkað á árinu um
2.115 milljónir eða 22,7%.
Stofnfé 300 milljónir króna
Á síðasta ári jók Sparisjóðurinn
stofnfé sitt með útgáfu nýrra stofn-
fjárbréfa að upphæð 105 milljónir
króna. Jafnframt fékkst heimild rík-
isskattstjóra til að nýta kaup á stofn-
fjárbréfum Sparisjóðsins í Keflavík
til skattafsláttar fyrir einstaklinga.
Margir stofnfjáraðilar nýttu
forkaupsrétt sinn auk þess sem nýir
stofnfjáraðilar bættust í hópinn. I
lok árs var stofnfé 300 milljónir
króna og dreifðist stofnfé niður á 486
aðila.
Sparisjóðurinn í Keflavík gerðist
aðili að Verðbréfaþingi íslands á ár-
inu og gat þar með átt bein viðskipti
með hlutabréf og önnur verðbréf.
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000 21
Netverk
b ý ð u r t i l
Skráning fyrirtækja á erlenda
hlutabréfamarkaði
Fundarstaður:
Hótel Borg, föstudaginn 25 febrúar, kl. 08.00
Ræðumaöur verður Belginn Jacques Putzeys
sem nýverið tók sæti í stjórn Netverks. Hann
er einn af stofnendum evrópska
hlutabréfamarkaðarins EASDAQ
(easdaq.com) og var fram-
kvæmdastjóri markaðarins á
upphafsárum hans. EASDAQ
sérhæfir sig í hraðvaxta
fyrirtækjum og þar eru nú 78
evrópsk fyrirtæki skráð.
Putzeys er einnig stofnandi
fjármögnunarfyrirtækisins Value
Development GCV sem sérhæfir
sig í að undirbúa fyrirtæki fyrir
skráningu á hlutabréfamarkaði.
Putzeys mun fjalla um möguleika
íslenskra fyrirtækja til skráningar á
erlenda markaði, undirbúning
skráningar, hvernig ferlið gengur fyrir sig
og hvaða kröfur eru gerðar til fyrirtækja sem
sækjast eftir skráningu.
G
)
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í sfma 585-2000
Fundarstjóri:
Matthías H. Guðmundsson, fjármálastjóri Netverks
Verið velkomin.
Netverk er leiðandi f gerð hugbúnaðar fyrir gagnaflutninga
um þráðlaus fjarskiptakerfi með takmarkaðri flutningsgetu.
Enn lækkar
úrvalsvísitalan
ÚRVALSVÍSITALA
HLUTABRÉFA
frá áramótum
31. des. 1997 = 100
ÚRVALSVÍSITALA aðallista
lækkaði um 1,61% á Verð-
bréfaþingi íslands í gær og er
hún nú 1.801 stig. Á þessu ári
hefur hún hæst farið í 1.888,71
stig. Vísitalan hefur lækkað
um 88 stig frá því á fimmtu-
dag. Af þeim 15 félögum sem
mynda Úrvalsvísitöluna lækk-
aði verð 11 þeirra og verð eins
hækkaði.
Allar þingvísitölurnar lækk-
uðu í gær fyrir utan vísitölu
þjónustu og verslunar sem
hækkaði um 1,88% og vísitölu
lyfjagreinar sem hækkaði um
0,83%. Mest lækkaði vísitala
iðnaðar og framleiðslu um
2,45% og vísitala fjármála og
trygginga um 2,27%.
527,1 milljónar króna við-
skipti voru með hlutabréf á
Verðbréfaþingi í gær. Mest
viðskipti voru með hlutabréf í
Baugi, fyrir 95 milljónir króna,
og hækkuðu bréfin um 2%, úr 12,45
í 12,70. 61 milljónar króna viðskipti
voru með bréf í Landsbankanum og
lækkuðu þau um 2,7%, úr 4,90 í 4,47.
Alls námu viðskipti með Trygginga-
miðstöðina 42 milljónum króna og
lækkaði verð þeirra um 0,9%, úr 53 í
52,5.
Mest lækkaði verð á hlutabréfum
í Hampiðjunni eða um 6,3% en tæp-
lega 14 milljóna króna viðskipti
voru með bréf félagsins á VÞÍ í gær.
Islandsbanki hafnar
gagntilboði í Básafell
fslandsbanki F&M hafnaði í gær fram á í gagntilboði sínu en fs-
gagntilboði ísafjarðarbæjar í landsbanki hafði áður boðið 112
74,6 milljóna króna hlut bæjar- milljónir króna fyrir hlutinn, þ.e.
ins í Básafelli. gengið 1,5. Gengi bréfanna á
Ekki hafa fengist upplýsingar Verðbréfaþingi Islands er um
um hvaða upphæð bærinn fór 1,2.
AÐALFUNDUR FBA
23. FEBRÚAR 2000
Aðalfundur Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. verður haldinn
miðvikudaginn 23. febrúar 2000 kl. 16.00 í Borgarleikhúsinu.
Dagskrá fundarins er þessi:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins s.l. starfsár
2. Staðfesting ársreiknings félagsins fyrir hðið starfsár
3. Stofhun styrktar- og menningarsjóðs FBA
4. Meðferð hagnaðar
5. Breyting á samþykktum félagsins
6. Kosning stjórnar og varastjórnar
7. Kosning endurskoðanda
8. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins fyrir
næstkomandi kjörtímabil
9. Heimild til að kaupa eigin hlutabréf og taka að veði
10. Heimild til að gera kaupréttarsamninga við starfsmenn
félagsins og dótturfélaga
11. önnurmál
Gögn sem lögð verða fyrir fundinn munu liggja firammi á skrifstofu
félagsins að Ármúla 13a, Reykjavík ffá og með mánudeginum
14. febrúar 2000. Einnig má nálgast gögn á www.fba.is.
Stjórn FBA
—....— h«JDL ■Éfiðfeh..
Ul
NY HUGSUN, NYJAR LEIÐIR
www.fba.is