Morgunblaðið - 02.03.2000, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Velgreiddiri
Cíarri er hu’ttur að hlægja að
' múndcringunni á vatns-
= greiddu drengjunum í FBA.
Hann er líka hættur að kalla
þetta Drengjahankann.
Málið er að kunna réttu handtökin.
Bréf 33 samtaka og stofnana til dómsmálaráðherra
Aframhaldandi starfsemi
Barnahúss verði tryggð
ÞRJÁTÍU og þrenn samtök og stofn-
anir hafa sent Sólveigu Pétursdóttur
dómsmálaráðherra bréf þar sem
kemur fram eindregin ósk um að hún
tryggi áframhaldandi starfsemi
Bamahúss.
I bréfinu tii ráðherra er bent á að
með tilkomu Bamahúss hafi orðið
mikil breyting á meðferð mála sem
varða kynferðisbrot við böm. „Þann-
ig þarf einungis að leita með böm á
einn stað til að gangast undir skýrslu-
töku, læknisskoðun, greiningu og
meðferð. Á stuttum starfstíma húss-
ins hefur safnast saman mikil sérhæf-
ing og þekking, sem miðlað hefur ver-
ið m.a. til bamavemdamefnda og
lögreglu víða um land við vinnslu við-
kvæmra mála,“ segir meðal annars í
bréfinu. Ráðherra er beðinn að beita
sér fyrir nauðsynlegum breytingum á
lögum eða að grípa til annarra viðeig-
andi ráðstafana sem séu til þess falln-
ar að treysta þá starfsemi sem fram
fer á vettvangi Bamahúss þannig að
tryggt verði að velferð bamanna sé
áfram í fyrirrúmi.
Undir bréfið skrifa forsvarsmenn
þijátíu og þriggja stofnana og sam-
taka.
Þrjátíu tíma afeitrun
Slökun og já-
kvætt hugarfar
Davíð Samúelsson
LAUGARDAG
hefst í gistiheimil-
inu Brekkukoti á
Sólheimum í Grímsnesi
reykinganámskeið. Nám-
skeiðið stendur í 30 klukku-
stundir og leiðbeinandi er
Guðjón Bergmann. Davíð
Samúelsson er forstöðu-
maður heUsu- og gistiheim-
ilisins Brekkukots á Sól-
heimum - skyldi þetta vera
í fyrsta skipti sem svona
reykinganámskeið er hald-
ið í Brekkukoti?
„Já, svona námskeið
hafa verið haldin sem
kvöldnámskeið í Reykjavík
en með því að færa nám-
skeiðið hingað á heUsu- og
gistiheimilið Brekkukot er
ætlunin að þjappa hópnum
saman, koma fólki í meira
næði svo það geti einbeitt sér að
því verkefni að hætta að reykja.“
-Hvemig er svona námskeið
byggtupp?
„Það geta ekki fleiri en fimmtán
tekið þátt í svona námskeiði í einu
vegna þess að leiðbeinandinn Guð-
jón Bergmann vUl hafa ráðrúm til
að sinna persónulegum þörfum
hvers og eins tíl þess að vinna sig
út úr fíkninni. Námskeiðið er
byggt upp á slökun, sem er megin-
inntakið í námskeiðinu, og já-
kvæðri afstöðu til þess að hætta að
reykja. Guðjón Bergmann hefur
meiri trú á jákvæðri afstöðu enr
hræðsluáróðri. Þegar löngunin til
tóbaks grípur fólk er úrslitaatriði
hvemig það vinnur úr þeirri löng-
un. Guðjón kennir fólíd tækni til
þess að hafa stjóm á þessari löng-
un. Hann hjálpar því til þess að
nota slökun til að vinna gegn reyk-
ingalönguninni. Þetta námskeið er
þrjátíu tíma afeitrun. Á dag-
skránni em fyrirlestrar, útivist og
slökun eins og fyrr sagði. Nám-
skeiðið hefst báða morgnana um
klukkan tíu árdegis og stendur
fram tU klukkan fimm síðdegis.
Matur og gisting, svo og ferðir, er
allt innifalið í námskeiðsgjaldinu,
sem er 15.000 krónur."
- Er þetta námskeið byggt upp
að erlendri íyrirmynd?
