Morgunblaðið - 23.02.2000, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000 29
Dagskrá Listahátíðar í Reykjavrk 20. maí - 8. júní 2000 kynnt
„Óvenju
íslensk
Listahátíð“
Listahátíð í Reykjavík á komandi vori
verður venju fremur vegleg. Kemur þar
margt til og ber hæst samstarf við
Reykjavík menningarborg Evrópu árið
2000, þrjátíu ára afmæli Listahátíðar og
árþúsundamót. Hátíðin hefst 20. maí og
stendur til 8. júní en dagskráin var kynnt
á blaðamannafundi í gær.
San Francisco-ballettinn sýnir Svanavatnið í Borgarleikhúsinu á Listahátíð í Reykjavík í vor.
Þjóðarbrúðuleikhúsið frá Prag kemur á Listahátíð og sýnir Don Giovanni í íslensku óperunni.
STEFNUMÓT við tímann er
yfirskrift hátíðarinnar að
þessu sinni. „Okkur finnst
við hæfi að líta til baka og
sjá hvað hefur áunnist og líka að
horfa fram á við, sjá hvað þessi nýja
öld ber í skauti sér,“ sagði Sveinn
Einarsson, formaður framkvæmda-
stjómar Listahátíðar, þegar hann
kynnti dagskrána, sem hann sagði
mótast mjög af íslenskri írumsköpun.
„Þetta verður óvenju íslensk Listahá-
tíð,“ sagði hann. Ennfremur sagði
Sveinn áberandi hversu mikið yrði í
boði fyrir yngstu áhorfenduma, t.d.
verður nú í fyrsta sinn efnt til Leik-
listarhátíðar bamanna.
Opnunardagur Listahátíðar verður
laugardaginn 20. maí og hefst dag-
skráin í Þjóðleikhúsinu með tónlist og
söngvum úr leikhúsinu undir yfir-
skriftinni Islensk tónsköpun á 20. öld.
Tónleikamir eru skipulagðir af Tón-
skáldafélagi Islands og em einnig á
dagskrá Reykjavíkur menningar-
borgar Evrópu árið 2000. Þá verða
veitt verðlaun í smásagnasamkeppni
Listahátíðar. I Listasafni Islands
verður opnuð sýningin „Nýr heimur -
stafrænar sýnir“ en hún er einnig á
dagskrá menningarborgarinnai’. I
Borgarleikhúsinu sýnir Islenski
dansflokkurinn >fAuðun og ísbjöm-
inn“ eftir Nönnu Ólafsdóttur á Leik-
listarhátíð bamanna.
Islands
þúsund ljóð
Um kvöldið verður opnuð í Þjóð-
menningarhúsinu sýningin „Islands
þúsund ljóð“, í samvinnu við Reykja-
vík menningarborg Evrópu árið 2000,
en þar birtast Ijóð á nýstárlegan jafnt
sem hefðbundinn hátt. Síðla kvölds
verður opnaður Kiúbbur Listahátíð-
ar, en hann verður opinn fóstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld með-
an á Listahátíð stendur.
Annar dagur Listahátíðar, sunnu-
dagurinn 21. maí, hefst með upp-
ákomum listaskólanema undir yfir;
skriftinni „I túni Ingólfs“. I
Nýlistasafninu verður opnuð sýning-
in „Blá“, þar sem sjá má verk ungra
breskra myndlistarmanna. Sýningin
er einnig á dagskrá menningai'borg-
arinnar. I Hafnarhúsinu verður opn-
uð ljósmyndasýningin „Öndvegishús
og merkileg mannvirki" og síðdegis
verður önnur sýning íslenska dans-
flokksins á leiklistarhátíð baraanna í
Borgarleikhúsinu. Um kvöldið verður
opnuð myndlistarsýningin „I skugg-
sjá rúms og tíma“ í Ásmundarsal
Listasafns ASI og í Islensku óper-
unni verða tónleikar Aziza Mustafa
Sadeh.
