Morgunblaðið - 24.02.2000, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 55
MINNINGAR
KIRKJUSTARF
SVAVA
EINARSDÓTTIR
+ Svava Einars-
dóttir fæddist á
Kleifarstekk í Breið-
dal 13. ágúst 1922.
Hún lést á heimili
sínu 1. febrúar síð-
astliðinn og fór útför
hennar fram frá
Stöövaríjarðar-
kirkju 12. febrúar.
Jarðsett var að
Heydölum í Breið-
dai.
Elsku amma mín, nú
ertu farin frá okkur svo
alltof fljótt. Það er erfitt
að trúa því, þú sem varst svo hress og
lífsglöð. M áttir eftir að gera svo mik-
ið. Mamma mín talaði við þig tveimur
dögum áður en þú kvaddir þennan
heim og hún spurði þig hvort þú legð-
ir þig ekki á daginn, hvort þú værir
eklri þreytt á að hugsa um svo stórt
hús og stóran garð? En þú svaraðir;
nei, reyndar finnst mér að það ættu
að vera íleiri klukkutímar á sólar-
hring. Þannig varst þú, amma mín,
alltaf á fullu, en aðallega varstu með
aðra í huga þínum. M gafst gjafir til
okkar í fjölskyldunni eða til vina
þinna. Flest lagaðir þú sjálf, eitthvað
sem var heklað, prjónað eða saumað,
þú varst svo umhyggjusöm, vildir allt
íyrir aðra gera. Þín gleði var að gleðja
aðra.
Ég minnist þess þegar ég var lítil
og mamma sagði við okkur systkinin
að nú værum við á leið til ömmu og afa
á Stöðvarfirði. Tilhlökkunin var svo
mikil að bíltúrinn austur virtist taka
marga daga. Og þegar við loksins
runnum í hlaðið á Draumalandi
tókstu á móti okkur með opnum örm-
um, góðum mat og hlýju rúmi. Þannig
tókstu á móti öllum. Fyrir mér var
Draumaland sannkallað draumaland.
Ég man að við frændsystkinin lékum
okkur í öllum stóru herbergjunum
með allt skemmtilega dótið, ég man
eftir fallegu og dularfullu steinunum
sem þú tíndir í gönguferðum þínum
um fjöll og firnindi og mér þótti svo
gaman að skoða. Ég man þegar þú
sýndfr mér allar myndimar af ná- og
fjai’skyldum ættingjum, þú kenndir
okkur að kynnast og virða alla ætt-
ingja okkar. Ég man eftir kleinunum
góðu og öllum góðu kökunum sem þú
bakaðir. Ég man eftir randaflugunum
sem fylltu garðinn þinn á sumrin, sem
var sönnun þess hve fallegur og vel
hirtur hann var. Garðurinn var ævin-
týraland fyrii’ mér og hluti af þinni
lífsgleði. Ég man eftir rabarbaragarð-
inum stóra, lautinni fallegu, öllum
trjánum og fallegu blómunum.
Þær voru ófáar beijamóferðimar
sem við fómm saman upp á fjall,
fjöruferðimar og heimsóknimai’ til
ættingja okkar og vina þinna á Stöðv-
arfirði. Þú varst dugleg við að kynna
mig fyrir öllum sem við hittum á
gönguferðum okkar um bæinn. Ég
man ferðimar niður að á, sem mér
þótti þá mjög stór og ógnarleg, en þú
hélst í hönd mína og passaðir mig vel.
M hefur gefið mér svo margar góðar
minningar, elsku amma mín, sem ég
get yljað mér við um ókomna tíð og þú
hefur kennt mér svo mikið um lífið
bæði beint og óbeint. Það mun alltaf
verða tómlegt að koma til Drauma-
lands án þess að heyra rödd þína og
hlátur.
