Morgunblaðið - 24.02.2000, Síða 28
28 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Skýrsla mannréttindasamtaka
Rússar sakaðir
um fjöldamorð
Mqskva. AP.
RUSSNESKIR hermenn myrtu að
minnsta kosti 62 óbreytta borgara í
úthverfi héraðshöfuðborgar Tsjetsj-
níu, Grosní, í upphafi þessa mánaðar,
að því er fram kemur í nýrri skýrslu
mannréttindasamtakanna Human
Rights Watch.
Samkvæmt framburði vitna, sem
starfsmenn samtakanna tóku viðtöl
við, fóru u.þ.b. 100 hermenn ráns-
hendi um hverfið Aldi, nauðguðu
konum og köstuðu handsprengjum
niður í kjallara þar sem fólk hafðist
við. Talsmaður HRW sagði í gær, að
samtökin hefðu heimildir fyrir því,
að tala myrtra væri 82 en aðeins
væri búið að vinna skýrslu um 62
þeirra. Hann sagði einnig, að her-
menn hefðu hótað sjónarvottum
hefndum segðu þeir frá.
Vladímír Pútín, starfandi forseti
Rússlands, skipaði í síðustu viku
Vladímír Kalamanov sem sérlegan
mannréttindafulltrúa rússneskra
stjómvalda í Tsjetsjníu. Hefur Kal-
amanov heitið því, að ásakanir, sem
fram koma í skýrslu HRW á hendur
rússneskum hermönnum, verði
rannsakaðar vandlega.
Jaeky Mamou, formaður frönsku
mannréttindasamtakanna Lækna án
landamæra, sagði í gær, að rúss-
neskir hermenn hefðu gerst sekir
um „stórfellda og skipulagða stríðs-
glæpi“ í Tsjetsjníu. Þá fullyrti Guy
Causse, læknir á vegum samtakanna
og nýkominn frá Tsjetsjníu, að átök-
in í landinu hefðu kostað miklu fleira
fólk lífið nú en í stríðinu 1994-’95
þegar 60.000 manns féllu.
Samsæri um að
myrða Pútín?
Tsjetsjenar minntust þess í gær,
að þá voru liðin 56 ár frá því Stalín
lét flytja hundruð þúsunda Tsjetsj-
ena nauðungarflutningi til Mið-Asíu
en hann sakaði þá um samstarf við
Þjóðverja. Var mikill viðbúnaður í
Rússlandi af þeim sökum enda vill
svo til, að 23. febrúar er einnig dagur
rússneska hersins. Ekki bar þó neitt
út af en rússneska ríkissjónvarpið
skýrði frá því í gær, að flett hefði
verið ofan af samsæri um að myrða
Pútín forseta er hann kæmi til Pét-
ursborgar í dag. Var ekki sagt neitt
meira um málið og talsmaður forset-
ans vildi ekkert um fréttina segja.
Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, átti viðræður við ráða-
menn í Moskvu í gær en á blaða-
mannafundi sagði hann, að fyrir utan
að lýsa áhyggjum af ástandinu í
Tsjetsjníu, væri það fátt, sem Vest-
urlönd gætu aðhafst.
Reuters
Tsjetsjenar veifa fána sínum og minnast nauðungarflutninganna 1944
við athöfn í gær. Á skiltunum stendur: „Látið Tsjetsjníu í friði“ og
„Draginn herinn burt“.
Deilt um iðnaðarnjósnir í ESB
Blair vísar á
bug ásökunum
Brussel. The Daily Telegraph, AFP.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins (ESB) hefur ákveð-
ið að kanna hvað hæft sé í ásökunum
um að brezk og bandarísk yfírvöld
hafi með sér samstarf um iðnaðar-
njósnir í Evrópu, meðal annars með
hjálp hlerunarstöðva í Englandi.
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, vísaði þessum ásökunum á
bug í Rrussel í gær, þar sem hann
var staddur í skyndiheimsókn í höf-
uðstöðvum ESB.
Romano Prodi, forseti fram-
kvæmdastjórnarinnar, átti viðræður
við Blair í gær, en Prodi hefur að
sögn Daily Telegraph hætt á að
lenda í deilum við brezk stjórnvöld
með því að gefa starfsliði sínu fyrir-
mæli um að fylgja eftir skýrslu sem
gerð var á vegum Evrópuþingsins,
en í henni er fullyrt að leynilegum
upplýsingum sé lekið til bandaríska
viðskiptaráðuneytisins, sem láti
bandarískum fyrirtækjum þær í té.
