Morgunblaðið - 02.03.2000, Qupperneq 58
58 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hvetja til aðskilnaðar
ríkis o g kirkju
AÐALFUNDUR Samtaka um að-
skilnað ríkis og kirkju (SARK) var
haldinn á Hótel Lind í Reykjavík
laugardaginn 26. febrúar. Björgvin
Brynjólfsson á Skagaströnd var
endurkjörinn oddviti samtakanna,
en Friðrik Pór Guðmundsson blaða-
maður varaoddviti og Páll Halldórs-
son veðurfræðingur ritari Samráðs
(stjómar). Á aðalfundinum var sam-
þykkt eftirfarandi ályktun.
.Aðalfundur Samtaka um að-
skilnað ríkis og kirkju (SARK),
haldinn á Hótel Lind í Reykjavík
laugardaginn 26. febrúar árið 2000,
gerir svofellda ályktun: SARK ósk-
ar Ríkiskirkjunni, hinu
evangelísk-lútherska trúfélagi, til
hamingju með afmælið, en nú eru í
námunda við 1000 ár liðin frá því að
landsmenn játuðust undir kristna
trú, undir ofbeldishótunum Ólafs
Tryggvasonar Noregskonungs.
SARK hvetur ríkisstjóm og Al-
þingi til að hrinda í framkvæmd hið
allra fyrsta að færa Ríkiskirkjunni
þá veglegustu afmæhsgjöf sem hún
mögulega getur fengið; fullkominn
aðskilnað ríkis og kirkju.
Með afnámi núgildandi stjórnar-
skrárbundinna sérréttinda er leiðin
radd fyrir hinn evangelísk-lúth-
erska kirkjusöfnuð að breytast úr
Ríkiskirkju í raunveralega og
frjálsa þjóðkirkju. Pannig er um
leið raunveralegt trúfrelsi á íslandi
tryggt.
Með slíkri afmælisgjöf til Ríkis-
kirkjunnar væri um leið verið að
færa þjóðinni allri mikilsverða
mannréttindabót, enda vandséð
hvernig það getur samrýmst alþjóð-
legum mannréttindasamþykktum
að hér á landi skuli einu trúfélagi
gert hærra undir höfði en öðram
trúfélögum og lífsskoðanahópum
utan trúfélaga.
SARK minnir á, að skoðanakann-
anir Gallups undanfarin ár hafa
sýnt að 60-65% þjóðarinnar era
fylgjandi aðskilnaði ríkis og kirkju.
SARK hvetur Alþingi eindregið
til að samþykkja á yfirstandandi
löggjafarþingi framvarp Marðar
Amasonar um afnám gjalds á menn
utan trúfélaga. Skorar SARK á
þingmenn að fylgja því brýna máli
eftir með því að leggja fram og sam-
þykkja á komandi haustþingi frum-
varp um aðskilnað ríkis og kirkju."
Amar Þór Stefánsson, formaður Björgunarhundasveitarinnar og María
Jóna Samúelsdóttir, viðskiptasljóri Purina, undirrita samninginn.
Opið daglega
kl. 10-18,
laugardaga
kl. 10-14
tískuverslun
v/Nesveg, Seltjar
Sími 561 1680
gardeur- buxur fóst i þremur skólmlengdum (stuttar, venjulegar og síðar)
Tímasprengja á Bflaþingi Heklu
Mestur afsláttur fyr-
ir þá sem komu fyrst
BÍLAÞING Heklu bryddar upp á
nýjung í dag, 2. mars, sem kallast
„Tímasprengja", en opnað var
klukkan fimm í morgun. Dágóður
fjöldi bíla er í boði með sérlega góð-
um afslætti, fyrir þá sem komu þeg-
ar opnað var klukkan fimm, var um
að ræða allt að 50% afslátt af al-
mennu söluverði bílanna. Afsláttur-
inn minnkar þegar hða tekur á dag-
inn og breytist á klukkutíma fresti.
Um er að ræða veralega góðan af-
slátt af ásettu verði, þannig að allir
geta gert veralega góð kaup í notuð-
um bflum á Tímasprengju Bflaþings,
en þeir sem komu nógu snemma
gátu bætt um betur og gert enn
betri kaup. Þeir sem mættu snemma
gátu haft veralega hátt tímakaup
því dæmi vora um að bflar hafi verið
á allt að 240 þúsund krónum lægra
verði en á útsölunni sjálfri við upp-
LEIÐRÉTT
RÖNG mynd birtist með umfjöllun
um dagskrá Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í blaðinu um Reykjavík, menn-
ingarborg Evrópu, sem fylgdi Morg-
unblaðinu í gær. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
haf Tímasprengjunnar klukkan
fimm.
