Morgunblaðið - 02.03.2000, Side 49

Morgunblaðið - 02.03.2000, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Verður hundrað þroskaheftum úthýst? í MORGUNBLAÐINU 17. febrúar sl. birtist ágæt grein eftir Rósu Magnúsdóttur sem hún nefnir „Paradís í Reykjadal". Þar gerir hún að umræðuefni sumardvöl fatl- aðra barna og ung- menna og segir m.a.: „Sem starfsmaður Reykjadals í tæp 10 ár hef ég heyrt óteljandi lofræður um staðinn og starfsemina og ég veit hversu stórt pláss Reykjadalur skipar í hjörtum skjólstæðinga og fjölskyldna þeirra. Það er ekki að ástæðu- lausu að oft hefur ver- ið talað um paradís í Reykjadal." I Reykjadal í Mos- fellssveit hefur Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra tekið á móti börnum og ung- mennum í sumardvöl mörg undan- farin ár. Á liðnu sumri komu þang- að hundrað og áttatíu sumar- dvalargestir, flestir í hálfan mánuð. Sonur minn, sem er sautján ára, hefur verið þar fjögur sumur og lík- að sérstaklega vel. Aðstaðan í Reykjadal er öll til fyrirmyndar, þar er sundlaug og íþróttahús. Starfsfólk er gott og glatt. Sveitin veitir frelsistilfinningu og unað og fjölþætta möguleika til útivistar og náttúruskoðunar. í haust bárust þau tíðindi að breytingar á starfseminni í Reykja- dal stæðu fyrir dyrum. Halli hefði verið á sumardvölinni undanfarin ár og Styrktarfélagið sæi sér ekki lengur fært að bjóða öðrum en hreyfihömluðum sumardvöl nema fjármagn fengist. Það yrði því að vísa hundr- að börnum og ung- mennum frá. Auðvitað mundu ábyrgir aðilar sjá að hér var mál sem þyrfti að leysa, hugs- aði ég. En lausnin lét á sér standa. Þegar til kastanna kom virtust þeir, sem yfir fjár- magni ráða, láta sér sumardvöl fatlaðra í léttu rúmi liggja. Það var eins og þeim kæmi málið ekkert við, hefðu engar skyldur, engan áhuga, engan vilja til að leysa málið. Það eina sem félagsmála- ráðuneytið gerði var að skrifa bréf. Og bréfið var þannig að mér rann kalt vatn milli skinns og hörunds. Ráðuneytismönnum hefur líklega sjálfum fundist þetta gott bréf því að þeir gátu rökstutt mál sitt. Svæðisskrifstofa málefna fatl- aðra hafði ekki beðið um fjármagn til sumardvalar, og þess vegna kom ráðuneytinu málið ekki við: „Eins og þér bendið á í bréfi yðar er heimilt að greiða úr ríkissjóði fram- lag vegna þess umframkostnaðar sem þjónusta við fötluð börn í sum- ardvölum hefur í för með sér. Ráð- Sumardvöl Ég trúi því ekki enn að um hundrað börnum og ungmennum, segir Gerður Steinþdrsdóttir, sem eru fötluð en ekki hreyfíhömluð, verði út- hýst í sumar. uneytið getur upplýst að engin svæðisskrifstofa fékk viðbótar fjár- heimildir í þessu skyni við af- greiðslu fjárlaga þessa árs.“ (Ur bréfi til Landssamtakanna Þroska- hjálpar.) Ég trúi því ekki enn að um hundrað börnum og ungmennum, sem eru fötluð en ekki hreyfihöml- uð, verði úthýst í sumar. Flestir eiga margra kosta völ, en þessi börn og ungmenni eiga um svo sár- grætilega fátt að velja. Reykjadalur er eina sumardvölin sem flestum þeirra hefur staðið til boða. I reynd er málið svo einfalt úrlausnar en svo mikilvægt fyrir marga að það þolir enga bið. Verði það ekki leyst er fullljóst að fatlaðir eiga sér formælendur fáa meðal ráðamanna þessarar þjóðar. Höfundur er varafomiaður Lands- samtakanna Þroskahjálpar. Gerður Steinþórsdóttir FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000 4Í. Sjálfsdáleiðslunámskeið föstudagskvöldið 3. mars og laugardaginn 4. mars Vandað námskeið, þar sem kennt verður að nota sjálfsdá- leiðslu til að auka árangur í starfi, einkalífi, hegðun, aukinni einbeitingu, stjórnun tilfinninga og margt fleira. Leiðbeinandi verður Kári Eyþórsson (CMH, C.HYP, PNLP, MPNLP). Skráning og uppiýsingar í síma 588 1594. Æ -4Í Kaneho 'íiMs Vor 2000 KYNNING á nýju vorlitunum í Fínu, Mosfellsbæ, i daq oq á morquri, frá kl. 13—18 Matj fumjjTim hzH HAGKAUP Meira úrval - betri kaup

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.