Morgunblaðið - 02.03.2000, Page 62
MORGUNBLAÐIÐ
62 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
>
Dýraglens
Ljóska
Smáfólk
>
50METIME5 IF YOU 5ITIN
THE RAIN, A RICH LADH WILL
COME BT IN A LIMOU5INE
ANP TAKE YOU HOME..
Stundum þegar þú lendir í Ríkar frúr í fínum bflum keyra
hellidembu þá kemur rfk ekki fram hjá garðinum okkar.
frú á fínum bfl og
keyrir þig heim.
IF YOU 5IT OUT FRONT BY
THE CURB, THEY 5PLA5H
OUATER ALL OVER YOU..
Ef þú situr úti á gangstéttinu
fyrir framan þá gusa þær
vatni yfir þig.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Var kristið land-
nám á Akranesi?
Frá Braga Níelssyni:
I hugvekju Stefáns Friðbjarnarson-
ar í Morgunblaðinu frá 23. janúar
2000 gætir margs vafasams sann-
leika, sem vert væri að athuga
nokkru nánar. Hann vitnar í frum-
gerðir Landnámu, (Hauksbók), sem
mér eru ekki tiltækar svo að ég verð
því miður að leita á náðir Guðna
Jónssonar og líkai- mér dável við
þann mann. Landnáma (Ln) segir í
15. kapítula: „Þormóður hinn gamli
og Ketill Bresasynir fóru af Irlandi
til íslands og námu Akranes allt á
milli Aurriðaár og Kalmannsár. Þeir
voru írskir... Þeir bræður skiptu
löndum með sér, svá að Þormóður
átti fyrir sunnan Reyni og til Kal-
mannsár og bjó að Hólmi hinum
innra, en Ketill bróðir hans átti fyrir
vestan Reyni og fyrir norðan Akra-
fell til Aurriðaár“...“ Jörundur hinn
kristni var sonur Ketils Bresasonar.
Hann bjó í Jörundarholti, Það er nú
kallað í Görðum. Hann hélt vel
kristni til dauðadags og var einsetu-
maður í elli sinni“. Svo mörg eru þau
orð og síðan teljum við landnámið á
Akranesi kristið, en Ln segir reynd-
ar fleira. Til sögunnar koma tveir
feðgar, þeir voru Hrosskell sonur
Þorsteins Þrándarsonar nefju og
Lofthænu, dóttur Arinbjarnar hers-
is. Hrosskell þessi og kona hans Jór-
eiður Ölvisdóttir Finnssonar, Mött-
ulssonar konungs átti soninn
Hallkel. Landnáma segir: „Hross-
kell fór til íslands og komu í Grunna-
fjörð. Hann bjó fyrst á Akranesi."
Hvernig sem við viljum skilja það,
eða eigum við að skilja landnám
Hrosskels á svipaðan hátt og fyrsta
landnámsmanns á Islandi, sem var
Ingólfur Arnarson. Þá hefði fyrsti
landnámsmaðurinn, þrællinn Nátt-
fari, verið búinn að búa á þessu landi
um langan tíma. En Ln svarar þessu
að hluta og segir: „Þá ömuðusut þeir
Ketili bræðr við hann. Síðan nam
hann Hvitársíðu milli Kjarrár og
Fljóta. Hann bjó á Kallkelsstöðum
og Hallkell, sonur hans, á eftir hon-
um“ og komu þeir feðgar og afkom-
endur þeirra mjög víða við sögu síð-
ar. En Ln segir einnig: „Hallkell, er
nam Hvítársíðu, bjó fyrstur á Akra-
nesi á Hallkelsstöðum, áður Bresa-
synir ráku hann brott. En er hann
fór eftir fé sínu, því er þar hafði sjálf-
ala úti gengið, var hann drepinn og
er þar heygður.“ Ekkert skal um
þetta sagt, en svo mikið er víst að
ættir Hrosskels og Bresasona,
a.m.k. Þormóðar, komu síðar saman
og er getið í Gunnlaugssögu, Hellis-
mannasögu og viðar. Hrosskels er
getið meðal 9 göfugustu landnáms-
manna í Vestfirðingafjórðungi, en
þar er Bresasona að engu getið.
Á níundu öld var írland kristið, en
þó varð kristin hefð á annan hátt en
hinar almennu kathólsku kirkju á 13.
öld. Til dæmis var klausturlifnaður
mikill og trú á helga menn eins og
Kólumkilla var útbreidd eins og sést
við landnám sem sést í Skotlandi þar
sem klaustrið í Killingingwinn er. Og
likt mun hafa verið um hin irsku
áhrif sem fluttust hingað með nor-
rænum mönnum á landnámstíð.
Hvernig sambúðin gekk við heiðinn
sið hér, skal ég ekki rekja, en þar
sem kristnir voru í meirihluta þurftu
beiðnir að primsignast til að fá að
umgangast þá. Þegar norrænir vík-
ingar fóru að herja á Irland á þess-
um tíma, á land fjölmargra smá-
kónga, varð það þrautalending
þeirra að ráða þessa menn sem
landvarnarmenn sína. Þeir gerðust
síðan gjarnan nokkuð blendnir í
trúnni.
I bókinni Akranes, frá landnámi til
1885, er það niðurstaða Jóns Böðv-
arssonar, að: „Uppruni Bresasona er
ókunnur og ættsmáir hafa þeir tal-
ist“, en norrænir virðast þeir vera
eftir nöfnum að dæma.
Þótt Fornaldarsögur Norðurlanda
séu ef til vill léleg heimild, þá stend-
ur þar í öðru bindi í útgáfu Guðna
Jónssonar, um hversu Noregur
byggðist, á bls. 79: „Jötunbjörn hinn
gamli var faðir Raums konungs, föð-
ur Hrossbjarnar, föður Orms skelja-
mola, föður Rnattar, föður þeirra
Þórólfs hálms og Ketils raums. Synir
Þórólfs voru þeir Helgi, faðir Besa,
föður Þormóðs, föður Þórlaugar,
móður Tungu-Odds.
Og núna koma til getgátur mínar.
Bresasynir voru norrænir víkingar,
sem settust að á Irlandi, voru þar
landvarnarmenn einhvers konungs,
þeir hafa gengið til kristinnar trúar,
þótt ef til vill hafi hún ekki verið
býsna sterk, a.m.k. ekki hjá Þor-
móði, því honum gekk vel að gifta
dætur sínar heiðnum höfðingjum.
Ribbaldar hafa þeir verið af bestu
gráðu, sem á sannast og írsk áhrif
hafa borist með þeim auk trúarinnar,
eins og mannanöfnin benda til, Brek-
an, Kjaran og Kalman. Þó að þessir
menn hafi verið norrænir, ber samt
að þakka fallegan stein, sem staðið
hefur að Görðum frá 1974 með áletr-
un á gelísku og íslensku.
BRAGI NÍELSSON,
læknir, Akranesi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
^cié/^kyv Brúðhjón
Allm boróI)lindöur - GIæsiIeg gjdídvdíd - Briíðhjónalislar
VERSLUNIN
l.augavegi i2, s. ^f>2 4244.