Morgunblaðið - 02.03.2000, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Biðröð eftir miðum á uppfærslu Helga Tómassonar á Svanavatninu
Nær
uppselt
á fjórum
tímum
RIFLEGA tvö þúsund miðar á
fimm sýningar San Francisco-
ballettsins á Svanavatninu í Borg-
arleikhúsinu í maí seldust á fjórum
klukkutímum í gær og voru aðeins
eitt til tvö hundruð miðar eftir þeg-
ar miðasölu var lokað í gær. Miða-
sala hófst klukkan 13 og hafði þá
þegar myndast löng röð við Upp-
lýsingamiðstöð ferðamála í Torf-
unni, þar sem salan fór fram.
Harpa Björnsdóttir hjá Listahá-
tíð í Reykjavík, sem gengst fyrir
sýningunum, er hæstánægð með
viðbrögðin. „Við höfum reyndar
fundið fyrir miklum áhuga að und-
anförnu, allt frá því í haust, en
bjuggumst ekki við að miðarnir
seldust nær upp á einum degi.“
Miðasalan gekk heldur hægt fyr-
ir sig og þótti vi'st sumum nóg um.
Baldvin Jónsson beið í þrjá tfma.
„Þetta var með ólíkindum. Það
var einungis ein tölva notuð til að
selja miðana og þegar mest var
voru á að giska 150-200 manns í
röðinni. Það segir sig sjálft að
þetta nær engri átt. Ég lét mig
bara hafa þetta af því ég er svo
þrjóskur," segir hann. „Það hlýtur
að hafa verið hægt að nota fleiri
tölvur, að minnsta kosti þrjár til
viðbótar, þá hefði biðin ekki tekið
nema hálftíma til fjörutíu minútur.
Það hefði enginn sett fyrir sig. Það
er ekki eins og Islendingar séu
óvanir eftirspurn. Árið 1968 seld-
ust á klukkutíma tvö þúsund miðar
á knattspyrnuleik Vals og Benfica,
löngu fyrir daga tölvunnar.“
Harpa staðfestir að aðeins ein
tölva hafi verið í notkun en fjórir
starfsmenn að afgreiða. „Miðarnir
voru afgreiddir eftir ákveðnu fyr-
irkomulagi og stúlkurnar fjórar
skiptu með sér verkum. Ein tók við
pöntunum, önnur prentaði út mið-
ana, sú þriðja tók sfmann og svo
framvegis. Ekki er því hægt að
bera þetta saman við miðasöluna í
Þjóðleikhúsinu eða Borgar-
leikhúsinu, svo dæmi séu tekin, því
þar sinnir sami starfsmaður öllum
þessum verkum. Ég efa að kerfín í
leikhúsunum tveimur hefðu annað
að selja þennan miðafjölda á einum
eftirmiðdegi.“
Allir fengu miða
Harpa segir að allir sem biðu
hafi á endanum fengið miða og lítið
hafi borið á kvörtunum, þótt vissu-
lega hafi biðin verið nokkuð Iöng.
Baldvin segir stemmninguna í'
röðinni hafa verið frekar þunga, en
hann sér einnig spaugilegu hliðina
á „ævintýrinu“, eins og hann kallar
það. „Þetta var mikil upplifun í nú-
tímasamfélagi og minnti óneitan-
lega á gamla ti'ma, áður en tæknin
hélt innreið sína. Það er mín skoð-
un að þetta hafi verið einn mesti og
besti atburður Listaháti'ðar. Það er
alþýðulist að búa til svona röð.“
Morgunblaðið/Ásdís
Löng röð myndaðist við Upplýsingamiðstöð ferðamála. Allir fengu þó miða á endanum.
Formaður Eflingar kvað lítið hægt
að segja um gang kjaraviðræðna
„Þetta er allt
á hreyfíngu“
FULLTRÚAR Flóabandalagsins
sátu í gær á fundum með fulltrúum
Samtaka atvinnulífsins og sagði
Halldór Björnsson, formaður stétt-
arfélagsins Eflingar, að lítið væri
hægt að segja um gang viðræðna
þegar í hann náðist undir lok fundar í
gærkvöldi og bætti við: „Þetta er allt
á hreyfingu.“
Hann sagði að það markmið að
ganga frá öllum atriðum nema launa-
málum fyrir gærdaginn hefði ekki
náðst, en smátt og smátt væru mál
að hreinsast út af borðinu.
Um 15 manns sátu á rökstólum í
gær. Halldór sagði að ekki væri byrj-
að að fara inn á launamál frekar en á
þriðjudag. í gær hefðu fræðslumál,
veikindaréttur og ýmislegt annað
verið til umræðu.
Væntanlega verður ekki fundað í
dag vegna þess að félögin sem
mynda Flóabandalagið, þ.e.a.s. Efl-
ing í Reykjavík, Hlíf í Hafnarfirði og
Verkalýðs- og sjómannafélag Kefla-
víkur, hafa boðað til sameiginlegs fé-
lagsfundar annað kvöld. Formenn
annarra stéttarfélaga í Verka-
mannasambandinu hafa boðað til
foimannafundar í dag.
