Morgunblaðið - 05.03.2000, Síða 1

Morgunblaðið - 05.03.2000, Síða 1
STOFNAÐ 1913 55. TBL. 88. ÁRG. SUNNUDAGUR 5. MARS 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Brezkur geðlæknir um Pinochet Gat gert sér upp andleg veikindi Lundúnum. AFP. BREZKUR geðlæknir, sérhæfður í öldrunarsjúkdómum, sagði í út- varpsviðtali í gær að það hefði verið „auðveldur leik- ur“ fyrir Augusto Pinochet, fyrr- verandi einræðis- herra Chile, sem sleppt var úr stofufangelsi í Bretlandi á fimmtudag, að gera sér upp and- legíi heilsubilun. Akvörðun Jacks Straw, innanríkisráðherra Bretlands, um að heimila Pinochet að halda heim til Chile, byggðist á því að læknar, sem brezka innanrík- isráðuneytið fékk til að meta heilsu- ástand hans, vottuðu að hann væri of veikur fyrir andlega til að geta svar- að til saka fyrir mannréttindabrot og aðra glæpi sem framdir voru í 17 ára valdatíð hans. Pinochet, sem er 84 ára, fékk vægt heilablóðfall tvívegis sl. haust. En geðlæknirinn Robert Howard, sérfræðingur við Mearsley-sjúkra- húsið í suðurhluta Lundúnaborgar, segir að eingöngu geðlæknar sem sérhæfðir væru í að sjúkdómsgreina andlega vanheilsu sjúklings væru færir um að skera úr um hversu al- varlegur krankleiki Pinochets væri. Enginn læknanna sem fengnir voru til að meta ástand einræðis- herrans fyrrverandi var með slíka sérfræðiþekkingu. Köld netást New York. The Daily Telegnt*aph. ENSKUR karlmaður um þrítugt, sem fór til Bandaríkjanna til að giftast konu sem hann kynntist á Netinu, varð fyrir áfalli lífs síns þegar hann komst að því að kon- an var 30 árum eldri en hann hélt. Og ekki nóg með það. í ljós kom að konan, Wynema Faye Shumate, 65 ára, hafði komið lík- inu af sjötugum manni, sem bjó í sama húsi og hún, James O’Neil, fyrir í frystikistunni hjá sér og geymt þar mánuðum saman. Talið er að O’Neil hafi látizt af náttúru- legum orsökum og að Shumate hafi framfleytt sér á sparifé hans. Bíða Korpu sömu ör- lög og Elliðaánna? Morgunblaðið/Golli Síðvetrarkyrrð á Þingvöllum. Fleiri þjóðir senda hermenn og búnað til Mósambík Aherzla á að koma mat til nauðstaddra Maputo. AFP, AP, Reuters. LIÐSMENN franska og þýzka hersins hafa nú lagt suður-afrísk- um hermönnum lið, til að sinna neyðaraðstoð í Mósambík, þar sem gríðarleg flóð hafa fært stóran hluta flatlendis í suðausturhluta landsins á kaf. Einnig eru hermenn fleiri ríkja á leið á vettvang með fleiri þyrlur og annan búnað fyrir hjálparstarfið. Þeir sem unnið hafa að skipu- lagningu hjálparstarfsins sögðu í gær, að nú myndi starfið aðallega beinast að því að koma vistum til þeirra sem hrakizt hafa undan flóð- unum, en talið er, að þeir séu nú um ein milljón. Flóðin hafa valdið þessu hrjáða Afríkulandi gríðar- legu tjóni, þar sem þau byrjuðu rétt áður en uppskerutíminn hófst. Veðurfræðingar spá því að enn meira rigni á næstu dögum. Jessie Duarte, talsmaður Suður- afríska ráðsins (South African High Commission), sem ásamt stjórnvöldum í Maputo hefur um- sjón með skipulagningu hjálpar- starfsins, lýsti verkefninu í Mósam- bík sem stærsta neyðar- aðstoðarverkefni sem nokkru sinni hafi verið framkvæmt í Afríku. Björgun inni- krdaðra haldið áfram „Frá og með deginum í dag mun- um við leggja mesta áherzlu á að koma sem mestu af vistum og öðr- um hjálpargögnum (...) í neyðar- búðirnar," sagði Brenda Barton, talsmáður Matvælahjálpar Samein- uðu þjóðanna. Fram að þessu hefur megin- áherzlan í hjálparstarfínu beinzt að því að bjarga fólki, sem flóðið lok- aði af uppi í trjám, á húsþökum eða nýmynduðum smáeyjum, og flytja það á öruggari staði sem hærra eru yfir sjávarmáli. Þessu verkefni hef- ur aðallega verið sinnt með suður- afrískum, frönskum og malawísk- um herþyrlum. Á föstudagskvöld sagði talsmaður suður-afrísku þyrluáhafnanna að búið væri að fljúga með „mjög marga“ hinna strönduðu í öruggt skjól. Þessir björgunarflutningar héldu áfram af fullum krafti í gær, laugardag. Æskilegt að sparisjóðirnir geti breytt sér í hlutafélög HVAÐVILLMAÐ- URBLÁSASIGÚT? Ruhe gef- ur ekki kost á sér VOLKER Rúhe, fyrrverandi varnarmálaráðherra Þýzka- lands, gefur ekki kost á sér í formannskjöri í Kristilega demókrataflokknum, CDU, sem fram fer á flokksþingi í Essen um miðjan apríl. Fram að þessu hafði Rúhe verið tal- inn - ásamt Angelu Merkel, framkvæmdastjóra flokksins - eiga einna bezta möguleika á að gerast arftaki Wolfgangs Scháuble sem flokksformaður. Rúhe, sem var forsætisráð- herraefni CDU í landsþings- kosningum í Slésvík-Holtseta- landi fyrir viku - sem flokkurinn tapaði - sagði í við- tali við blaðið Weit am Sonntag að hann hefði ákveðið að sækj- ast ekki eftir æðsta flokksem- bættinu að þessu sinni. I viðtalinu hvetur Rúhe til þess, að næsti flokksformaður verði einn þeirra flokksmanna sem gegna nú embætti forsæt- isráðherra í einu sambands- landanna 16. Nefndi hann sér- staklega Kurt Biedenkopf, forsætisráðherra Saxlands. Júrgen Rúttgers, héraðs- leiðtogi CDU í Nordrhein- Westfalen, og fleiri áhrifa- menn í flokknum lýstu sig and- víga slíkri bráðabirgðalausn. MORGUNBLAÐIÐ 5. MARS 2000

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.