Morgunblaðið - 02.03.2000, Side 4

Morgunblaðið - 02.03.2000, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Norðurpólsfararnir kvöddu landið í gær „Klárir í slaginn og hlökkum til“ Morgunblaðið/Golli Verndari norðurpólsleiðangursins er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri, sem kvaddi þá Harald og Ingþór í Ráðhúsinu áður en þeir héldu af landi brott í gær. NORÐURPÓLSFARARNIR Har- aldur Örn Ólafsson og Ingþór Bjarnason kvöddu ísland í gær og flugu til Halifax, þaðan sem þeir fara til Iqaluit á Baffins-eyju til einnar viku æfinga. Þaðan fljúga þeir til Ward-Hunt eyju í Kanada og hefja hina 800 km löngu göngu til norður- pólsins 10. mars. Kveðjuathöfn fór fram í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir borgarstjóri og verndari leiðangursins óskaði pólför- unum heilla og flutti þeim ferða- kveðju í bundnu máli eftir Unni Hall- dórsdóttur. „Ég held við séum klárir í slaginn og hlökkum til að byija,“ sagði Ing- þór í samtali við Morgunblaðið í gær. „Síðasti sólarhringurinn hefur ein- kennst af talsverðri streitu. Við vor- um að ljúka við að pakka langt fram á nótt og vöknuðum snemma í morg- un tgærmorgun] en undirbúning- num er nú lokið.“ Fréttir um ísbjarna- árás breyta litlu Aðspurður um viðbrögð sín vegna fréttar um tvo ísbimi sem réðust á sænsku norðurpólsfarana Göran Kropp og Ola Skinnarmo í fyrradag, sagði Ingþór að þær fregnir myndu litlu breyta fyrir þá Harald. „Sænski leiðangurinn fór frá Síberíu og vana- lega er mun meira af ísbjörnum á því svæði en Kanadamegin þaðan sem við förum,“ sagði hann. Svíamir, sem hafa verið fjóra daga á ferðalagi, höfðu séð hóp af ísbjöm- um úr fjarlægð daginn áður en ár- ásin var gerð og svo virðist sem tveir þeirra hafi elt þá uppi. Það er mjög óvanalegt, því yfirleitt ráðast birnir ekki til atlögu í hópum. Þegar Svíarnir vöknuðu á þriðju- dagsmorgun við tjaldbúðir sínar, sáu þeir birnina nálgast á töluverðum hraða. Þeir skutu viðvömnarskoti með Magnum 357 skammbyssu að þeim en dýrin létu ekki segjast og í stað þess að leggja á flótta lögðu þau til atlögu við pólfarana. Kropp skaut að endingu annað dýrið á sjö metra færi og lögðu þau á flótta. Svíamir eltu dýrin til að sjá hvort þeir hefðu drepið bjöminn en gáfust upp á eft- irgrennslaninni eftir 500 metra. Samkvæmt fjölmiðlafulltrúa norður- pólsfaranna vom þeir skelkaðir eftir átökin og miður sín yfir að hafa þurft að skjóta annað dýrið, en þeir ætla ekki að hætta við ferðalagið. Þeir hafa áhyggjur af Bettinu Allers, danskri konu sem er líka á leið einsömul á norðurpólinn. Hún var í slagtogi við Svíana fyrir nokkr- um dögum og þeir hafa áhyggjur af að birnirnir geti ráðist á hana. Þurfum að halda vöku okkar „Þetta segir manni þö það, að við þurfum greinilega að halda vöku okkar og vera vel á verði,“ sagði Ing- þór. „Birnirnir skoða menn vel áður en þeir leggja til atlögu og við eigum að geta haft vissan íyrirvara ef svo fer.“ Haraldur sagði að mikil óvissa væri framundan á langri ferð og spenningurinn væri farinn að magn- ast. „Það er tilfinningaþningin stund þegar við yfirgefum fósturjörðina, en við erum fyrst og fremst spenntir yfir því að geta loksins hafið það sem við höfum svo lengi stefnt að, þ.e. að hefja gönguna sjálfa eftir tíu daga. Við vonumst til að næsta vika verði okkur lærdæmsrík þar sem við get- um æft okkur í réttum aðstæðum á Iqaluit með réttan útbúnað. Við þurfum stöðugt að glíma við þrýst- ihryggi í ísnum og vakir, sem út- heimtir heilmikla tækni.