Bubbi og
Bellman
Mánudagskvöldið 22. maí syngur
Bubbi Mortens lög eftir Carl Michael
Bellman í Islensku ópemnni en með
honum leikur á gítar Guðmundur
Pétursson.
Þriðjudagskvöldið 23. maí verða
opnunartónleikar Listahátíðar, ís-
lensk tónsköpun á 20. öld, endurtekn-
ir í Þjóðleikhúsinu. Miðvikudaginn
24. maí er aftur komið að Leiklistar-
hátíð bamanna, en þá fmmsýnir
Leikbrúðuland „Prinsessuna í hörp-
unni“ eftir Böðvar Guðmundsson í
Tjamarbíói. Sýningin er einnig á dag-
ski’á menningarborgarinnar og verð-
ur endurtekin fimmtudaginn 25. maí.
Sama kvöld verður skáldavaka í
tengslum við „Islands þúsund ljóð“ í
Þjóðmenningarhúsinu.
Svanavatnið frá San Francisco
Föstudaginn 26. maí er komið að
einum stærsta viðburði hátíðarinnar
en þá frumsýnir San Francisco-ball-
ettinn Svanavatnið í Borgarleikhús-
inu. Að komu Svanavatnsins standa í
sameiningu Listahátíð og Reykjavík
menningarborg Evrópu árið 2000.
Fjórar aðrar sýningar verða á Svana-
vatninu, tvær laugardaginn 27. maí
og tvær sunnudaginn 28. maí. Forsala
aðgöngumiða verður hjá Upplýsinga-
miðstöð ferðamála dagana 1.-7. mars.
Laugardaginn 27. maí verða upp-
ákomur listaskólanema öðra sinni í
túni Ingólfs og alþjóðlega arkitekta-
sýningin Garðhúsabærinn verður
opnuð á Kjarvalsstöðum en hún er
einnig á dagskrá menningarborgar-
innar. í Norræna húsinu verður opn-
uð samtímalistasýningin Flakk, í
samstarfi við Nifca (Nordic Institute
for Contemporary Art). Þá framsýnir
Möguleikhúsið „Völuspá" eftir Þórar-
in Eldjám á Leiklistarhátíð bam-
anna. Sýningin er einnig á dagskrá
Reykjavíkur menningarborgar Evr-
ópu árið 2000. í Hafnarhúsinu verður
málþing arkitekta í tengslum við sýn-
inguna á Kjarvalsstöðum.
Af viðburðum sunnudagsins 28.
maí má nefna uppákomur listaskóla-
nema, aðra sýningu Möguleikhússins
á Völuspá og Skáldavöku í Þjóðmenn-
ingarhúsinu. Um kvöldið leika þríi’
ungir íslenskir tónlistarmenn á tón-
leikum í Salnum í Kópavogi, undir yf-
irskriftinni „Tónlistarmenn 21. aldar-
innar“.
Mánudagskvöldið 29. maí verða
tónleikar söngkonunnar Cesaria Ev-
ora og þriðjudagskvöldið 30. maí
verður íslenska einsöngslagið í
brennidepli í Salnum. Þar koma fram
íslenskir söngvarar af yngstu kyn-
slóðinni ásamt Jónasi Ingimundar-
syni píanóleikara. Tónleikamir era
skipulagðir af Tónskáldafélagi Is-
lands og era einnig á dagskrá
Reykjavíkur menningarborgar
Evrópu árið 2000.
Miðvikudagskvöldið 31. maí verður
frönsk hátíska og Parísarstemmning
á Hótel Sögu á dagskránni „Á Signu-
bökkum". I Salnum framflytur Cap-
ut-hópurinn tónverk eftir núlifandi ís-
lensk tónskáld. Tónleikarnir era
sldpulagðir af Tónskáldafélagi ís-
lands og era einnig á dagskrá menn-
ingarborgarinnar.
Fimmtudaginn 1. júní verður opn-
uð sýning á verkum Tonys Craggs í
Galleríi Ingólfsstræti 8, en hún er
einnig á dagskrá menningarborgar-
innar. Um kvöldið heldur píanóleikar-
inn Olli Mustonen tónleika í Háskóla-
bíói.
