Morgunblaðið - 02.03.2000, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000 55
hefur hvítur öruggt frumkvæði.
23.d6! cxd6 24.Rb5 Df8 25.Rexd6
Bxd6 26.Rxd6 Dg7 27.Rb5!
Rýmir d-línuna fyrir öflugri liðs-
menn og beinir spjótum sínum að a7
og c7 punktunum.
27.. .Hg8 28.Dd2!
Hótar máti með Dd2-d8.
28.. .Rd5!
Besta von svarts þar sem eftir hið
eðlilega svar 29.Bxd5? Hxg2!
30.Bxa7+ (Hvítur verður mát eftir
30,Dd4 Hxh2+! 31.Kxh2 Dg2#)
30.. .Ka8 31.Bxb7+ Kxb7 32.Hc7+
Dxc7 33.Dxg2 Hxg2 34.Rxc7 Ha2 og
svartur vinnur. Jafnframt er 29.Dd4
hættulegt hvitum þar sem eftir
29.. .Rc6! 30.Hxc6 bxc6 31.Bxd5 cxd5
(31...exd5? 32.BÍ4+ Ka8 33.Bc7! og
hvítur vinnur) 32.Rxa7 Hxg2
33.Db6+ Ka8 með unnu tafli á
svart. Hvað skal hvítur þá gera?
29.Bxa7+!! Ka8 30.Hc7!
Lykillinn að lausninni. Svartur
verður annaðhvort mát eða tapar
liði. Svartur kaus hið fyrrnefnda,
eða öllu heldur yfirsást honum það
sökum tímaskorts.
30...Rxc7 31.Dd8+ og svartur
gafst upp þar sem eftir 31...Hxd8 er
hann mát með 32.Hxd8.
Karpov - Bacrot 3-3
Anatoly Karpov og franski stór-
meistarinn Etienne Bacrot tefldu í
síðustu viku sex skáka einvígi í
Cannes í Frakklandi. Fyrst voru
tefldar tvær kappskákir, þá tvær at-
skákir og að lokum tvær hraðskákir.
Kappskákunum lauk báðum með
jafntefli. Bacrot tók svo örugga for-
ystu þegar hann vann báðar atskák-
irnar. í þeirri seinni náði felldi hann
Karpov á tíma, en var þá sjálfur
með tapað tafl. Karpov sýndi hins
vegar að hann er sýnd veiði en ekki
gefín og vann Bacrot í báðum hrað-
skákunum þannig að lokaúrslitin
urðu þrír vinningar gegn þremur.
Jafnteflisumferð í Linares
Öllum þremur skákunum í ann-
arri umferð á Linares-skákmótinu
lauk með jafntefli:
Khalifman - Kasparov V2-V2
Kramnik - Anand V2-V2
Shirov - Leko V2-V2
Staðan á mótinu er þessi:
1.-2. Kramnik og Kasparov IV2 v.
3.-4. Anand og Leko 1 v.
5.-6. Khalifman og Shirov V2 v.
Viðar Berndsen (slands-
meistari í barnaflokki
Skákþætti Morgunblaðsins hafa
nú borist úrslit í bamaflokki á Skák-
þingi íslands 2000 sem lauk fyrir
nokkru. Þátttökurétt áttu börn 11
ára og yngri. Þátttakendur voru 31.
Sigurvegari á mótinu varð Viðar
Berndsen með 8 vinninga af 9
mögulegum. Annar varð Atli Freyr
Kristjánsson með 7 vinninga og
Einar Sigurðsson varð þriðji, einnig
með 7 vinninga.
Klúbbakeppni Hellis á morgun
Klúbbakeppni Hellis verður hald-
in í fjórða sinn föstudaginn 3. mars
klukkan 20. Keppt verður í fjögurra
manna sveitum. Tefldar verða 9 um-
ferðir með 7 mínútna umhugsunar-
tíma. Þátttökugjald er kr. 1.000 fyr-
ir hverja sveit. Tekið er á móti
skráningum í mótið í símum 581
2552 og 861 9416 (Gunnar) og 557
7805 (Daði). Einnig er hægt að skrá
sig með tölvupósti: hellir@simnet,-
is. Öllum er heimil þátttaka.
