Morgunblaðið - 02.03.2000, Síða 43

Morgunblaðið - 02.03.2000, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000 43 MINNINGAR ' þitt, þú varst okkur svo miklu meira en þú gast nokkurn tímann gert þér grein fyi-ir. Okkur finnst svo mörg orð vera ósögð, svo margt sem okkur langar til að gera með þér. Góður Guð hefur ætlað þér stærra og meira hlutverk í hans paradís og við vitum að þegar okk- ar tími kemur munum við eiga þig alltaf að og þú munt halda verndar- hendi yfir okkur. Megi englar og Guð vaka yfir þinni yndislegu sál, ylja þér við hjartarætur og gera þig að ljósi al- heimsins. Svo þegar ég dey á ég þig alltaf að. Við ættum kannski ekki að reyna að kveðja þig, heldu óska þér velfarnaðar í nýju hlutverki hvað sem það kann vera. „Almáttugi Guð. Hafdjúpin eru í hendi þinni, veður og öldur á valdi þínu. Líf mitt og allir hagir mínir eru í þinni umsjá og það veit ég af orði þínu, að þú lætur þér annt um mig. Pú hefur verndað mig og vak- að yfir vegum mínum, þótt ég hafi oft vikið frá þér og hryggt heilagt föðurhjarta þitt. Ég þakka þér gæsku þína, góði Guð. Ég bið þig að fyrirgefa mér brot mín og bresti og leiða mig á rétta vegu. Ég fel þér skipið og alla, sem á því eru. Gjör þú ferðina góða og farsæla. Ég fel þér öll mín áform og fyrirtæki. Ég fel þér heimili mitt og ástvini. Vak yfir oss öllum allar stundir og varð- veit oss hjá þér, í þeirri trú, sem tengir oss þér í lífi og dauða. Fyrir Jesú Krist, Drottin minn og frels- ara. Amen.“ (Sjóferðabæn.) Það er svo margt sem okkur langar að láta getið en ekki er hægt að koma orðum að, aðeins í hjörtum okkar er hægt að lýsa þér eins og þú varst. Við viljum þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið okkur og við viljum biðja þig, góði guð, að gefa okkur öllum styrk á þessum erfiðu tímum. Sérstakar styrktar- og samúðar- kveðjur viljum við senda föður okk- ar og móður, einnig Þuríði, sambýl- iskonu afa, og eins öllum nákomnum ættingjum. Margrét Einarsdóttir og íris Dögg Einarsdóttir. Elsku afi. Við hugsum um öll þessi slys sem eru alltaf að verða og nú varst þú tekinn frá okkur. Þegar við hugsum til þín þá munum við eftir hvað þú varst góður við okkur og þegar þú komst að heimsækja okkur norður og varst stundum hjá okkur á jólunum, þá var sko gaman og líka þegar við komum suður til þín, en sérstaklega var gaman að koma í sumarbústaðinn til þín og vera innan um öll trén og blómin með þér. Við þökkum þér fyrir öll árin sem þú varst með okkur. Vigdís Ósk Viggósdóttir, Karen Inga Viggósdóttir, Einar Viggó Viggósson. Kæri vinur. Hve sárt það er okkur að sjá eftir þér, hér skuggarnir ríkja og dapurlegt er, nú nótt er í huga og hjarta. Þín minning mun lifa um ókomin ár, að endingu hverfur vor tregi og tár, við öll munum brosið þitt bjarta. Þótt hugur sé dapur og hrygg sé vor sál, kann Herrann að líkna og kveikja það bál sem kvíðanum sárum burt bægir. Hann syrgjendum veita kann hjálpræðishönd, hlífa og styrkja vinanna bönd og saknaðarlogana lægir. Þú óhræddur gengur á frelsarans fund, fölskvalaus ætíð var sál þín og lund, í faðmi hans hvíld þú munt finna. Hað heilmikla veitir oss hugarfró, á himnum þú dvelur í friði og ró í umhyggju ástvina þinna. Elsku Þuríður, synir og aðrir ættingjar. Okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Far þú í friði, kæri vinur, blessuð sé minnig þín. Sesselja og Hjalti. ERLENDUR HILMAR BJÖRNSSON + Erlendur Hilmar Björnsson fædd- ist á Siglufirði 1. apríl 1931. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 24. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Björn Ólsen Björnsson verka- maður á Siglufirði, f. 11.9. 1903, d. 27.5.1976 og eigin- kona hans Konkord- ía Ingimarsdóttir húsmóðir, f. 14.6.1905, d. 6.8. 