„Já, að hluta tU, en aUt er stað-
fært. Námskeiðið hefur verið hald-
ið m.a. í Heilsugarði Gauja litla, en
það er ekki alveg sama námskeiðið
og námskeiðið hér, aðstæður em
aUt aðrar þar sem hópurinn er
saman allan tímann. Megininntak-
ið í námskeiðinu er að breyta lífs-
venjum fólksins, fá það tU að lifa
heilbrigðara lífi. ísvá er þriðji aðil-
inn sem stendur að þessu nám-
skeiði, það fyrirtæki kemur inn í
þetta samstarf með fjármálaráð-
gjöf. Þegar fólk hættir að reykja
eyðir það ekki lengur peningum í
tóbak og ætlunin er að gefa fólki
kost á að nota þá peninga sem það
eUa hefði keypt tóbak fyrir til þess
að byggja upp reglulegan spamað.
Fyrir leikmann er um margar leið-
ir að velja tU að fjárfesta, fuUtrúi
frá ísvá kynnir á námskeiðinu fjár-
festingarkosti."
-Hver er þáttur gistiheimilis-
ins?
„GistiheimUið
Brekkukot er með
svokallaða græna
ferðaþjónustu, sem
þýðir að ferðaþjónustan
er umhverfisvæn. í
þessu tilviki þýðir þetta Uka heU-
brigt fæði og slíkt fæði fá þeir sem
sækja þetta námskeið. Sólheimar
em þekktir fyrir heilsudaga sína
og ýmiskonar heUsunámskeið, svo
og phermakúltúr - en það er vist-
væn menning. Þess má geta að á
staðnum er sundlaug og þrátt fyrir
að snjór sé yfir öllu em gönguleiðir
► Davíð Samúelsson fæddist í
Neskaupstað 7. febrúar 1966.
Hann lauk prófi frá Pósti og sfma
sem fjarskiptafræðingur, stúd-
entsprófi frá Fjölbrautaskólan-
um í Garðabæ og sjöunda stigs
prófi frá Söngskólanum í Reykja-
vík. Hann er nú í námi í ferða-
málafræði hjá Háskóla íslands.
Hann hefur starfað við sölu- og
markaðsmál en sfðustu fjögur ár-
in í ferðaþjónustu, m.a. sem
skálavörður á hálendinu. Nú er
Davíð forstöðumaður gistiheim-
ilisins Brekkukots á Sólheimum.
hér mddar.“
- Heldur þú að það sé a uðveld-
ara að hætta að reykja á Sólheim-
um en t.d. íReykjavík?
„Já, ég er sannfærður um það.
Staðurinn öðlast táknrænan sess í
hugum fólksins sem sá staður þar
sem viðkomandi hætti að reykja.
Auðvitað þarf sá staður ekki endi-
lega að vera hér á Sólheimum.
Mikilvægt er hins vegar að fólk
sem ætlar að hætta að reykja fái
ráðrúm og næði til þess að komast
aðeins burt úr sínu venjulega um-
hverfi. Markmiðið er það að þegar
fólk hefur dvalið hér í afeitmn í 30
tíma, borðað heilsusamlegan mat,
fengið næði til íhugunar og snýr
svo heim á leið, væntanlega endur-
nært, hafi það í farteskinu ein-
beitta ákvörðun um að hætta end-
anlega að reykja.“ Guðjón leggur á
það mikla áherslu að fólk ákveði að
hætta endanlega að reykja. Marg-
ir em alltaf að „hætta að reykja“,
en hætta því ekki. Það verður að
binda enda á það ferli og nám-
skeiðið á að stuðla að því.“
- En þegar fólkið kemur í sitt
umhverh og það grípur það nánast
óviðráðanleg löngun til að reykja -
hvað erþá til ráða?
„Ef slökun og önnur ráð duga
ekki getur fólk gripið til þess ráðs
að hafa samband við Guðjón, hann
er með eins konar „neyðar“-ráð-
gjöf fyrir skjólstæðinga sína; ef
þeir em aðframkomnir af tóbaks-
löngun en vilja alls ekki falla geta
þeir haft samband við hann.“
- Getur fólk komið með vini eða
ættingja á námskeiðið eða til dval-
ar á gistiheimilinu -
jafnvel þótt þeir reyki
ekki?
„Ef viðkomandi reyk-
ir líka á hann erindi
hingað - annars varla.“
Guðjón telur mjög
æskilegt að ef fleiri en einn í sömu
fjölskyldu reykja taki þeir sig sam-
an um að koma á svona námskeið
til þess að veita hver öðmm styrk,
bæði á námskeiðinu og þegar í
gamla umhverfið er komið. „Þess
má geta að við ráðgeram að hafa
þrjú svona námskeið í vor og þegar
er eitt slíkt fullskipað.“
Markmiðið er
að fólk hætti
endanlega að
reykja