Morgunblaðið - 02.03.2000, Side 68
68 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
' miIiimi..
MORGUNBLAÐIÐ
FOLKIFRETTUM
MYNDBOND
Hrollvekj-
andi spenna
LIMBÓ
Limbo
ii i:\ma
★★★%
Leikstjóri og handritshöfundur:
John Sayles. Aðalhlutverk: Mary
Elizabeth Mastrantonio, David
í^Strathairn, Vanessa Martinez og
Kris Kristofferson. (95 mín.)
Bandaríkin. Skífan, febrúar 2000.
Bönnuð innan 16 ára.
LIMBÓ er nýjasta mynd leikstjór-
ans Johns Sayles sem gert hefur vel
heppnaðar myndir á borð við „City of
Hope“ og „Lone
Star“. I Limbó seg-
ir hann sögu fólks
sem býr í fiskibæ í
Alaska, þar sem
atvinna er ótrygg.
Brugðið er upp
skarpri mynd af
þessu samfélagi en
sjónum síðan beint
sérstaklega að far-
Donnu (Mary El-
izabeth Mastrantonio), unglingsdótt-
ur hennar Noelle (V anessa Martinez)
og verkamanninum Joe Gastineau
(David Strathairn). Jafnframt því
sem kafað er djúpt í tilfinningalíf
þessa fólks þróast sagan í hrollvekj-
andi spennutrylli, þar sem persón-
urnar takast í senn á við óblíða nátt-
úru, ill utanaðkomandi öfl og nístandi
sálarkreppu. Leyst er úr þessari
fremur hefðbundnu spennufrásögn á
máta sem setur sjálfa spennuna í
'‘aakgrunninn en tilvistarátök persón-
anna í forgrunn. Leikstjórinn fer því
ótroðnar slóðir í sögubyggingunni
sem jafnframt er fullkomlega sam-
kvæm áherslum myndarinnar.
Limbó er óvenjuleg kvikmynd, ákaf-
lega vel gerð og mjög forvitnileg.
Heiða Jóhannsdóttir
------*-+-♦-----
/
Astin sigrar
ekki allt
Undir bláhimni
(Under Heaven)
IjRAMA
★★
Leikstjórn og handrit: Meg Rich-
man. Aðalhlutverk: Joely Richard-
son, Molly Parker og Aden Young.
(114 mín.) Bandaríkin. Háskólabíó,
2000. Öllum leyfð.
UNDIR bláhimni er lauslega
byggð á skáldsögunni Vængir dúf-
unnar eftir Hemy James en gerð var
samnefnd kvik-
mynd eftir bókinni
árið 1998. Hér er
meginefni sögunn-
ar fært inn í nú-
tímaaðstæður, þar
segir frá Cyntiu og
Buck, ungu, rót-
lausu og fátæku
pari sem eygir von
um betra líf þegar
þau hefja störf hjá hinni vellauðugu
en dauðvona Eleanor. Þau semja
áætlun um að Buck vinni ástir Elean-
or, giftist henni og erfi auðæfin eftir
hennar dag. En hlutimir fara á annan
veg en á horfði og reynast hin mesta
prófraun, bæði á ástarsamband pars-
ins, sem og samvisku þeirra og heil-
indi. Yfir myndinni er nokkuð köld og
raunsæisleg stemmning sem virkar
fl í byrjun þegar dregin er upp
ynd af vonlítilli tilveru unga parsins.
Talsverð rækt er síðan lögð við þær
spumingar sem skáldsagan veltir upp
varðandi ást og heilindi andspænis fá-
tækt eða ríkidæmi. Þegar á líður veld-
ur höfundur myndarinnar illa því
mikla og ófyrirsjánlega tilfinninga-
umróti sem sögunni fylgir og verða
^KÍcin því hálf væmin og klaufaleg.
Heiða Jóhannsdóttir
áhdsöngkonunni
AtilO
■ AMIGOS Á fimmtudagskvöld
leikur biúshljómsveitin Vinir Dóra
frá kl. 22 undir yfirskriftinni Bar-
beque og blús. Hljómsveitina skipa
þeir Halldór Bragason, söngur, gít-
ar, Guðmundur Pétursson, gítar,
Ásgeir Óskarsson, trommur, og
Jón Ólafsson, bassi.
■ ÁLFOSS FÖT BEZT Á fóstu-
dags- og laugardagskvöld leikur
ungverski trúbadorinn Anton La-
hjtner „Laky“. Okeypis aðgangur.
■ ÁRSEL Á laugardagskvöld verð-
ur haldið furðufataball fyrir fatl-
aða frá kl. 20-23. Þeir sem mæta í
furðufótum borga 300 kr. en hinir
400 kr. Verðlaun veitt fyrir flottustu
búningana. Aldurstakmark 16 ára.
