Morgunblaðið - 02.03.2000, Side 64
34 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍDAG
Afhentu fræðslu-
myndband
INGIBJÖRG Pálmadóttir, heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðherra, tók í
lok febrúar við fyrsta eintaki
fræðslumyndbands fyrir fjölskyldur
barna með krabbamein sem Styrkt-
arfélag krabbameinssjúkra bama
hefur nýlega látið gera. Vel fór á því
þar sem ráðuneytið veitti fé til verk-
efnisins. Myndbandið er fáanlegt á
skrifstofu SKB.
Afmælismót
PFRá
Grandrokk
PÍ LUKASTFÉ LAG Reykjavíkur
heldur opið aftnælismót á Grand-
rokk, Smiðjustíg 6, laugardaginn 4.
mars klukkan 13.
Pílukast nýtur vaxandi vinsælda
um þessar mundir og er það iðkað af
æ breiðari hópi, segir í fréttatilkynn-
ingu. Keppt verður í tvímenningi og
verður dregið um hverjir keppa sam-
an. Þátttakendur geta skráð sig til
leiks fyrir klukkan 12.30 á laugar-
dag, á staðnum eða í síma. Keppnis-
gjald er 500 krónur og veitt verða
veglegverðlaun.
- Kvikarmyndir
með sýningar
STUTTMYNDIR Óskars Jónasson-
ar SSL 25 og Vemissage verða sýnd-
ar í kvöld í MÍR-salnum, Vatnsstíg
10, og byrjar hún kl. 20. Aðgangur er
ókeypis.
Kvikar myndir standa fyrir sýn-
ingum á þriðjudagskvöldum, fimmtu-
dagskvöldum og sunnudagskvöldum
til 12. mars, ávallt klukkan 20.
Ogið hús á Sóloni
Isiandusi með
Ragnari
Stefánssyni
NÝJUNG í félagsstarfi Útivistar er
svokallað opið hús sem haldið hefur
verið á Sóloni íslandusi, 2. hæð, af og
til í vetur.
í tilefni umbrotanna í Heklu verð-
ur opið hús hjá Útivist nú á fimmtu-
dagskvöldið 2. mars og hefst það kl.
20. Útivist hefur fengið Ragnar Stef-
ánsson jarðeðlisfræðing til að mæta
og spjalla um jarðskjálftaeftirlit við
Heklu og Kötlu.
Allir eru velkomnir meðan hús-
rými leyfir og aðgangur er ókeypis.
>
S
Málþing í Skálholtsskóla
4.-5. mars 2000
um Islandsklukkuna
eftir Halldór Kiljan Laxness
Laugardagurinn 4. mars kl. 13.30:17.30:
Hjaiti Hugason prófessor: Klukka íslands í kirkjusögulegu Ijósi.
Erlingur Sigurðarson menntaskólakennari: Séð heim að Skálholti
undir hönd Halldóri Laxness.
Gunnar Kristjánsson prófastur: Þjónn þeirra svarlausu.
Helga Kress prófesson „Á hverju liggja ekki vorar göfugu kerlingar?"
Halldór Laxness og Torfhildur Hólm.
Þórunn Valdimarsdóttir rithöfundur: íslandsklukkan sem ástarsaga.
Kári Bjarnaspn M.A. og Eggert Pálsson tónlistarmaður: Óhreina
barnið hans Árna: íslenskur tónlistararfur.
18.00 Tíðagjörð. Voces Thules
19.30 17. aldar kvöldverður
21.00 Ný leikgerð íslandsklukkunnar frumflutt.
Leikstjóri Guðrún Ásmundsdóttir.
Sunnudagur 5. mars
9.00 Morguntíðir í Skálholtskirkju.
9.30-12.30 Fyrirlestrar og umræður.
Matthías Viðar Sæmundsson dósent: Böðlar og skálkar.
Már Jónsson lektor: Bæli kerlingar og brókin hans Jóns:
Handritasafnararnir Arnas Arnæus og Árni Magnússon.
Guðrún Ása Grímsdóttir cand. mag.: Lærður íslendingur á Turni:
Af Jóni Ólafssyni Grunnvíkingi.
Gísli Gunnarsson prófessor: Hagspeki gálgafuglsins Jóns
Marteinssonar: íslandsklukkan, einokunarverslun og stéttaskipting.
