Morgunblaðið - 02.03.2000, Síða 30

Morgunblaðið - 02.03.2000, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ESB viðhaldi ekki ein- angrun Austurríkis Vín. AFP, Reutcrs. WOLFGANG Schussel, kanzlari Austurríkis og leiðtogi hins borgara- lega Þjóðarflokks (OVP), og hinn umdeildi Jörg Haider, sem á mánu- dagskvöld sagði af sér sem leiðtogi Frelsisflokksins (FPÖ), vöruðu í gær Evrópusambandið (ESB) við því að halda því til streitu að halda Austur- ríki í pólitískri einangrun. Gagnrýnendur sögðu afsögn Haiders lítið annað en útspil í póli- tískri refskák, sem myndi ekki hafa áhrif á þær aðgerðir sem ríki heims hefðu gripið til í því skyni að lýsa vanþóknun sinni á ríkisstjómarþátt- töku Frelsisflokksins, sem sakaður hefur verið um að gera út á útlendingaandúð og lýðskrum. í sjónvarpsviðtali á þriðjudags- kvöld sagði Schussel að svo gæti far- ið að „hasgja myndi á“ ákvarðana- töku í ESB, ef Austurríki væri ekki haft að fullu með í ráðum. Haider hefur einnig minnt á, að ESB þarf á Austurríki að halda í mörgum mál- um, þar sem samhljóða samþykki allra aðildarríkja þarf fyrir ákvörð- unum. „Það er alveg ljóst að gefi ESB- ríkin 14 okkur ekki færi á að láta okkar rödd, hugmyndir og hagsmuni heyrast í ákvarðanatökuferli ESB, þá mun hægjast á ákvörðunum sem ríkin fimmtán eiga öll að taka,“ sagði Schussel. Hann bætti því þó við, eins og Haider gerði einnig, að þetta þýddi ekki að Austurríki beitti neit- unarvaldi. Schússel gagnrýndi það með hve mikilli tortryggni ákvörðun Haiders um að afsala sér flokksformennsku hefur mætt. „[Þessi viðbrögð sýna] að það er sama hvað Haider gerir, það er allt talið vafasamt," sagði kanzlarinn. Frökkum hollast að sýna sanngimi Haider minnti líka í sjónvarpsvið- tali í fyrrakvöld frönsk stjómvöld á, að þeim væri hollast að koma af sanngimi fram við Austurríki þegar Frakkar gegna formennskunni í ráð- herraráði Evrópusambandsins, en það verður á síðari helmingi þessa árs. „Vilji Frakkar sjá einhvem árangur nást [í formennskutíð sinni] þá verða þeir að koma vel fram við Austurríki," sagði hann. Haider tók þó fram, að Frelsisflokkurinn hefði engin áform uppi um að beita neitun- arvaldi gegn ákvörðunum innan ESB. Haider kallaði Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýzkalands og einn helzta leiðtoga þarlendra græn- ingja, „fyrrverandi stuðningsmann RAF,“ þ.e. hinnar vinstri öfgasinn- uðu hryðjuverkasveitar „Rauðu her- deildarinnar“ sem mest lét að sér kveða á áttunda áratugnum. Sagði Haider að Fischer og valdamenn annarra stjómmálaflokka í Evrópu væm hræddir um að velgengni FPÖ í Austurríki gæti verkað sem for- dæmi að hliðstæðum breytingum á flokkakerfi annarra Evrópuríkja. „ESB hefur hlaupið alvarlega á sig,“ AP Jörg Haider, ríkisstjóri í Karnten, sinnir skyldustörfum og afiiendir foð- ur Anton Wanner viðurkenningu Kámten daginn eftir að Haider sagði af sér sem formaður Frelsisflokksins. sagði Haider. En samkvæmt nýrri skoðanakönnun, sem niðurstöður vom birtar úr í gær, er yfirgnæfandi meirihluti Austurríkismanna enn hlynntur ESB, þrátt fyrir að áður hafi komið fram að flestum þeirra finnist aðgerðir hinna ESB-ríkjanna ósanngjarnar og byggjast á fordóm- um. Austum'sk stofnun sem sinnir rannsóknum á evrópskum stjórn- málum lét gera könnunina, en sam- kvæmt henni vilja 76% Austumkis- manna að landið verði áfram í Evrópusambandinu, sem það gekk í árið 1995. Aðeins 17% landsmanna vilja ganga úr sambandinu eins og sakir standa. Atvinnulaus- um útvegað- ur farsími Sex ára drengTir f Bandarikjiiiium skaut bekkjarsystur sína Talið að hann hafí ekki áttað sig á afleiðingunum Clinton hvetur til að byssur séu með „barnalæsingum“ Flint, Mount Morris Township, Michigan. AP, AFP. AP Aðstandendur nemenda í Buell-grunnskólanum bíða þess að hitta börn- in eftir skotárásina á þriðjudag. London. Daily Tclegraph. ATVINNULAUSU fólki í Bretlandi verður útvegaður ókeypis farsimi og símboði til að auðvelda því að fá vinnu. Þá verður sumum hjálpað að komast yfir bíl, taka ökupróf og fata sig upp ef nauðsyn krefur. David Blunkett, mennta- og at- vinnumálaráðherra Bretlands, mun tilkynna í næstu viku, að 15 héruð í landinu verði tekin fyrir og atvinnu- laust fólk leitað uppi. Á það sérstak- lega við um fólk, sem orðið er 25 ára og hefur verið án atvinnu í ár eða lengur. Fólkið á að fá ókeypis farsíma og símboða í hendur og það eru einka- fyrirtæki, sem ætla að axla kostnað- inn. Þá getur fólk fengið allt að 47.000 kr. styrk til að brúa bilið á milli þess að vera á bótum og fá útborguð laun. Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, sagði í fyrradag að ríkið hefði skyldum að gegna við þá, sem ættu undir högg að sækja, en full- frískt fólk hefði enga afsökun fyrir því að vera á opinberum bótum. Eftir- spum eftir vinnuafli hefði sjaldan verið meiri og um eina milljón manna vantaði til starfa. DAUÐI sex ára stúlku sem skot- in var til bana í Buell-grunnskól- anum í bænum Mount Morris Township í Bandaríkjunum á þriðjudag hefur vakið mikla at- hygli. íbúar bæj- arins reyna nú að sætta sig við að sex ára strákur hafi banað bekkjarsystur sinni, Kayla Rolland, þegar hann dró upp byssu í skólastofunni og skaut. Er málið talið auka enn frekar á deilur um vopnalöggjöf í Bandaríkjunum. Ekki liggur ljóst fyrir hvernig at- burðurinn átti sér stað. Að sögn lögreglu hafði drengurinn byssuna með í skólann til að sýna vinum sín- um, en einnig hefur verið greint frá að komið hafi til átaka milli drengs- ins og Kayla á leikvellinum daginn áður. Nafni drengsins, sem hefur verið komið fyrir í umsjá barna- verndaryfirvalda, er haldið leyndu vegna aldurs hans. Um 500 nem- endur sækja Buell, sem er í einu af efnaminni hverfum bæjarins. Að sögn Aliciu L. Judd, kennara barnanna, voiu fáir nemendur í stofunni þegar drengurinn dró .32 kalibera byssu úr buxnavasa sínum, sneri sér í átt að Kayla og skaut einu skoti. Hann hljóp þvi næst inn á klósett og henti byssunni í ruslið. Lög Miehiganríkis leyfa að barn sé sótt til saka líkt um og lögráða einstakling væri að ræða, en ólík- legt er talið að svo verði í þessu til- felli. „Samkvæmt lögum ber barn- ...ekki ábyrgð og getur ekki haft uppi ásetning um að drepa. Ljóst er að drengurinn hefur gert nokkuð hræðilegt, en lagalega séð getur hann ekki borið ábyrgð,“ sagði Art- hur A. Busch, saksóknari í Genes- ee-sýslu. „Hann gerði sér grein fyr- ir að hann var að gera eitthvað sem ekki mátti, en hve mikið hann skildi er annað mál.“ Ekki einsdæmi að grunn- skólabörn mæti með byssu Ekki hefur verið gefið upp hvem- ig drengurinn náði í byssuna, en ljóst er að hún kom af heimili hans. Að sögn Busch er þetta ekki eins- dæmi og kvað hann önnur grunn- skólabörn hafa orðið uppvís að því að koma með byssu í skólann þó ekki hafi verið hleypt af fyrr en nú. „Það er tímanna tákn að vopnum búið þjóðfélag gangist ekki við þeirri ábyrgð að geyma vopn sín á öruggum stað,“ sagði Busch. Þó drengurinn verði e.t.v. ekki sóttur til saka gera bandarísk lög ráð fyrir að sá sem er fundinn sekur um vanrækslu á geymslu skotvopna geti verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Bill Clinton Bandaríkja- forseti hvatti á þriðjudagskvöldið til þess að allar byssur yrðu útbúnar „barnalæsingu". „Þetta er enn ein áminningin um að gera það sem við getum til að vernda börn okkar gegn ofbeldi," sagði Clinton Kennsla féll niður í Buell í gær, en skólinn var opinn þeim sem á áfallahjálp þurftu að halda. Dreng- urinn er til þessa yngsti þátttak- andi í fjölda skotárasa í skólum Bandaríkjanna sl. 3 ár. -------------- Banvænt „krabba- meinslyf“ Lissabon. Reuters. PORTÚGALSKUR maður sem kvaðst hafa uppgötvað lækningu gegn krabbameini og öðrum alvar- legum sjúkdómum mætti fyrir rétt á Azoreyjum fyrir skömmu sakað- ur um að hafa myrt átta manns. Að sögn saksóknara mátti rekja dauðsföllin til þess að Manuel Din- is Pimentel smurði líkama sjúkl- inganna með upplausn sem m.a. innihélt skordýraeitur. Pimentel, sem nú á allt að 25 ára fangelsisdóm yfir höfði sér, neitar ásökununum og sakar sjúklingana um að hafa látið hjá líða að til- kynna sér um að þeir þjáðust af öðrum sjúkdómum á borð við syk- ursýki. LANCÖMl^^ % - I I—■— Vor - sumar 2000 Dagarnir verða bjartari með vor- og sumarlitunum fró LANCOME Stórglæsileg taska fyrir förðunarvörur og snyrtibudda fylgja kaupunum. Kynning í dag og á morgun Kynning á morgun og laugardag SNfRTIVÖRUVERSLUNIN . . T GLÆSiÆ BYLGJAN SNYR.TIVERSLUN1N Kayla Rolland I J

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.