Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 49 SKOÐUN TVÆR UNDIR- SKRIFT AS AFN ANIR Þorvaldur Ragnar Þorsteinn Búason Ingimarsson Sæmundsson NÝLEGA er lokið undirskrifta- söfnun samtaka Umhverfisvina. Undirskriftirnar voru afhentar 14. febrúar og var þá tilkynnt að 45.386 manns hefðu skrifað undir. Þegar þessari söfnun var hleypt af stokkunum hinn 10. nóvember var það yfirlýst markmið forvígismanna hennar að ná meira en 60 þúsund undirskriftum og slá það met sem sett hefði verið árið 1974 með undir- skriftasöfnun Varins lands. Söfnun Umhverfisvina skyldi lokið fyrir jólaleyfi Alþingis. Vonbrigði og afsakanir Þegar leið að jólum og ljóst var að takmarki Umhverfisvina yrði ekki náð á þeim tíma sem þeir höfðu sett sér, hafði helsti talsmaður þeirra, Ólafur F. Magnússon, á því tvær skýringar. í fyrsta lagi hefði Varið land haft meiri tíma en Umhverfis- vinir til söfnunar undirskrifta, og í öðru lagi hefðu Umhverfisvinir mætt fádæma andspyrnu og ofsókn- um. Undirskriftalistar hefðu verið fjarlægðir og eyðilagðir og þannig verið spillt fyrir söfnuninni. Ólafur tilkynnti að gert yrði hlé yfir hátíðirnar en söfnunin síðan framlengd til loka janúar. Meðan á undirskriftasöfnun Um- hverfisvina stóð komu fram raddir sem reyndu að gera lítið úr slíku framtaki, og var spjótum þá stund- um beint að undirskriftasöfnun Var- ins lands. Einhverjir sögðu að ekkert hefði verið að marka þá undirskriftasöfn- un því að fólk hefði verið neytt til að skrifa undir. Einn af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins komst svo að orði í útvarpsviðtali að hún þekkti til fullorðinnar konu sem hefði verið hrædd til þess að skrifa nafn sitt á lista Varins lands, því að annars myndu Rússarnir koma. Af þessu dró þingmaðurinn þá ályktun, að undirskriftasöfnun Varins lands hefði verið marklaus og þar með all- ar undirskriftasafnanir! Eftir að söfnuninni lauk hafa komið fram nýjar skýringar á því hvers vegna Umhverfisvinum tókst ekki að jafna met Varins lands. Nú er sagt að ekki sé hægt að bera þeirra undirskriftasöfnun saman við „það átak sem herstöðvasinnar efndu til 1974 með átaki lýðræðis- flokkanna svokölluðu og fyrirtækja landsins“ svo að vitnað sé í vefsíðu Vísis frá 17. febrúar. Hvort orðalag- ið er komið frá talsmönnum Um- hverfisvina skal ekki fullyrt. Rangfærslur sem þarf að leiðrétta Þegar svo langt er gengið í rang- færslum, er óhjákvæmilegt að þeir sem stóðu að undirskriftasöfnun Varins lands stingi niður penna til að leiðrétta verstu villurnar. ítar- legar upplýsingar um þá söfnun liggja fyrir í greinargerðum til dag- blaða þegar undirskriftasöfnunin fór fram, svo og í málsskjölum fyrir héraðsdómi og hæstarétti vegna þeirra málaferla sem fylgdu í kjölfa- rið. Ef talsmenn Umhverfisvina og aðrir áhugamenn hefðu haft fyrir því að kynna sér þessi gögn eða spyrja þá sem stóðu að undirskrifta- söfnun Varins lands, hefðu þeir tæp- lega látið frá sér fara þau vafasömu ummæli sem rakin eru hér að fram- an. Þá er jafnframt ólíklegra að Um- hverfisvinir hefðu hætt sér út í sam- anburð við undirskriftasöfnun Varins lands. Árangur þeirrar söfn- unar var sennilega heimsmet í lýð- ræðisríki, met sem seint verður jafnað. Vegna þeirra sem eru ungir að ár- um og vita ekki um hvað þessi undir- skriftasöfnun snerist, er rétt að geta þess að í ársbyrjun 1974 var allt útlit fyrir að ríkisstjórnin myndi segja upp varnarsamningnum við Banda- ríkin og láta varnarliðið fara. Þessi stefna olli miklum ugg meðal þorra landsmanna og varð kveikjan að undirskriftasöfnuninni. Tölulegur samanburður Hve mörgum undirskriftum hefðu Umhverfisvinir þurft að ná til að slá met Varins lands? í því sambandi er nauðsynlegt að taka tillit til