Morgunblaðið - 02.03.2000, Page 14

Morgunblaðið - 02.03.2000, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Unnið að flutningi Skinnaiðnaðar UNDIRBÚNINGUR að flutningi á starfsemi Skinnaiðnaðar hf. úr nú- verandi verksmiðjuhúsnæði á Gler- áreyrum yfir í húsnæði Foldu er í fullum gangi. Skinnaiðnaður seldi húseign sína á Gleráreyrum, þar sem reist verður stór og mikil verslunar- miðstöð fyiir næstu jól en fyrirtækið hefur tekið um 4.000 fermetra hús- næði Foldu á leigu af Landsbanka íslands. Bjarni Jónasson framkvæmda- stjóri Skinnaiðnaðar sagði að undh'- búningur að flutningi fyrirtækisins væri á áætlun en stefnt er að því að starfsemin verði komin í fullan gang í nýju húsnæði í kringum næstu mánaðamót. Framleiðslan er enn í fullum gangi en Bjarni sagði mikil- vægt að sem minnst röskun yrði á starfseminni við flutninginn. Kostn- aður við flutninginn er um 100 millj- ónir króna. „Það er heilmikið mál að flytja fyr- irtækið milli húsa en það lá alltaf fyr- ir. Móttaka fyrir hrágæru í burtu Flutningurinn á vélunum er þó minnsta málið en það er aftur vinnan við allar lagnir að vélunum í nýja húsnæðinu sem er stóra málið. Við förum að flytja á milli húsa um miðj- an mánuðinn og ætlum að vera farin héðan út fyrir næstu mánaðamót. Ekki stendur til að flytja móttöku á hrágærum yfir í Folduhúsið að sögn Bjarna, þar sem sú starfsemi þykir ekki lengur eiga heima á þessu svæði, sem senn verður orðið versl- unarsvæði. Unnið er að því að finna hentugan stað fyrir þá starfsemi og einn möguleikinn var að flytja starf- semina til Sauðárkróks, þar sem horft var til húsnæðis Loðskinns. Bjarni sagði þó ekki líklegt að sú starfsemi yrði flutt til Sauðárkróks og að unnið væri að því að finna hent- ugt húsnæði nær starfseminni á Gleráreyrum. Myndlistarskdlinn á Akureyri Morgunblaðið/Kristj án Morgunblaðið/Kristján Gísli Kristinsson, arkitekt og einn hvatamanna þess að Akureyringar leika nú íþróttina krullu (curling), rennir hér steininum eftir endilöngum vellinum á skautasvellinu á Akureyri. Akureyringar æfa krullu af kappi Zontaklúbbarnir á Akureyri Fyrirlestur um umskurð HÆTTULEGAR hefðir; umskurður og aðrar aðgerðir á kynfærum stúlkubarna og kvenna, er heiti á fyrirlestri sem Lilja Hallgrímsdóttir stjórnmálafræðingur heldur í sal Háskólans á Akureyri, við Þingvalla- stræti kl. 13.30 á laugardag, 4. mars. Umskurður á drengjum er vel þekktur. Meiri bannhelgi hefur hvílt á umskurði stúlkna, en slíkar að- gerðir eiga sér þó stað daglega í Af- ríku.Um 130 milljónir kvenna í yfir 40 löndum í Afríku hafa verið um- skornar í nafni menningarlegra hefða sem stjórna lífi þeirra. Þeim er viðhaldið af vanþróun, bágum efna- hags og félagslegum aðstæðum kvenna og goðsögnum um konulíka- mann. Aðgerðir sem eiga að tryggja stúlkunum hjónaband og barneignir, hina viðurkenndu stöðu þeirra í við- komandi samfélagi. Þessar aðgerðir geta valdið mikl- um skaða andlega og óbætanlegu líkamlegu tjóni og stundum dauða stúlknanna. Þær hafa m.a. verið skil- greindar sem misþyrmingar, of- beldi, heilsufarsvandamál og brot