Morgunblaðið - 02.03.2000, Síða 76

Morgunblaðið - 02.03.2000, Síða 76
JHtfgnnftUifeifr Trausti íslenska Síðan 1972 Leitið tilboða! murvoru 1 steinpi MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREWSLA 5691122, NETFANG: WJKTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Slæmt ferðaveð- „ ur víða um land VEGAGERÐIN varaði fólk við að leggja í langferðir í gærkvöld og nótt er leið. í gærkvöld var snjó- koma, skafrenningur og slæmt ferðaveður á öllum vegum í ná- grenni höfuðborgarinnar. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík var þá skafrenningur og blint í út- hverfum en ekki ófærð. Á Kjalar- nesi var blint og versnandi færð. Fjallvegir lokaðir « % Samkvæmt upplýsingum Vega- gerðarinnar var veður mjög að versna á Hellisheiði, í Þrengslum og búist. við því að þessir vegir lok- uðust eftir að þjónustu lyki kl. 23. Einnig var versnandi veður og færð á Vesturlandi og víða kominn skafrenningur. Ekkert ferðaveður var á Fróðárheiði og Kerlingar- skarði og vcður að versna á Holta- vörðuheiði. Á sunnanverðum Vest- fjörðum og á Steingrímsfjarðar- heiði var óveður. Snjóflóð í Almannaskarði * Ekkert ferðaveður var í kring- um Höfn í Hornafirði og mjög versnandi veður og færð með suð- urströndinni. I gærkvöldi féllu þrjú snjóflóð, um þriggja metra djúp, sem lok- uðu veginum um ALmannaskarð. Björgunarsveitarbfll aðstoðaði tvo bfla við að komast niður úr skarð- inu. I þessum bflum voru um 10 manns, að sögn lögreglunnar á Höfn í Hornafirði. Þá tepptist flutningabfll í skarðinu og var hann skilinn eftir, en bflstjórinn fékk far til byggða. Færð var mjög erfið vestan Hafnar, ef ekki ófært. -------------------- Olíuverð til fískiskipa 66% hækkun á einu ári VERÐ á olíu til fiskiskipa hefur á einu ári hækkað um 66%, farið úr 12,28 krónum á Iítrann í 20,44 krónur eftir 4,1% hækkun á verði gasolíu til fiskiskipa í dag. Olíukostnaður út- gerðarinnar eykst við þetta um 200 milljónir króna og miðað við árs- grundvöll hefur olíukostnaður út- gerðarinnar því hækkað úr um þremur milljörðum króna í fimm. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað um 151% frá því að það var lægst, í janúar 1999 og olíuverð nú er það hæsta í fjögur ár. ■ Eykur kostnað/22 Rætt um samruna sláturhúsareksturs Norðvestur- bandalagsins og Kaupfélags Héraðsbúa Vilja kaupa Kjöt- umboðið af KEA TVEIR af stærri sláturleyfishöfum landsins, Norðvesturbandalagið hf. á Hvammstanga og Kaupfélag Hér- aðsbúa á Egilsstöðum, eiga í viðræð- um um sameiningu sláturhúsarekst- urs. Fyrirtækin hafa tekið upp viðræður við Kaupfélag Eyfirðinga og Kjötiðjuna á Húsavík um kaup á meirihluta í Kjötumboðinu hf. í Reykjavík enda er það talin forsenda þess að þau geti sameinast. Norðvesturbandalagið (NVB), KEA, Kjötiðjan ehf. á Húsavík, Kaupfélag Héraðsbúa (KHB) og Kjötumboðið áttu á síðasta ári í við- ræðum um sameiningu slátrunar, kjötvinnslu og sölumála undir merkj- um Kjötumboðsins hf. NVB og KHB voru búin að staðfesta samruna þeg- ar KEA dró sig út vegna þess að fé- lagið taldi sinn hlut í nýja fyrirtækinu ekki nógu stóran. Nú hafa Kaupfélag Héraðsbúa og Norðvestui-bandalagið tekið upp viðræður að nýju og segir Ingi Már Aðalsteinsson, kaupfélags- stjóri KHB, að vilji sé til að ljúka samningum með sameiningu enda myndi hún leiða til mikillar hagræð- ingar í slátrun og útflutningi. Ingi Már segir að samrunaþróun í sláturhúsarekstri og kjötvinnslu hafi gengið allt of hægt. Stærri fyrirtæki hafi mun meiri möguleika til vöruþró- unar og að beita sér í sölu- og mark- aðsmálum en minni einingamar. Kjötumboðið þarf að fylgja Norðvesturbandalagið og Kaupfé- lag Héraðsbúa eru með mikinn slát- urhúsarekstur, sérstaklega í sauð- fjárrækt, en ekki mikla úrvinnslu afurða. NVB á sláturhús á Hvamm- stanga sem hefur leyfi til að slátra til útflutnings og sláturhús í Búðardal og á Hólmavík og KHB á sláturhús á Fossvöllum, Egilsstöðum