Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Útgreiddur kaupauki starfsmanna FBA vegna síðasta árs að meðaltali 100 þúsund á mánuði AÐALFUNDUR Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins, FBA, sem haldinn var í Borgar- leikhúsinu í gær, er fyrsti hluthafafundur í félaginu eftir að ríkissjóður seldi dreifðum hópi fjárfesta þann 51% hlut sem ríkið átti í fyrirtækinu. Umræður spunnust á fundinum um af- komutengdar launagreiðslur til starfsmanna bankans, svonefnt EVA-kerfi (Economie Value Added) sem greitt er eftir hjá FBA í fyrsta' skipti fyrir árið 1999. Útreiknaður bónus fyrir síðasta ár nemur alls 191,3 millj- ónum króna og voru 22,6 milljónir greiddar út í september sl. Um næstu mánaðamót verða greiddar 76,6 milljónir króna og nem- ur heildarútgreiddur bónus fyrir síðasta ár því 99,2 milljónum króna. Að meðaltali nem- ur þetta um 1 milljón króna á hvem starfs- mann. Af áunnum bónus geymast 48% eða 92,1 milljón sem greidd verður út á næsta ári eða síðar. Þorsteinn Ólafsson, fráfarandi stjórnarformaður FBA, gerði grein fyrir skipulagi kerfisins í ræðu sinni á aðalfundin- um og sagði kerfið hannað til að ýta undir varanlega árangursmyndun en ekki skamm- tímabata. „Grunnhugmyndin er sú að hafa áhrif á hegðun starfsmanna og stjórnenda bankans þannig að þeir líti á hagsmuni hlut- hafa sem sína eigin. Til að svo megi verða er nauðsynlegt að skilgreina nákvæmlega hver sé ávöxtunarkrafa hluthafa til hlutafjár síns í félaginu. Sú viðmiðunartala sem notuð er í dag er 13,6% eftir skatta. Það jafngildir því að í sér- hverju verkefni sem bindur eigið fé bankans þarf að gera um 19% arðsemiskröfu á eig- ið fé fyrir skatta.“ Starfsmenn FBA eru nú eitt hundrað talsins og kom fram hjá Þorsteini að laun allra starfsmanna bankans námu á síðasta ári 345 þús- und kónum á mánuði að meðaltali. Sá hluti kaupauk- ans sem greiddur var fyrir áramót og greiddur verður út um næstu mánaðamót nemur um 100 þúsund krón- um á starfsmann á mánuði til viðbótar og samsvara heildarlaun síðasta árs því 445 þúsund krónum að með- altali. Hann segir kaupaukakerf- ið þannig uppbyggt að full umbun náist því aðeins að bættur árangur sé varanleg- ur og því sé haldið eftir af bónusgreiðslum til starfs- manna á hverjum tíma til að mæta hugsanlegum afkomu- sveiflum. „Ef hagnaður bankans minnkar á milli ára kemur það til lækkunar á ávinningi starfsmannsins samkvæmt kerfinu. Valdi lækkun hagn- aðar því að inneign rennur til þurrðar eða hún er ekki til staðar, t.d. hjá nýjum starfsmanni, mynd- ast neikvæð inneign í kerfinu sem þarf að vinna upp aftur áður en til bónusgreiðslu kemur á ný.“ 17 milljónir á ári að meðaltali í umræðum um skýrslu stjórnar og reikn- inga vakti Víglundur Þorsteinsson, formaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, máls á mikilli hækkun kostnaðar hjá FBA, ekki síst launa- kostnaðar, og spurðist fyrir um skiptingu launa stjórnar og framkvæmdastjórnar. I skýringum við ársreikning félagsins kemur fram að laun stjórnar og framkvæmda- stjórnar námu á síðasta ári samtals 55 millj- ónum kr. Til viðbótar námu áunnin árang- urstengd laun vegna ágóðahlutar til fram- kvæmdastjórnar 35 milljónum kr. í árslok. Fram kom hjá stjórnarformanni að megin- hluti þessara launa væri til framkvæmda- stjórnar. Laun til fimm stjórnarmanna eru innan við 4 milljónir kr. á ári en þær liðlega 85 milljónir sem eftir eru skiptast á fimm meðlimi framkvæmdastjórnar, eða 17 millj- ónir kr. á mann að meðaltali. Þorsteinn Ólafsson, fráfarandi formaður, sagði á fundinum að mönnum gæti blöskrað svona háar tölur en þær væru tímanna tákn. Um væri að ræða stjórnendur sem raun- verulega væru á