Morgunblaðið - 02.03.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.03.2000, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þróunarsamvinnustofnun og Rauði kross- inn bregðast við neyðarástandi í Mósambík Fengur sendur á flóðasvæðin Ljósmynd/Sigurgeir Jónasson Arni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra skoðar afla í Vestmannaeyjum. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri, Stefán Friðriksson vinnslustjóri, Drífa Hjartardóttir og Árni Johnsen fylgjast með. Sjávarútvegsráðherra heimsækir fyrirtæki í Vestmannaeyjum RANNSÓKNASKIPIÐ Fengur lagði í gær úr höfn í Mabuto, höfuð- borg Mósambík, til flóðasvæðanna í Mósambík. Áætlað var að skipið kæmi síðla nætur á áfangastað með vistir og hjálpargögn. Óvíst er hve lengi skipið getur veitt aðstoð, en það er útbúið vistum og olíu til eins mánaðar. Um borð í Feng er lítill bátur sem ráðgert er að senda upp ána Limpopo, hjá borginni Xai Xai, til að ferja fólk og flytja hjálpargögn. Einnig kemur til greina að nota björgunarbáta af Feng við björgun- arstarfið. Þróunarsamvinnustofnun íslands (ÞSSÍ) hefur starfað í Mósambík undanfarin fjögur ár, einkum að fiskirannsóknum og hefur Fengur hefur verið í Mósambík í þrjú ár. Einnig hefur verið unnið að félags- legum verkefnum. Nú síðast á sviði heilsugæslu í samvinnu við Rauða kross félögin á Islandi og í Mósa- mbík. Hjálparstofnun kirkjunnar hefur einnig veitt landinu aðstoð. ÞSSÍ og Rauði kross íslands urðu fyrst hjálparstofnana til að bregðast við hörmungunum á flóða- svæðunum og veittu lítilsháttar fjárstuðning. Rauði krossinn safnar Rauði kross Islands hvetur al- menning til að aðstoða íbúa á flóða- svæðum í Mósambík með því að styrkja hjálparstarf Rauða krossins í landinu. Þar ríkir nú algjört neyð- arástand og hjálparfélög eru í kapphlaupi við tímann að bjarga fólki úr sjálfheldu og koma vatni og mat til þeirra sem hafa misst heim- ili sín, segir í fréttatilkynningu. Hægt er að gefa til hjálparstarfs- ins með gíróseðlum sem liggja frammi í bönkum og sparisjóðum, leggja inn á bankareikning númer 12 hjá SPRON á Seltjarnarnesi eða fara inn á vef Rauða kross íslands - www.redcross.is - og láta greiðslu- færa af korti. Einnig getur fólk hringt í Rauða krossinn - 570-4000 - og látið færa framlag á greiðslukort. Búist er við að vatnsflaumurinn aukist enn á næstu dögum og því er enn mest áhersla lögð á að bjarga fólki úr sjálfheldu. Á sama tíma þarf einnig að huga að því að koma hreinu vatni og mat til þeirra sem þegar hafa bjargast. Þegar hefur orðið vart við niður- gangspestir meðal fólks í flótta- mannabúðum Rauða krossins en óttast er að farsóttir eins og kólera kunni að brjótast út ef ekki er lögð mikil áhersla á fyrirbyggjandi að- gerðir. Rauði kross íslands hefur farið fram á það við deildir sínar um allt land, en þær eru alls 51, að þær styðji hjálparstarfið með fjárfram- lögum. ÁRNIM. Mathiesen, sjávar- útvegsráðherra, heimsótti sjávar- útvegsfyrirtæki í Vestmannaeyjum í gær og átti fundi með hagsmuna- aðilum í sjávarútvegi. Heimsóknin er sú sjötta í röð heimsókna ráð- herrans í kjördæmi landsins í sum- ar og vetur. Árni heimsótti m.a. Vinnslustöð- ina, ísfólag Vestmannaeyja, Sæhamar og Eyjaís. Jafnframt átti ráðherrann fund með Útvegs- bændafélagi Vestmannaeyja, Sjó- mannafélaginu Jötni, Verka- kvennafélaginu Snót og Verkalýðsfélagi Vestmannaeyja. Árni sagðist f samtali við