Skákmót á næstunni
3.3. Hellir. Klúbbakeppni
3.3. SA. 7 mínútna mót
4.3. SÍ. íslandsm. barnask.sv.
5.3. SA. 15 mínútna mót
5.3. Síminn-Internet. Mátnet
6.3. Hellir. Atkvöld
7.3. TR. Stofnanir og fyrirt.
9.3. TG. Skákþing Garðabæjar
Daði Örn Jónsson
Helgi Áss Grétarsson
MENNINGARBORG 2000
Dagskráin \
mars og apríl
Hvaö má bjóöa þér?
Viöburöalisti Menningar-
borgarinnarí mars
og apríl
DAGSKRÁ Menningarborgar 2000 í
mars og apríl sem birtist í blaðauka í
gær er hér endurbirt þar sem niður
féllu dagsetningar nokkurra við-
burða. Atburðum hefur verið skipt
upp í nokkra flokka, lesendum til
hægðarauka. Flokkunin er mjög
lausleg og þannig gæti sami viðburð-
ur hæglega fallið í marga flokka. All-
ar nánari upplýsingar er að fínna á
dagskrárvef Menningarborgarinnar
www.reykjavik2000.is sem einnig er
tengdur inn á www.mbl.is.
Fyrir alla fjölskylduna
04.03-05.0S Stórmót ÍR
Alþjóðlegt frjálsíþróttamót í
Laugardalshöll. Meðal keppenda
eru Vala Flosadóttir, Jón Amar
Magnússon og svo tylft Ólympíu-,
heims- og Evrópumeistara í fjöl-
mörgum greinum. Einnig verður op-
ið krakkamót, mót unglinga og full-
orðinna.
05.03-21.03 Stjömur himinsins
Ævintýraklúbburinn stendur fyr-
ir listahátíð þroskaheftra sem hefst í
Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 15.00 með
málverka- og handverkssýningu á
verkum hvaðanæva að af landinu.
Fjölbreyttir viðburðir verða í boði í
Ráðhúsi, Iðnó, Háskólabíói og víðar
meðan á hátíðinni stendur.
06.03-06.04 Val á veitinga-
húsi mánaðarins
Klúbbur matreiðslumeistara, Menn-
ingarborgin og VISA ISLAND
standa íyrir vali á veitingahúsi mán-
aðarins. Almenningur getur greitt
atkvæði sín á www.icelandic-chefs.is
eða www.visa.is
11.03 Snædrottningin
Sýning frá finnska brúðuleikhús-
inu Græna eplinu. Brúður, leikarar
og tónlistarmenn í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu. Tvær sýningar kl.14.00
og 16.00. Miðasala, sími 555 0553.
17.03-24.03 Vetraríþróttahátíð
íþróttabandalags Reykjavíkur
Heil vika með spennandi dagskrá
þar sem vetraríþóttir af öllum gerð-
um verða í brennidepli. Bretti, skíði,
hestar á ís, kennsla og kynning, tón-
list og íþróttasirkus er meðal þess
sem verður í boði fyrir almenning.
www.ibr.is
18.03 Skautasýningin ÍS 2000
Listhlaupadeild Skautafélags
Reykjavíkur kl. 17.00 í Skautahöll
Reykjavíkur þar sem íslenskh’ og er-
lendir verðlaunahafar sýna listir sín-
ar.
Sýningin er liður í vetraríþrótta-
hátíð ÍBR.
18.03 Fræðsludagur
Grafarvogsráðs
„Heilsa og lífsgæði - hvað get ég
gert?“ er yfirskrift dagskrár í Rima-
skóla þar sem fræðsla, skemmtan og
kaffihúsastemmning ráða ríkum frá
kl. 12.00-15.00
26.03 Skógur í vetrarbúningi
Ganga með leiðsögn um Heið-
merkursvæðið í tilefni af 50 afmæli
þess. Gangan hefst við Helluvatn
kl.13.30. www.heidmork.is
08.04 Sæbúar
Nemendur í Öskjuhlíðarskóla
flytja stórskemmtilegan ævintýra-
söngleik úr hafinu eftir Ólaf B. Ól-
afsson í íslensku óperunni kl 14.00.
Miðasala í Öskjuhlíðarskóla s. 568
9740.
30.04 Fuglaskoðun og nýr
fræðslustígur
vigður í Heiðmörk. Hefst við
Helluvatn kl.13.30.
Tónlist
09.03 50 ára afmælistónleikar
Sinfóníuhljómsveitar íslands
Gustav Mahler: Sinfónía nr. 3.
Einsöngvari Barbara Deaver.