■ ÁSGARÐUR, Glæsibæ Á fóstu-
dagskvöld er dansleikur með Upp-
lyftingu. Húsið opnað kl. 22. Á
sunnudagskvöld er dansleikur með
Caprí-tríó frá kl. 20. Leikritið
Rauða klemman sýnt fóstudag kl.
14, sunnudag kl. 17 og miðvikudag
kl. 14.
■ BARBRÓ, Akranesi í kvöld
skemmtir Bjargræðistnóið frá kl.
21. Flutt verður skemmtidagskrá
með söngtextum Jónasar Árnason-
ar úr þekktum leikritum við lög
Jóns Múla og írsk og ensk þjóðlög.
■ BREIÐIN, Akranesi Hljómsveit-
in Skítamórall leikur fóstudags-
kvöld en hljómsveitin hefur legið í
dvala síðan um áramót og hefur
þess vegna ekki komið fram opin-
berlega síðan í lok desember.
■ BROADWAY Á fóstudags- og
laugardagskvöld verður haldin Bee
Gees-sýning þar sem fimm strákar
flytja þekktustu lög þeirra Gibb
bræðra. Á fóstudagskvöldinu leikur
Hljómsveit Geirmundar Valtýsson-
ar fyrir dansi í aðaisal _og Heiðurs-
menn leika í Ásbyrgi. Á laugardag-
skvöld Ieikur Danssveit Gunnars
Þórðarsonar fyrir dansi ásamt
söngstjörnum Broadway.
■ CAFÉ AMSTERDAM Á fóstu-
dags- og laugardagskvöld leikur
Rokkabillyband Reykjavfkur og á
sunnudagskvöld leikur trúbadorinn
Siggi Björns.
■ CAFE ROMANCE Breski píanó-
leikarinn Frankie Flame leikur öil
kvöld. Hann leikur einnig fyrir mat-
argesti Café Óperu.
■ CATALÍNA, Hamraborg Hljóm-
sveitin Bara 2 leikur föstudags- og
laugardagskvöld.
■ DUGGAN, Þorlákshöfn Hljóm-
sveitin Sixties leikur fyrir dansi á
laugardagskvöld. Hljómsveitina
skipa þeir: Guðmundur Gunnlaugs-
son, trommur, Jóhannes Eiðsson,
söngur, Ingimar Óskarsson, bassi
og Svavar Sigurðsson, gítar. Þess
má geta að hljómsveitin leikur í
þættinum Hausverk um helgar
fóstudagskvöld.
■ DÚSSA-BAR Á fóstudagskvöld
leikur Ingimar gleðigjafi á harmon-
iku.
■ EGILSBÚÐ, Neskaupstað Á
laugardagskvöld verður Bónusk-
lúbburinn með Vilhjálms og Ellýj-
ar-kvöld. Fjöldi söngvara koma
fram frá kl. 22-3. Miðaverð 1.500 kr.
■ FJÖRUKRÁIN Fjaran: Á fóstu-
dags- og laugardagskvöldum leikur
Jón Möller rómantíska tónlist fyrir
matargesti. Fjörugarðurinn: Vfk-
ingasveitin leikur fyrir þorragesti.
Hljómsveitin Bingó frá Borgarnesi
leikur fyrir dansi fóstudagskvöld og
Víkingasveitin laugardagskvöld.
■ GAUKUR Á STÖNG Á laugar-
dagskvöld leikur hljómsveitin
Undryð. Þess má geta að hljóm-
sveitin frumflytur nýtt lag sem heit-
ir Synd og er lag og texti eftir
Brynjar, söngvara hljómsveitarinn-
ar.
■ GRANDROKK, Akranesi Hljóm-
sveitin Villta vestrið spilar á laug-
ardagskvöld. Miðaverð 500 ki'ónur
en ókeypis aðgangur til klukkan 22.
Opið fimmtudagskvöld og plötusn-
úður fer á kostum á fóstudagskvöld.
■ GULLÖLDIN Það eru hinir
landsþekktu Svensen & Hallfunkel
sem leika fóstudags- og laugardags-
kvöldtUkl.3.
■ H-BARINN, Akranesi Á laugar-
dagskvöld skemmtir tónlistarmað-
urinn Torfí Ólafsson.
■ HARD ROCK CAFÉ Á fimmtu-
dagskvöld heldur tónleikaröðin
Sítróna áfram og þá leikur hljóm-
sveitin Skftamórall.
■ HITT HÚSH) Á síðdegistónleik-
um fóstudag kl. 17 ráða fónkí afrísk-
ir rythmar öllu þegar Yao Ababio
Hljómsveitin Sixties leikur í Duggunni, Þorlákshöfn, laugardags-
kvöld. Þess má geta að hljómsveitin verður í þættinum Hausverkur
um helgar á föstudagskvöldinu.