Er líkum að því leitt í skýrslunni að
Bretar og Bandaríkjamenn haldi
sameiginlega úti samskiptanjósna-
kerfi sem nái til heimsins alls og
gangi undir nafninu Eehelon. Sagt
er að kerfið sé svo öflugt að með því
sé hægt að hlera hvaða símtal, sím-
bréfs- eða tölvupóstsendingu sem er.
Tilvist Echelon var staðfest fyrr í
þessum mánuði þegar leynd var lyft
af leyniskjölum Þjóðaröryggisstofn-
unar Bandaríkjanna (US National
Security Agency, NSA).
Við hlerun símtala virkar kerfið
þannig, að sjálfvirk hlustunartæki
taka þau samtöl sjálfkrafa upp, þar
fbúar í Xai-Xai héraði í Mósambík hafa komið sér fyrir á graseyjum innan um vatnselginn. Um 300.000 manns
hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna náttúruhamfaranna.
Ottast smitsjúkdóma
í kjölfar fellibyls
TALIÐ er að allt að 300.000 manns
hafi þurft að yfirgefa heimili sín í
Mósambík að undanfömu, en fellibyl-
urinn Eline fór yfir hluta landsins á
þriðjudag og jók við þá miklu eyði-
leggingu sem fylgt hefur í kjölfar
flóða í landinu. Óttast menn nú að
smitsjúkdómar á borð við malaríu og
kóleru kunni að gera vart við sig og
hafa Sameinuðu þjóðimar hafið söfn-
un meðal þjóða heims, Mósambík til
aðstoðar.
Að sögn Carol Bellamy hjá Sam-
einuðu þjóðunum hefur hættuástand
í landinu ekki náð hámarki. Sjúkdóm-
ar sem rekja má til neyslu á sýktu
vatni hafa þegar tekið að gera vart
við sig og er óttast að mun fleiri tU-
fella verði vart. Vitað er með vissu að
67 manns fómst í flóðunum. Yfirvöld-
um er hins vegar ekki kunnugt um
hvort mörg dauðsföll megi rekja til
feUibylsins, en búist er við að dánar-
tíðni eigi enn eftir að aukast. „Það
versta á enn eftir að gerast," sagði
Bellamy. „Það er engan mat að finna,
lítið af hreinu vatni og stormm-inn
geisar enn.“
Fellibylurinn Eline og hellirigning
sem honum fylgdi skildi eftir sig slóð
eyðileggingar í sumum hémðum
landsins, þök fuku af húsum og víða
var rafmagnslaust. Flóðin sem á und-
an höfðu farið em þau verstu sem
orðið hafa í Mósambik í 50 ár, en allar
stærstu ár landsins flæddu yfir bakka
sína. Telja yfirvöld í Mósambík að at-
burðimir undanfarið hafi haft áhrif á
líf allt að 800.000 íbúa í landinu.
Assad forseti að hætta?
STERKUR orðrómur er á kreiki um
það í Sýrlandi að Hafez al-Assad for-
seti muni á allra næstu dögum taka
ákvörðun um að hækka Farouk al-
Shara utanríkisráðherra í tign og
gera hann að forsætisráðherra.
Orðrómurinn fékk byr undir báða
vængi í gær er fréttaþulur í rfldssjón-
varpi landsins titlaði al-Shara forsæt-
isráðherra fyrir mistök. Að sögn
ónafngreindra heimildarmanna er al-
mennt talið líklegt að mikil uppstokk-
un sé framundan í stjórnarflokknum
Baath. Auk þess að hækka al-Shara í
tign muni Assad einnig vera með í
undirbúningi lagasetningu um að
Romano Prodi, t.h., talar með
fingur á lofti við Tony Blair eftir
fund þeirra í Brussel í gær.
sem fyrirfram valin lykilorð koma
fyrir. Öpinberlega var þessu njósna-
kerfi komið upp í nafni öryggis hins
vestræna heims og til að berjast
gegn alþjóðlegri hryðjuverkastarf-
semi, en gagnrýnendur í Evrópu ótt-
ast að Bandaríkjamenn og Bretar
noti kerfið til iðnaðarnjósna.
I borgararéttindanefnd Evrópu-
þingsins hófust í gær umræður um
ofangreinda skýrslu. Fram kom sú
ásökun hjá meðlimum í nefndinni að
Echelon væri brezk-bandarískt sam-
særi sem snerist um að njósna um
evrópska bandamenn. Echelon er
reyndar nú þegar undir smásjánni
fyrir dómstólum í Frakklandi og á
þjóðþingum Ítalíu og Danmerkur.