“ Haraldur sagði að fréttin um ís- bjamaárásina hefði ekki komið á óvart enda geta norðurpólsfarar átt von á slíku þótt ekki sé það algengt. „Við getum átt von á árás, en mér þykir þó ólíklegt að við munum mæta fleiri en einum ísbimi. Sænski leiðangurinn lenti því í mjög sérstök- um aðstæðum. Þeirra reynsla sýnir þó að það er mikið líf í björnunum þetta árið enda virðast þeir vera mjög virkir og á mikilli hreyfingu. Við emm ánægðir yfir því að Svíun- um skyldi takast að vinna úr þeim vanda sem þeir lentu í.“ Verndari leiðangursins, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, sagði í samtali við Morgunblaðið við kveðjuathöfnina, að sér fyndist leið- angur þeirra Haralds og Ingþórs vera í hnotskurn það sem aðstan- dendur Reykjavíkur - menningar- borgar árið 2000 væru að segja með þeim hugtökum sem unnið væri út frá á menningarárinu, þ.e. menning og náttúra. „Menn ráðast ekki í svona leiðang- ur með öllu því sem til þarf án þess að hafa menningarsamfélagslegan bakgrann. Síðan fara þeir út í víðátt- una þar sem þeir era einir í tvo mán- uði án allrar þeirrar menningar sem þeir koma úr. Því er leiðangur þeirra í hnotskurn táknmynd hugtakanna menning og náttúra og þetta tvennt er það sem við eram að reyna að sameina í öllu sem við geram á þessu ári.“ Færri flugdagar vegna hærri öryggisstaðla Spurði Tony Blair um meng- un frá Sellafield GUÐRÚN Helga Guðmundsdóttir, fimmtán ára nem- andi í Barnaskóla Eyrarbakka og Stokkseyrar, spurði í fyrradag Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, um áhrif þau sem hann teldi að mengun frá Sellafield-kjarn- orkuvinnslustöðinni gæti haft á íslands- miðum. Spurningin var borin fram á fjarfundi sem Guð- rún Helga og bekkjarfélagar hennar tóku þátt í ásamt nokkrum öðrum skólum víða um heim. Fjarfundurinn var sendur út á Netinu. Guðrún Helga sagði að Tony Blair hefði verið á skjánum og þetta hefði verið eins og þau hefðu verið að tala við hann í síma. Blair var staddur í Downing-stræti 10, bústað breska forsætis- ráðherrans. „Við spurðum Blair um mengun frá Sellafield og hvaða áhrif hún gæti haft á íslenskan sjávarútveg. Hann sagði að 1998 hefðu öryggis- reglur verið hertar og og að stöðugt væri verið að herða þessar reglur. Hann sagði að Bretar vildu alls ekki að meng- un kæmi frá Sellafield. Hann vissi um hvað við vorum að tala og hefur líklega búist við þessari spurn- ingu,“ sagði Guð- rún Helga. Birgir Edwald, aðstoðarskólastjóri í Barnaskóla Eyr- arbakka og Stokkseyrar, segir að skólinn sé einn af þremur þróun- arskólum í upp- lýsingatækni á grunnskólastigi hér á landi. Hann segir að fjarfundir hafi verið haldnir á klukkustundar- fresti frá því snemma um morguninn og á hverri klukkustund voru tengdir saman 20 skólar. Fundirnir voru um margvísleg efni, svo sem dýravernd og dýralíf í Suður-Afríku, fornleifafræði og fleira. „Svo skemmtilega vildi til að við vorum einn af þeim skólum sem gátu jafnt spurt og svarað því tæknilega var ekki