Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Leiðangur undirbúinn að flaki sprengjuflugvélarinnar Stefnt að því að sækja líkamsleifar FYRIRHUGAÐ er að sex björgun- arsveitarmenn úr breska flughern- um í Skotlandi komi hingað til lands í ágúst nk. og taki þátt í leiðangri að flaki bresku sprengjuvélarinnar sem fannst í jökli á hálendinu milli Öxnadals og Eyjafjarðar í ágúst sl. Vélin fórst 26. maí árið 1941 með fjórum mönnum innanborðs. Hörður Geirsson, safnvörður á Minjasafninu á Akureyri, einn þeirra sem fann flak vélarinnar í ágúst sl. eftir 20 ára leit, sagði til- ganginn með leiðangrinum næsta sumar að sækja líkamsleifar mann- anna sem fórust með vélinni og liggja á yfirborði jökulsins, auk þess sem boraðar verða prufuholur í jökulinn. Hann sagði að verið væri að útbúa legsteina sem koma ætti fyrir í Fossvogskirkjugarði en þar er fyrirhugað að koma líkamsleif- um mannanna í vígða mold. Hörður sagði stefnt að því að flytja leiðang- ursmenn og búnað þeirra upp á jök- ulinn með þyrlu, þar sem þeir munu dvelja í þrjá til fjóra daga. Frá því að flak vélarinnar fannst hafa tvær stofnanir á Bretlandi unnið að því að finna ættingja mannanna og hef- ur nú loks tekist hafa upp á ætt- ingjum Bretanna þriggja sem voru um borð. Hins vegar hefur gengið erfiðlega að finna ættingja fjórða mannsins, sem var frá Nýja-Sjá- landi. Allir mennirnir, sem voru ungir að árum er slysið varð, voru ógiftir og barnlausir að sögn Harð- ar. Mikil leit gerð Flugvélin sem fórst, flaug á sín- um tíma frá Melgerðismelum, út Eyjafjörð og yfir Akureyri, þar sem hún hnitaði hringi til að lækka flug- ið og hvarf hún mönnum sjónum þar í ský. Til vélarinnar heyrðist frá vegagerðarmönnum í Öxnadal og einnig heyrðu hermenn á Mel- gerðismelum í vélinni skömmu áður en hún fórst. Mikil leit var gerð að vélinni um allt land og fannst hún ekki fyrr en tveimur dögum síðar, er leitar- flokkur sem hafði aðsetur á Bakka í Öxnadal fann hana. I skýrslu sem gerð var eftir leitarmönnum og Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Varnarliðsins, fann í London sl. vor, kemur fram að leitarmenn töldu ekki mögulegt að safna saman líkamsleifum þeirra manna sem fórust með vélinni. Þessi skýrsla varð þó til þess að hægt var að stað- setja flakið á gömlu korti frá breska hernum á þessum tíma. Morgunblaðið/Kristján Þúsundir titla á bókamarkaði BÓKAMARKAÐUR Félags ís- lenskra bókaútgefanda verður opn- aður á Akureyri og í Reykjavík í dag. Á Akureyri er markaðurinn í versluninni Blómalist við Hafnar- stræti og þar er búið að raða upp þúsundum bókatitla af öllum gerð- um. Til viðbótar eru þúsundir titla af geisladiskum og einnig tölvuleik- ir DVD myndir og barnamyndbönd. Þá eru að þessu sinni seld barna- leikföng á sérstökum á leikfanga- markaði í Blómalist. Markaðurinn er opinn alla daga frá kl. 10-19 en hann stendur til 5. mars. Guðmundur skák- meistari Akureyrar Skæð flensa herjar á Akureyri SKÆÐ flensa herjar á Akureyr- inga og nærsveitarmenn þessa dagana, einkum meðal yngri kynslóðarinnar og eru dæmi þess að skólastofur í grunnskól- um bæjarins séu hálftómar. Þannig hafa allt að tveir þriðju nemenda í einstaka bekkjar- deildum legið veikir heima. Ástandið á leikskólum bæjar- ins er svipað og hafa foreldrar bama á sumum þeirra verið beðnir að veita aðstoð þar sem mikið hefur verið um veikindi starfsfólks. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum eitt mesta úrval á íslandi af smáum og stórum vogum Haföu samband Síðumúla 13, sími 588 2122 Brugðu sér í bæjarferð BÖRNIN á leikskólanum Álfasteini í Glæsibæjarhreppi brugðu undir sig betri fætinum í gær og fóru í bæjarfcrð. Þau fylktu liði um göngugötuna í Hafnarstræti, litu í búðargluggana og enduðu svo á því að setjast inn á kaffihús þar sem þau gæddu sér á mjólk og kleinum. Morgunblaðið/Kristj án Árshátíð Glerárskóla ÁRSHÁTÍÐ Glerárskóla verður haldin í kvöld. Nemendur hafa síð- ustu vikur æft skemmtiatriði af ýmsu tagi, söng, hljóðfæraleik og leikrit, en m.a. sýna nemendur í 9. bekk leikritið Dýrin í Hálsaskógi. Tvær sýningar verða í dag, síð- degis og um kvöldið og eru allir vel- komnir. Eftir kvöldsýningu verður dansleikur með Sóldögg til kl. 1. GUÐMUNDUR Daðason sigraði í A-flokki á Skákþingi Akureyrar, hlaut 5 vinninga af sjö mögulegum. Jafnir í öðru til þriðja sæti urðu þeir Ólafur Kristjánsson og Jón Björgvinsson með 4,5 vinninga. í B-flokki sigraði Skúli Torfason en hann hlaut 5,5 vinninga af 7 mögulegum. Jafnir í öðru til fimmta sæti með 4,5 vinninga urðu Hreinn Hrafnsson, Ágúst Bragi Björnsson, Eymundur Eymundsson og Hauk- ur Jónsson. Jón Björgvinsson varð Hrað- skákmeistari Akureyrar en hann hlaut 16 vinninga af 19 mögulegum. Gylfi Þórhallsson hafnaði í ciðru sæti með 15,5 vinninga og jafnir í þriðja til fjórða sæti urðu Áskell Órn Kárason og Þór Valtýsson með 15 vinninga. Hraðskákmeistari í unglinga- flokki varð Halldór Brynjar Hall- dórsson með 11 vinninga, Siguróli Magni Sigurðsson hlaut 9 vinninga og Ragnar Sigtryggsson 8 vinn- inga. I barnaflokki sigraði Jón Heiðar Sigurðsson með 9 vinninga, Aron Hjalti Björnsson hlaut 6 vinn- inga og Eyþór Gylfason 4 vinninga. Stefán Bergsson úr Brekkuskóla AÐEINS eitt tilboð barst í 5. útboði vegna framkvæmda við Sundlaug Akureyrar og var það nokkuð yfir kostnaðaráætlun, eða tæplega 109%. Tilboðið kom frá Tréverki ehf. á Dal- vík og hljóðaði upp á rúmar 69 millj- ónir króna en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 63,5 milljónir króna. Um er að ræða innréttingu og inn- hússfrágang í gamla húsi sundlaug- arinnar. Einar Jóhannsson hjá bygg- ingardeild Akureyrarbæjar sagði að þessi niðurstaða endurspeglaði þennslu á byggingarmarkaðnum í tekur nú þátt í Norðurlandamótinu í skólaskák, sem hófst í gær og lýk- ur á sunnudag en keppnin fer fram í Finnlandi. Skákfélag Akureyrar verður með 10 mínútna mót fyrir 45 ára og eldri í kvöld, fimmtudag og hefst það kl. 20. Æfingar fyrir börn og unglinga eru á laugardögum kl. 13.30. Teflt er í Skipagötu 18. Fyrirlestur um dagbækur Vilhjálms Stefánssonar DR. Gísli Pálsson prófessor og for- stöðumaður Mannfræðistofnunar Háskóla Islands flytur erindi á veg- um Stofnunar Vilhjálms Stefánsson- ar fimmtudaginn 24. febrúar kl. 16.15. Fyrirlesturinn nefnist Dagbækur Vilhjálms Stefánssonar og er hann öllum opinn. Hann verður fluttur í kennslustofu við aðalsal Háskólans á AkurejTÍ að Sólborg. bænum, auk þess sem framkvæmda- tíminn er nokkuð knappur. Hann sagði næsta skref að fara yfir tilboð- ið en að lagt yrði til að samið yrði við Tréverk. Ráðgert er að framkvæmd- ir hefjist fljótlega en þeim skaljokið fyrir 1. júní í sumar. Þá er í gangi alútboð vegna bygg- ingar og hönnunar á 4. deilda leik- skóla við Iðavelli en um er að ræða 630-650 fermetra húsnæði. í apríl verður svo boðin út um 800 fermetra viðbygging við Oddeyrarskóla og breytingar á eldra húsnæði skólans. ðryggisskápar fyrir heimili og fyrirtæki í mörgum stærðum og gerðum. \lerb frá kr. 19.500. Sími 461 4025, fax 461 4026, netfang gagni@centrum.is. Sundlaug Akureyrar Eitt tilboð barst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.