Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 60
SO FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ STANGARHYLUR - NYTT TIL SÖLU í þessu glæsilega húsi 332 fm nýtt verslunarrými á jarðhæð, tilbúið til innréttingar. 367 fm nýtt skrifstofuhúsnæði, tilbúið til innréttingar. 280 fm fullbúið skrifstofuhúsnæði, kaffistofa, salerni og sýningarsalur. Næg bílastæði og mikið auglýsingagildi. Teikningar og allar frekari upplýsingar á skrifstofu Ásbyrgis. if ASBYWQIif Suðurlandsbraut 54 - Vlð Faxafen - 108 Reykjavík Sími 568 2444 - Fax 568 2446 INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali. J ATVINNUHUSNÆÐI X Knudsen StykkisHólmi I : B " P#' Fyrirtækið er rekið í nýlegu eigin húsnæði og er á tveimur hæðum. Um er að ræða alhliða veitingamennsku, þ.e.a.s. matsölu, vínveitingar og veisluþjónustu. Vorum að fá á söluskrá okkar gott veitingahús sem staðsett er í Stykk- ishólmi og hefur verið rekið með miklum myndarbrag undanfarin ár. Ahvílandi eru mjög hagstæð lang- tímalán. Parna er á feröinni traust fyrirtæki í mikilli framfarabyggð, m.a. á sviði ferðamála. Framundan er besti sölutíminn. Allar nánari upDlvsingar gefur Kristinn Hóll fyrirtækjasala Skíphoiti 50b Sími 551 9400 Skipholti 50b Vorið frá mi) SANDRA PABST og SELECTION Laugavegur 68, sími 551 7015 ÍDAG VELVAKAJMDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til fóstudags Könnun á spilafíkn VITAÐ er að þúsundir manna hér á landi eru of- urseldir spilafíkn. Þar er um að ræða unga sem aldna, öryrkja og alls konar fólk. Ég legg til að Rauði kross íslands láti gera könnun á því hversu marga hér er um að ræða og hversu margir að- standendur þessa fólks hafa misst aleigu sína af þeirra völdum, svo og hversu margir leiti sér aðstoðar hjá hinum ýmsu hjálparstofnunum hér á landi. Einnig hver greiðir ferðir og uppihald sér- fræðinga frá Bandaríkj- unum sem eru hingað komnir til að réttlæta rekstur spilakassa til fjár- mögnunar m.a. Rauða kross Islands. Eru það kannski fíklarnir sem borga brúsann? Eldri borgari. Hvar eru félög eldri borgara? MÉR fínnst smánarlegt að við sem erum komin yfir sjötugt eða áttrætt skulum vera þvinguð til að borga svo háa eigna- og tekjuskatta af húseign- um okkar, að við verðum sárnauðug að hrökklast úr þeim. Við höfum alla ævi borgað skatta og skyldur af þessum eign- um okkar, lagt metnað okkar í þær og þær eru hluti af lífi okkar. Hálf- blind rötum við þar fram og aftur og hölt og skökk vitum við hvar hlutur er til að styðja sig við. Við sem vorum í barneign fyr- ir pilluna eigum stórar fjölskyldur, oft 30-40 af- komendur sem við viljum gjarnan eiga aura til að gleðja á tyllidögum. En nú á íbúðin okkar að vera orðin allt of stór og við eigum eins og stóll eða borð að flytja úr gamla hverfínu okkar í smáíbúð suður í Smára. Hvar eru félagabákn eldri borgara? H.S.J. Fátækt á Islandi ER til fátækt á íslandi? Eftir útkomu bókar Stefáns Ólafssonar um Almannatryggingar og nú síðast skýrslu frá Rauða krossinum, verður Davíð að viðurkenna að ekki er hægt að stinga hausnum í sandinn eins og strútur- inn og halda að þar sem hann sjái ekki sé hann öðrum ósýnilegur. Það er engin afsökun eða réttlæting að kjör þeirra séu betri núna en á öðrum tímum. Þegar ör- yrki á ekki fyrir mat síð- ari hluta mánaðarins, þýðir ekki að segja „þú varst svengri í síðustu vinstristjórn, þú verður að viðurkenna það“. Hann étur allavega ekki það, eða sendir barn- ið sitt í skóia út á það, og það breytir ekki þeirri staðreynd að kjör öryrkja eru ill. Það er tími til kominn að horfast í augu við að fátækt er hér á landi og fer vaxandi. Stór hópur fólks fer á mis við það sem hinum almenna borg- ara finnst sjálfsagt, svo sem tómstundir, ferðalög, læknisþjónustu o.fl. Jafn- vel er til fólk sem hrein- lega á ekkert til matar seinni part mánaðarins og er háð ölmusu frá ætt- ingjum og vinum. Það þýðir ekkert fyrir stjórn- völd að segja, það er svo dýrt að reka almanna- tryggingakerfi og að við höfum ekki efni á því. Finnar hafa alla tíð ver- ið langt á undan okkur hvað varðar greiðslur al- mannatrygginga og hafa samt á sama tíma verið að berjast við yfír 10% at- vinnuleysi og mikla efna- hagskreppu, sérstaklega eftir að verslun við Sovét- ríkin lagðist niður að mestu. Það kemur samt ekki í veg fyrir að þeir sjá vel um þá sem ekki geta hjálpað sér sjálfir. Það eina sem vantar er vilji stjórnvalda þessa lands til að rétta kjör þeirra sem verst eru sett- ir í þjóðfélaginu. Nú, þegar búið er að selja mörg ríkisfyrirtæki og stendur til að selja önnur, má