Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 1
46. TBL. 88. ÁRG. FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Úrslit í íran áfall fyrir heittrúarmenn Kenna fjölmiðl- um um ósisrur Teheran. Washington. AP, AFP, Reuters. ^ Fjöldamótmæli á Spáni gegri hryðjuverkum ETA Reuters Þátttakendur í fjöldamótmælum við Puerta del Sol í Madríd bera spjöld með slagorðum gegn ETA í gærkvöldi, daginn eftir sfðasta morðtilræðið sem samtökin eru talin bera ábyrgð á. Hlé gert á kosn- ingabaráttunni Madríd, Washington. Reuters, AP. HEITTRÚAÐIR stjómmálamenn í íran lýstu í gær gremju sinni með úr- slit þingkosninganna þar í landi og beindu spjótum sínum meðal annars að fréttamönnum. Umbótasinnar unnu stórsigur í þingkosningunum í Iran í síðustu viku. „Ég er ykkur mjög reiður," sagði einn fram- bjóðandi heit- trúarmanna í samtali við íranskt dagblað. „Þið eyði- lögðuð allt.“ Aðrir stjórnmálamenn úr röðum heittrúarmanna sögðu einnig að um- bótasinnar hefðu beitt fyrir sig lygum til að ná sigri. „Slakt gengi íhalds- samra frambjóðenda má rekja til áróðurs dagblaða og erlendra út- varpsstöðva gegn okkur. Lygar hafa skapað þá stöðu sem upp er komin,“ sagði Kamal Daneshyar sem náði ekki endurkjöri í kosningunum. Heittrúarmenn viðurkenna engu síð- ur að sök liggi að hluta til hjá þeim sjálfum, að baráttuaðferðir þeirra hafi brugðist og stefna þeirra hafi ekki höfðað til kjósenda. Af 195 þingsætum sem búið er að ráðstafa hafa umbótasinnar fengið JOHN MeCain, öldungadeildar- þingmaður frá Arizona, sagðist í gær, daginn eftir að hann sigraði George W. Bush í forkosningum í tveimur ríkjum Bandaríkjanna, vera að byggja upp „stjórnar- bandalag“ með kjósendum úr röð- um demókrata og óháðra. Hvatti hann fleiri repúblikana til að slást 141 sæti, eða meira en 70%. Heit- trúarmenn hafa aðeins unnið 44 þing- sæti. Alls sitja 290 fulltrúar á íranska þinginu. Samkvæmt upplýsingum ír- anska ríkissjónvarpsins er áætlað að talningu atkvæða verði að fullu lokið í dag. Ljóst er orðið að kjósa þarf um 65 þingsæti í seinni umferð kosning- anna. Heittiúarmenn óttuðust á tímabili að helsti foringi þeirra í höfuðborg- inni, Akbar Hashemi Rafsaryani, fyrrverandi forseti landsins, hefði ekki náð að tryggja sér þingsæti í fyrri umferð. í gær var hins vegar til- kynnt að Rafsanjani hefði lent í 29. sæti af alls 30 þingsætum í borginni. Samkvæmt upplýsingum frá íranska innanríkisráðuneytinu fengu umbóta- sinnar öll hin þingsætin í Teheran. Ráðherrar Evrópuríkja til Teheran Nokkrir utanríkisráðherrar Evrópuríkja hafa tilkynnt að þeir hyggist takast á hendur ferð til írans í tilefni af úrslitum þingkosninganna. Ráðherrar Þýskalands, Bretlands og Ítalíu eru allir sagðir vera á leið tU Teheran á næstunni. Mohammad-Reza Khatami, einn helsti foringi umbótasinna á nýkjömu þingi írans, sagði á þriðjudag að hann væri hlynntur bættum samskiptum við Bandaríldn og önnur Vesturlönd. í hópinn og „njóta ferðarinnar". Bush sagðist hins vegar ekki láta úrslitin í Arizona, á heimavelli McCains, og í Michigan slá sig út af laginu. Hann yrði forsetaefni Repúblikanaflokksins í kosningun- um í haust. ■ Þarf nú að auka/30 MIKILL fjöldi Spánverja tók í gær þátt í götumótmælum í borgum landsins og spænskir stjómmála- menn gerðu hlé á kosningabarátt- unni fyrir þingkosningar sem fram- undan em, til að sýna andúð sína á ETA, hreyfingu aðskUnaðarsinnaðra Baska, daginn eftir að bdsprengja banaði stjórnmálamanni úr flokki sósíahsta og lífverði hans í Vitoria, héraðshöfuðborg Baskalands. Innan við þremur vikum fyrir þingkosningamar hinn 12. marz næstkomandi stóðu Jose Maria Azn- ar forsætisráðherra og pólitískir mótherjar hans saman, er þeir vott- uðu hinum myrta, Fernando Bueso, hinztu virðingu, en hann hafði á stjórnmálaferli sínum beitt sér af einurð gegn ETA. Lýðflokkur Azn- ars gerði tveggja daga hlé á kosn- ingabaráttunni í tilefni af tilræðinu og aðrir stjómmálaflokkar ákváðu að gera það einnig. Að sögn talsmanna lögregluyfir- valda leikur enginn vafi á því að þarna hafi ETA verið að verki, en samtökin lýstu í desember sl. 14 mánaða gamalt vopnahlé úr gildi fallið, eftir að stjórnvöld neituðu að ræða kröfur ETA um sjálfstæði