12.30 Hádegisverður
14.00 Messa í Skáiholtsdómkirkju
16.00 Umræður, lok málþings
í skólanum verða handrit Halldórs Laxness að íslandsklukkunni til
sýnis ásamt myndum af nótnahandritum frá Skálholti. Fæði og
gisting í tveggja manna herbergjum kostar 7.500.
Einnig er hægt að kaupa einstaka máltíðir. Upplýsingar og skráning í
Skálholtsskóla í síma 4868870.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Eru hundaeig-
endur þriðja
flokks fólk?
ÉG ER ung kona sem leigi
íbúð vestur í bæ með manni
mínum og við erum með
hund. Við höfum sérinn-
gang við hlið hússins og er
þetta eini inngangurinn á
þessari hlið. Sameiginlegur
garður fylgir húsinu en til
að forðast öll óþægindi not-
um við hann ekki heldur
forum annað með hundinn
til að gera stykkin sin og
hreinsum alltaf upp eftir
hann. Við höfum lifað í sátt
og samiyndi við flesta íbúa
hússins þar sem enginn
verður var við hundinn og
ekki er hægt að kvarta yfir
neinu. En eins og flestir
vita er oftast einn í hveiju
húsi sem getur ekld setið á
sér ef hann veit að hann
hefur rétt á að vera með
leiðindi og þá gerir hann
það. í þessu tilfelli er það
kona sem býr alveg í hinum
enda hússins. Og til gam-
ans má geta að það er álíka
fjarlægð á milli hennar og
hundsins og þess sem býr í
húsinu á móti. En hvað með
það, þessi kona sér okkur
aldrei og verður aldrei vör
við hundinn. Hún kom
meira að segja til okkar um
daginn og bankaði uppá til
að sjá hvort hundurinn
væri einfaldlega í húsinu.
Samt sem áður krefst þessi
kona þess að við flytjum úr
húsinu út af hundinum.
Hvers vegna eru lög og
reglur hafðar þannig að
fólk eins og hún, sem kem-
ur mér ekkert við, getur
ráðist inn í mitt einkalíf og
verið með réttinn sín meg-
in, án þess að ég hafi gert
henni nokkuð? Mér finnst
þetta brot á mínum mann-
réttindum og allar þessar
reglur komnar langt út fyr-
ir raunsæi. Ég hef ekki efni
á 20 milljóna króna einbýl-
ishúsi sem er bókstaflega
orðin krafa ef maður ætlar
að gerast svo djarfur að
hafa hund í þessari borg.
Það er ekki tilviljun hvað
ofnæmi í börnum er orðið
algengt. Börn fá einfald-
lega ekki að njóta þess rétt-
ar að komast í snertingu við
dýr. Þau fara fljótlega að
halda að eggin vaxi á trján-
um. Niðurstaðan er sú að
það er allt í lagi að hafa
skýrar reglur sem fólk á að
framfylgja og ekki eru allir
hunda- og kattaeigndur til
fyrirmyndar. En ég neita
að láta refsa mér fyrir það
sem aðrir gera, ekki er Jóni
stungið í fangelsi þegar
Siggi ekur undir áhrifum
áfengis þótt þeir eigi báðir
bfl. Það er kominn tími til
að hundaeigendur láti
heyra í sér og hætti að láta
koma fram við sig eins og
þriðja fiokks fólk því það er
nú oft þannig að við gælu-
dýraeigendur erum glaðari
og hamingjusamari en aðr-
ir og viljum bara fá að vera í
friði, sérstaklega þegar við
vitum íyrir víst að við erum
ekki að brjóta á neinum
öðrum.
Anna í Vesturbæ.
Unglingar
og áfengi
LÖGUM samkvæmt er
bannað að selja unglingum
áfengi undir 21 árs aidri.
En unglingar hafa ýmis ráð
til að nálgast áfengi. Ein
aðferðin er sú að unglings-
stúlkur hanga fyrir utan
áfengisverslanir og reyna
að fá einhvern til að kaupa
fyrir sig og eru ekkert að
fela það, koma inn með við-
komandi og kaupa jafnvel
fyrir 10-20 þúsund krónur.
Síðan borga þær viðkom-
andi fyrir greiðann og það
jafnvel fyrir framan starfs-
fólkið sem ekkert getur
gert. Það er t.d. fjöldinn all-
ur af unglingum sem stund-
ar þetta í Kringlunni. En
þeir sem taka þátt í svona
ættu að athuga það að sá
sem selur unglingum vín
(þ.e. sá sem keypti fyrir
unglinginn) er sekur um
lögbrot.
