Morgunblaðið - 24.02.2000, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 24. FEB RÚAR 2000 5 3
11
1
JORGEN
SIGURÐSSON
barna auðið; Þðrdís
Jörgensdöttir, f. 17.
mars, 1957; Krist-
björg Jörgensdöttir,
f. 11. apríl 1958; Ás-
rún Jörgensdöttir, f.
19. mars 1959; Petra
Jörgensdöttir, f. 29.
apríl, 1962; Jöhanna
Jörgensdöttir, f. 29.
aprfl, 1962, og Sig-
urður Jörgensson, f.
10. maí 1971. Barna-
böm Jörgens og Ás-
dísar eru 17 talsins
og eitt bamabama-
bam.
Utför Jörgens för fram frá
Vopnafjarðarkirkju 5. febrúar.
+ Jörgen Sigurðs-
son fæddist á
Ljötsstöðum í Vopna-
firði 20. nóvember
1930. Hann lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri hinn
30. janúar síðastlið-
inn. Foreldrar Jör-
gens vom hjónin Jó-
hanna Sigurjóns-
dóttir húsfreyja og
Sigurður Gunnars-
son, oddviti Vopna-
fjarðarhrepps. Eftir-
iifandi eiginkona
Jörgens er Ásdís Sig-
ríður Pétursdóttir, f. 13. maí,
1932. Þeim hjónum varð sex
Kæri mágur.
Þá ert þú horfinn yfir móðuna
miklu, en þangað er ferðinni heitið
hjá okkur öllum. Ég man eftir því
er ég kom til þín í sumar, þá
varstu búinn að fá sjúkdómsgrein-
inguna og sagðir við mig þegar við
vorum búnir að heilsast: Svona er
nú komið fyrir mér. Þú sagðir það
með þinni sömu rósemi og hefur
einkennt umgengni þína um ævina.
Margs er að minnast á þessari
þó býsna langri ævi, þótt hún hefði
mátt vera lengri. Við höfum
þekkst síðan við vorum krakkar,
áttum heimili stutt frá hvor öðrum
alla tíð. Þar af leiðandi höfum við
átt margt saman að sælda. Ótal
margt kemur fram í hugann þegar
maður lítur svona til baka, sem of
langt væri hér upp að telja.
Kynni okkar urðu mest eftir að
við urðum fullorðnir. Þá giftum við
okkur saman í stofunni á Hofi, hjá
okkar gamla prófasti, séra Jakobi
Einarssyni, sem einnig hafði skírt
okkur og fermt. Hugur þinn
hneigðist fljótlega að bílum og vél-
um hverskonar, sem um þær
mundir voru mikið að ryðja sér til
rúms. Snemma eignaðist þú vöru-
bíl og um skeið varstu rútubílstjóri
milli Vopnafjarðar og Akureyrar.
Það var ósjaldan að ég fékk þig til
mín í vélaviðgerðir, sem þú fórst
meistarahöndum um, svo prýðilega
sem enginn annar. Þú varst al-
gjörlega sjálfmenntaður á því
sviði, það var eins og þér væri
þetta meðfætt. Ég tel, og hef alla
tíð sagt það, að mér finnst þú bíl-
stjóralegastur af öllum sem ég hef
verið í bíl með. Þar fann ég ævin-
lega fyrir svo miklu öryggi, sömu
rósemi og lipurð og einkenndi ætíð
þitt aksturslag. Hefðu margir mátt
af þér læra.
Sama var það með skepnurnar.
Um þær fórst þú höndum alúðar
og snyrtimennsku. Einnig má
segja að snyrtimennska þín og ró-
semi hafi ætíð verið með í hverju
verki sem þú vannst.
Að leiðarlokum vil ég þakka þér
fyrir trausta samfylgd og vináttu,
um leið og við Guðný sendum
Dísu, börnum ykkar og öðrum ná-
komnum samúðarkveðjur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Þinn mágur,
Alfreð Pétursson.
+ Steindór Guð-
mundsson fædd-
ist í Reykjavík 8. júní
1947. Hann varð
bráðkvaddur á heim-
ili sínu 15. febrúar
siðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Dómkirkjunni 23.
febrúar.
Nú er sá dagur
kominn að hann pabbi
minn er farinn. Algóð-
ur Guð hefur hann hjá
sér í góðum höndum.