Kvenna- og barnakór íslensku óper-
unnar. Stjórnandi Rico Saccani.
www.sinfonia.is
24.03 Óvæntir bólfélagar II
Hilmar Jensson og CAPUT-hóp-
urinn ferðast um ókannaðar hljóð
lendur þar sem elektrónísk neðan-
jarðartónlist og einn okkar helsti
kammerhópur mætast á krossgöt-
um. Þarna koma fram menn úr jaðri
rokk-, spuna- klassískrar tónlistar
og gefið í botn úr í óvissuna. Iðnó kl.
21.00. Miðasala í Tólf tónum og við
innganginn.
01.04 Lúðrasveitin Svanur
70 ára afmælistónleikar í Háskóla-
bíói kl. 13.30. Nýtt tónverk frumflutt
eftir Tryggva M. Baldvinsson auk
tónlistar úr ýmsum áttum. Stjórn-
andi er Haraldur Árni Haraldsson.
www.nt.is/svanur
14.04-15.04 Requiem eftir Verdi
Páskatónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands með úrvals einsöngv-
urum. Kristján Jóhannsson, Georg-
ina Lukács, Ildiko Komlosi og
Edward Crafts. Stjómandi Rico
Saccani. www.sinfonia.is
14.04 Óvæntir bólfélagar III
Dr. Love, Barði Jóhannsson
(Bang Gang) í gervi Ólafs og óvæntir
gestir í súrrealískum spjallþætti í
beinni útsendingu þar sem allt getur
gerst. Búast má við djörfum umræð-
um, berum rössum og Kúkafrakkan-
um sem mun líta í heimsókn. Þjóð-
leikhúskjallarinn kl. 22.00. Miðasala
í tólf tónum og við innganginn.
27.04-01.05 Norrænt
kvennakóramót í Reykjavík
Fjölbreytt tónleikadagskrá á
fyrsta móti sinnar tegundar í
Reykjavík. Gestakór frá Kiev í
Ukraínu og 1500 kvenna kór á loka-
tónleikum. Skipuleggjandi mótsins
er Kvennakór Reykjavíkur.
Leiklist
02.03 Job - þjáning mannsins
Þriðja og síðasta sýning í Nes-
kirkju á einleik Arnars Jónssonar
sem byggður er á hinni sígildu perlu
heimsbókmenntanna, Jobsbók
Gamla testamentisins. Leikstjóri:
Sveinn Einarsson.Tónlist: Áskell
Másson. Leikbrúður: Helga Steffen-
sen.
Sýningin er einnig hluti af dag-
skrá Kristnihátíðar. Sýningin hefst
kl. 20.30.
17.03 Landkrabbinn
Nýtt íslenskt verk eftir Ragnar
Arnalds frumsýnt í Þjóðleikhúsinu.
Verkið hlaut 1. verðlaun í leikrita-
samkeppni í tilefni af 50 ára afmæli
hússins. Leikstjóri Brynja Bene-
diktsdóttir. www.theatre.is
20.04 50 ára afmæli
Þjóðleikhússins
Framsýning á Draumur á Jóns-
messunótt eftir William Shake-
speare. Leikstjóri Baltasar Kormák-
ur.
Myndlist/Ijósmyndun
05.03-02.04 Svava Björnsdóttir
Yfirlitssýning á höggmyndum
hennar í Listasafni íslands.
www.listasafn.is
11.03-05.04 íris Friðriksdóttir
Sýning á nýjum verkum hennar í
Gallerí Sævars Karls við Banka-
stræti.
11.03-14.05 Steinumi Þórarins-
dóttir og Ásmundur Sveinsson
Sýning á verkum Steinunnar í
bland við val hennar á verkum Ás-
mundar. Listasafn Reykjavíkur í
Ásmundarsal. www.rvk.is/listasafn
18.03-16.04 „ Hvít“
Fyrsti hluti þríþættrar sýningai’-
aðar í Nýlistasafninu við Vatnsstíg.
Sýnendur Ingólfur Amarson, And-
reas Karl Schulze, Robin van Har-
reveld og Hilmar Bjarnason.
www.nylo.is
07.04-09.04 Ljósmyndir
segja sögu
Norrænir blaðahönnuðir í SND/S
standa fyrir sýningu (Nordic Photo-
graphic Document 2000) átta nor-
rænna dagblaða sem undirstrikar
heimildagildi ljósmynda. Sýningin
verður í Spaksmannsspjöram, Þing-
holtsstræti 5.