Meiri hækkun á
meðalfargjöldum
til Isafjarðar
VERÐ á fargjöldum hækkaði um 8%
hjá Flugfélagi íslands á flugleiðinni
á milli Isafjarðar og Reykjavíkur á
í-úmu ári eftir að íslandsflug hætti
flugi þangað, en hækkunin nam 5% á
fargjöldum fyrir flug á milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur annars vegar
og Egilsstaða og Reykjavíkur hins
vegar. Þessi niðurstaða byggist á út-
reikningum Samkeppnisstofnunar á
verðþróun á fargjöldum Flugfélags
Islands eftir að sérleyfí félagsins
voru felld niður á miðju ári 1997 og
frelsi komst á í innanlandsflugi.
Samkvæmt þessum útreikningum
lækkuðu fargjöld til Akureyrar um
20% á milli maí 1997 og maí 1998 og
á sama tímabili lækkuðu fargjöld um
24% til Egilsstaða og um 10% til ísa-
fjarðar. í ágúst 1999 höfðu fargjöld-
in hins vegar hækkað aftur um 5%
til Akureyrar og Egilsstaða og um
8% til ísafjarðar. íslandsflug hætti
að fljúga til ísafjarðar í maí 1998.
Sama fargjaldauppbygging
á Isafirði og Akureyri
Jón Karl Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags íslands, segir að
gerðar hafi verið athugasemdir við
þessa útreikninga hjá Samkeppnis-
stofnun, sem byggðir séu á gögnum
Flugfélagsins um svokölluð meðal-
fargjöld. Þau séu reiknuð þannig út
að deilt sé með farþegafjölda í inn-
komu fargjaldasölunnar og að ýmsir
þættir aðrir en bein hækkun geti
haft áhrif á meðalfargjaldið.
„Það sem gerst hefur þarna á ísa-
firði er að eflaust hefur eitthvað ver-
ið minna um afsláttarfargjöld í boði,
minna sætaframboð af þeim. En síð-
an er líka annað, að staðir eins og
Akureyri, Egilsstaðir og Vest-
mannaeyjar eru miklu stærri ferða-
mannamarkaðir og fleiri stórir hóp-
ar sem fljúga þangað og oft á lægri
fargjöldum. Það eitt og sér getur
haft áhrif á meðalfargjöld." Að sögn
Jóns Karls er fargjaldauppbygging-
in sú sama á Isafirði og annars stað-
ar og engin hækkun sem slík hefur
orðið á flugleiðinni eftir að sam-
keppni lagðist þar af.
„Þannig að fargjaldauppbygging-
in á því fargjaldi sem venjulegur Is-
firðingur þarf að borga fyrir flug á
milli Isafjarðar og Reykjavíkur er
nákvæmlega sú sama og fargjaldið á
milli Reykjavíkur og Akureyrar
byggist á. Það er það sem skiptir
máli og það er engin breyting fyrir-
huguð hjá okkur núna út af þessu
máli sérstaklega. Við leggjum
áherslu á að fá sem flesta farþega,
og það gerum við ekki með því að
hækka fargjöldin um 20%.“
Adam Bednerek
Lést í bflslysi
við Ólafsvík
PILTURINN sem lést í bílslysi á
Útnesvegi skammt vestan Ólafsvík-
urennis sl. laugardag hét Adam
Bednerek. Hann var pólskur og
hafði búið ásamt foreldrum sínum í
Ólafsvík í þijú ár.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
• •
Oskufall úr Heklu
UM allan Mýrdal hefur öskufall úr
Heklu litað snjóinn gráan og þar sem
snjór hefur safnast í lautir og lægðir
er hann jafnvel svartur af ösku.
Þessi mynd var tekin við bæinn Gilj-
ur í Mýrdal í gær. Brekkurnar gráar
og svarflekkóttar og lítur öskufallið
svona út víðast hvar í Mýrdalnum.
. .."V'
Grunur
um smygl
á um 4.000
e-töflum
RANNSÓKN lögreglunnar í
Reykjavík á nýja e-töflumálinu,
sem kom upp í lok síðasta árs er
nú á lokastigi og verður það tek-
ið til ákærumeðferðar að lokinni
rannsókn.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins beindist rannsóknin í
upphafi að innflutningi á tæp-
lega 4 þúsund e-töflum, en ekki
hefur enn verið látið uppi hversu
margar e-töflur lögreglan lagði
hald á við upphaf málsins, hinn
29. desember síðastliðinn.
Fimm menn á aldrinum 17 til
25 ára sitja enn í gæsluvarðhaldi
vegna rannsóknar málsins.
Sérblöð í dag piffgttJtMnliÍli
MSfetóJi/
b -ýiijy.i
wm
Davíð Viðarsson til reynslu hjá
Germinal í Belgíu / B3
Hafdís Guðjónsdóttir hjá Fram
handarbrotin / B1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is