„Fjöldi fyrirtækja hefur tjáð mér að
þau hafi áhyggjur, einkum þau sem
sonur hans, Bashr Assad, taki við
forsetaembættinu. Hann þykir þó
ekki hafa til að bera þá pólitísku vigt,
sem nauðsynleg er til að leiða friðar-
samninga við ísraela til lykta.
Assad forseti er sjálfur orðinn
heilsutæpur og hefur vart krafta til
að ganga frá samningunum. Að hon-
um undanskildum er al-Shara utan-
ríkisráðherra sá eini sem talinn er
geta komið málinu í höfn á farsælan
hátt. Hann nýtur trausts jafnt innan
Sýrlands sem utan og því kjörinn til
að taka upp viðræður við Ehud Bar-
ak, forsætisráðherra ísraels, á nýjan
leik.
fást við hergagnasmíði" segir Grah-
am Watson, brezkur Evrópuþing-
maður sem fer fyrir ofangreindri
þingnefnd. „Þau eru hrædd um að
þetta spilli möguleikum þeirra þegar
þau eru að keppa við bandarísk fyrir-
tæki um verkefnasamninga," segir
hann.
Sagt er í skýrslunni að hinni
meintu njósnastarfsemi sé stjórnað
frá höfuðstöðvum NSA í Fort Meade
í Maryland-ríki. Þessi stofnun mun
vera í nánu samstarfi við GCHQ,
samsvarandi stofnun brezka ríkisins.
Mun þetta samstarf vera grundvall-
að á samkomulagi frá árinu 1947.
Stærsta hlerunarstöð bandarísku
njósnastofnunarinnar er við
Menwith Hill í Jórvíkurskíri á Eng-
landi, þar sem unnið er að 250 leyni-
legum verkefnum.
GCHQ hefur, eftir því sem greint
er frá í skýrslunni, það skilgreinda
hlutverk samkvæmt brezkum lögum
að hlera samskipti erlendra aðila „í
þágu efnahagslegrar velferðar Bret-
lands“. Brezka fjármálaráðuneytið,
Englandsbanki og leyniþjónustu-
nefnd brezka þingsins geta valið
„skotmörk“ sem beina skal njósnun-
umað.
í skýrslunni mun einnig vera full-
yrt að Þjóðverjar og Frakkar hafi
með sér samstarf um að hlera sam-
skipti yfir Atlantshafið.
Vopn gerð
upptæk
í Mitrovica
Brussel, Kosovska Mitrovica. Reuters, AFP.
NOKKUR hundruð bandarískir og
breskir hermenn friðargæsluliðsins í
Kosovo, KFOR, gerðu í gær vopnaleit
á heimilum fólks í borginni Kosovska
Mitrovica, jafnt Serba sem Albana.
Ekki kom til átaka en sl. sumtudag
urðu bandarískir hermenn að hætta
við leit í norðurhluta borgarinnar,
þar sem Serbar búa, þar sem ráðist
var á þá með gijótkasti. Nokkrir
rifflar og fleiri tegundir skotvopna
fundust í gær, einnig eldflaugabyssa
og herklæði.
Skýrt var frá því að bandarisku
og bresku hersveitirnar, sem sendar
voru til að aðstoða franska friðar-
gæsluliða í Mitrovica, verði senn
kallaðar á brott en kanadiskar sveit-
ir muni taka að sér að gæta brúnna
yfir ána Ibar sem skiptir borginni
milli Serba og Albana. Einnig er haf-
in vinna við að leggja nýja göngubrú
yfir ána til að auðvelda samgöngur.
Munu starfsmenn Sameinuðu þjóð-
anna reyna að tryggja að um 1500
Albanar, sem hafa verið hraktir frá
heimiium sinum í borgarhverfi
Serba geti snúið aftur þangað.
Robertson lávarður, íramkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins,
NATO, hefúr sakað Slobodan Milosev-
ic, forseta Júgóslavíu, um að róa undir
átökum milli þjóðarbrota Albana og
Serba í Kosovo til að reyna afl skapa
ólgu á svæðinu. En Robertson hefúr
einnig hvatt leiðtoga Kosovo-Afbana
til að reyna að hafa hemil á æstum
andstæðingum Serba í eigin röðum.
Sfjómvöfd í Makedóniu sögðust í
gær hafa aukið viðbúnað á landamær-
unum að Kosovo og Presevo-dal í Júg-
óslavíu. Orðrómur er um að júgóslav-
neskir öryggislögreglumenn feiti nú
vopna meðal Albana sem em um
80.000 í Presevo og tclja heimildar-
menn hættu á að upp úr sjóði á
svæðinu.