Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 61
ámSáá
MORGUNBLAÐIÐ
IDAG
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
„ÞÚ ferð tvo niður, makk-
er,“ sagði Norðmaðurinn
Svein Parnas áður en hann
lagði upp blindan í fjórum
hjörtum. „Ekki segja þetta
- þú reynist alltaf sann-
spár,“ svaraði Stein Willy
Andreasson, en þessir tveir
voru meðal þátttakenda á
Bridshátíð og enduðu í
þriðja sæti í tvímenningn-
um.
Spil 58. Norður gefur; all-
ir á hættu (áttum breytt).
Norður
* D76
v G63
♦ ÁD6
+ D653
Vestur
* K8542
v D5
* 9874
* K7
Austur
* G93
v 942
* KG2
* G984
Suður
A Á10
v ÁK1087
♦ 1053 + Á102
Vestur Norður Austur Suður
- Pass Pass 1 hjarta
Pa8s2 lauf* Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Svar norðurs á tveimur
laufum er Drury-sagnvenj-
an, sem lofar stuðningi við
hjartað og 10-11 punktum.
Parnas fannst ekki mikið
til um spilin sín; skiptingin
flöt og punktarnir í drottn-
ingum og gosum, svo hann
hafði nokkuð til síns máls
að spá illa fyrir útkomunni.
Og með útspili í tígli hefði
hann sennilega reynst
sannspár, en vestur kaus
að byrja á litlum spaða.
Andreasson fór vel af
stað þegar hann stakk upp
drottningu blinds. Hann
svínaði næst hjartatíu og
vestur fékk á trompdrottn-
inguna og skipti yfir í tíg-
ul. Lítið úr borði og austur
fékk á gosann. Austur spil-
aði spaða á ás suðurs og
sagnhafi tók nú tvisvar
tromp og endaði í blindum.
Þaðan spilaði hann laufi á
tíuna og kóng vesturs.
Sagnhafi er heitur, en
samningurinn er þó ekki í
húsi ennþá. Vestur spilaði
tígli og nú má ekki svína
drottningunni. En það
hvarflaði ekki að Andreas-
son. Hann stakk upp ás,
trompaði spaða og tók síð-
asta trompið. Sem var of
mikið af því góða fyrir
austur, en hann átti nú eft-
ir tígulkóng og G98 í laufi
og var einfaldlega „bull-
andi skvís.“
SKAK
llmsjón Margeir
1‘éliirsson
Svartur á leik
Þessi staða kom upp á
milli Boris Gulko, hvítt, og
Michael Adams á stórmeist-
arabikarmóti Kasparovs,
sem haldið var á Netinu fyr-
ir skömmu. Hvítur lék síðast
37. Hc5-a5? sem gaf svört-
um færi á einfaldri og
skemmtilegri fléttu. 37. -
Re3+! 38. fxe3 - Hb2+ og
hvítur gafst upp þar sem
hann verður óverjandi mát
eftir 39. Kgl - Dxf3
f7A ÁRA afmæli. Á
I V/morgun, föstudag-
inn 25. febrúar, verður
sjötug María Kjartans-
dóttir, Eyrarvegi 12, Sel-
fossi. Hún tekur á móti
gestum í safnaðarheimili
Selfosskirkju laugardag-
inn 26. febrúar milli kl. 16
og20.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
sfmanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @-
mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa;
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
Mig vantar bíl með
sóllúgu.
Hann sparar mór
símsvara.
Ast er...
iisj—®
Er þetta reikningur
eða var ég að kaupa
hlut í tannlæknastof-
unni?
að fylgjast með
heilsu barnsins þíns.
TM Rsg. U-S. Pat. Ofl. — «11 riflhU rvíervea
(C) 1997 Lo« AngelM TWim SyndicM
COSPER
Pósturinn er kominn. Viltu sækja hann fyrir mig?
UOÐABROT
ÉG ER AUMINGI
Ég er mikið mæðugrey -
má þvi sáran gráta -
af því forðum ungri mey
unni ég framúr máta.
Aldrei sé ég aftur þá,
sem unni’ eg í bernskuhögum.
Bakvið fjöllin blá og há
bíður hún öllum dögum.
Ef ég kæmist eitthvert sinn
yfir fjallasalinn,
svifi ég til þín, svanni minni!
með sólskin niðrí dalinn.
En ef ég kemst nú ekki fet,
elskulega Stína!
eg skal éta einsog ket
endurminning þína.
Þórbergur Þfirðarson.
STJORNUSPA
eftir Frances Drakc
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert hreinskilinn og opinn
fyrir nýjungum og átt auð-
velt með að setja þig í spor
annarra.
Hrútur
(21.mars-19. apríl)
Það gerist ekkert, ef þú tek-
ur öll neikvæðum huga. Söðl-
aðu um og sjáðu hvað allt
verður auðveldara, þegar þú
ert jákvæður gagnvart hlut-
unum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur átt annríkt og hefð-
ir gott af því að fá tækifæri til
þess að vera einn með sjálf-
um þér.\Notaðu ró og næði til
þess að hlaða batteríin.