08.04-07.05 Catherine Yass
sýnir verk sín í Gallerí i8, Ingólfs-
stræti 8. www.i8.is
15.04-27.04 Bára Kristinsdóttir
Sýning á ljósmyndum í Gallerí
Sævars Kai’ls við Bankastræti.
19.04 Listasafn Reykjavíkur
opnað í Hafnarhúsinu við Tryggva-
götu.
Hafnarhúsið opnað með yfirlits-
sýningunni Islensk myndlist á 20.
öld og einkasýningu á verkum hins
þekkta franska listamanns
Fabrice Hybert. www.rvk.is/lista-
safn
29.04-18.05 Guðrún
Einarsdóttir
Sýning á nýjum málverkum í Gall-
eríi Sævars Karls.
Saga/menningararfur
06.04 Borgin í höfðinu
í dagskrá Rithöfundasam-
bandsins í Borgarleikhúsinu kl.
20.00 er leitast við að framkalla þá
mynd sem íslensk skáld og rithöf-
undar hafa bragðið upp af höfuðborg
landsins á öldinni. Aðgangur er
ókeypis. Umsjónarmaður: Pétur
Gunnarsson. Leikstjóri: Þórarinn
Eyfjörð.
01.03-30.04 Stefnumót við
í'slenska sagnahefð
Sýning í Landsbókasafni sem
dregur fram hvemig bókin og sagan,
eins og hún er sögð á bók, hafa verið
örlagavaldar íslensku þjóðarinnar
og einkenna sögu hennar framar
sögu flestra þjóða. Þetta er farand-
sýning sem m.a.er unnin í samvinnu
við Comell-háskóla, Stofnunar Áma
Magnússonar á íslandi, Library of
Congress og háskólann í Manitoba.
Sýningin er einnig hluti af dag-
skrá Landafundanefndar.
www.bok.hi.is
04.3-15.05 Mundu mig
ég man þig
Sýning í Borgarskjalasafni
Reykjavíkur um líf ungs fólks í
Reykjavík á 20. öld. Sýningin er í
Safnahúsi Reykjavíkur, Tryggva-
götu 15. Áðgangur ókeypis.
www.rvk.is/borgarskjalasafn
01.04 Saga Reykjavíkur -
frá býli til borgar
Á fjölbreyttri sýningu í Árbæjar-
safni er saga Reykjavíkur rakin frá
landnámi til nútímans. Gestir era
leiddir gegnum söguna með texta,
teikningum, ljósmyndum, sviðsetn-
ingum, skyggnusýningu og notkun
margmiðlunar í tölvum. í tengslum
við sýninguna verður skólabörnum
boðið upp á markvissa fræðslu um
fortíð borgarinnar auk þess sem ráð-
stefnur, fyrirlestrar og sértækar
sýningar verða skipulagðar.
www.rvk.is/arbaer
20.04 Opnun Þjóðmenningar-
hússins við Hverfisgötu
Meðal þeirra sýninga sem opna á
sama tíma er Siglingar og landa-
fundir á miðöldum. Fjallað verður
um víkingaferðir og landafundi nor-
rænna manna í Atlantshafi á miðöld-
um, landnám íslands og Grænlands
og siglingar frá þessum löndum til
Vínlands. Sýningin er einnig á dag-
skrá Landafundanefndar. www.kult-
ur.is
Menning og náttúra
22.03 Tært vatn -
auður komandi kynslóða
Málþing JC Reykjavík og Orku-
veitunnar kl. 15.00 í Gvendarbrunn-
um. www.vatn.is
30.03 Sjálfbært skipulag
Farandsýning hefst sem ferðast
mun um grannskóla landsins á veg-
um Skipulagsfræðingafélags Is-
lands.
Apríl-maí Menning - náttúrlega
Nemendur í myndlistardeild
Listaháskóla íslands vinna fyrsta
hluta verkefnis sem fjallar um tengsl
manns og náttúra. í þessum hluta er
unnið með hráefnið Dalaleir í Dala-
byggð sem notaður er í verk tengd \
sögu svæðisins.
í kringum landið
18.03 Mannlíf við opið haf
Opnunarhátíð í Fræðasetrinu í
Sandgerði. Á dagskránni, sem lýkur
formlega í lok júní era fjölmargir
menningarviðburðir og fyrirlestrar
um allt frá sæskrímslum til jarð-
fræði og vistfræði á landi og láði.