á mannréttindum. A alþjóðavettvangi er tekist á um mikilvægi og hlutverk hefðanna þ..e.a.s. menningarlegrar afstæðishyggju og þess að vemda réttindi einstaklingsins t.d. réttin til lífs og heilbrigðis. Afrískar konur áttu frumkvæði að því, að fá alþjóð- astofnanir til að taka á þessu vanda- máli. Fyrirlesturinn er á vegum Zonta- klúbbanna á Akureyri og er styrktur af Heilbrigðisdeild Háskólans á Ak- ureyri, hann er ókeypis og öllum op- inn og er kynning fyrir alþjóðlega söfnun til styrktar þessu verkefni sem Zontahreyfingin stendur fyrir 17. og 18. mars nk. -----♦->-♦--- Menningarsamtök Norðlendinga og Dagur Smásagna- samkeppni MENNINGARSAMTÖK Norðlend- inga, Menor og Dagur efna til smá- sagnasamkeppni og er skilafrestur til 1. maí næstkomandi. Öllum er heimil þátttaka í keppninni, en þetta er í sjötta sinn sem Menor og Dagur efna sameiginlega til smásagnakeppni, en frá árinu 1989 hafa þau til skiptis efnt til smásagna- eða ljóðasamkeppni. Smásagnasamkeppni var síðast haldin árið 1998 og bárust þá 43 handrit en Hjalti Pálsson bar sigur úr býtum fyrir söguna Stefnumótun. Skila skal inn handritum til Dags við Strandgötu 31 á Akureyri og skal nafn höfundar og heimilisfang fylgja með í lokuðu umslagi. HÓPUR áhugamanna um íþróttina krullu (eurling) kemur saman í skautahöllinni á Akureyri á sunnu- dögum þar sem keppt er af miklu kappi. Þetta er fjórða árið sem þessi íþrótt er stunduð á Akureyri en það er eini staðurinn á landinu þar sem farið er í þennan steinaleik á svelli. Nafngiftin, krulla, er hugmynd Gísla Jónssonar fyrrverandi menntaskóla- kennara, en hann lagði til að íþróttin hlyti þetta nafn er Morgunblaðið leitaði til hans varðandi heppilegt nafn á þennan leik. Upphaf þess að farið var að leika krullu á Akureyri er heimsókn hjón- anna og Vestur-íslendinganna Sofie VEÐURSPÁMENN í Veðurklúbbn- um á Dalbæ á Dalvík eru ekki bjartsýnir á gott veður í marsmán- uði, eða að minnsta kosti ekki fram til 20. mars að því er fram kemur í spá þeirra fyrir þennan mánuð. Þeir komu saman á hlaupársdag og gengu frá spá sinni og var séra Magnús Gunnarsson sóknarprest- ur heiðursgestur fundarins. „Veðrið verður áfram óstöðugt og umhleypingasamt eins og það hefur verið undanfarið og síst betra, sffelidar breytingar og óró- leiki í veðrinu, en samt meiri líkur og Tom Wallace til íslands, en þau gáfu 32 steina sem notaðir eru í þess- um leik og var þeim skipt milli Akur- eyringa og Reykvíkinga. Þeir síðar- nefndu hafa ekki fengið tíma á skautasvellinu syðra til að stunda íþróttina þannig að steinarnir voru sendir norður. Síðasta vor komu svo tveir V estur- íslendingar til Akureyrar, þeir Carl J. Thorsteinsson og Herb Olson og komu þeir færandi hendi, með 32 granítsteina, áhöld og annað sem til þarf. Verðmæti gjafar þeirra er um ein milljón króna. Tvö lið taka þátt í þessum leik og eru fjórir í hvoru. Liðin hafa hvort á að hann verði meira að norðan,“ segir í marsspánni. Menn eru sérlega svartsýnir verði veðrið slæmt á bolludaginn, 6. mars, þegar nýtt tungl kviknar í aust-norð-austri og á öskudag, 