alþjóðamarkaði og þeim hefði verið boðið að fara annað. Taldi hann mikilvægt að FBA væri á undan í þessum efnum og tryggði sér ávallt hæfasta fólkið. Sagði Þorsteinn að hið launahvetjandi kerfi tryggði hagsmuni hluthafanna. I máli Bjarna Armannssonar, forstjóra FBA, kom fram að ef áætlanir um 1.763 milljóna króna hagnað fyrir skatta á árinu 1 Stjórnendur með 17 millj. laun og’ bónus Fimm æðstu stjórnendur FBA höfðu að meðaltali 17 milljónir í laun og áunninn kaupauka á síðasta ári. Fulltrúar tvegg;ja af stærstu lífeyrissjóðum landsins telja það óhóflegt og formaður Eflingar telur að það komi til umræðu innan félagsins hvort það samrýmist starfí þess að lífeyrissjóðurinn Framsýn eigi hlut í fyr- — —— — irtækinu. Helgi Bjarnason og Steingerður Olafsdóttir fylgdust með aðalfundi FBA. Morgunblaðið/Porkell Magnús Gunnarsson, nýkjörinn formaður stjórnar FBA, ásamt Jóni Ingvarssyni og Eyjólfi Sveinssyni sijórnarmönnum. 2000 gengju eftir fengju starfsmenn um 40 milljóna króna kaupauka, vissulega gæti reksturinn gengið betur en hann gæti einnig gengið verr og þá snerist kerfið gegn starfs- fólkinu. Efling íhugar að selja Víglundur sagði eftir fundinn að greiðsla kaupauka til starfsmanna almennt virtist skynsamleg. Kaupaukinn væri um 25% af heildarlaunum sem væri í fullu samræmi við bónuskerfi á vinnumarkaðnum. Hins vegar taldi hann að laun stjórnendanna væru mjög há miðað við íslenska hagkerfið og að sínu mati óhófleg. Halldór Björnsson, formaður stéttar- félagsins Eflingar, kvaðst hálforðlaus yfir þessum fjárhæðum. Þótt stjórnendur FBA væru örugglega góðir starfsmenn og verð- mætir þyrfti að leita í völdum stórfyrirtækj- um erlendis til að finna eitthvað sambæri- legt. Til viðbótar laununum fengju þeir kauprétt á hækkandi hlutabréfum í FBA. „Ég er að sýsla með allt aðrar upphæðir í mínu starfi og trúi því ekki að það geti verið rétt að greiða einstökum starfsmönnum allt að 20 til 25 milljónir kr. í laun á einu ári. Þetta eru ótrúlegar fjárhæðir.“ Halldór sagði að það yrði vafalaust tekið upp á stjórnarfundi í Eflingu, sem væri stór aðili að lífeyrissjóðnum Framsýn, hvort það samrýmdist þeirra starfi að lífeyrissjóðurinn ætti hlut í þessum banka. Tók hann jafn- framt fram að stjórn Eflingar réði þessu ekki ein. Átök eðlilegur hliðarþáttur eins róttækra breytinga í samtali við Morgunblaðið segir Bjarni Ármannsson að þátttaka hluthafa í málefn- um bankans sé forsenda þess að bankinn haldi áfram að þróast. „Menn vildu m.a. fá skýringar á afkomutengdum launagreiðslum og það er eðlilegt. Þetta eru flókin málefni og aðalfundur er einmitt vettvangurinn til að fara yfir þetta með hluthöfum. Ef okkur gengur jafnvel eða betur og á síðasta ári horfum við áfram á góða afkomu, sem kem- ur bæði hluhöfum og starfsmönnum vel. EVA-kerfið tryggir skuldbindingu fyrirtæk- isins um sífellt vaxandi arðsemi en það er forsenda fyrir hækkandi árangurstengingu í launum.“ Bjarni segir eðlilegt að sumir vilji halda FBA byggir við Borgartún GENGIÐ hefur verið frá kaupum Fjárfest- ingarbanka atvinnulífsins hf. á lóð við Borg- artún 19, á næstu lóð við Höfða. Fram- kvæmdir við nýbyggingu hefjast í apríl nk. Þetta kom fram í máli Þorsteins Ólafssonar, fráfarandi stjómarformanns FBA, á aðal- fundi bankans í gær. Byggingin er 4 hæðir, alls 4.030 fm og verktími er áætlaður 13 mánuðir. Þorsteinn sagði líklegt að hluti húsnæðisins verði leigð- ur út fyrst um sinn þar sem bankinn muni ekki fullnýta húsnæðið til að byija með. sig við eldri aðferðir, m.a. í launamálum. „Umbreyting úr framleiðsluþjóðfélagi í þekkingarþjóðfélag kallar á að mannauðnum sé veitt athygli og starfsfólk fái greitt í sam- ræmi við árangur." Bjarni