Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Litlu munaði að illa færi þegar festar flutningaskipsins Bremerflagge slitnuðu í Grindavfkurhöfn
Skuturinn
stefndi upp
áland
LITLU munaði að illa færi þegar
festar flutningaskipsins Bremer-
flagge slitnuðu í höfninni í Grindavík
í óveðrinu í gærmorgun. Skutur
skipsins stefndi upp í land þegar
tókst að skjóta línum upp í það og
koma því upp að bryggju. Hafnar-
lóðsinn Villi og björgunarbáturinn
Oddur V. Gíslason voru notaðir til að
halda við flutningaskipið og þó héldu
festar áfram að slitna.
Það var ekki fyrr en um sjö
klukkustundum eftir að björgunarað-
gerðir hófust að lóðsinn og björgun-
arbáturinn gátu farið frá hlið skipsins
og hægt var að láta það liggja við
festar.
... aðeins þrjú bönd voru eftir
Gunnar Jóhannesson, hafnsögu-
maður í Grindavík, sagði að hann
hefði verið kominn niður á bryggjuna
þegar klukkuna vantaði 20 mínútur í
sjö í gærmorgun og „var skipið þá á
leiðinni yfir höfnina og aðeins þrjú
bönd eftir“ til að halda því. Hann
sagði að skipið hefði verið vel bundið
við bryggju, en búið að slíta nánast
allt eftir að veðrið skall á. Áhöfnin var
um borð í skipinu og var línu skotið út
í það með línubyssu. Um leið fóru
lóðsinn og björgunarbáturinn upp að
hlið þess og sagði Gunnar að á tíma-
bili hefði verið hættulegt að vera með
bátana þama.
Rúma tvo tíma tók að koma skip-
inu upp að bryggjunni og ganga frá
því á ný. Ekki voru þó öll vandræði úr
sögunni. Þrátt fyrir að haldið væri við
skipið og vélar lóðsins og björgunar-
bátsins væru látnar ganga fyrir fullu
afli héldu festar áfram að slitna og
undir klukkan ellefu mátti sjá menn á
gúmbáti, sem virtist vart stærri en
korktappi í öldurótinu undii- skut
skipsins að koma línu út í það að nýju.
Þegar ljósmyndara og blaðamann
bar að garði um klukkan tíu flæddi
enn upp á bryggjuna þótt um ein og
hálf klukkustund væri liðin frá því að
flóðið náði hámarki. Bryggjan þar
sem Bremerflagge hefði skollið upp í
ef ekki hefði tekist að festa skipið á
nýjan leik leit út eins og bylgjupappi.
Öldur gengu yfir vamargarða og
sjórinn spýttist upp á milli borðanna í
bryggjunni, sem flutningaskipið lá
við, milli þess, sem hann gekk yfír
hana. Björgunarsveitar- og hafnar-
starfsmenn, sem vom að ganga frá
landfesti við stefni skipsins vora í
hálfu kafí í mestu öldunum.
Klukkan hálftíu, einni klukkustund
eftir háflóðið, var sjávarhæð fimm
metrar, en ætti að meðaltali að vera
3,5 metrar þegar mest er og stór-
streymt.
Frameftir morgni héldu lóðsinn og
björgunarbáturinn við flutningaskip-
ið, en upp úr hádegi hafði fjarað það
mikið frá og veður gengið niður að
þess stuðnings þurfti ekki lengur við.
í viðbragðsstöðu á flóðinu
í gærkvöldi
„Nú er allt í mjög góðu lagi,“ sagði
Grétar Sigurðsson, vaktstjóri í
Grindavíkurhöfn, um klukkan hálftvö
í gær. „Það er fjara eins og er, en eft-
ir fjöra kemur flóð. Það má búast við
Morgunblaðið/RAX
Á meðan lóðsbáturinn Villi og björgunarbáturinn Oddur V. Gíslason Iétu vélarnar ganga af fullum krafti í
Grindavíkurhöfn til að halda flutningaskipinu Bremcrflagge við bryggju, var hugað að skemmdum sem urðu á
Kvíabryggju þegar þriggja metra há alda gekk yfir hana.
háflóði milli átta og niu í kvöld, en ég
er að vona að hann verði búinn að
snúa sér í norðlæga átt í kvöld eða
nótt og orðinn hægari.“
Hann kvaðst ekki eiga von á svip-
uðu veðri með flóðinu í gærkvöldi, en
vitaskuld yrðu menn í viðbragðs-
stöðu.