Tvíburar .
(21. maí-20.júní) AA
Þú hefur færzt of mikið fang.
Vertu ekki að streitast þetta,
heldur fáðu einhverja í lið
með þér. Þá munu hlutirnir
ganga fljótt fyrir sig.
Krabbi
(21. júní-22. júlí)
Þú stefnir öllu í tvísýnu með
þrjózku þinni. Brjóttu odd af
oflætinu, gakktu til sam-
starfs og þá fara hjólin að
snúast á nýjan leik.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) m
Nú er öldin sú, að þú kemst
ekki hjá því að taka tölvuna í
þjónustu þína. Leggðu þig
fram, en mundu að það ert þú
sem stjórnar, en ekki tæknin.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) <BSL
Áður en þú veizt af hefur
ósköp venjulegt samtal
snúizt upp í samræður um
dýpstu rök tilverunnar.
\Leyfðu þér að blómstra í
þeim viðræum.
(23. sept. - 22. október)2£^
Láttu alla sektarkennd lönd
og leið. Þú hefur náð þínum
árangri fyrir eigin verðleika,
án þess að traðka á öðrum,
og átt því skilið að njóta
hans.
Sþorðdreki ™
(23. okt. - 21. nóv.) MK
Það vefst fyrir þér að gera
upp hug þinn í persónulegu
máli. En ekkert liggur á. Og
það má alltaf leita ráða, ef öll
sund virðast lokuð.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) AO
Það getur reynzt erfitt að
neita öðrum um aðstoð, en
stundum þarftu að passa
sjálfan þig. Aðeins þannig
getur þú hjálpað öðrum, þeg-
ar þörf krefur.
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar) 4K
Það er sjálfsagt að hafa aug-
un opin fyrir þeim tækifær-
um, sem skapast á vinnu-
staðnum. Það getur verið
lífsbjörg fólgin í því að skipta
um starf.
Vatnsberi
(20. jan.r -18. febr.) WSvt
Tækifærin virðast bíða þin á
hverju götuhorni. En flýttu
þér hægt. Ekki er allt gull
sem glóir. Þú mátt gefa þér
tíma til að velta málunum
fyrir þér.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)'
Nú er tíminn til þess að koma
fjármálunum á hreint. Seztu
niður, farðu í gegn um eignir
og skuldir og settu þér svo
áætlun til að fara eftir.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 61
Hvar færðu mest og best
fyrir peningana þína?
Gerðu verðsamanburð. Hjá okkur eru allar myndirnar sem
þú ferð í myndatökunni stækkaðar og fúllunnar. Innifalið í
myndatökunni 12 stækkanir 13x18 cm, 2 stækkanir 20x25
cm og ein stækkkun 30x40 cm í ramma.
Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207.
Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020.
Helgarferð til
Prag
24. mars
kr. 29.990
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að kynnast þessari
ótrúlegu borg með beinu flugi til Prag, föstudaginn 24. mars. í
boði eru góð 3 og 4 stjömu hótel og spennandi kynnisferðir um
kastalann og gamla bæinn með íslenskum fararstjómm Heims-
ferða. Þar kynnist þú alveg ótrúlega heillandi mannlífí á milli
þess sem þú eltir óendanlega rangala gamla bæjarins. Bókaðu
strax og tryggðu þér sæti meðan enn er laust.
Verð kr. 29.99( )
Flugsæti með sköttum. Verðkr. 37.99( 3
M.v. 2 í herbergi, Quality *** með sköttum og morgunmat.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð, sími
595 1000. www.heimsferdir.is
TILBOÐ
frð fimmtudegi 24/2 til 2/3
Tweedy bamaborðlampi. 3
litir: Gulur, hvítur og blár með
fallegum myndum á skermi.
Hæð 25 cm. Verð kr. 998.
Almennt verð annars staðar
kr. 1.990.
Fallegir borðlampar til fermin-
gargjafa. Litir: Svartur, hvítur
og rauður. Hæð 32 cm. Verð
kr. 398. Almennt verð annars
staðar kr. 990.
Eldhúskrukkur 3 stk. á viðar-
hillu með loki. Verð kr. 598.
Almennt verð annars staðar
kr. 1.290.
Glæsileg salatskál í viðar-
ramma, breidd 21 cm, dýpt
12 cm, ásamt viðargaffli og
-skeið. Verð kr. 998.
Almennt verð annars staðar
kr. 1.690.
Rýmingarsala á glerkrukkum,
glösum 4 í pk. og bastkörfum í
eldhús. Allt á kr. 98. stk.
Allar vörur í verslunum okkar eru frá kr. 198 til 998
Otrúlem
búðin
Kringlunni, s. 588 1010
Laugavegi, s. 511 4141
Keflavík, s. 421 1736