Morgunblaðið - 23.02.2000, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.02.2000, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Nidsnaskjöl MI5 um John Lennon Ono segir Lenn- on ekki viljandi hafa styrkt IRA London. Morgunblaðið. YOKO ONO, fyrrverandi eigin- kona bítilsins Johns Lennons, neitaði þvi á mánudag að Lennon hefði viljandi látið fé af hendi rakna til írska lýðveldishersins (IRA). „Eiginmaður minn gaf IRA ekki fé. Hann gaf peninga þegar fólk bað um þá, fólk sem þurfti á þeim að halda. Hann hélt að féð rynni til bama, munaðar- leysingja eða kvenna," sagði Ono. Dagblöð í Bandaríkjunum hafa sagt frá því að bandarísk stjóm- völd hafi gmnað Lennon um að veita hryðjuverkasamtökum fjár- stuðning. Bandarískur dómari hefur úr- skurðað, að opinbera skuli skjöl um njósnir MI5 um John Lennon, en brezka leyniþjónustan sendi þessi skjöl vestur um haf til FBI, þegar bandarísk yfírvöld vom að safna upplýsingum, sem hægt yrði að nota til þess að vísa Lenn- on úr landi. Aðgangur hefur fengizt að tals- verðu magni skjala úr fóram FBI, þar sem hefur komið fram, hvem- ig bandaríska alrflaslögreglan njósnaði um Bítilinn og konu hans, Yoko Ono. Þau vora forset- anum, Richard Nixon, þymir í augum vegna andstöðu þeirra við styrjöldina í Víetnam. Ráðgjafar forsetans fólu J. Edgar Hoover, yfirmanni FBI, að láta safna upp- lýsingum um Lennon og Ono og þá leitaði FBI m.a. til MI5 um upplýsingar. I blaðafréttum er leitt getum að því, að í þeim skjölum, sem MI5 sendi til FBI, komi m.a. fram, að John Lennon hafí styrkt IRA fjár- hagslega og að hann hafi einnig gefíð fé til Byltingarflokks Trotskyista í Bretlandi, sem m.a. Vanessa og Colin Redgrave studdu. Lennon er talinn hafa að- hyllzt skoðanir lýðveldissinna af kynnum við landflótta íra í Liver- pool. Hann fór ekkert dult með stuðning sinn við málstað IRA og sýndi hann bæði í orði og verki. Hann tók m.a. þátt í mótmæla- göngu með spjald, sem á stóð „Sigur IRA á brezkri heimsvalda- stefnu" og eftir „Blóðuga sunnu- daginn" 1972 lét hann þau orð falla, að ef valið stæði á milli IRA og brezka hersins, þá væri hann á bandi IRA. Þetta var á þeim árum sem IRA var að mati MI5, eins og lýst er í The Guardian, marxista- AP Yoko Ono á fréttamannafundi í fyrradag en þá sagði hún fréttir af því að Lennon hefði styrkt IRA vera rangar. hreyfing með kommúnísku ívafi, áður en hreyfingin klofnaði og hryðjuverkaarmurinn varð til. Þá samdi Lennon m.a. lagið „The Luck Of The Irish“ og gaf höfund- arlaunin til írskra mannréttinda- hreyfinga. Byltingarflokkurinn náði nokkurri fótfestu um tíma, en lognaðist svo út af, mest fyrir innri átök, og veitti Vanessa Redgrave honum náðarhöggið, þegar hún gekk til liðs við Frjáls- lynda flokkinn í kosningunum 1997. John Lennon samdi lagið „Working class hero“ fyrir Bylt- ingarflokkinn. Sagnfræðingurinn Jon Wiener, prófessor við Kalifomíuháskóla, hefur í 20 ár barizt íyrir því að fá gerð opinber skjöl um njósnir um Lennon og Ono. FBI hefur dregið lappirnar, sem mest það hefur mátt, en hefur æ ofan í æ orðið að opinbera skjöl sín. En nú síðast er þvertekið