fjölgun- ar þjóðarinnar á þeim aldarfjórð- ungi sem liðinn er síðan undir- skriftasöfnun Varins lands fór fram. Samkvæmt tölum Hagstofu Islands var mannfjöldinn 1. des. 1973 sam- tals 213.722. Hinn 1. desember 1999 nam fjöldinn 278.702. Fjölgunin nemur 30%. Undirskriftir Varins lands töldust 55.522. Það myndi samsvara 72.400 undirskriftum nú, ef við notum ein- faldan hlutfallareikning. Umhverfis- vinir hefðu því alls ekki náð að jafna metið þótt þeir hefðu fengið þann fjölda undirskrifta sem þeir stefndu að. En með þessu er aðeins hálf sag- an sögð. Undirskriftasöfnun Varins lands var takmörkuð við þá sem náð höfðu tvítugsaldri (kosningaaldri) hinn 1. mars árið 1974. Ef við athug- um fjölgun í þeim aldurshópi fram til 1. des. 1999 reynist hún tæplega 53%. Með öðrum orðum, í þessum hópi er fjölgunin mun meiri en með- altalsfjölgunin. Þetta merkir að hin- ar 55.522 undirskriftir Varins lands árið 1974 myndu samsvara sem næst 85.000 undirskriftum nú. Til þess að geta borið töluna 85.000 saman við undirskriftir Um- hverfisvina, verðum við í fyrsta lagi að fá upplýsingar um, hve margar af þeim 45.356 undirskriftum sem þeir söfnuðu voru undirskriftir fólks sem náð hafði tvítugsaldri. Næst hljótum við að spyrja hversu vel hafi verið kannað að um gildar undirskriftir væri að ræða. Voru allar undir- skriftir bornar saman við þjóðskrá eins og gert var í undirskriftasöfnun Varins lands? Ef sá samanburður var gerður, hversu margar undir- skriftir voru ógildar vegna þess að nöfnin fundust ekki í þjóðskrá? Hve margir skrifuðu tvisvar undir eða oftar? Fundust einhverjar falsaðar undirskriftir? Hvaða aldursmörk voru sett og hve margir voru undir þeim mörkum? Hvernig voru þær undiskriftir sannreyndar sem til- kynntar voru í síma eða með tölvu- pósti? Öllum þessum spurningum verða forsvarsmenn Umhverfisvina að svara ef þeir vilja gera saman- burð við undirskriftasöfnun Varins lands. Tímalengd söfnunarinnar Þá skulum við taka fyrir önnur at- riði sem forsvarsmenn Umhverfis- vina hafa nefnt. Fyrsta atriðið sem þeir tefldu fram til samanburðar var tímalengd söfnunarinnar. Undirskriftasöfnun Varins lands stóð frá 15. janúar til 20. febrúar 1974 eða fimm vikur. Þetta var til- kynnt í upphafi og við það var staðið. Úrvinnsla og sannprófun gagna tók hins vegar mun lengri tíma en reikn- að hafði verið með vegna fjölda und- irskriftanna, og var því ekki unnt að afhenda þær fyrr en 21. mars í stað 1. mars sem upphaflega var stefnt að. Undirskriftasöfnun Umhverfis- vina hófst 10. nóvember s.l. og stóð til janúarloka, eða í tæpar 12 vikur, um það bil tvöfalt lengri tíma en undirskriftasöfnun Varins lands, jafnvel þótt gert sé ráð fyrir hléi um jól og nýár. Ef þetta skiptir máli í Þegar svo langt er gengið í rangfærslum er óhjákvæmilegt, segja Þorsteinn Sæmunds- son, Ragnar Ingimars- son og Þorvaldur Búa- son, að þeir sem stóðu að undirskriftasöfnun Varins lands stingi nið- ur penna til að leiðrétta verstu villurnar. samanburði talnanna, eins og tals- maður Umhverfisvina hélt fram og ekki skal dregið í efa, væri fróðlegt að vita hvernig hann metur þau áhrif í samanburðinum. Við afhendingu undirskrifta Um- hverfisvina sagði talsmaður þeirra reyndar að flestar undirskriftirnar hefðu safnast á fimm vikna tímabili og fullyrti að svo stór söfnun á svo stuttum tíma hefði aldrei fyrr átt sér stað hér á landi (Mbl. 15. febrúar). Var það endurtekning á fyrri um- mælum (Mbl. 29. des.). Um sann- leiksgildi þessarar fullyrðingar geta menn dæmt af þeim tölum sem nefndar voru hér að framan. Viðbrögð andstæðinga - þáttur fjölmiðla Þá eru það ofsóknirnar sem Um- hverfísvinir máttu sæta. Þær hljóta að blikna í samanburði við þá sví- virðingaherferð