Einn áhyggjufullur.
Oryrkjar og
milljarðar
ÉG ER sammála Halldóri
Vigfússyni sem skrifar í
Velvakanda 20. febrúar að
Davíð Oddsson telji öryrkja
ekki arðbært fólk. Ég er
verkamaður og laun hins
vinnandi manns eru orðin
svo lág að þau duga ekki
allan mánuðinn. Við erum
því ekki betur settir en ör-
yrkjar. En ríkisstjórnin vill
ekki horfast í augu við
ástandið þótt fátæktin vaxi
hér með hverju árinu sem
líður, og hvað fjárfestingar-
bankann varðar er gott og
blessað að þetta fyrirtæki
geti blómstrað en að rfldð
hafi selt þetta fyrir
spottprís svo fáeinir menn
geti hagnast á því er
hneyksli. Því vil ég lýsa yfir
vantrausti á ríkisstjórnina
sem vinnur að því að gera
suma að milljónamæring-
um meðan aðrir hafa ekki
til hnífs og skeiðar.
Hallgrimur.
Sýnum þakklæti
í VELVAKANDA sl.
þriðjudag bendir Sv.Þ.
þeim sem nutu aðstoðar
hjálparsveita um sl. helgi í
Þrengslunum á að sýna
þakklæti sitt með því að
greiða björgunarsveitunum
eitthvað fyrir aðstoðina. Ég
vil taka undir orð Sv.Þ og
hvet fólk eindregið til að
sýna þakklæti sitt í verki og
greiða fyrir aðstoðina allt
að 5000 kr. fyrir bfl.
Vala.
Hver getur útskýrt?
VÆRI hugsanlegt að fá
forsvarsmenn FBA eða
aðra hagspekinga til að út-
skýra á mannamáli hvernig
það má vera að þeir geti
makað krókinn svo ræki-
lega meðan þeir sem standa
undir atvinnulífinu (a-inu í
FBA), sjómenn og bændur,
lepja dauðann úr skel?
Ragnhildur
Kristjánsdóttir.
Tapað/fundiö
Gullhríngur f óskilum
FYRIR rúmum tveimur ár-
um fannst gullhringur með
grænum steini á grasinu til
móts við bensínstöðina í
Hamrahverfi rétt hjá
Hamraskóla. Upplýsingar í
síma 862-3573.
Minkaskinnseyrna-
skjól týndist
DÖKKBRÚNT minka-
skinnseyrnaskjól (hringur)
týndist á Skólavörðustíg á
leiðinni milli Óðinsgötu og
Bergstaðastrætis sl. fostu-
dag. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 562-1623.
Kápa tekin
í misgripum
SÍÐASTLIÐIÐ laugar-
dagskvöld, 26. febrúar, var
svört kápa tekin í misgrip-
um á Skuggabarnum. Káp-
an er með loðkraga og loðn-
um ermum. Hún er belt-
islaus en eigandinn er með
beltið. Peysa og trefill voru
einnig með á herðatrénu og
hurfu þau líka. Þessi kápa
er ein af fáum og var seld á
mjög þröngan hóp kvenna.
Kápunnar er sárt saknað.
Ef einhver veit um afdrif
hennar er hann beðinn um
að hafa samband við Krist-
jönu á Skuggabarnum eða
við Hrefnu í síma 863-4227.
Blá Spice girls-
húfa týndist
BLÁ Spice girls-húfa týnd-
ist í Kolaportinu laugar-
daginn 26. febrúar sl. á milli
kl. 14-16. Húfunnar er sárt
saknað og hefur valdið lítilli
stúlku mikilli hjartasorg.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 863-8330.
Víkverji skrifar...
FYRIR skömmu birti íslensk
getspá auglýsingu í dagblöð-
um um Víkingalottó þar sem les-
endur voru spurðir hvort þeir
væru í vandræðum með að greiða
kortareikninginn. Skilja mátti af
auglýsingunni að þátttaka í Vík-
ingalóttói leysti málið. Að mati
Víkverja er þetta óvenju ósvífin
auglýsing þar sem reynt er að
spila á örvæntingu efnalítils fólks
sem á í vandræðum með að standa
í skilum. Þetta fólk þarf á ein-
hverju öðru að halda en reynt sé
að tína af því aurana með þessum
hætti. I þessu sambandi má minna
á að líkurnar á að vinna stóran
vinning í Víkingalottói eru sáralitl-
ar og mun minni en í flestum öðr-
um happdrættum sem landsmenn
eiga kost á að eyða í.