Föstudagskvöldið 2. júní framsýnir
ítalski trúðurinn og látbragðsleikar-
inn Paolo Nani látbragðsleik í Saln-
um í Kópavogi en alls verða sýning-
arnar fjórar.
Národní Divadlo Marionet, eða
Þjóðarbrúðuleikhúsið frá Prag,
frumsýnir Don Giovanni í Islensku
óperanni laugardaginn 3. júní. Sýn-
ingin er samstarfsverkefni Listahá-
tíðar og Reykjavíkur menningar-
borgar Evrópu árið 2000.
Englar alheimsins frá
Kaupmannahöfn
Meðal helstu viðburða sunnudags-
ins 4. júní er framsýning leikgerðar
CaféTeatret frá Kaupmannahöfn á
skáldsögu Einars Más Guðmunds-
sonar, Englum alheimsins.
Mánudagskvöldið 5. júní flytur
Kammersveit Reykjavíkur verk eftir
Atla Heimi Sveinsson og Þorkel Sig-
urbjömsson og framflytur verk eftir
Jónas Tómasson í Salnum. Tónleik-
amir era skipulagðir af Tónskáldafé-
lagi íslands og era einnig á dagskrá
Reykjavíkur menningarborgar Evr-
ópu árið 2000.
Þriðjudaginn 6. júní leikur Judith
Ingólfsson á fiðlutónleikum í Há-
skólabíói og sönghópurinn Lady-
smith Black Mambazo frá S-Afríku
kemur fram á tónleikum í Háskóla-
bíói.
Miðvikudagskvöldið 7. júní verður
háð Listamannaþing á Hótel Borg og
á lokadegi Listahátíðar verður efnt til
stórsöngvaraveislu í Laugardalshöll.
Þar koma fram einsöngvararnir Sig-
rún Hjálmtýsdóttir, Rannveig Fríða
Bragadóttir, Kristján Jóhannsson og
Kristinn Sigmundsson ásamt Sinfón-
íuhljómsveit fslands. Tónleikamir
era haldnir í samvinnu við Reykjavík
menningarborg Evrópu árið 2000.
Dagskrá Listahátíðar og nánari
upplýsingar um viðburði og lista-
menn má einnig nálgast á Netinu á
slóðinni www.artfest.is.
-------------------
Þórarinn
Eldjárn í Bóka-
safni Kópavogs
ÞÓRARINN Eldjárn verður gestur
Bókmenntaklúbbs Hana-nú í kvöld,
miðvikudagskvöld, kl. 20 í Bókasafni
Kópavogs.
Starf listræns
stjórnanda auglýst
STARF listræns stjómanda Lista-
hátíðar í Reykjavík hefur verið
auglýst Iaust til umsóknar. Fram
til þessa hefur listrænn stjórn-
andi hátíðarinnar verið formaður
framkvæmdastjórnai’ hveiju
sinni, tilnefndur af ríki eða borg
eftir því hvor aðilinn hefur farið
með yfirsljórn hátíðarinnar.
Starfstími hvers stjórnanda hefur
einungis verið tvö ár og vinnan
takmarkast við þá hátíð sem fyrir
dyrum stendur hverju sinni.
Hinn 1. október nk. taka gildi
nýjar samþykktir fyrir Listahátíð
í Reykjavík með breyttu stjórnar-
fyrirkomulagi sem iniðar að því
að færa allan rekstur hátíðarinn-
ar í markvissara form, að því er
segir í fréttatilkynningu frá
Listahátíð. Framvegis verður list-
rænn stjórnandi ráðinn til fjög-
urra ára og mun hann móta dag-
skrá hverrar hátíðar það timabil.
í starfinu er fólgin listræn stefnu-
mörkun og dagskrárgerð Lista-
hátíðar, rekstrarstjóm og fjár-
hagsleg ábyrgð, samningagerð
og samskipti við ýmsa aðila sem
að hátiðinni koma.