og Breið- dalsvík. Kjötumboðið í Reykjavík hefur annast sölu á meginhluta af af- urðum félaganna og þar hafa vörurn- ar verið unnar. Því hafa félögin hafið viðræður við KEA og Kjötiðjuna á Húsavík sem eiga 56% af hlutafé Kjötumboðsins, um kaup á meiri- hluta í félaginu. Ingi Már segir mikil- vægt að hafa Kjötumboðið með í sam- runanum vegna þeirrar verka- skiptingar sem verið hafi. Eiríkur Jóhannsson, kaupfélags- stjóri KEA, vonast til að niðurstaða fáist í viðræður um sölu Kjötumboðs- ins einhvern næstu daga, helst fyrir helgi. Landsbankinn á Kjötiðjuna sem aftur á 51% í Kjötumboðinu. Stefnt hefur verið að samruna slátur- húsa og kjötvinnslu KEA og Kjötiðj- unnar. Eiríkur segir nauðsynlegt að fá botn í málefni Kjötumboðsins því það sé hluti af þeirri vinnu sem sé í gangi um uppbyggingu kjötvinnslu- fyrirtækisins. Ingi Már segir ekki ljóst hvernig eignarhlutföll í nýju félagi verða. Skráð fyr- ir rúman milljarð FJÁRFESTAR skráðu sig fyr- ir um 1,1 milljarðs króna hlutafé í lokuðu hlutefjárútboði netfyr- irtækisins Bepaid.com sem lauk nýverið, en í boði var nýtt hluta- fé í fyrirtækinu að kaupverði 4 milljónir dollara, sem samsvar- ar um 290 milljónum króna. Starfsemi Bepaid.com, sem Ingvar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, stofnaði á síðasta ári, gengur út á viðskiptahugmynd um auglýs- ingar á Netinu. Einstaklingar skrá sig í gagnagrunn félagsins, en auglýsendur geta síðan valið sinn markhóp úr gagnagrunn- inum. Notandinn mun svo fá greiðslu frá auglýsandanum fyrir að horfa á hverja auglýs- ingu. Vefsíða fyrirtækisins lenti í 431. sæti yfir mest heimsóttu vefsíður í heimi á síðasta ári, samkvæmt erlendri samantekt. Frá því að gagnagrunnur fé- lagsins var opnaður í desember hafa yfir 360 þúsund manns skráð sig. ■ Fjórföld umfram/Cl Kjarasammngar sjiikraliða gilda til 1. nóvember í haust Um 200 sjúkraliðar sögðu upp störfum fyrir mánaðamót íslandsbanki hefur fleiri virkar aðgerðir fyrir WAP-síma en nokkur annar banki. ÍSLANDSBANKI UM 200 af rúmlega 560 sjúkraliðum sem eru í starfi hjá Ríkisspítölunum og á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sögðu upp störfum nú fyrir mánaðamótin febi-úar/mars með þriggja mánaða fyrirvara og taka uppsagnimar því gildi 1. júní í sumar hafi þær ekki ver- ið dregnar til baka fyrir þann tíma. Magnús Pétursson, forstjóri sjúkrahúsanna, sagði er hann hafði talað við hjúkrúnarforstjórana hjá Ríkisspítölunum og á Sjúkrahúsi Reykjavíkur síðdegis í gær að þessar uppsagnir væru alvarlegur hlutur fýrir sjúkrahúsin: ,A-uðvitað er þetta grafalvarlegt mál og sjúkrahúsin þuifa að hugsa sinn gang um það hvemig þau bregðast við því.“ Á Ríkisspítölunum em starfandi 313 sjúkraliðar og sögðu 110 þeirra upp störfum fyrir mánaðamótin. Á Sjúkrahúsi Reykjavíkur em starf- andi 252 sjúkraliðar og sögðu um 90 þeirra upp störfum fyrir mánaðamót- in. Segja ber upp miðað við mánaða- mót og uppsagnir sem berast í mars- mánuði taka því ekki gildi fyrr en frá og með næstu mánaðamótum, en uppsagnarfrestur fastráðinna sjúkraliða er þrír mánuðir. Gilda til 1. nóvember Kjarasamningur Sjúkraliðafélags íslands og ríkisvaldsins gildir til 1. nóvemberíhaust. Kristín Guðmundsdóttir, formað- ur Sjúkraliðafélagsins, segir að sam- kvæmt samningnum starfi sam- starfsnefnd við allar stofnanir og ræði við viðsemjendur sem kjara- samningurinn nái til, þar sem farið sé yfir túlkanir á samningnum og annað sem upp kunni að koma milli samn- inga. Fundir með stórum stofnunum séu að meðaltali kannski þriðja hvern mánuð, þar sem þar komi alltaf upp mál sem taka þurfi á, en fundir séu miklu sjaldnar með minni stofnun- um. Um slíkan fund hefði verið að ræða með Sjúkrahúsi Reykjavíkur og Ríkisspítölunum á þriðjudag, þ.e.a.s. túlkanir á kjarasamningi, og hún hefði í kjölfarið gert sjúkraliðum grein fyrir stöðunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.