Vegna þess hve verð notaðra bíla
hefur breyst hratt á undanförnum
mánuðum er rétt að taka fram að
verð allra notaðra bíla í eigu Heklu
hefur verið fært til núvirðis, þannig
að þegar talað er um afslátt af
ásettu söluverði er um að ræða vera-
lega lækkun frá því verði sem verið
hefur á notuðum bílum hingað til.
Jafnframt því að verð margra bfla
verður lækkað verulega verða
nokkrir útvaldir bflar boðnir á sér-
lega lágu verði með jöfnu millibili yf-
ir daginn, þannig að þeir, sem ekki
náðu að koma strax og opnað var,
geta samt sem áður gert góð kaup á
Tímasprengju Bflaþings Heklu.
Tímasprengja Bílaþings Heklu er í
samvinnu við útvarpsstöðina FM
957 og mun hún útvarpa beint frá
Bflaþingi Heklu í allan dag.
Þeir sem kaupa notaðan bfl á
Tímasprengju Bflaþings Heklu
styrkja um leið gott málefni, því
5.000 krónur af kaupverði bílsins
renna til Bamaspítala Hringsins.
Opið er í dag fimmtudag kl 5 til
20, föstudag 3. mars kl. 9 til 19, laug-
ardag 4. mars kl. 10 til 17 og sunnu-
dag 5. mars kl. 13 til 17.
Gerðu
með sér
samstarfs-
samning
SAMSTARFSSAMNINGUR á milli
Björgunarhundasveitar íslands
(BSHlj og Purina umboðsins á
Islandi var undirritaður í húsa-
kynnum Karls K. Karlssonar hf.
fyrir skömmu.
„Karl K. Karlsson heildverslun
hefur nú nýverið tekið við Purina
umboðinu á íslandi og mun ann-
ast dreifingu á gæludýravarningi
frá Ralston Purina Co., Eight in
One Pet Products Inc., ALPO og
Friskies.
Samningurinn felur í sér aukið
samstarf á milli þessara aðila,
m.a. mun Purina umboðið styrkja
sveitina með Purina Pro Plan
þurrfóðri.
Allir hundar í Björgunar-
hundasveit íslands eru fóðraðir á
ProPlan þurrfóðri frá Purina, því
fóðrið er mjög auðugt af prótein-
um og fitusýrum og hentar því
sérstaklega vel hundum sem eru í
mikilli hreyfingu og þurfa að við-
halda sterkum vöðvum og heil-
brigðum Iíkama,“ segir í fréttatil-
kynningu frá Purina.
AT V I IM IM U A U G LV 5 I N G Al
Sumarstörf í blaðamennsku
Morgunblaðið óskar eftir sumarafleysinga-
fólki í blaðamennsku. Lágmarkskrafa um
menntun er stúdentspróf, en æskilegt er
að umsækjendur hafi lokið 1-2 árum á
háskólastigi. Umsækjendur þurfa að vera
nákvæmir, jákvæðir og góðir í mannlegum
samskiptum. Þeir sem skila inn umsókn-
um verða boðaðir í próf 11. mars nk.
Umsóknum skal skilað í afgreiðslu
Morgunblaðsins á umsóknareyðublöðum
sem þar fást í síðasta lagi mánudaginn
6. mars nk. Umsækjendur geta einnig
sent persónuupplýsingar og yfirlit yfir
náms- og starfsferil með tölvupósti á
starfsmannahald.
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 i Reykjavík þar sem eru yfir
300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa i Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Matreiðslumaður
óskast
Óskum eftir að ráða matreiðslumann
með framtíðarstarf í huga.
Upplýsingar veitir hótelstjóri í síma
487 5700 eða 866 3531.
„Au pair"
íslensk hjón, búsett í Stokkhólmi, hann
framkvæmdastjóri, hún læknir, með tvo
drengi, eins og þriggja ára, óska eftir „au pair"
í eitt ár eða lengur. Góð laun í boði. Aldur 20+.
Upplýsingar í síma 862 0207.
Blaðbera vantar
Reykjavík - Skeifan
^ | Upplýsingar í síma 569 1122.
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru i Kringlunni 1 í Reykjavik þar sem eru yfir
300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Iðjuþjálfi óskast
Óska eftir að ráða iðjuþjálfa í hlutastarf eða
fullt starf. Vinnutími eftir samkomulagi.
Bergfell ehf.,
Skipholti 50b, sími 511 50 60.