sem herstöðva- andstæðingar héldu uppi gegn for- göngumönnum Varins lands. Sú herferð á sér engan líka í sögu ís- lenskrar blaðamennsku og skal ekki rakin hér, en um hana geta menn fræðst af dagblöðum þess tíma og málsskjölum héraðsdóms og hæsta- réttar. En hlutur ríkisfjölmiðlanna hefur lítið verið til umræðu og er ástæða til að rifja hann upp nú vegna samanburðarins við undir- skriftasöfnun Umhverfisvina. Ekki verður annað séð en að Umhverfis- vinir hafi átt greiðan aðgang að þessum fjölmiðlum, mörg viðtöl hafa verið tekin og auglýsingar verið áberandi. Þessu var öðru vísi farið þegar Varið land átti í hlut. Þegar frá er talin fyrsta kynning undirskriftasöfnunarinnar birti rík- issjónvarpið, sem þá var eina sjón- varp landsmanna, aldrei viðtal við neinn forvígismannanna, og sama er að segja um ríkisútvarpið. Þegar undirskriftirnar voru afhentar í Al- þingishúsinu - undirskriftir nær helmings atkvæðisbæiTa Islend- inga, neitaði sjónvarpið að senda menn á vettvang. Engar sjónvarpsmyndir eru því til af þeim atburði. En ekki nóg með það. Aðstand- endum Varins lands var meinað að auglýsa í sjónvarpi og útvarpi. Þetta var gert á þeim forsendum að bann- að væri að birta áskoranir á alþing- ismenn! Einföld auglýsing eins og „Ertu búinn að skrifa undir?“ var talin falla undir þetta ákvæði. Ekki er vitað til að þessu ákvæði hafi ver- ið beitt af nokkru öðru tilefni, hvorki fyrr né síðar. Framkvæmd söfnunar Næst skulum við líta á þá um- kvörtun Umhverfisvina að listum hafi verið stolið og þeir eyðilagðir. Ekki er þetta ný bóla, því að hið sama átti sér stað við undirskrifta- söfnun Varins lands. Andstæðingar söfnunarinnar gengu hart fram og létu jafnvel hendur skipta til að vinna skemmdarverk á listum. Mun- urinn er hins vegar sá að í undir- skriftasöfnun Varins lands voru allir listar númeraðir og í umsjá einhvers af þeim tvö þúsund sjálfboðaliðum sem gáfu sig fram við söfnunina. Þegar listi var eyðilagður, gat sjálf- boðaliðinn venjulega bætt skaðann með því að fara aftur til þeirra sem hann hafði komið að máli við. Stund- um skrifuðu menn aftur á lista til ör- yggis, vitandi það að farið yrði yfir listana í lokin og allar tvíritanir strikaðar út. Ef Umhverfisvinir vita ekki hve margir listar hafa horfið, hefur einhverju verið ábótavant í þeirra söfnunarkerfi. Þeim hefði átt að vera ljóst, að lítið mark yrði tekið á sögum um glataða lista, jafnvel þótt sannar væru. Þá er það sú aðdróttun að fólk hafi verið neytt til að skrifa undir lista Varins lands. Þetta er gamall áróður herstöðvaandstæðinga, sem aldrei gátu lagt fram neins konar sönnun- argögn í þessa átt þegar á reyndi. Dettur annars nokkrum heilvita manni í hug að hægt sé að fá þús- undir íslendinga til að undirrita skjal gegn vilja sínum? Svo má benda á að hverjum manni var frjálst að koma á skrifstofu Varins lands og biðja um að undirskrift sín yrði ógilt. Einn eða tveir notfærðu sér þetta ef rétt er munað. Hverjir stóðu að undir- skriftasöfnun Varins lands? Loks er það nýjasta söguskýring- in, sem er á þá leið að undirskrifta- söfnun Varins lands hafi verið „átak lýðræðisflokkanna svokölluðu og íyrirtækja landsins". Þetta eru ón- eitanlega nokkrar fréttir fyrir okkur fjórtán sem stóðum að undirskrifta- söfnun Varins lands og þá tvö þús- und sjálfboðaliða sem lögðu okkur lið. í rauninni er þessi fullyrðing móðgun við þá fjölmörgu einstakl- inga sem lögðu þarna hönd á plóg. Þótt margir þeirra hafi verið flokks- bundnir í stjórnmálaflokkum, var framtak þeirra einstaklingsbundið en ekki flokksrekið. Vissulega var Sjálfstæðisflokkurinn sem slíkur hlynntur framtaki okkar, enda var það í fullu samræmi við stefnu flokksins í varnarmálunum, en flokkurinn átti