Vinir Dóra Ieika á veitinga-
húsinu Amigos fimmtudags-
kvöld undir yfirskriftinni
Barbeque og blús.
fer hamförum en hann hefur hitað
upp fyrir ýmsa listamenn á tónleik-
um s.s. Busta Rhymes, Foxy
Brown ásamt því að hafa spilað inn
á plötu með Black Star.
■ HÓTEL SAGA, Súlnasalur Á
laugardagskvöld verður Abba-sýn-
ing og dansleikur á eftir með
hljómsveitinni Saga Klass.
■ HÚSAVÍK Hljómsveitin Sól-
dögg leikur föstudagskvöld.
■ KAFFILEIKHÚSIÐ Á fimmtu-
dagskvöld leikur dúettinn Fítónn
jóðsjúkra kvenna með þá Trausta
Lomber og Flóka Guðmundsson
innanborðs frá kl. 21. Þeir félagar
munu rifja upp gang ferils síns og
einnig mætir Guðbjörg S. Maack
með gamla takta. Á fóstudagskvöld
verður söngskemmtunin Söngtext-
ar Jónasar Árnasonar flutt í síð-
asta sinn af þeim Önnu Sigríði
Helgadóttur, söngur, Aðalheiði
Þorsteinsdóttur, píanó, og Erni
Arnarssyni, gítar. Söngskemmtun-
in hefstkl. 21.
■ KRINGLUKRÁIN Á fimmtu-
dagskvöld verður boðið upp á tón-
leika undir yfirskriftinni Rokk í ró-
legheitum þar sem hljómsveitin 4.
hæð leikur órafmagnaða tónlist.
Meðlimir eru: Samúel I. Þórarins-
son, gítar og söngur, Jökull Jör-
gensen, bassi og bakraddir, Sigríð-
ur Eyþórsdóttir, söngkona (dóttir
Ellenar Kristjánsdóttur) og Birgir
Ólafsson, gítar og bakraddir.
Hljómsveitin spilar nær eingöngu
frumsamið efni. Þess má geta að
hljómsveitin er að vinna að plötu
þessa dagana. Hljómsveitin SÍN
leikur síðan föstudags- og laugar-
dagskvöld og á sunnudagskvöldinu
leikur dúettinn Tara.
■ KRISTJÁN 10., Hellu Á fóstu-
dagskvöld leika þeir Óli Stolz og
Andrés Gunnlaugsson djass frá kl.
22.
■ LIONSSALURINN, Auðbrekku
25, Kóp. Áhugahópur um línudans
verður með dansæfingu fimmtu-
dagskvöld kl. 21-24. Elsa sér um
tónlistina. Allir velkomnir.
■ NAUSTH) Opið alla daga.
Þriggja rétta góu-matseðill
Reylqavíkurstofa bar og koníaks-
stofa, Vesturgötu, er opin frá kl. 18.
Söng- og píanóleikarinn Liz Gamm-
on frá Englandi leikur.
■ NAUSTKRÁIN býður upp á góu-
gleði 1.-7. mars þar sem boðið er
upp á hlaðborð og kranabjór eins og
hver getur í sig látið fyrir 2.500 kr.
Hljómsveitin Miðaldamenn frá
Siglufirði leikur fostudags- og laug-
ardagskvöld til kl. 3.
■ NJÁLSSTOFA, Smiðjuvegi 6 Á
föstudags- og laugardagskvöld leik-
ur Njáll úr Víkingband létta tónlist.
Ókeypis aðgangur.
■ NÆSTIBAR Á fimmtudagskvöld
leikur fjöllistahópurinn Inferno 5
og byrjar kl. 22. Miðvikudagiim 8.
mars leikur síðan Kristján Eldjárn
gítarleikari frá kl. 22.
■ NÆTURGALINN Þau Stefán
Jökulsson og Arna Þorsteinsdóttir
leika og syngja fóstudags- og laug-
ardagskvöld. Húsið opnað kl. 22.
■ ORMURINN, Egilsstöðum Á
föstudagskvöld leikur Dj. Buzz og
er aðgangur ókeypis. Á laugardags-
kvöld verður írsk barstemmning
með dúettinum Bakkusi. 500 kr.
inn.
■ PÉTURS-PUB Á föstudags- og
laugardagskvöld leikur tónlistar-
maðurinn Rúnar Þór. Opið til kl. 3.
Boltinn í beinni og stór á 350 kr.
■ PIZZA 67, Eskifirði Á laugar-
dagskvöld er góu-diskó til kl. 3.
Miðaverð 500 kr. eftir miðnætti.
■ SJALLINN, Akureyri Hljóm-
sveitin Sóldögg leikur laugardags-
kvöld.