Samband mitt við
föður minn var það besta sem son-
ur gæti óskað sér. Ég var svo ná-
inn honum og gat alltaf reitt mig á
hann í blíðu og stríðu, það skipti
ekki máli hvað það var. Núna verð
ég að treysta á sjálfan mig, en ég
veit að hann vakir yfir mér og
verndar mig.
Hann elsku pabbi minn fékk ekki
bestu æsku sem maður gæti óskað
sér, að þurfa að alast upp hjá
frændfólki og þurfa síðan að reiða
sig fyrst og fremst á sjálfan sig. En
hann gaf mér bestu æsku sem son-
ur gæti hugsað sér. Hann gaf mér
öryggi, styrk, dóm-
greind og ástríðu. Ég
man alltaf þegar hann
var að skamma mig
fyrir að vera ekki
nógu duglegur í skól-
anum eða þegar ég
var að gera einhver
prakkarastrik. En
hann var alltaf þar
fyrir mig, eins og
skugginn minn.
Fyrir mig og systur
mínar var hann meira
en faðir, hann var og
er enn tákn um það
góða sem býr í okkur
og fær okkur til að gera rétt. Ég
veit ekki hvar ég stæði núna ef ég
hefði ekki átt hann að. Hann hvatti
mig til að læra þegar ég hafði ekki
áhuga og hann hvatti mig til að
fara sem skiptinemi til annars
lands og kynnast nýju máli og
nýrri menningu og breytti þessi
dvöl mín miklu hvað varðaði við-
horf mitt til lífsins og gaf mér
mikla ánægju þessa sex mánuði
sem ég var þar. Ég var staddur í
skólanum mínum þegar ég fékk
þær fréttir að pabbi minn væri dá-
inn, þetta breytti mér strax og mér
finnst eins og eitthvað hafi dáið
innra með mér. Ég veit að sorgin
er erfið hjá öllum en fyrir mér er
svo sárt að hafa ekki verið búinn að
sjá hann í hálft ár og geta ekki
faðmað hann og sagt hversu mikið
mér þótti vænt um hann.
Eftir að pabbi dó, las ég í bók
eftir Karl Sigurbjörnsson biskup,
að sorgin gleymir engum og að fyrr
eða síðar sækir hún okkur heim.
Nú er sú stund komin hjá mér, en
ég ætla að reyna að sætta mig við
það, ég hef ekki um annað að velja.
En pabbi minn er ekki farinn,
þótt ég geti ekki séð hann eða
heyrt í honum, þá er sál hans enn
hér og býr í hjarta mínu að eilífu.
En þakka þér fyrir, elsku hjart-
ans pabbi minn, fyrir öll þau góðu
ár sem við fengum að vera saman
sem feðgar og bestu vinir. Allt það
öryggi og hlýjuna sem þú gafst
mér, alla ánægjuna sem þú gafst
bæði þegar ég var krakki og sem
fullorðinn maður.
Ég mun gera þig stoltan af mér í
námi og starfi og ég mun heiðra
minningu þína eins vel og ég get
alla mína ævi. Ég lofa þér því.
Guð blessi þig, elsku pabbi minn,
og vaki yfir mér, mömmu, Evu,
Fríðu, Ragga og Oskari, litla voff-
astráknum þínum, sem saknar þín
líka mikið.
Vertu blessaður.
Þinn sonur að eilífu
Snorri Valur.
STEINDÓR
GUÐMUNDSSON
+ Ævar Klemenz-
son fæddist í
Bólstaðarhlíð í Aust-
ur-Húnavatnssýslu
28. aprfl 1930. Hann
lést af slysforum 13.
febrúar síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Dalvíkur-
kirkju 21. febrúar.
Elsku afi Ævar.
Það er svo erfitt að
þurfa að kveðja þig og
vita til þess að við eig-
um ekki eftir að sjá
þig koma inn um
dyrnar hér heima hjá okkur, bros-
andi og taka utan um okkur og
spyrja hvernig við hefðum það í
dag. Flest alla daga sáumst við og
það var svo gaman að tala við þig,
þú varst alltaf svo hress og kátur
og tilbúinn til að
hlusta á hvað á daga
okkar hafði drifið.