1987. Systkini Erlendar eru Ólína Sigríður, f. 17.11.1927, d. 21.10.1996, eiginmaður hcnnar Hólmsteinn Þórarinsson; Þóra María, f. 6.12.1929, eiginmaður hennar Jóhann Stefánsson; Mar- grét Eybjörg f. 16.4.1933, eigin- maður hennar Hjörtur Karlsson; Ágúst f. 16.2.1938, eiginkona hans Þrúður Márusdóttir; og Björn Ólsen, f. 8.4.1946, sambýl- iskona hans Bergþóra Jóhanns- dóttir. Hinn 12. október 1957 kvænt- ist Erlendur eftirlifandi eigin- konu sinni Helgu fvarsdóttur, f. 4.1.1934. Foreldrar hennar voru ívar Helgason bóndi á Vestur- Meðalholtum, Gaulverjabæjar- hreppi, f. 9.2.1889, d. 28.12.1962 og eiginkona hans Guðríður Jónsdóttir húsmóðir, f. 18.8.1896, d. 14.5.1974. Börn Erlendar og Helgu eru: Björn, f. 2.11. 1956, kvæntur Þórunni Brandsdóttur, barn þeirra er Ellen Ágústa og fóstur- börn Björns; Kol- brún Petrea, Brandur og Loftur; ívar f. 28.11.1958, sambýliskona hans er Þóra Ingvars- dóttir, þeirra dæt- ur eru Tinna og Al- exandra Helga; Magnús f. 24.6. 1963; og Sigríður, f. 20.12.1965, gift Jóni Víkingi Hálfdánarsyni, þeirra börn eru: Þórhalla Eva og Þórir Björn. Erlendur ólst upp á Siglufirði og lauk prófi í húsateikningum frá Iðnskólanum á Siglufirði og hélt síðan til Akureyrar þar sem hann lærði húsgagnasmíði á Húsgagnaverkstæðinu Eini. Hann fékk meistararéttindi í fagi sínu og rak eigin húsgagna- vinnustofu mestan part starfs- ævi sinnar. Erlendur tók virkan þátt í fé- lagsstörfum um langt árabil; söng í Kantötukór Akureyrar, var félagi í Flugbjörgunarsveit- inni í Reykjavík og í stjórn Skíðafélags Reykjavíkur. Á seinni árum sat hann í stjórn Réttarholts, byggingarfélags eldri borgara í Bústaðasókn. Útför hans fer fram frá Bú- staðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Það er erfitt að kveðja þig, pabbi, þó liðin séu ellefu ár frá því að ég frétti fyrst af veikindum þínum og þér hafi ekki verið ætlaðir margir líf- dagar þá. Það er erfitt að gera sér grein fyrir ýmsum hlutum sem vís- indin hafa ekki getað sett mælistiku sína á, og þar á meðal er ástin, viija- styrkurínn, bjartsýnin og lífskraftur- inn. Birting þessara hugtaka hjá þér var stundum sveipuð hulu þannig að ekki sást fyrr en upp var staðið hvað þú varst að fara. Þú sóttir styrk þinn og mátt í orkulind sem stundum virt- ist ótæmandi. Það var ótrúlegt þegar þú fékkst að fara af sjúkrahúsinu og fluttir með mömmu í nýju íbúðina í Hæðargarðinum. Á tímabili varstu jafnvel farinn að vinna klukkutíma á dag til að klára verkefni sem var ólok- ið. Alveg frá því ég var lítill snáði hef- ur þú verið að ferðast. Á hverju sumri fórum við í útilegur og eins oft og unnt var til æskuslóðanna á Siglu- firði. Þó veikindin herjuðu á þig keyptirðu samt hjólhýsi og jeppa til að halda áfram að ferðast og njóta samveru við móður náttúru. Ég held að bjartsýni þín hafi best komið fram í því að ef þú ætlaðir að gera eitthvað, sama hversu ómögulegt öðrum þótti það, byrjaðir þú bara á því og hættir ekki fyrr en því var lokið. Ég hef stundum fengið á tilfinning- una að þú hafir, eins og fleiri Siglíh'ð- ingai', fæðst á skíðum og þá á göngu- skíðum. Vetur eftfr vetur fórstu með okkur bræðurna hveija einustu helgi á skíði. Þú varst ekki búinn að vera lengi í Flugbjörgunarsveitinni þegar þér fannst þeir ekki nota skíði nóg og til að sanna þitt mál smíðaðfrðu skíði handa flokknum þínum, og fyrr en varði voru þeir komnir á skíði. Ein aðalorkulindin þín var Breið- holtssundlaugin. Þangað þurftirðu helst að komast á hverjum degi og taka sundsprett. Þegar þú varst spurður um veikindi þín voru svörin yfirleitt á þá lund að þú væiir nú ekki eins veikur og læknarnfr segðu þig og nefndir því til sönnunar að þú værir ekki farinn enn. Þannig leistu alltaf á lífið, af bjartsýni og krafti án þess að kvarta yfir hlutskipti þínu. Þakka þér fyrir