fyrir að afhenda skjölin frá London á þeim forsendum, að milli Bretlands og Bandaríkjanna sé samkomulag um að FBI megi ekki opinbera skjöl frá Bretlandi nema með leyfi brezkra stjórn- valda. Það leyfi hefur ekki verið gefið og því geti FBI ekki heimil- að aðgang að skjölunum. En nú hefur alríkisdómarinn Brian Q. Robbins í Los Angeles kveðið upp þann úrskurð, að FBI skuli veita Wiener aðgang að skjölunum. Al- ríkislögreglan hefur 28 daga til þess að áfrýja úrskurðinum. Hjálparstarf í Mósambík Flutningar á matvælum og Iyfjum bera vistir út úr franskri flugvél við manns hafa misst heimili sín vegna til Mósambík hafa verið að aukast bæinn Xai-Xai fyrir norðan höfuð- flóða í landinu og í gær var þar fár- síðustu daga og hér er verið að borgina Maputo. Meira en 300.000 viðri af v öldum fellibylsins Eline. Deilt um íslömsk lög í borg í Norður-Nígeríu Tugir manna bíða bana í óeirðum trúarhópa Lagos, Abuja. AFP, AP, Reuters. TUGIR manna hafa beðið bana í átökum milli múslima og kristinna íbúa Kaduna-borgar í norðurhluta Nígeríu. Atökin hófust á mánudag þegar tugþúsundir kristinna manna gengu um götur borgarinnar til að mót- mæla tillögu um að íslömsk lög yrðu tekin upp í Kaduna-ríki. Múslimar efndu einnig til kröfugöngu í borg- inni tfl stuðnings tillögunni og fylk- ingunum laust saman. Ibúar borgarinnar sögðu í gær að ekkert lát væri á átökunum og vopn- aðir hópar múslima og kristinna ungmenna hefðu náð nokkrum hverfum á sitt vald. Að sögn borgarbúanna vora mörg hús í ljósum logum í gærmorgun. Meðal annars var kveikt í kaþólskri dómkirkju og helstu mosku borgar- innar. Yfirvöld settu útgöngubann í allri borginni frá klukkan sex eftir hádegi til sex á morgnana. Her- og lög- reglumönnum var skipað að vera í viðbragðsstöðu og flestir flbúanna héldu sig innandyra af ótta við óeirðaseggina. „Við geram allt sem í valdi okkar stendur til að koma á lögum og reglu í borginni," sagði Hamisu Isah, lög- reglustjóri ríkisins. Rúmlega þús- und vopnaðir lögreglumenn vora sendir til borgarinnar í gær og lög- reglan hafði handtekið rúmlega 100 manns. Forseti Nígeríu krefst upp- lýsinga um óeirðirnar Olusegun Obasanjo, forseti Níger- íu, krafðist í gær ítarlegra upplýs- inga um óeirðimar til að geta metið hvernig bregðast ætti við þeim. Nígeríska dagblaðið The Guard- ian sagði að stjórnin hygðist ekki skipa hernum að grípa til aðgerða í borginni eins og gert var í olíuborg- inni Odi fyrir nokkrum mánuðum þegar ungmenni urðu tólf lögreglu- mönnum að bana í óeirðum. Blaðið hafði eftir heimildarmönnum sínum að stjómin teldi að lögreglan gæti bundið enda á átökin. Kaduna er næststærsta borgin í norðurhluta Nígeríu. Múslimar era í miklum meirihluta í flestum borg- anna á þessu svæði en í Kaduna era þeir aðeins ívið fleiri en kristnir. íslömsk lög hafa verið tekin upp í nágrannaríkinu Zamfara og Kaduna er á meðal nokkurra ríkja Nígeríu sem hafa íhugað gera það einnig. Yf- irvöld í Kaduna sögðu þó í gær að engin ákvörðun hefði verið tekin um það. ÁÐUR EN LANGT UM LÍÐUR GETUR ÞÚ SÉRSNIÐIÐ FLU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.