Morg- unblaðið í gær hafa átt góða fundi í Eyjum og greinilegt að umræðan um fiskveiðistjórnunarmál væri lif- andi þar eins og annars staðar. „Stærstu sjávarútvegsfyrirtækin í Vestmannaeyjum hafa farið í gegn- um talsverðar breytingar að undan- förnu og þess má sjá dálitil merki. En það er mikið líf í Eyjum þessa dagana, loðnufiotinn er að veiðum hér skammt undan og verið að bræðajoðnu og frysta á fullu,“ sagði Árni. Islandssimi birtir verðskrá yfír símtöl til útlanda A Islandspostur tvítúk 28. febrúar Harðnandi samkeppni í símtölum til útlanda Sfmtöl til útlanda hjá Landssíma og Íslandssíma Öll verð I kr. á mín. DAGTAXTI KVÖLD- OG NÆTURTAXTI Lands- síminn íslands- síminn Verð- munur Lands- síminn íslands- síminn Verð- munur Ástraiía 58,00 56,10 3.4 r 52,00 50,50 3,0% Bandaríkin 35,00 29,75 17,7% 32,00 26,80 19,4% Bretland 31,00 26,35 17,7% 28,00 23,70 18,1% Danmörk 30,00 25,50 17,7% 27,00 22,90 17,9% Finnland 31,00 26,35 17,7% 28,00 23,70 18,1% Frakkland 36,00 30,60 17,7% 33,00 27,50 20,0% Færeyjar 31,00 26,35 17,7% 28,00 23,70 18,1% Grikkland 60,00 51,00 17,7% 54,00 45,90 17,7% írland 36,00 30,60 17,7% 33,00 27,50 20,0% italía 42,00 31,90 31,7% 38,00 28,70 32,4% Lúxemburg 36,00 30,60 17,7% 33,00 27,50 20,0% Noregur 30,00 25,50 17,7% 27,00 22,90 17,9% Rússland 69,00 97,75 -29,4% 63,00 88,00 -28,4% Slóvenía 66,00 56,10 17,7% 60,00 50,50 18,8% Spánn 36,00 30,60 17,7% 33,00 27,50 20,0% Svíþjóð 30,00 25,50 17,7% 27,00 22,90 17,9% Tyrkland 69,00 58,65 17,7% 63,00 52,80 19,3% Þýskaland 30,00 25,50 17,7% 27,00 22,90 17,9% ÍSLANDSSÍMI birti í gær verðskrá yfir símtöl til útlanda, en fyrirtækið hóf á þriðjudag að bjóða upp á svo- kallaðar Frímínútur, sem eru frí símtöl til útlanda, og ódýrari út- landasímtöl. Samkvæmt upplýsing- um frá fyrirtækinu mun verð í gjald- skrá Íslandssíma vera allt að 40% lægra en í sambærilegri gjaldskrá Landssímans. Ólafur Stephensen, talsmaður Landssímans, segir að munurinn á verðskrám fyrirtækjanna sé ekki nema um 15% þegar hringt er til helstu viðskiptalanda Islands. Hann segist gera fastlega ráð fyrir því að Landssíminn muni lækka verð eftir næstu mánaðamót. Sigurður Ingi Jónsson, yfirmaður viðskiptamótunar Íslandssíma, segir að menn hafi verið mjög forsjálir með samninga hjá Íslandssíma og því sé hægt að bjóða upp á lægra verð á símtölum við útlönd. Fyrstu 15 mínúturnar fríar Hann segir að tilboð um frí símtöl felist í því að menn fái fyrstu 15 mín- úturnar í útlandasímtölum fríar eftir að þeir hafa skráð sig sem viðskipta- vini Islandssíma. Og er þá sama hvert hringt er. Hann segir að þann- ig nái fólk að prófa þessa þjónustu sér að áhættu- og kostnaðarlausu. Fólk hefur, að sögn Sigurðar, brugðist vel við þessum tilboðum. Ekki geta viðskiptavinir þó farið að nýta sér þessa þjónustu Íslandssíma fyrr en 1. apríl nk. Ástæðan fyrir því er að Póst- og fjarskiptastofnun á eftir að fjalla um málið. Ólafur Stephensen, talsmaður Landssímans, sagði í samtali við Morgunblaðið að það væri misskiln- ingur að Landssíminn vildi banna Íslandssíma að bjóða upp á símtöl til útlanda, heldur hefðu menn talið að tilteknir viðskiptahættir væru vill- andi gagnvart neytendum, sem fæl- ist í því að ekki var hægt að nálgast verðskrá fyrir auglýsta þjónustu hjá Íslandssíma. „í þessum auglýsingum er ekkert sagt um verðið, nema að það sé allt að 40% lægra en hjá Landssímanum." Landssíminn mun lækka verð Hann sagði að samburður á verð- skrám leiddi í ijós að Islandssími byði upp á meira en 30% ódýrari símtöl til 85 landa, en benti jafnframt á, að á síðasta ári hefði umferðin til þessara landa verið u.