Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 31
ERLENT
Undar-
legir
söfnuðir
Tókýó. AFP.
LÖGREGLAN í Japan handtók í
gær átta félaga í söfnuði, sem geymt
hafði lík á hótelherbergi í marga
mánuði. Hélt fólkið því fram, að það
væri lifandi en hefur nú verið ákært
fyrir að hafa með óbeinum hætti
valdið dauða 66 ára gamals manns.
Söfnuðurinn sótti Shinichi Koba-
yashi á sjúkrahús í júlí á síðasta ári
en þar lá hann eftir að hafa fengið
heilablóðfall. í söfnuðinum, sem kall-
ast „Lífsrými", voru m.a. kona hans
og sonur og svo virðist sem leiðtogi
safnaðarins, Koji Takahashi, hafi
sjálfur ætlað að lækna Kobayashi.
Fólst lækningin í því að berja hann
margsinnis í höfuðið.
Kobayashi lifði ekki lækninguna af
en síðan hefur söfnuðurinn verið með
uppþomað lík hans á hótelherbergi
og heldur því fram, að það sé lifandi.
Söfnuðurinn „Lífsrými" var stofn-
aður 1983 og virðist starfsemi hans
einkum hafa verið að halda rándýr
„hugljómunarnámskeið".
Japanska lögreglan hefur einnig
handtekið leiðtoga annars safnaðar
og er hann sakaður um að bera
ábyrgð á dauða sex ára gamals,
nýrnaveiks drengs með því að koma
honum ekki undir læknishendur.
Fannst lík hans í síðasta mánuði.
Safnaðarleiðtoginn sagði er hann
var handtekinn, að drengurinn væri
„kannski dáinn í ykkar heimi“ en það
væri alltaf „möguleiki á upprisu“.
--------------------
Einkaleyfi
til að klóna
menn
Berlín. Reuters.
EVRÓPSKA einkaleyfisstofan
greindi á mánudag frá því að henni
hefðu orðið á þau mistök að veita
einkaleyfi á aðferð sem næði einnig
yfir klónun manna.
Einkaleyfið var veitt Edinborg-
arháskóla, sem óskaði sl. desember
eftir að fá einkaleyfi á aðferð sem
nota má til að breyta frumum og
fósturvísum manna. „Þetta eru mis-
tök, já,“ sagði Rainer Osterwadter,
talsmaður einkaleyfisstofunnar.
„Það má skilja þetta sem svo að
leyfið nái einnig yfir klónun manna.
Það sem vantar er klausa um að
einkaleyfíð nái ekki yfir menn.“
Að sögn Osterwadters má búast
við að það taki töluverðan tíma að
breyta leyfinu, þar sem aðrir verði
að mótmæla veitingu einkaleyfis-
ins. Það kunni því að líða nokkur ár
áður en ferlinu sé að fullu lokið.
Edinborgarháskóli hefur neitað að
tjá sig um málið.
Þýska ríkisstjórnin greindi í gær
frá því að hún myndi beita sér fyrir
því að leyfisveitingunni til Edin-
borgarháskóla yrði hnekkt fyrir
dómstólum. Sagði Andrea Fischer,
heilbrigðisráðherra Þýskalands, að
nokkur ráðuneyti myndu koma að
undirbúningi málsins.
Aríð 2030
"
frumtíðin bi
iteyri;
Ufeyrisspamaður
Landsbankans
Landsbankín n
■ xí Sýning í Neskirkju byggð á Jobsbók
|y| él f Gamla testamentisins
27. febrúar 29. febrúar 2. mars .
p Sýningar hefjast kl. 20.30 J 1
NESKIRKJA
Leikari: Arnar Jónsson
,f'! 1 Leikstjóri: Sveinn Einarsson L. &
Tónlist: Áskell Másson I
Leikbrúður: Helga Steffensen n
i. ' ■%. Jgff Miöaverö kr. 1.500 - Miöasala og upplýsingar á skrifstofu Neskirkju viö Hagatoig, sími
511 1563, opiö kl. 10 -17, Kirkjuhúsinu Laugavegi 31 og Essostööinni viö Ægisíöu