Þann 25. mars flytur Þorvaldur
Friðriksson fornleifafræðingur fýr-
irlestur um sæ- og vatnaskrímsli á
Reykjanesi og 8. apríl fjallar hann
um keltneska húsagerð og fornmin-
jar. Fyrirlestrarnir verða fluttir í
Fræðasetrinu. www.sandgerdi.is
18.03 Sjávarlist
Menningardagskrá kl. 20.00 í Bíó-
höllinni á Akranesi, sem markar
upphaf Sjávarlistar. Meðal viðburða
næstu vikna eru Ijóðalestur í Kirkju-
hvoli 24.3, framsýning Skagaleik-
flokksins 01.03 á nýju leikriti Lifðu
eftir Kristján Kristjánsson, sýning á
myndlist og höggmyndum Sossu og
Gyðu L. Jónsdóttur í Kirkjuhvoli 1-
16. apríl og sýning á verkum leik-
skólabarna í Kirkjuhvoli 29. apríl-
14.maí.
Alþjúðlegir viðburðir
15.03 Sannanir! Evrópa -
spegluð í skjalasöfnum
Sýning, útgáfa vandaðrar bókar
og opnun vefsvæðis í samvinnu
borgarskjalasafna sjö menningar-
borga Evrópu. Tilgangurinn er að
kynna hinn auðuga menningararf
Evrópu sem er að finna í skjalasöfn-
um borganna, bæði sameiginleg ein-
kenni borganna og sérkenni þeirra.
Safnahús Reykjavíkur, Tfryggva-
gata 15. www.euarchives.org
25.03 Terror
Þverlistaleg samsýning ungra
finnskra listamanna í Norræna hús- *
inu sem hafa sitt hvað að athuga við
ríkjandi trú á tækni og þróun sem og
ýmis önnur nútímafyrirbrigði. Sýn-
ingin er full af skopi og fáránleika og
er hluti af dagskránni Elsku Hels-
inki. www.nordice.is
30.03-02.04 Sjávarréttakeppni
Matreiðslumeistarar frá menning-
arborgunum níu etja kappi undir
stjórn Klúbbs matreiðslumeistara á
sýningunni Matur 2000 sem haldin
er í Smáranum í Kópavogi.
www.icelandic-chefs.is
05.04-09.04 Grænlenskir dagar
Fjölbreytt dagskrá í Norræna
húsinu og viðburðir víða um borg
þar sem líf og menning á Grænlandi
era í brennidepli. Meðal annarra at-
burða er sýning á grænlenskum
túpílökum á Mokka 3-30. apríl, tón-
leikar Mechanics in Ini á Gauki á
Stöng 7. og 9. apríl og sýning á
grænlenskum grímum í Norræna
húsinu 25. apríl -20. maí. www.nord-
ice.is
05.04-13.04 Alþjóðlega
Reykjavi"kurskákmótið
sett í Tjarnarsal í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Margir af sterkustu
skákmönnum heims eru á meðal
keppendanna sem era um 80 talsins.
08.04-13.04 Norrænir
blaðahönnuðir SNDS - Design
Sýning á verkum skandinavískra
blaðahönnuða í Galleríi Sævars
Karls. Á sama tíma verður haldin
ráðstefna um grafíska hönnun í
fjölmiðlum á Grand Hótel.
www.snds.org
29.04 Codex Calixtinus
Heimsfrumflutningur á samstarf
sverkefni menningarborganna í
Hallgrímskii’kju. Codex Calixtinus
er einnig þekkt sem bókin um hei-
lagan Jakob og er eitt elsta tónlist-
arhandrit í Evrópu. Fóstbræður og
alþjóðlegir einsöngvai-ar flytja
Codex í tónleikauppfærslu. Viðburð-
urinn er einnig á dagskrá Kristnihá-
tíðar.
30.04-30.06 Lífið við sjóinn
Viðamikil samsýning í Hafnarhús-
inu sem unnin er af Reykjavík,
Bergen, Santiago de Compostela og
Tatihou. Sýningin fjallar um líf og
lífsbaráttuna við Norður-Atlantshaf.
Árbæjarsafn sér um hönnun á ís-
lenska hlutanum á sýningunni sem
verður uppi í öllum borgunum fjór- .
um. www.rvk.is/arbaer