þ.b. 1% af heildarsímtölum til útlanda. „Til 47 landa er boðið 19-30% lægra verð en hjá okkur og umferðin til þessara landa var um 2% af heild- arumferðinni á síðasta ári. Til ann- arra landa er yfirleitt um 15% lægra verð hjá Íslandssíma heldur en hjá Símanum, en það eru lönd sem mest er hringt til og er umferðin til þeirra yfir 95% af heildarumferðinni.“ Þá segir Ólafur að ekki sé tekið til- lit til þess að þúsundir viðskiptavina Landssímans, sem hringja mikið til útlanda, eigi kost á ýmsum sparnað- arleiðum. Sé það tekið með reikning- inn sé munurinn um 6% á þeim lönd- um sem 95% af símtölum fara til. „Svo er líka verið að bera saman gjaldskrá Landssímans í dag og verð Islandssíma eftir mánuð. Það er hörð samkeppni á þessum markaði og við gerum alveg fastlega ráð fyrir því að eftir mánuð eða svo verðum við búnir að lækka okkar verð enn frekar." Hlaiipársdag1 vant- aði í tölvukerfíð HLAUPÁRSDAG, 29.,febrúar sl., vantaði í tölvukerfi íslandspósts. Þetta kom þó starfsmönnum ekki á óvart, þegar hlaupársdagur rann upp. Fyrirmæli höfðu verið send daginn áður til pósthúsa um hvernig bregðast skyldi við þessum tölvu- vanda. Isfirska blaðið Bæjarins besta varð fyrst til að flytja frétt af hlaup- ársvanda íslandspósts. Þar kemur fram að í að minnsta kosti einu póst- húsi á norðanverðum Vestfjörðum hafi póstur verið handstimplaður upp á gamla mátann á hlaupársdag. Olli engum skakkaf ollum Að sögn Ólafs Þorsteinssonar, for- stöðumanns tölvudeildar Islands- pósts, gleymdist hreinlega að gera ráð fyrir þessum hlaupársdegi þegar tölvukerfið var uppfært vegna 2000- vandans. Hann sagði að kerfisvillan hafi ekki valdið neinum teljandi vandræðum. Starfsmenn hafi ein- faldlega fært inn nýja dagsetningu að morgni hlaupársdags. Þann dag hafi tölvurnar sýnt dagsetninguna 1. mars, en í staðinn hafi verið unnið á 28. febrúar tvo daga í röð. Það eigi ekki að breyta neinu gagnvart öðr- um stofnunum, t.d. varðandi greiðsl- ur. Innlánsstofnanir miði við daginn sem greiðsla berst þeim. Síðastliðinn hlaupársdagur var óvenju sjaldgæfur vegna þess að ár- talið endar á 00. í þeim tilvikum er hlaupár aðeins á 400 ára fresti. „Við verðum reiðubúin að mæta þessum vanda eftir 400 ár, sagði Ólafur. Enginn viðurkennt rán í söluturni ENGINN hefur enn gengist við því að hafa framið rán í söluturni í Vest- urbergi á mánudagskvöld. Þar ógn- aði ungur maður afgreiðslustúlku með hamri og sló mann í höfuðið fyr- ir utan sölutuminn. Hann hvarf á brott með nokkra tugi þúsunda sem hann rændi úr söluturninum. Lögreglan vinnur að rannsókn málsins og handtók mann í fyrradag en sleppti honum að loknum yfir- heyrslum. Var klæddur í hettupeysu Ungi maðurinn sem framdi ránið var klæddur í hettuíþróttapeysu eins og þá sem sjá má á myndinni, en á henni er m.a. áletrunin „Pure Jamaican“. Hann er sagður hafa verið um 170-175 cm á hæð, nálægt tvítugu og klæddur í svartar buxur auk peysunnar. Þeir sem geta gefið upplýsingar um eig- anda slíkrar peysu sem lýsingin gæti Ræninginn var klæddur í sams- konar peysu og sést á myndinni. hugsanlega átt við eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lög- regluna í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.