ekki hugmyndina og rak ekki söfnunina eða skipti sér af framkvæmd hennar. Eflaust hefur forysta flokksins metið það svo, að afskiptaleysi væri affarasælast í þessu máli. Hvað Framsóknarflokkinn snert- ir er rétt að minna á að fram- ^ kvæmdastjórn þess flokks, næst- stærsta flokks landsins, skoraði á flokksmenn sína að „forðast þátt- töku í hvers konar undirskriftum um varnarmálin". Þessi áskorun, sem birtist skömmu eftir að undir- skriftasöfnunin hófst, hefur vafa- laust haft sín áhrif, þótt fjöldi Fram- sóknarmanna léti hana ekki aftra sér frá því að skrifa undir og aðstoða okkur við söfnunina. Fjölmargir áhrifamenn í flokknum birtu síðar stuðningsyfirlýsingu við söfnunina. Um Alþýðuflokkinn er það að segja, að forysta flokksins og stofn- anir hans létu málið að mestu af- skiptalaust, enda munu skoðanir hafa verið nokkuð skiptar í þeim flokki, en margir góðir Alþýðu- flokksmenn studdu okkur í verki. Hvernig var staðið undir kostnaði vegna Varins lands? Þá eru upptaldir „lýðræðisflokk- arnir“ og þeirra átak en eftir stend- ur spurningin um átak „fyrirtækja landsins". Þar verðum við undirrit- aðir að játa að við komum af fjöllum og vitum ekki hvað við er átt. Auð- vitað leituðum við bæði til fyrir- tækja og einstaklinga um fjárstuð- ning til að standa straum af kostnaði við undirskriftasöfnunina. Mörg fyrirtæki sýndu okkur velvild, en um stórar fjárhæðir var ekki að ræða enda kostnaður mjög hófsam- legur eins og sjá má í endurskoðuð- um reikningum sem fram voru lagð- ir á opinberum vettvangi. Heildarkostnaðurinn nam 1,2 millj- ónum í þágildandi krónum (2,6 millj- ónum í núgildandi krónum, ef krónutalan er framreiknuð eftir byggingarvísitölu). Af þeirri upp- hæð nam framlag einstaklinga 872 þúsund krónum (sem myndi sam- svara 1,9 milljónum nú), en framlag fyrirtækja var aðeins 299 þúsund (670 þúsund á núverandi verðlagi). Andstæðingar Varins lands verða að sætta sig við það, hvort sem þeim líkar betur eða verr, að undirskrifta- söfnunin árið 1974 var fjöldahreyf- ing sem hvorki var rekin áfram af stjórnmálaflokkum né fyrirtækjum. Þess má geta að langstærsti kostnaðarliðurinn hjá Vörðu landi var skýrsluvélavinna vegna sann- prófunar undirskriftanna. Sá kostn- aður nam 500 þúsund krónum (1,1 milljón á núverandi verðlagi). Ofangreindar kostnaðartölur geta menn svo borið saman við kostnað og fjármögnun söfnunar Umhverfis- vina, ef þeirra tölur verða birtar. Samanburður á textum Að lokum viljum við leyfa okkur að gera athugasemd við textann sem Umhverfisvinir buðu mönnum að skrifa undir. Alþjóð veit að það er áhugamál Umhverfisvina að koma í veg fyrir virkjanir sem leitt gætu til óbætan- legra landspjalla. Um þetta sjónarmið er deilt, en það er ekki til umræðu hér. Gallinn er hins vegar sá að hið raunverulega markmið Umhverfis- vina kemur hvergi fram í því skjali sem þeir dreifðu til undirskrifta. Þeir féllu nefnilega í þá freistni að orða skjalið þannig að nánast hver sem væri gæti skrifað undir, hvort sem hann eða hún væri með eða móti virkjunarframkvæmdum. Þetta voru alvarleg mistök sem drógu mjög úr vægi undirskrifta- söfnunarinnar. Þess skal getið til fróðleiks, að hliðstæð tillaga kom fram þegar verið var að semja textann að undir- skriftasöfnun Varins lands. Sú til- laga var dregin til baka eftir stutta umræðu og menn sameinuðust um texta sem var skýr og afdráttarlaus. Þurfti því enginn að velkjast í vafa um það hvað undirskriftirnar merktu, og áhrifin voru í samræmi við það. Hætt var við uppsögn varn- arsamningsins við Bandaríkin og samið um áframhaldandi dvöl varn- arliðsins. Höfundar voru f hópi forgöngu- manna undirakriftasöfnunar Var/ns lands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.