Baskalands. „Þetta tilræði, tímasetning þess og fórnarlömb vom greinilega valin með það fyrir augum að valda sem mestum usla [fyrii’ kosningarnar]," sagði Jaime Mayor Oreja innanríkis- ráðherra. Ráðamenn ríkja heims kepptust í gær um að fordæma þetta nýjasta tilræði ETA, en samtökin em gmn- uð um að bera ábyrgð á dauða allt að 800 manna á þeim þremur áratugum sem þau hafa verið virk í baráttunni fyrir sjálfstæðu Baskalandi. Bill Clinton Bandaríkjaforseti hrósaði á sameiginlegum blaða- mannafundi með Jóhanni Karli Spánarkonungi í Washington hinum síðarnefnda fyrir að beita sér af þunga gegn hryðjuverkaöflum. Kon- ungurinn sjálfur sagðist mjög sleg- inn yfir tíðindunum af tilræðinu og fordæmdi það. Mohammad Reza Khatami Barátta Bush og McCains harðnar Washington. AP. Poul Nyrup Rasmussen stokkar upp í dönsku ríkisst|örnmm Ritt Bierreffaard aftur ráðherra Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. ^ * „ÞIÐ þekkið víst öll nýja matvæla- ráðherrann," sagði Poul Nyrup Ras- mussen forsætisráðherra með bros á vör er hann kynnti Ritt Bjerregaard sem nýjan matvælaráðherra. Skipun hennar kom vægast sagt á óvart, þeg- ar Nyrup kynnti fimm nýja ráðherra. Tveir koma nýir inn og þrír ráðherrar vora fluttir til. Margrét Þórhildur Danadrottning var í árlegu skíðafríi sínu í Noregi, en hvarf heim í skyndi í gær til að taka á móti nýju ráðherr- unum eins og hefðir mæla fyrir um. Hugmynd Nyraps virðist vera að styrkja evrópska ímynd stjórnar sinnar með því að taka Bjerregaard um borð, en hún var þar til í fyrra fulltrúi Danmerkur í framkvæmda- stjóm Evrópusambandsins. Við- brögðin í gær vora þó hikandi. Spurn- ingin er hvort Bjerregaard tekst að ná til kjósenda á sama hátt og henni Ritt Poul Nyrup Bjerregaard Rasmussen hefur áður tekist, eða hvort Danir era orðnir þreyttir á tiltækjum hennar. „Ég lendi víst örugglega í ein- hverju klandri með Ritt, en það gefur lifinu bara lit,“ sagði Nyrap hinn kok- hraustasti við blaðamenn í gær. Það vora margir sem gripu andann á lofti af undran þegar Nyrap leiddi Bjerre- gaard aftur fram á sjónarsviðið. Það hefur lengi verið vitað að samband þeirra tveggja væri nálægt frost- marki. Á ferli sínum hefur Bjerre- gaard haft sérstaka hæfileika til að ögra öllu og öllum og Nyrap ekki far- ið varhluta af því. Þegar mesta undranin var rannin af mönnum í gær bentu margir á að Bjerregaard væri góður liðsmaður í stjórninni nú þegar stefnir í þjóðar- atkvæðagreiðslu um danska aðild að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu, EMU. Dam Christensen, sem hún tekur við af, hefur verið í far- arbroddi íyrir EMU-umræðu flokks- ins og sennilegt að Bjerregaard muni nú axla það hlutverk. Á að styrkja stjórnina Sonja Mikkelsen, sem áður var umdeildur samgönguráðherra, verð- ur nú heilbrigðisráðherra, en Carsten Koch, sem áður gegndi því starfi, hverfur úr stjóminni og hljómaði í gær heldur sár yfir því. Jakob Buksti er nýr samgönguráðherra. Karen Jespersen hverfur úr fé- lagsmálaráðuneytinu og sest í stól innanríkisráðherra í stað Thorldlds Simonsen, áður borgarstjóra í Árós: um, sem nú hyggst fara á eftirlaun. í stað Jespersen kemur Henrik Dam Christensen, sem víkur úr sæti fyrir Bjerregaard. Hann er af sumum tal- inn hugsanlegur eftirmaður Nyraps. Þar sem þessi nýja stjóm verður um leið liðið sem leiðir kosningabar- áttuna 2002 verður náið fylgst með hvaða áhrif þessi nýskipun hafi. Hin vinsæla Karen Jespersen á nú að freista þess að hamla á móti útlend- ingaáróðri Þjóðarflokksins, sem und- ir forystu Piu Kjærsgaard hefur sóp- að til sín fylgi frá jafnaðaiTnönnum. Svín gegn Indverjum Nýju Delhí. Daily Telegrapli. PAKISTANAR hafa tekið upp nýja bardagaaðferð í útistöðum sínum við Indverja og siga nú á þá svínum. Indverskir bændur hafa orð- ið fyrir barðinu á þessu nýja herbragði en þeir segja að pak- istanskir hermenn smali saman villisvínum og reki þau yfir landamærin að næturlagi. Svín- in geri mikinn usla á ökrum en forði sér jafnan í dögun. Ind- versku bændurnir hafa brugð- ist við með því að koma fyrir sprengjum í hveitipökkum og særast svrnin illa springi þær. MORGUNBLAÐIÐ 24. FEBRÚAR 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.