Að sögn Grétars er ekki ólíklegt að
um þijátíu manns hafí staðið að að-
gerðum í gærmorgun, þar á meðal fé-
lagar úr björgunarsveitinni Þorbimi,
áhöfn Bremerflagge og hafnarstarfs-
menn.
Að sögn Grétars fór saman að nú
er stórstreymt og loftþrýstingur lág-
ur. Fyrir þær sakir hefði þetta
vandamál komið upp.
Grétar sagði að þótt tæpt hefði
staðið með flutningaskipið hefði eng-
inn lagt sig í hættu við að bjarga því:
„Mannskapurinn var aldrei í hættu.“
Hann bætti við að þótt vitað hefði
verið að von væri á slæmu veðri hefði
aldrei komið til greina að flytja
Bremerflagge úr höfninni.
Bremerflagge kom til Grindavíkur
á sunnudag frá Norðfirði þar sem 700
tonnum af loðnumjöli hafði verið lest-
að í skipið, sem er 3100 tonn og 99
metrar á lengd. Ætlunin er að lesta
2600 tonn í Grindavík og hafði 1000
tonnum verið skipað um borð þegar
óveðrið hófst. Baldvin Magnússon
hjá Grendal-skipamiðlun sagði að
vissulega yrðu einhveijar tafir á
skipinu vegna veðursins, en það yrðu
rétt eins og tafir í ofankomu og logni
þegar verið væri að lesta mjöli. Ætl-
unin er að hefja lestun að nýju fyrir
hádegi í dag. För skipsins er næst
heitið vestur um haf til Morehead
City í Norður-Karolínu.
Grétar Sigurðsson sagði að brott-
för hefði ekki verið ákveðin, enda
væri þetta í fyrsta skipti, sem lestim
færi fram á þessum stað í höfninni
auk þess, sem verið væri að nota nýj-
an búnað, sem ekki væri kominn á
reynsla.
Mættu bryggjunni á leið
niður að höfn
í veðrinu í gærmorgun skemmdist
einnig bryggja í höfninni, svokölluð
Kvíabryggja, öðra sinni á þessu ári.
Viðgerðir vora hafnar á þessari
bryggju, sem skemmdist í sjógangi
fyrir um mánuði. Öm Magnússon var
meðal þeirra, sem unnu að viðgerð
bryggjunnar, og sagði hann að
þriggja metra há alda hefði skollið yf-
ir hana um klukkan níu í gærmorgun
og tekið allt með sér, bryggjan verið
komin út um allan bæ og þeir hefðu
„mætt henni“ á leiðinni niður að höfn.
Úm leið hefði krani, sem notaður var
við viðgerðina, fyllst af sjó.
Sagði Grétar Sigurðsson að
bryggjan liti nú verr út en áður og
væra menn aftur komnir á byrjunar-
reit hvað hana snerti.
Nýbyggingin Austurstræti 8 til 10 seld á rúmar 500 milljónir
950 manna veitingastað-
ur opnaður í sumar
NÝR 950 manna veitingastaður mun
opna í miðborg Reykjavíkur í byrjun
sumars. Að sögn Garðars Kjartans-
sonar, eins af eigendum staðarins,
verður þetta langstærsti veitinga-
staður miðbæjarins, en hann verður
staðsettur í nýju húsi við Austur-
stræti 8 til 10, en þar stóð Isafoldar-
húsið áður. Þá er einnig ráðgert að
opna nýjan 450 manna veitingastað í
húsi Háspennu við Hafnarstræti 3 í
vor, en það er Ingi Björn Albertsson,
sem mun sjá um rekstur þess staðar.
í byrjun vikunnar keypti Garðar,
ásamt þremur öðram viðskipta-
mönnum, húsið, sem er alls um 3.000
fermetrar, af Þorsteini Vilhelms-
syni, fyrram útgerðarmanni, en ætla
má að kaupverðið hafi verið rúmar
500 milljónir króna.
„Bygging hússins hefur tafist um
2 mánuði, en við vonumst til þess að
geta opnað veitingastaðinn í júní,“
sagði Garðar. „Þetta verður glæsi-
legur staður, prýddur dýram lista-
verkum, en þarna verður m.a. gott
rými fyrir tónleikahald, tískusýning-
ar og leiksýningar."
Garðar sagði að veitingastaður-
inn, sem verður um 1.000 fermetrar,
yrði á jarðhæð og í kjallara hússins,
en að hinar hæðir þess hefðu verið
leigðar Alþingi til næstu 12 ára.