hægt að hleypa nema fjórum af 20 skólum inn á þann hátt. Það vildi jafnframt svo skemmtilega til að Tony Blair kom inn á fund í 20 mín- útur og við ásamt þremur öðrum skólum í heiminum fengum að leggja spurningu fyrir forsætisráðherra Bret- lands,“ segir Birgir. Guðrún Helga Guðmundsdóttir ■__m_ npnBSuKia mmaaeamm TU&wJfcwfi taante&sa nasM«»•i 29. febrúar 2000 ekfci til 39. fefcita eKta (nmrligur.. pKt* fcm # ísnö taSwmgar M ptamaa tmamig 3U mn k>HNmtag» dagsxumtgu tg ftrfH aííur a» etí eéraakttgi iw» éa&xmngpm r. «*». Oí ftttirh*. Vé]úa þer roiia i as *«*• »•• HWÍŒttBfct 35**3 TMcfmto w» éé í (toiíö sartui Ákærður fyrir gabb - og tratbm i/ne&elu nagna fcwftwíw ú#aW t úaq wr tsteð fptk í Héraðttöm VMtQsft*** áLmraUBns gegn mami sera s&aíixr er un *» hafa gtlW laj <*» 11 ooílw a. mfcyrxtt: nwfcinnninttli hW *ro á Saémofn an pmgtr Ugratfa og fcfcWM «aw*» * euðxm leynisl MU. t - ZDBD Kl iX2 Fm&mffaoSBlám »tsafrer Eítt hlaupársbarn -rttrogmynfmlmfexáifíiimr&xrrstíM* &tt ó*gs*r*s- iytn í> fK-ftrrgíirdeiöwid Á HafcAI JÓN KARL Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Flugfélags íslands, segir að Flugfélagið fylgi háum ör- yggisstöðlum um flug í slæmum veðram, og fljúgi því ekki alltaf þegar önnur flugfélög láti á það reyna. í viðtali við Morgunblaðið í gær benti Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í yestmannaeyjum, á að Flugfélag íslands sé yfirleitt mjög fljótt að hætta við flug þegar vindur eykst, en að íslandsflug hafi verið mun áræðnara í að fljúga til Vestmannaeyja þegar vindar blása. Að sögn Jóns Karls er þetta í sjálfu sér alveg rétt, enda fylgi fé- lagið mjög háum öryggisstöðlum sem að síður sé vikið frá. „Það er í sjálfu sér alveg rétt, að í einhveijum tilfellum höfum við ekki verið að fljúga þegar aðrir hafa verið að fljúga. Við höfum margfarið í gegnum þetta og þetta era staðlar sem við erum sáttir við og höfum ekki hugsað okkur að breyta. Þetta era nú ekki margir dagar á ári sem um er að ræða, kannski einn dagur í mánuði yfir verstu mánuðina og þá yfirleitt ekki heilir dagar. Þannig að ég tel nú að þetta eigi ekki að geta orðið til vand- ræða.“ HEIMSÓKNIR á BB:vefinn, fréttavef Bæjarins besta á Isafirði, era nú orðnar yfir 100 þúsund. Kom þetta fram á vefnum í gær. Bæjarins besta opnaði fréttavef 8. janúar sl., eða fyrir sjö og hálfri viku. Á vefn- um era birtar þrjár til átta fréttir á dag og hefur aðstókn að honum auk- ist jafnt og þétt, að sögn Sigurjóns J. Sigurðssonar ritstjóra. Heim- sóknirnar hafa þó aldrei verið flein en í fyrradag, en þær vora þá 3.408. Aðsóknin er mun meiri en aðstandendur blaðsins áttu von á í upphafi. Auk frétta og ákveðins efnis úr Bæjarins besta og upplýsinga um blaðið er þar að finna ýmsa tengla, ekki síst vestfirska. Sigurjón segir að áhugi sé á því að þróa vefinn áfram og gera hann að nokkurs kon- ar upplýsingasíðu fyrir Vestfirði. Heimilisiína Búnaöarbankans - ræktaðu garðinn þinn Gullreikningur með hærri innlánsvöxtum • Lægri vextir á yfirdrætti Heimilisbanki á Netinu * VISA farkort • Fjármögnunarleiðir Greiðsluþjónusta • Ávöxtunarleiðir ® BÚNAÐARBANKINN Traustur banki HEIMILISLÍNAN 100 þúsund heim- sóknir á BB-vefinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.