spyrja hver það var sem greiddi þessi fyrirtæki með sköttum, bæði beinum og óbeinum? Var það ekki fólkið sem þarf á ellilífeyri og ör- orkulífeyri að halda í dag og er þá ekki eðlilegt að eitthvað af þessum pen- ingum renni til baka til almennings, nú þegar á að leysa hann út úr þess- um fyrirtækjum? Við höfum heyrt for- ráðamenn þessara fyi'ir- tækja tala um að þessi fyrirtæki séu tuga millj- arða króna virði, en það þarf ekki nema 3 til 4 milljarða til að leiðrétta kjör þeirra verst settu til muna. Nú skora ég á öll félög og alla einstaklinga að láta til sín heyra og mót- mæla kröftuglega þeirri lítilsvirðingu sem stjórn- völd sýna stórum hópi þegna þessa lands með því að gera ekkert til að bæta kjör þeirra. Jóhannes Þór Guðbjartsson. Tapad/fundió Karlmannsúr týndist KARLMANNSÚR, Maruice Lacoix, með brúnni leðuról týndist fyr- ir utan Veggsport eða vínverslunina Hafrúnu fyrir u.þ.b. 3 vikum. Finn- andi hafí samband í síma 560-4445 eða 567-6737. Geisladiskaveski týndist SVART geisladiskaveski týndist úr bíl. Skilvís fmnandi hafi samband í síma 8697873. Dýrahald Læða fæst gefíns ÁRSGÖMUL læða, hvít að lit og kassavön, fæst gefíns. Upplýsingar í síma 695-6565 og 699-5680. Víkverji skrifar... AVEFSÍÐUNNI Strik.is hefur verið gerð tilraun með að stofna til umræðu um ýmis mál, svo sem stjómmál, íþróttir og kvik- myndir. Fyrirkomulagið er þannig að hver og einn getur lagt inn orð án þess að þurfa að gefa upp nafn. Víkverji skoðaði fyrir skömmu spjallsíðu um stjórnmál og varð bæði undrandi og hneykslaður. Ef stjórn- málaumræða í landinu er á þessu plani ber sannarlega að hafa áhyggj- ur af henni. Þarna er að finna upp- hrópanir, palladóma og hreinan og kláran dónaskap um nafngreindar persónur. Sérstaklega virðast kven- stjórnmálamenn mega þola ómak- legar árásir í þessum spjallþáttum. Óhætt er að fullyrða að sú tilraun íslandsnets, sem stendur fyrir Strik.is, að standa fyrir stjómmála- umræðu á vefsíðu sinni, hefur gjör- samlega mistekist. Víkverji hvetur íslandsnet til að hætta þessari tilraun eða breyta henni. Ef svona tilraun á að heppn- ast þarf augljóslega að krefja þá sem tjá sig um nafn. Eins verða starfs- menn íslandsnets að fylgjast með þessum spjallþáttum og eyða bulli og meiðandi ummælum sem ekki á erindi á heimasíður sem vilja láta taka sig alvarlega. YÍKVERJI rakst á dögunum á viðtal í Morgunblaðinu við sænska ráðgjafann Rolf Falken- berg, sem búið hefur til leiðtogalíkan sem hann kallar Tígulinn. Horn- steinar Tígulsins era næmi, raunsæi, djörfung og framsýni. Falkenberg telur að góður leiðtogi þurfi að þroska þessa íjóra hæfileika. Síðan segir hann: „Dæmi um þann sem skortir algjörlega einn þáttinn, eins og næmi, er Adolf Hitler. Hann hafði til að bera djörfung, raunsæi og framsýni; hann sá til þess að næg vinna væri fyrir hendi, sem ber vott um raunsæi, og hann hafði stórar sýnir um þriðja ríkið, sem sýnir framsýni hans og djörfung, að vissu leyti. Aftur á móti skorti hann næmi á þarfir fólks og umhyggju fyrir því.“ Þetta verða að teljast sérkennileg ummæli um mann sem ber ábyrgð á einum mestu fjöldamorðum sem framin hafa verið. Raunar má spyrja hvort Hitler hafi ekki einmitt verið nokkuð næm- ur á þýsku þjóðarsálina þegar hann var að berjast til valda, en það er hins vegar spurning hvort næmi sé rétta lýsingarorðið þegar kemur að því að lýsa viðhorfum hans til þarfa fólksins. Það má einnig færa rök fyr- ir því að Hitler hafi skort framsýni og raunsæi í stríðsrekstri sínum. Víkverji hefur lengi verið þeirrar skoðunar að stór hluti af kenningum um stjórnun sé óttalegt bull. Kenn- ingar Rolf Falkenberg hafa heldur styrkt Víkverja í þessari trú. XXX ISÍÐUSTU viku kvartaði Víkverji yfir því að erfitt væri að nálgast kjúklinga merkta ísfugli í stór- mörkuðum á höfuðborgarsvæðinu. Tilefnið var að ítrekað hefur verið staðfest í rannsókn heilbrigðisyfir- valda að ísfugl er algerlega laus við kamphýlóbaktersýkingu. Starfsmaður ísfugls hafði sam- band við blaðið af þessu tilefni og vildi koma því á framfæri að kjúkl- ingar frá ísfugli fást í stórmarkaðn- um Nettó í Mjódd og einnig í versl- unum eins og Samkaupum og Spar- kaupum. Jafnframt vildi starfs- maðurinn árétta að ísfugl er ekki kjúklingabú heldur sláturhús og dreifingarfyrirtæki sem slátrar og dreifir kjúklingum frá átta búum. Sjálfsagt er að leiðrétta þetta. Vík- verji vill jafnframt hvetja fleiri verslanir til að taka ísfugl í við- skipti þannig að neytandinn geti valið milli framleiðenda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.