Eins og áður sagði mun staðurinn
rúma 950 manns, en til samanburðar
má geta þess að Kaffí Reykjavík tek-
ur um 500 til 600 manns.
Garðar sagði að í kjallara hússins
yrði diskótek, en á fyrstu hæðinni
væri gert ráð fyrir stóra sviði og
veitingasal, þar sem allt að 340
manns gætu setið til borðs. Hann
sagðist þó ekki ætla að vera með
matsölustað í húsinu, en að matur
yrði þó borinn fram við sérstök tæki-
færi, þegar stærri hópar kæmu sam-
an, t.d. við árshátíðir. Á daginn verð-
ur síðan rekið kaffihús á staðnum.
Þeir sem eiga húsið ásamt Garðari
eru: Jón Þór Hjaltason, Bjami
Gunnarsson og Gunnar Þór Benja-
mínsson. Þessir fjórir menn eiga síð-
an einnig fyrirtækið, sem mun sjá
um rekstur veitingastaðarins, en að
því fyrirtæki koma einnig þau Ingi-
björg Örlygsdóttir, Jón Ólafsson,
sem verður tónlistarstjóri og Fjölnir
Þorgeirsson, sem verður markað-
sstjóri.
Nýr 450 manna veitingastaður
í Hafnarstræti
Gert er ráð fyrir að veitingastað-
urinn í Hafnarstræti, sem Ingi Björn
Albertsson mun reka, verði opnaður
í maí, en þó staðurinn sé skráður við
Hafnarstræti, stendur hann í raun
við Naustin, litla götu á milli Hafnar-
strætis og Tryggvagötu. Staðurinn
stendur s.s. við hlið Kaffí Reykjavík-
ur, sunnan megin við Gauk á Stöng.
„Þetta hefur tafist aðeins, en upp-
haflega var ráðgert að opna staðinn
fljótlega eftir áramótin," sagði Ingi
Björn. „Ætlunin er að hafa þarna
skemmtistað með lifandi músík.
Staðurinn verður opnaður á morgn-
ana og í hádeginu verður hægt að fá
sér léttan hádegismat, en eftir há-
degi verður svona pöbba- og kaffi-
húsastemmning.11
Á milli Vesturgötu og Naustanna
liggur göngustígur og sagði Ingi
Björn að þar gæti myndast góð
kaffihúsastemmning á daginn. Hann
sagði að starfsemi Háspennu myndi
verða flutt í lítið hús sem stæði á
milli væntanlegs skemmitstaðar og
Kaffi Reykjavíkur.
Ingi Björn sagði að nýi skemmti-
staðurinn væri hugsaður fyrir 25 ára
og eldri.
Skipaður
prestur í
Gautaborg
SÉRA Skúli Sigurður Ólafsson
prestur á ísafirði hefur verið
skipaður í embætti prests með-
al Islendinga í
Svíþjóð með
aðsetur í
Gautaborg.
Embættið
veitist frá 1.
mars 2000.
Umsækj-
endur um
embættið voru
fimm og voru
þeir þessir: Sr. Flóki Kristins-
son, sr. Hannes Björnsson, sr.
Lilja Kristín Þorsteinsdóttir,
sr. Skúli Sigurður Ólafsson og
sr. Sigurður Arnarson.
Biskup íslands, Karl Sigur-
björnsson, hafði vikið sæti í
málinu þar eð einn umsækj-
anda, Sigurður Arnarson, er
tengdasonur hans, og fór sr.
Bolli Gústavsson, vígslubiskup
á Hólum, með málið.
Sérstaklega skipuð hæfnis-
nefnd vegna vals til ofan-
greinds embættis prests komst
að þeirri niðurstöðu að allir um-
sækjendur væra hæfir til að
gegna embættinu. Nefndin
taldi að séra Skúli Sigurður
Ólafsson, prestur í ísafjarðar-
prestakalli, væri hæfastur um-
sækjenda til að gegna stöðunni.
Hefur sr. Bolli Gústavsson
ákveðið að skipa sr. Skúla í
embættið.
Séra Skúli Sigurður er sonur
Ólafs Skúlasonar biskups og
eiginkonu hans Ebbu Sigurðar-
dóttur.
{'■ '< ■ <
V ‘'f
Heimilislína Búnaðarbankans - ræktaðu garðinn þinn
Gullreikningur með hærri innlánsvöxtum • Lægri vextir á yfirdrætti
Heimilisbanki á Netinu • VISA farkort • Fjármögnunarleiðir
Greiðsluþjónusta • Ávöxtunarleiðir
®BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki
HEIMILISLÍNAN