8. mars, en þá er stórstreymt. Gangi það eftir að veður verði slæmt þessa daga telja klúbbfélagar að norðlægar áttir með snjókomu verði viðloðandi og lægðirnar muni ganga hver eftir aðra. Sumir spámanna töldu að veðrið yrði með þessum hætti hvernig svo sem það yrði þessa umræddu daga. um sig 8 granítsteina sem eru um 10 kíló að þyngd, en á þeim eru sérstök handföng. Steinunum er rennt eftir ákveðinni braut á ísnum að marki fyrir enda hennar, en liðsmenn þess er rennir steininum sópa brautina. Ætla að efla íþróttina Marjo Kristinsson hjá Skautafé- lagi Akureyrar sagði að um 25-30 manna hópur Akureyringa stundi íþróttina um þessar mundir, en til stendur að kynna þessa íþrótt og freista þess að fá fleiri til liðs við fé- lagið. „Við viljum efla þessa íþrótt sem mest og viljum sjá sem flesta,“ sagðiMarjo. Telja klúbbfélagar að veðrið muni breytast kringum 20. mars en sú breyting standa stutt yfir og áfram verði óstöðugt veður. Flestir félaganna voru sammála um að Hekla væri ekki hætt og að meira mundi gerast á þessu sviði, sennilega færi að gjósa á öðrum stað og höfðu menn á tilfinning- unni að það yrði meira þá en nú í Heklu. Veðurklúbbsmenn bentu í lokin á að verði votviðrasamt á riddara- daginn, 9. mars, verði sumarið gott, en hart ef frost er þann dag. Nemend- ur sýna í Ketil- húsi NEMENDUR Myndlistarskólans á Akureyri sýna um þessar mundir þrivíð verk sem þeir hafa unnið undir handleiðslu Stefáns Jóns- sonar myndlistamanns en verkin sýna þeir í Ketilhúsinu í Grófar- gili. Sýningunni lýkur á morgun, föstudaginn 3. mars, en opið er frá kl. 12 til 18 á daginn. Þeir sem eiga verk á sýning- unni eru Anna Katrine, Arnfríður Arnardóttir, Birgir Rafn Friðriks- son, Halldóra Helgadóttir, Ingunn St. Svavarsdóttir (Yst), Jóhanna Björk Benediktsdóttir, Sunna Björg Sigfríðardóttir, Tinna Ingv- arsdóttir og Þrándur Þórarins- son. Á myndinni er Sunna Björg við eitt verkanna en það heitir Til- gangur lífsins. Annars kennir margra grasa á sýningunni og fjalla nemarnir um allt milli him- ins og jarðar í verkum sínum, eða allt frá 1.000 ára kristnitökuaf- mæli til umræðna um Eyjabakka og umræðu um virkjunar- framkvæmdir. Atvinnumálanefnd Ólafsfjarðar Borgara- fundur um atvinnu- og byggðamál ALMENNUR borgarafundur um atvinnu- og byggðamál verður haldinn í Tjarnarborg í Ólafsfirði á laugardag, 4. mars, frá kl. 14 til 17. Atvinnumálan- efnd Ólafsfjarðar efnir til fund- arins. Ásgeir Logi Ásgeirsson bæj- arstjóri setur fundinn, ávörp flytja Anna María Elíasdóttir, forseti bæjarstjórnai', og SnjólaugÁsta Sigurfinnsdótth', formaður bæjarráðs. Frum- mælendur á fundinum verða Björn Snæbjömsson, formaður Einingar Iðju, Guðmundur Guðmundsson, Byggðastofnun, Sigurgeir Sigurðsson, bæjar- stjóri á Seltjarnarnesi, og Val- týr Sigurbjarnarson, atvinnu- ráðgjafi hjá Nýsi. Þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra flytja ávörp og að lokum verða fyrirspurnir og pallborðsum- ræður. Veðurklúbburinn á Dalvík s Ostöðugt og umhleypinga- samt veður í mars

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.