Ég fluttist til Noregs fyrir tveimur
árum og við hittumst sjaldnar en þú
varst dugleg við að senda mér myndir
og fréttir af ættingjum okkar á Is-
landi. Fjölskyldan var líf þitt og yndi
og fannst þér mikilvægt að við fengj-
um fréttir af hvert öðru og lagðir þú
þig alla fram í því hlutverki, því langt
var á milli okkar sumra og hópui’inn
stór. Þó svo ég væri langt í burtu þeg-
ar þú kvaddir kom ekki annað til
greina en að koma til landsins og
kveðja þig í hinsta sinn og ekki síst til
að hitta hina í fjölskyldunni, við
styrktum hvert annað í sorginni, sem
mér þótti afskaplega gott. En því mið-
ur gátu ekki allir komið.
M varst kona sem allir á jörðinni
ættu að taka til fyrirmyndar, þú varst
svo örlát, kærleiksrík og góð við þá
sem minna máttu sín. Einnig fórstu
vel með náttúruna.
Amma, þú ert sannur
engill guðs, Hann hefur
sparað besta plássið í
himnaríki handa þér.
Ég mun ætíð vera for-
eldrum mínum þakklát
fyrir að hafa skírt mig í
höfuðið á þér. Ég ber
nafn þitt með stolti.
Elsku amma mín, ég
og bræður mínir, Eð-
vald og Stefán Karl,
þökkum þér fyrir allt
sem þú hefur gefið okk-
ur meðan þú varst hér á
meðal okkar og allar
minningamar sem við munum varð-
veita í hjarta okkar og hug um
ókomna tíð. Þín er sárt saknað. Elsku
besti afi minn og fjölskylda, megi guð
vera með okkur öllum og gefa okkur
styrk í sorginni.
Þín nafna,
Svava Sandra.
Mitt í hita dagsins hringdi síminn,
og mér tjáð að Svava frá Skriðu væri
farin úr þessum heimi. Auðvitað varð
ég hissa, vegna þess að mér var ekki
kunnugt um annað en hún væri í fullu
Qöri eins og venjulega, kát og hress.
Hún virkaði á mig sem ung kona, mér
fannst hún aldrei eldast. Um þessi jól
sendi hún öllum drengjunum hans
Kristjáns sonar míns jólagjafir sem
voru prjónaðar eftir Stefán (afa) eftir
lifandi mann hennar og svo hafði hún
saumað fallegt vöggusett handa þeim
yngsta sem fæddist rétt fyrir jólin.
Þessir drengir voru í hennar augum
hálfgerðir langömmudrengir, því son-
ur minn kallaði hana ömmu, enda al-
inn upp að hálfu leyti hjá þeim hjón-
um Svövu og Stefáni frá Skriðu í
Breiðdal. Svava var einstök kona, full
af fjöri og alltaf líf í kringum hana,
hún var snör í hreyfingum og aldrei
féll henni verk úr hendi, hún elskaði
að lifa og gera öllum gott. Ég á
kannski einstaka minningu um hana
og þau hjónin, því hún tók drenginn
minn í fóstur. Ég átti við vanheilsu að
stríða í nokkur ár og var hann hjá
þeim hjónum í þrjú misseri í allt og
svo fór hann í sveit til þeirra á hveiju
sumri, þar til að Svava og Stefán
fluttu til Stöðvarfjarðar. Þá var Krist-
ján sonur minn þrettán ára.
Systir mín bjó þá í Breiðdalsvík og
þekkti þetta heimili mjög vel enda
maðurinn hennar frændi Stefáns á
Skriðu. Hún vissi að þau hjónin voru
gæða fólk, svo hún bauðst til að kanna
þetta mál. Þannig sá hún um að sonur
minn fór ekki alveg til vandalausra,
þannig að ég gat alltaf fylgst með
honum.
Svava fæddi af sér tólf böm, mér er
tjáð af Stefáni manni hennar að hún
hafi verið fljót að fæða af sér bömin
eins og allt sem hún gerði og fljót að
jafna sig, komin fljótt til verka eins og
ekkert hefði í skorist, bara eitt bamið
komið í viðbót. Alltaf var húsið henn-
ar hreint, allt í röð og reglu, hún var
gestrisin fram úr hófi vildi alla hýsa
og þar stóð Stefán maður hennar allt-
af með henni og mér er sagt að hann
leyfði henni alltaf að hvíla sig svolítið
á morgnana. Já, þetta hefði eklri
gengið ef maðurinn hennar hefði ekki
alltaf staðið með henni, já þau unnu
saman.