er sannfærður um að hluthafar standi þétt að baki bankan- um. „Umræður, skoðanaskipti og jafnvel átök eru eðlilegur hliðarþáttur jafnróttækra breytinga og orðið hafa í samfélaginu og á bankanum," segir Bjarni. Kaupréttir tengja saman hagsmuni hluthafa og starfsmanna Á aðalfundinum var samþykkt tillaga um heimild til að gera kaupréttarsamninga við lykilstarfsmenn og stjórnendur bankans. Bjami Brynjólfsson frá lífeyrissjóðnum Framsýn spurði hvort markaðsgengi hluta- bréfa bankans yrði notað í viðskiptum við starfsmenn. I svari fráfarandi stjórnarfor- manns kom fram að svo yrði. í ræðu sinni fjallaði Þorsteinn einnig um kaupréttar- samningana. Hann sagði að þekkingarfyrir- tæki, eins og Fjárfestingarbankinn er skil- greindur, byggðist á mannauði. í því sambandi segir Þorsteinn mikilvægt að starfsfólk njóti góðs af góðri afkomu bank- ans. Um er að ræða hlutabréf í eigu bank- ans, sem keypt voru í nóvember sl. samhliða sölu á meirihluta hlutabréfa í FBA. í grein- argerð með tillögu stjórnar um heimild til að gera kaupréttarsamninga, og Þorsteinn kynnti síðar á fundinum, kemur fram að stjórnin telji slíkt skynsamlegt í ljósi þess að starfsmenn hafi þannig persónulega hagsmuni af þróun hlutabréfaverðs í fyi’- irtækjum og þannig verði hagsmunir starfsmanna og hluthafa tengdir saman. Þóknun stjórnarmanna hækkuð Á fundinum var samþykkt tillaga um laun stjórnar og felur hún í sér umtalsverða hækkun launa. Þannig fær stjórnarmaður 75 þúsund kr. þóknun á mánuði, í stað 54 þúsunda hjá fyrri stjórn, varaformaður fær 125 þús- und og formaður 175 þúsund kr. en fyrri stjórnarformaður fékk 108 þúsund kr. í þóknun fyrir stjórnarstörf. Þetta var breytt tillaga frá þeirri sem áður hafði verið kynnt, m.a. á vefsíðu FBA. Þess var þó ekki getið á fundinum að um breytta til- lögu væri að ræða. Fyrri til- laga hljóðaði upp á 300.000 króna greiðslu á mánuði til stjórnarformanns, 200.000 kr. til varaformanns og 100.000 til almennra stjórn- armanna. Magnús Gunnarsson, ný- kjörinn stjórnarformaður, sagði eftir fundinn að nauð- synlegt væri að greiða stjórnendum góð laun til að halda samkeppnishæfni við önnur lönd en gagnrýni kom fram á fundinum á launa- kjör framkvæmdastjórnar FBA. Magnús segir að stjórnin hafi sammælst um að fyrri tillaga um þóknun stjórnarmanna hafi hljóð- að upp á of háar upphæðir og því hafi verið hætt við að leggja hana fram. „Ég held að stundum sé lítið gert úr þeirri ábyrgð sem stjórnarmenn bera og það er umhugsunar- efni hvort menn fáist almennt til stjórnar- setu nema almennilega sé greitt fyrir það.“ Gert ráð fyrir svipuðum hagnaði á þessu ári Bjarni Armannsson, forstjóri FBA, gerði grein fyrir ársreikningi félagsins sem þegar hefur verið birtur. Hagnaður ársins var 1.206 milljónir króna og langt umfram þær væntingar sem gerðar höfðu verið. Bjarni kynnti jafnframt rekstraráætlun fyrir árið 2000 sem hljóðar upp á 1.763 milljóna króna hagnað fyrir skatta og 1.218 milljónir eftir skatta. Gert er ráð fyrir rekstrartekjum upp á 3.220 milljónir, að meðtöldum 1.613 millj- óna króna vaxtatekjum. Rekstrargjöld eru áætluð 1.159 milljónir og framlag í afskrift- areikning útlána er áætlað 298 milljónir. Á fundinum var samþykkt tillaga um ráð- stöfun hagnaðar ársins 1999, þar sem hæst ber arðgreiðslu upp á tæpar 1.180 milljónir, sem er hæsta arðgreiðsla íslensks fyrirtækis í krónum talið. Framlag í lögbundinn vara- sjóð eru rúmar 60 milljónir og til lækkunar á óráðstöfuðu eigin fé fara 48,5 milljónir. Á fundinum var samþykkt að stofna styrktar- og menningarsjóð FBA og verður 15 millj- ónum af hagnaði ársins ráðstafað í hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.