allt, elsku pabbi. Hvíldu í friði. Megi almáttugur guð veita ykkur öllum ástvinum hans styrk í sorg ykkar. Þinn sonur, Björn. Nú ertu farinn, elsku afi, og kom- inn til englanna sem vaka yfir okkur alla daga. Við eigum eftir að sakna þín þegar við komum í Hæðargarð- inn, en við vitum að þú verður alltaf með okkur. Við viljum þakka þér fyrir allar samverustundimar sem við fengum að njóta með þér og þá sérstaklega þegar við fórum með ykkur ömmu upp í sveit til Helga og Jónsa og í sund. Þegar við vorum að læra skóla- ljóðin kunnir þú þau öll. Þú hafðir Iíka svo gaman af að kenna okkur að tefla og spila. Elsku afi, megir þú hvíla í friði. Þórkatla Eva, Þórir Bjöm og Ellen Ágústa. Elsku afi okkai- er dáinn. Þú varst svo duglegur og jákvæður í veikind- um þínum. Það var þér og ömmu Helgu dýrmætt að geta farið í sund þegar heilsan leyfði. Það var alltaf svo notalegt að koma í heimsókn til ykkar ömmu Helgu, hún er svo ein- staklega myndai'leg húsmóðir. Það var alltaf tekið á móti okkur með hlaðborði. Þú varst mikill og yndis- legur afi. Þú varst svolítið stríðinn sem við systumar höfðum gaman af. Þegar við systurnar ákváðum að safna frímerkjum gafst þú okkur stóran hluta af safni þínu og safnaðir áfram íyrir okkm-. Varð frímerkja- safniðmjögflott. Við eigum svo margar góðar minn- ingar um þig, elsku afi, sem við geym- um í hjarta okkar. Góði Guð, viltu gefa ömmu Helgu og okkur öllum styrk í sorginni. Hvíldu í friði, elsku afi. Þínar, Tinna og Alexandra Helga Ivarsdætur. Þegar Erlendur á sínum tíma flutti frá Siglufirði til Reykjavíkur, óskaði hann eftir að gerast félagi í Skíðafé- lagi Reykjavíkur. Hann reyndist góð- ur félagi og keppti fyrir félagið í mörg ár við góðan orðstír. Eftir að Erlend- ur hætti keppni, hélt hann áfram störfum fyrir félagið. Ennfremur var hann eftirsóttur mótsstjóri sökum reynslu sinnar og kunnáttu. Stjórn Skíðafélags Reykjavíkur vill með þessari kveðju sýna þakklæti sitt fyrir vináttu og vel unnin störf í þágu félagsins og sendir aðstandend- um innilegustu samúðarkveðjur. Skíðafélag Reykjavíkur. t Elskulegur faðir, afi og langafi, JOHN J. TUOHY, Roseburg Oregon, Bandaríkjunum, lést á heimili sínu sunnudaginn 2. janúar. John var giftur Helgu Þorgeirsdóttur Tuohy sem er látin. Bálför hefur farið fram, en athöfn á íslandi mun fara fram síðar. Susan Edda Tuohy Bettis, William, Helga og Sean Bettis, Cody og Naomi Edda. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA LOVÍSA JÓNSDÓTTIR, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, að morgni föstudagsins 25. febmar. Kveðjuathöfn fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 6. mars kl. 13.30. Ásrún Björg Arnþórsdóttir, Sigmundur Júlíusson, Árni Jón Arnþórsson, Ragnhildur Ásmundsdóttir, Helga Arnþórsdóttir, Bjami Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, FRIÐRIK HAFSTEINN SIGURÐSSON, Lambastekk 6, Reykjavík, andaðist þriðjudaginn 29. febrúar á hjúkrunar- heimilinu Skógarbæ. Guðríður L. Guðmundsdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN INGÓLFSSON, Dverghamri 13, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Landakirkju, Vestmanna- eyjum, laugardaginn 4. mars kl. 14.00. Halldóra Hallbergsdóttir, Þuríður Jónsdóttir, Jóel Þór Andersen, Bergþóra Jónsdóttir, Óskar Óskarsson, Haltbjörg Jónsdóttir, Róbert Gíslason, Berglind Jónsdóttir, Steinar Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, MORRIS GARFIELD SLEIGHT, Kleppsvegi 80, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum sunnudaginn 27. febrúar verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 3. mars kl. 13.30. tL Bergljót Garðarsdóttir Sieight, Þórunn Sleight, Peter og Eileen Sleight, Erik Sleight, Magnús Már Björnsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.