Stefán átti stúlku áður en hann
kvæntist Svövu, alltaf talaði Svava
um hana eins og sitt eigið bam, þar
var góður vinskapur og bömin henn-
ar hafa örugglega verið ömmubörnin
hennar, aldrei heyrði ég annað. Já
eins og ég sagði áðan þá fóstraði hún
Stjána minn vel og þau bæði hjónin.
Eitt sinn á þeim tíma sem ég var veik
kom ég að Skriðu að heimsækja
drenginn minn, þá tók Svava mig í
gönguferð upp á skriður fyrii' ofan
bæinn, og það gerði hún örugglega af
ásettu ráði. Hún sagði mér að hún
hefði ekki fengið þau foréttindi að al-
ast upp hjá móður sinni og þess vegna
teldi hún og væri hennar ákveðna
skoðun að böm ættu að vera hjá
mæðrum sínum ef mögulegt væri.
Þama uppi á skriðunum fyrir ofan
bæinn lofaði hún því, að ef ég næði
heilsu á ný, þá myndi hún ekki fara
fram á að halda barninu mínu. Svona
var Svava heil og sönn, og við þessi
orð stóð hún. Snemma um haustið 74
hringdi ég og tilkynnti Svövu minni
að ég væri búin að stofna mitt eigið
heimili aftur og heilsan væri komin,
svo það var ekkert til fyrirstöðu að
drengurinn minn gæti komið til mín á
ný. Eg hafði eignast lifandi trú á
Drottin Jesú og Frelsarinn sjálfur
hafði læknað mig af því þunglyndi
sem hafði hráð mig í minnsta kosti
þijú ár. Svava sagði mér það sjálf
seinna að þegar hún kom heim úr sím-
anum hafi hún sagt við heimilisfólkið
jæja, nú er ekki langt þangað til
Stjáni litli fer til móður sinnar á ný.
Auðvitað fóra tilfinningar af stað, allir
vora búnir að taka ástfóstri við dreng-
inn og tóku hann sem yngsta bróður
sinn. Stefán eftirlifandi maður Svövu
hafði hann með sér í fjárhúsin að gefa
og leyfði honum að smala og gera ým-
islegt það sem þurfti að sinna í sveit-
inni svo allir vora ekki sammála um
að Stjáni litli færi. En Svava var
ákveðin í að drengurinn skyldi fara,
þótt hún hafði líka tekið ástfóstri við
hann. Kristján var sex ára þegar hann
fór til þeirra, og nú var hann rétt orð-
inn átta ára og orðinn vanur sveitalíf-
inu. Auðvitað kveið hann fyrir, en
hann sagði mér seinna þegar hann
var orðinn fullorðinn, að hann hafi oft
brotið hefiann um það hvort hann
kæmist nokkurn tíma til mömmu
sinnar aftur. Svo kom stóri dagurinn,
já hann rann upp í byijun október.
Ella dóttir Svövu og Stefáns kom með
hann suður. Ég hugsa að hún Ella
mín gleymi þessari stundu seint, þeg-
ar við mættumst móðir og sonur eftir
langan baráttutíma. Það urðu fagnað-
arfundir, fyrst stökk sonur minn upp í
fangið á mér og svo tókumst við í
hendur og hoppuðum um alla stofuna.
Ella sat og táraðist og önnur vinkona
mín sem þama var á heimilinu. Þann-
ig er móðurástin, mörg skáld hafa ort
um hana eins og til dæmis Fýkur yfir
hæðir og frostkaldan mel, Móðurást
eftir Jónas Hallgrímsson. Engu að
síður var sonur minn alltaf talinn einn
af fjölskyldunni. Hann sækir ættar-
mót hjá þessari fjölskyldu, já hann er
talinn einn af þeim.