■ SKUGGABARINN Á fóstudags-
kvöld er tilboð á barnum. Húsið
opnað kl. 23. 500 kr. inn eftir kl. 23.
Plötusnúðar eru Nökkvi og Áki. 22
ára aldurstakmark, engar bláar
gallabuxur. Það sama gildir á laug-
ardagskvöldinu en þá er húsið opn-
aðkl.23.
■ SPORTKAFFI Á fimmtudags-
kvöld leikur dúettinn GuIIið í rusinu
með þeim Birni Hildi og Júlíusi. Á
föstudagskvöldinu eru plötusnúðar
þeir Albert og Siggi en á laugar-
dagskvöldinu sér Þór Bæring um
tónlistina. Snyrtilegur klæðnaður.
■ SPOTLIGHT Á fimmtudags-
kvöld er „Gay-kvöld“ og er opið frá
kl. 23-1. Ej. fvar og I>i. Cesar sjá
um tónlistina. Á fóstudagskvöld er
þemakvöld og á laugardagskvöldinu
sér Páll Óskar um tónlistina. Opið
frá kl. 23 bæði kvöldin. _
■ THOR, Hafnarfirði Á ÍÖstudags-
kvöld sér Skugga-Baldur um tón-
listina eftir kl. 23.30. Reykur, þoka,
Ijósadýrð og tónlistardagskrá þar
sem skemmtilegasta tónlistin frá
síðustu 50 árum er fagmannlega
fléttuð saman. Allt frá Dean Martin
og Frank Sinatra til Chemical
Brothers og Rammstein. Á laugar-
dagskvöldinu leikur hljómsveitin
Heiðursmenn eftir kl. 23.30.
■ VIÐ POLLINN, Akureyri Á
fimmtudagskvöld verða tónleikar
frá kl. 22 með Helga og hljóðfæra-
leikurunum og á föstudags- og
laugardagskvöld leika Léttir
sprettir fyrir dansi.
Svikari í
sjónvarpi
SJÓNVARPSBRÚÐURIN Darva
Cönger, sem giftist falsaranum
Rick Rockwell í beinni útsendingu
á dögunum, er ekki síður svindlari
en eiginmaðurinn sem hún vill
skilja við. í sjónvarpsþættinum
sagðist hún vera hjúkrunarkona úr
Persaflóastríðinu en nú þykir það
sannað að hún sté aldrei fæti á
Austurlönd. Fyrst komst sjón-
varpsstöðin Fox að því að drauma-
brúðguminn var alls ekki milljóna-
mæringur eins og haldið var og auk
þess á hann að hafa lagt hendur á
fyrrverandi unnustuna. Það má því
bíða lengi eftir næsta sjónvarps-
brúðkaupi.
Skrúðgöngur
hafa lækninga-
mátt
NÚ ER kjötkveðjuhátíðin hafin í
borginni Rio De Janeiro og þótt
sumir áliti hana svall hid mesta vilja
læknar meina að hún verki sem
róandi meðferð fyrir geðtruflaða
einstaklinga. Á meðan á hátíðinni
stendur íjölmennir fólk út á göturn-
ar í og horfir á glæsilegar skrúð-
göngur frá hinum ýmsu salsa-
danshópum. Læknir á sjúkrahúsi í
borginni segir hátíðina allra meina
bót og hvetur alla til að taka þátt í
skrúðgöngunum. Tónlistin, dansinn
og gleðin auki sjálfstraust fólks.
Anna
gengin út
RÚSSNESKA tennisstjarnan Anna
Kournikova er trúlofuð og hefur ef-
laust með því hryggbrotið margan
sveininn. Sá
heppni er hinn
snöggi íshokkí-
leikari sem er
ekki minna fræg-
ur en unnustan.
Hann ku hafa
beðið dömunnar á
veitingastað í
Miami.
Koumikova er
18 ára að aldri og ein vinsælasta
persóna breskra slúðurblaða sem
segja að turdildúfurnar séu óaðskilj-
anlegar og að bleik rós hafi fylgt
bónorðinu.
Berrassaðir
í Kringlunni
BERRASSAÐIR Vínarbúar freist-
uðu þess að græða 25 þúsund krón-
ur með því að hlaupa allsnaktir inn
í verslun. En það var verslunar-
miðstöðin Kleider Bauer sem lofaði
því að verðlauna fyrstu fimm nöktu
einstaklingana sem kæmu inn í ein-
hverja af þeim fjörutíu verslunum
sem eru í miðstöðinni. Það voru því
berir bossar sem sáust skjótast á
milli verslana í von um að detta í
lukkupottinn. Flestir sögðust hins
vegar vera að taka þátt skemmtun-
arinnar vegna en ekki út af pening-
um. „Fólk ætti að vera ófeimnara
og frjálslegra og ekki svona miklar
teprur," sagði einn allsnakinn.