XXX
NDANFARIÐ hefur bílaum-
boðið B&L auglýst bifreiðir
af gerðinni Land Rover undir yfir-
skriftinni „Viltu koma út að leika?“
Með auglýsingunni fylgja myndir
af afar vondu veðri. Flestir myndu
telja að þegar stórhríð er úti sé
hyggilegast að halda sig innan
dyra, a.m.k. sé ekki skynsamlegt
að fara út að leika sér. Greinilegt
er þó að þessi auglýsing höfðar til
margra. Það sést best á háttalagi
jeppakarla í febrúarmánuði. Itrek-
að gerði afar vont veður í mánuð-
inum og það brást ekki að um leið
fóru margir jeppakarlar út að
leika sér á bílum sínum. Ekki er
víst að björgunarsveitarmenn hafi
í öllum tilvikum glaðst yfir ferða-
lagi þeirra, a.m.k. ekki þeirra sem
lögðu leið sína að Heklu þrátt fyrir
tvísýnt veðurútlit.
Það er reyndar umhugsunarefni
hve margir kaupa sér jeppa, sem
kosta á bilinu 2-5 milljónir, í þeim
eina tilgangi að leika sér. Ekki
verður séð að á höfuðborgarsvæð-
inu sé nokkur þörf fyrir menn að
aka um á svo stórum og dýrum bíl-
um. Færð er yfirleitt góð á þessu
landssvæði og í þá fáu daga sem
erfitt er að komast um er yfirleitt
það slæmt veður að skynsamlegast
er fyrir alla að halda sig heima við.
Það er ekki nóg með að jeppar
séu dýrir í innkaupum. Þeir eru
líka dýrir í rekstri, eyða miklu
bensíni og borga þarf af þeim dýr-
ar tryggingar. Afskriftir eru líka
miklar. Menn tapa líklega nokkur
hundruðum þúsunda króna bara
við að setja nýjan jeppa í gang.
Samt er til nóg af fólki sem kýs að
verja fjármunum sínum í að kaupa
sér þessi leiktæki.
xxx
TARFSMAÐUR sem vinnur
hjá Reykjavíkurborg kom að
máli við Víkverja og kvaðst orðinn
hálfþreyttur á vinnunni. Ástæðan
var sú að starfsmaðurinn hafði á
tveimur vikum verið sendur á tvö
sálfræðinámskeið. Víkverji varð
áhyggjufullur og spurði hvort eitt-
hvað mikið væri að. Starfsmaður-
inn sagðist halda að allt væri í
góðu lagi hjá sér og ástandið í
vinnunni væri hvorki betra né
verra en það hefði verið. Reykja-
víkurborg hefði hins vegar ákveðið
að senda starfsmenn á sálfræði-
námskeið til að bæta vinnumór-
alinn. Starfsmaðurinn sagði að á
fyrra námskeiðinu hefði sálfræð-
ingurinn lagt áherslu á að fólk ætti
ekki að ræða um vinnuna eða
vandamál henni tengd þegar heim
væri komið. Vandamálin í vinnunni
ætti að skilja eftir í vinnunni. Að
sama skapi ætti fólk ekki að taka
vandamál heima fyrir með sér í
vinnuna. Þarna ættu að vera alger
skil á milli. Á næsta námskeiði
sagði sálfræðingurinn m.a. að fólk
yrði að taka tillit til starfsmanna
sem ættu hugsanlega í einhverjum
erfiðleikum heima fyrir. Það væri
óhjákvæmilegt að slík vandamál
bitnuðu að einhverju leyti á öðrum
starfsmönnum.
Víkverji hristi hausinn yfir þess-
ari speki og fór að velta fyrir sér
hvort skattpeningum hans væri
ekki betur varið í eitthvað annað.
xxx
VÍKVERJI kom við í Hagkaupi
í Skeifunni sl. þriðjudag og
tók þá eftir að þar eru komin
páskaegg í hillur. Víkverja finnst
að þetta sé nokkuð snemmt því
enn eru sjö vikur þangað til páska-
dagur rennur upp.