Morgunblaðið - 05.03.2000, Síða 13

Morgunblaðið - 05.03.2000, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MARS 2000 1 3 Við vitum nú hve margar sígarettur þarf til að valda krabbameini í lunga Eina - en við vitum ekki hvaða sígaretta það er og ekki þú heldur. Flestir álíta að til þess að fá lungnakrabba þurfi að reykja hundruð þúsunda af sígarettum. Það er alrangt! Nýjar rannsóknir sýna hvernig lungnakrabbi getur vaxið út frá einni frumu sýktri af einni sígarettu. í litningum (DNA) hverrar lungna- frumu er lífsnauðsynlegt erfðaefni, P53, sem getur hindrað myndun krabbameins. í hvert skipti sem þú dregur að þértóbaksreyk ræðst hann á P53. Þegar krabbamein ógnar lungnafrumu með skemmt P53, getur banvænt æxli byrjað að vaxa. Þótt þú reykir aðeins fáar sígarettur á dag brýtur þú niður varnarkerfi milljóna lungna- frumna. Eina leiðin til að fyrirbyggja frekari skemmdir er að hætta að reykja. Átta af hverjum tíu reykingamönnum vilja hætta að reykja. Ef þú ert einn þeirra skaltu ekki fresta því lengur. Næst þegar þú ætlar að kveikja þér í skaltu hugsa um það að ein sígaretta getur komið af stað lungna- krabba. Reyndu að ímynda þér hvernig það er að vera með illkynja æxli innvortis. Hver einasta sífaretta veláur þér skaia! Upplýsingar um námskeið í reykbindindi eru á www.reyklaus.is Ráðgjöf í síma 800 6030 AUK k99-291 sia.ís

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.