Ég á þessu fólki mikið að þakka.
Það var ómetanlegt fyrir lítinn dreng
sem varð að fara frá móður sinni um
óákveðinn tíma að lenda hjá þessu
yndislegu fólki, sem umvafði hann ást
og umhyggju. Ég bið góðan Guð að
blessa ykkur öll og hafið ætíð þökk
fyrir. Guð blessi ykkur einnig núna í
sorginni elsku vinir, ekkert er dýr-
mætara en að eiga yndislega minn-
ingu um heilsteypta góða mömmu,
ömmu, langömmu og auðvitað eigin-
konu. Stefán minn, þið genguð saman
í gegnum sorg og gleði á langri leið,
en samt stuttri því mannsævin er
stutt.
Guð blessi ykkur öll,
Drottinn gaf og Drottinn tók,
Lofað sé nafn Drottins.
Hérvarstu
semvinurávegi
þú vegmóðum réttir út hönd
með sannleik
ogtrygglyndiþínu
hnýttir þú vináttu
bönd
og ávallt á lífsvegi
sára
égalltafþaðmunaðhef
erbeygðirþú
bijóst þitt
blíðlegaaðmóður
ogmæltir
ég barnið þér aftur gef
Pegarfegurstu
blóminfólna
ífjarskanum
geymastmál
um konu sem gaf
oggladdi
húngræddi
hveijasál
núkveðégþig
kæraSvava
ogdrengurinnlitli
umsinn
við segjum
íbili
blessþjartansvina
núblessumviðhina
ersyrgjasárt
ídag.
(Þ.B.B.)
Þóra Björk Benediktsddttir.
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 14-17. Ný öld, nýtt ár-
þúsund. Fræðslusamvera í safnað-
arheimili Áskirkju í kvöld kl. 20.30.
Arni Bergur Sigurbjörnsson.
Bústaðakirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12. Æskulýðsfélagið fyr-
ir unglinga í 8. bekk í kvöld kl.
19.30 i félagsmiðstöðinni Bústöð-
um.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla
aldurshópa kl. 14-16 í safnaðar-
heimilinu. Æskulýðsfélag Nes-
kirkju og Dómkirkju. Sameiginleg-
ur fundur í safnaðarheimili Nes-
kirkju kl. 20.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Orgelleikur, íhugun. Léttur
málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina.
Háteigskirkja. Ljós lífsins, þagn-
aríhugun kl. 20. Taize-messa kl. 21.
Fyrirbæn með handaryfirlagningu
og smurning. Tómas Sveinsson.
Langholtskirkja. Foreldra- og
barnamorgunn kl. 10-12. Fræðsla:
Örvun málþroska. Hallveig Finn-
bogadóttir, hjúkrunarfræðingur.
Söngstund með Jóni Stefánssyni
kl. 11. Svala djákni les fyrir eldri
börn. Langholtskirkja er opin til
bænagjörðar í hádeginu. Lestur
passíusálma kl. 18.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45. Kyrrðarstund kl. 12.00.
Orgelleikur til kl. 12.10. Að stund-
inni lokinni er léttur málsverður á
vægu verði í safnaðarheimilinu.
Neskirkja. Félagsstarf eldri
borgara nk. laugardag kl. 13. Nýja
hjúkranarheimilið i Víðinesi heim-
sótt. Kaffiveitingar. Þátttaka til-
kynnist í síma 5111560 kl. 10-12 og
16-18 til föstudags. Allir velkomnir.
Sr. Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Starf fyrir
6-8 ára börn kl. 15-16. Starf fyrir 9-
10 ára börn kl. 17-18.15.
Árbæjarkirkja. TTT-starf fyrir
10- 12 ára í Ártúnsskóla kl. 16.30-
17.30.
Breiðholtskirkja. Mömmumorg-
unn á föstudögum kl. 10-12.
Digraneskirkja. Foreldramorgn-
ar kl. 10-12 í umsjá Fjólu Gríms-
dóttur og Bjargar Geirdal. Kl.
