Morgunblaðið - 02.03.2000, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
VOR- OG sumar-
listi H&M Rowells
er kominn út.
I listanum er að
finna fatnað fyrir
böm og fullorðna
og má þar meðal
annars nefna
sund- og íþrótta-
fatnað.
Listann er hægt
að panta hjá H&M eða á heimasíðu
fyrirtækisms www.hm.is en hann
kostar 350 krónur með burðargjaldi.
Verslunin 11-11
við Þverbrekku
endurnýjuð
Undanfarið hafa staðið yfir breyt-
ingar á 11-11 versluninni við Þver-
brekku í Kópavogi og hefur hún
nú verið opnuð að nýju en verslun-
in var lokuð í eina viku meðan
breytingar stóðu yfir
------------
Nýtt
Vor- og
sumarlisti
Áætlaður kostnaður vegna bruna á innbúi um 100 milljónir
Kertaljósa- og
eldunarbrun-
ar algengastir
HVERSU notalegt er það ekki að
kveikja á kerti í skammdeginu og
njóta lífsins í hlýlegri birtunni. Myrk
vetrarkvöld eru þó ekki eini tíminn
sem menn ylja sér við kertaljós enda
eru kerti í vaxandi mæli notuð árið
um kring. Marga bmna, bæði smáa
og stóra, má rekja til kertaloga og
era kerti önnur algengasta orsök
eldsvoða hér á landi, næst á eftir
eldamennsku. Um 20 bmnar vegna
kertaskreytinga vora tilkynntir til
Sjóvár-Almennra frá miðjum nóv-
ember og út desember á síðasta ári.
Hefði verið hægt að koma
í veg fyrir brunann
Ætla má að kostnaður vegna
bmnatjóna á vátryggðu innbúi á ís-
landi sé í rúmlega 100 milljónir
króna á ári. Er þá ótalinn kostnaður
vegna tjóns á fasteignum, sem getur
bæði verið vegna branans sjálfs og
vegna reykskemmda.
„Margir af þessum branum era af
ástæðum sem hefði verið hægt að
koma í veg fyrir. Það á við um kerta-
ljós en slflrir branar era algengastir
í kringum jól og áramót. Aðrir al-
gengir brunar á heimilum era vegna
þess að fólk gleymir að slökkva á
eldavélarhellum og út frá sjónvarps-
tækjum,“ segir Hreinn Úlfsson hjá
Vátryggingafélagi íslands.
Sprittkerti geta gosið
Úrval kerta verður æ fjölbreytt-
ara og hafa sum þeirra reynst var-
hugaverð. Það á t.d. við um kerti
sem era húðuð með silfur- eða gull-
lituðu efni en til er í dæminu að
kviknað hafi í húðunarefninu. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Löggilding-
arstofu er sjaldgæft að notkunar-
leiðbeiningar fylgi kertum.
Þá hafa ílát sem kerti era steypt í
reynst varasöm og era þess dæmi að
þau hafi valdið íkveikju. Hjá Lög-
gildingarstofu fengust einnig þær
upplýsingar að ákveðin kerti, sem
steypt vora í keramikpotta og seld
saman þijú í pakka, hefðu reynst
eins misjöfn og þau vora mörg. Eitt
kertið var í lagi, annað hitnaði að ut-
an en upp úr því þriðja rauk eftir að
búið var að slökkva á þvi.
Sprittljós, sem stundum era nefnd
teljós, geta einnig verið varasöm og
um þau gildir sama regla og um önn-
ur kertaljós, að aldrei skal yfirgefa
herbergi þar sem þau loga. Erlend-
ur Fjeldsted, hjá Tryggingamið-
stöðinni, segir að slík kerti eigi það
til að gjósa, stundum með alvarleg-
um afleiðingum.
Sigurður Ingi Geirsson hjá Sjóvá-
Almennum segir að samkvæmt
reglugerð frá júlí 1998 sé skylt að
setja upp branaboða, eldvarnarteppi
og handslökkvitæki í hús sem byggð
era eftir að reglugerðin tók gildi.
Hann leggur áherslu á að rétt stað-
settir branaboðar geti komið í veg
fyrir alvarlegt branatjón, að ekki sé
talað um líkamstjón og manntjón.
Upplýsingar um rétta staðsetningu
era prentaðar á umbúðir reyk-
skynjaranna. Þá segir Sigurður Ingi
að seljendur skynjaranna séu fróðir
um hvar skal festa þá upp og sjálf-
sagt að spyrja þá ráða þegar brana-
boði er keyptur.
Hér fylgja gagnlegar ráð-
leggingar, m.a. frá Löggild-
ingarstofu.
►Kertaskreytingar skal
hafa á undirlagi sem ekki
getur kviknað í.
►Fylgist vel með að kerta-
loginn nái ekki í skreyting-
una sjálfa. Skiptið frekar
ört um kerti í skreytingunni.
►Athugið að kerti brenna
mishratt; stundum er
brennslutúna getið á
umbúðum.
►Til eru eldtefjandi efiú
sem hægt er að úða
skreytingar með. Þeim
skal þó ekki treysta.
► Veljið kertastjaka úr
hitaþolnum efnum.
►Kertið verður að vera vel
fast í kertastjakanum.
►Húsgagnið sem kerta-
stjaki eða skreyting stendur
á verður að þola hita.
►Sjónvarp og önnur tæki
sem hitna geta aukið hætt-
una og því ættu Iogandi
kerti ekki að standa á þeim.
► Aldrei skal hafa kerti þar
sem trekkur er, hann getur
kveikt í litlum neista.
►Hafið kerti ekki í
gluggakistu þar sem
gardína"blaktir.
►Börn skulu aldrei vera
ein í herbergi þar sem
logar á kerti.
BEINVERND
ÍSLENSKUR MJÓLKURIÐNAÐUR
„Bestu vopnm gegn
beinþynningu eru
ölium aðgengileg77
Beinþynning er alvarlegur sjúkdómur sem árlega
veldur um 1000 beinbrotum hér á landi. Eftir því sem
meðalaldur þjóðarinnar hækkar fjölgar tilfellum. Ef
ekkert verður að gert verður beinþynning eitt helsta
heilsufarsvandamál nýrrar aldar.
Við beinþynningu verður rýrnun á beinvef og beinin
verða stökk. Hryggjarliöirfalla saman, líkaminn
verður hokinn og hætta á brotum eykst.
Hollir lífshættir alla ævi eru besta vörnin gegn
þessari vá. Hæfileg hreyfing, kalk og D-vítamín
gegna þar lykilhlutverki. Lýsi og fjölvítamín eru
heppileg D-vítamínuppspretta en þægilegasta leiðin
til að tryggja sér nægilegt kalk er að drekka mjólk og
neyta annarra mjólkurvara.
„Mjólk" er samheiti yfir alla drykkjarmjólk, nýmjólk, léttmjólk, undanrennu
og fjörmjólk. Einnig má fá kalk úr öörum mjólkurvörum, s.s. osti og
sýröum mjólkurvörum.
—
HolEustð