Eftir að við fórum í
skóla til Akureyrar
sáumst við sjaldnar en
því betur tókstu á
móti okkur þegar við
komum heim. Mörg
kvöld fékkstu þér
göngutúr til að heilsa
upp á okkur í Dal-
brautinni þó að það
væri ekki nema rétt
til að sjá að allt væri í
sómanum.
Við þökkum Guði
fyrir að fá að kynnast þér, kímni
þinni, dugnaði og huglægum til-
finningum. Hálfpartinn fannst okk-
ur að við hefðum verið svikin því
þú fórst svo fyrirvaralaust frá okk-
ur, en þegar við hugsum um þetta
betur þá uppgötvum við að þú
fórst ekki frá okkur, sál þín lifir
endalaust með okkur og fjölskyldu
okkar og við vitum að við getum
endalaust talað við þig. Reynsla
þín kenndi okkur að þrautseigja
þín hjálpar okkur og við trúum því
að harka og styrkur þinn vaki yfir
fjölskyldu okkar þrátt fyrir allan
söknuðinn og þann sársauka sem
þú, elsku afi, skilur eftir þig við
hvarf þitt frá þessum veraldleika
þá vitum við að hann mun alltaf
vera til staðar fyrir okkur og alla
aðra, til þess að kljást við erfið-
leika okkar og gleðjast yfir fram-
förum okkar.
Elsku afi Ævar, allt sem þú hef-
ur gert fyrir okkur er ómetanlegt
og erum við mjög þakklót fyrir
þann tíma sem við fengum með
þér.
Góðu minningarnar okkar eru
ótæmandi og munu þær ylja okkur
og lifa í hjörtum okkar allra um
ókomna tíð.
Þín barnabörn.
Freydís Inga, Hjördís Jóna,
Magnús Ævar og Arnar Óli.
ÆVAR
KLEMENZSON
t
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HÓLMFRÍÐUR Þ, GUÐMUNDSDÓTTIR
Dodda frá Urriðaá,
Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi,
sem lést þriðjudaginn 15. febrúar, verður
jarðsungin frá Borgarneskirkju laugardaginn
26. febrúar kl. 14.00.
Jóna Sigurðardóttir, Kjartan Magnússon,
Erlendur Sigurðsson, Gunnfríður Harðardóttir,
Guðrún Sigurðardóttir, Sigurbjörn J. Garðarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför systur okkar,
ÓSKAR JÓNU ÞÓRÐARDÓTTUR,
Skjóli,
áður til heimilis
í Hólmgarði 13, Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
25. febrúar kl. 13.30.
Þórður Þórðarson,
Gísli Þórðarson.
t
Ástkær faðir okkar,
LEÓ GARÐAR INGÓLFSSON,
til heimilis
á Laugateigi 40, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju föstu-
daginn 3. mars kl. 15.00.
Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna,
Þóra og Guðrún Leósdætur.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vinsemd við andlát og útför eigin-
konu, móður, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
ELÍNBJARGAR Ó. GUÐJÓNSDÓTTUR,
Seljavegi 2,
Selfossi.
Hjalti Þórðarson,
Grétar Þórir Hjaltason,
Rúnar Jökull Hjaltason,
Heimir Guðni Hjaltason,
Arna Kristín Hjaltadóttir,
Jónína Sóley Hjaltadóttir,
Svala Huld Hjaltadóttir,
Elísabet Jensdóttir,
Ingibjörg Gunnarsdóttir,
Kjartan Ólafsson,
Ólafur H. Jónsson,
Júlíus Helgi Eyjólfsson,
Elínbjörg Hjaltey Rúnarsdóttir, Sigurður Andrés Ásgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður okkar og tengdamóður,
SESSELJU SIGVALDADÓTTUR,
Krummahólum 6,
Reykjavík.
Sigurlaug Elísa Björgvinsdóttir, Kristján Heimir Lárusson,
Sígrún Sigurðardóttir, Valdemar Thorarensen,
Sigurður Gils Björgvinsson, Hrefna Arnalds,
Margrét Björgvinsdóttir.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, afa og langafa,
HALLGRÍMS J. STEFÁNSSONAR,
Háaleitisbraut 56,
Reykjavík.
Vigdís Jónsdóttir,
Stefán Hallgrímsson,
Jón Otti Ólafsson, Jónína M. Aðalsteinsdóttir,
Ásgeir S. Hallgrímsson, Steinunn J. Ásgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.