11.15 leikfimi ÍAK kl. 14. LLL-
ráðgjöf um brjóstagjöf. Kl. 18
bænastund. Fyi-irbænaefnum má
koma til prests eða kirkjuvarðar í
síma 554 1620, skriflega í þar til
gerðan bænakassa í anddyri
kirkjunnar eða með tölvupósti:
digraneskirkja@simnet.is
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
11- 12 ára drengi kl. 17-18.
Grafarvogskirkja.Foreldra-
morgnar kl. 10-12. Fræðandi og
skemmtilegar samverustundir,
heyrum guðs orð og syngjum með
börnunum. Kaffisopi og spjall. Allt-
af djús og brauð fyrir börnin.
Æskulýðsstarf fyrfr unglinga kl.
20-22.
Hjallakirkja. Kii’kjuprakkarar.
Starf fyrir 7-9 ára kl.16.30.
Kópavogskirkja. Samvera aldr-
Hallgrímskirkja
aðra í safnaðarheimilinu Borgum
kl. 14-16.
Seljakirkja. Strákastarf fyrir 9- '
12 ára á vegum kirkjunnar og
KFUM kl. 17.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús
fyrir ung börn og foreldra þeirra
kl. 10-12 í Vonarhöfn, Strandbergi.
Opið hús fyrir 8-9 ára börn í Von-
arhöfn, Strandbergi, kl. 17-18.30.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrð-
arstund kl. 22. Kaffi eftir athöfn.
Biblíulestur kl. 21.
Fríkirkjan í Hafnarfírði. Opið
hús fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgn- ,
ar kl. 10-12. Opið hús fyrir 10-12
ára börn kl. 17-18.30.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
Kl. 10 foreldramorgunn. Kl. 17.30
TTT-starf, tíu til tólf ára krakka.
Kl. 18 kyrrðar- og bænastund með
Taize-söngvum. Koma má fyrir-
bænaefnum til prestanna með fyr-
irvara eða í stundinni sjálfri.
Keflavíkurkirkja. Fermingar-
undirbúningur kl. 13.30-15.40 í
Kirkjulundi.
Hjálpræðisherinn. Kl. 20.30 sam-
koma í umsjón Guðmundar og
bræðranna. Állir hjartanlega vel-
komnir.
Ffladelfía. Trúboðsnámskeið kl.
19-21.30. Allir hjartanlega vel-
komnir. *
Lágafellskirkja. TTT-starf fyrir
10-12 ára börn frá kl. 17-18. Um-
sjón Hreiðar og Sólveig.
Akraneskirkja. Fyrirbænastund
kl. 18.30.
Hvammstangakirkja. Kapella
Sjúkrahúss Hvammstanga. Helgi-
og bænastund í dag kl. 17. Fyrir-
bænaefnum má koma til sóknar-
prests.
STUTT
Kynning á göngu-
og skoðunarferðum
um allan heim
FERÐASKRIFSTOFAN
Topas verður með kynningu
föstudagskvöldið 25. febrúar á
göngu- og skoðunarferðum sín-
um um allan heim. Topas er
stærsta ævintýraferðaskrifstofa
Danmerkur með áherslu á fjöl-
breyttar ferðir um allan heim,
segir í fréttatilkynningu.
Meðal ferða má nefna göngu-
ferðir í Nepal, Kenýa og Kors-
íku, auk trukkaferða í Suður-
Ameríku, Asíu og Afríku o.fl.
Undanfarin ár hafa þeir lagt
áherslu á uppbyggingu gistihúsa
á fáförnum slóðum, s.s. á Græn-
landi, í Víetnam og gömul hús á
Korsíku.
Myndasýningin er sú þriðja í
vetrarsyrpu Ferðahornsins, fyrr
í vetur voru myndasýningar frá
göngu-, skíða-, klifur- og sjó-
kajakleiðöngram á Grænlandi.
Kynningin hefst kl. 20.30 í
versluninni Nanoq og stendur í 2
klst. í hléi verður boðið upp á
léttar veitingar. Aðgangseyrir
500 kr.