Morgunblaðið - 05.03.2000, Side 16

Morgunblaðið - 05.03.2000, Side 16
16 SUNNUDAGUR 5. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR TVEIR BRAUT- RYÐJENDUR Málverk Nínu Tryggvadóttur, Abstrakt, frá 1956, boðuðu einnig nýja tíma í list hennar. Málverk Svavars Guðnasonar, Fansað í fúgustíl, má óhikað telja tíma- mótaverk á ferli listamannsins. MYNDLIST Lislasafn íslands MYNDVERK §VAVARGUÐNASON NINATRYGGVADÓTTIR Opið alla daga frá 11-17. Lokað mánudaga. Til 26. mars. Aðgangur 400 krónur. EFRI salir Listasafns íslands hafa verið undirlagðir myndverkum eftir tvo brautryðjendur nýrra við- horfa í íslenzkri málaralist, Svavar Guðnason (1909-1988) og Nínu Tryggvadóttur (1913-1967), og eru þetta allt myndir í eigu safnsins. Engu að síður er hér um yfirlitssýn- ingar að ræða, þó í knöppu formi sé, þær bera þess báðar merki, að safn- inu hefur í áranna rás verið annt um að viða að sér lykilverkum frá ferli þeirra og tekist það með miklum ágætum. / Þau Svavar og Nína komu bæði til Kaupmannahafnar árið 1935 og hófu nám við listaakademíuna við Kóngsins Nýjatorg, meira að segja hjá sama kennara, Kræsten Iversen sem hafði verið prófessor þar frá 1930 og átti eftir að koma mikið við sögu íslenskra listaspíra við skólann til dánardægurs, nákvæmlega þrem áratugum seinna eða 1955. Svavar undi raunar ekki nema í skamman tíma við hina bundnu akademísku kennslu, en Nína var þar viðloðandi næstu fjögur árin, eða allt þar til hún fór í námsferð til Parísar 1939 og sneri svo heim. Svavar lenti fljót- lega í hringiðu nýviðhorfa og fór til Parísar 1938, þar sem hann dvaldi í hálft ár og sótti skóla Fernand Leg- er. Þar urðu kynni hans af dönsku listamönnunum Ejler Bille, Sonju Ferlov (Mancoba) og Asger Jorn af- drifarík, komu honum í samband við enn fleiri danska framúrstefnulista- menn og bast hann þeim nánum böndum, einkum Egil Jacobsen en þeir áttu seinna eftir að mála hlið við hlið og eru innbyrðis víxláhrif greinileg í list beggja. Hér var Svavar kominn í hóp listamanna er seinna stofnuðu Helhestinn (1941), sem var eins konar framhald erfða- venjunnar frá listahópunum Kling- en og Linien, en einnig var þýski listahópurinn Der blaue Reitar fyr- irmyndin. Samnefnt tímarit, Hel- hesturinn, varð svofyrirmynd hol- lenska tímaritsins Reflex og allt saman fæddi loks af sér Cobra. Svavar var þannig nokkrum árum á undan Nínu um þreifingar í núlist- um og einn af áhrifavöldum hans var hinn snjalli málari óhefts lita- flæðis, Edvard Weie, sem hann taldi raunar lærimeistara sinn og sem einnig átti eftir að verða áhrifa- valdur í list Nínu, en löngu eftir að hún var orðin þroskuð listakona og trúlega voru þau áhrif ósjálfráð og ómeðvituð. Þau komu ekki að fullu fram fyrr en hún kynntist abstrakt- expressjónismanum í New York í lok sjötta áratugarins. Það voru miklar hræringar í danskri list á fjórða áratugnum og nutu íslenskir myndlistarmenn í Kaupmannahöfn þess ríkulega, en flestir þeirra voru mjög opnir og móttækilegir fyrir nýjum og ferskum straumum, má hér einnig nefna Þorvald Skúlason, Jón Engilberts og Gunnlaug Schev- ing. Þrátt fyrir að Nína héldi tryggð við akademíuna, voru þó áhrif frá framsæknum málurum þessa tíma mun greinilegri í fyrstu sjálfstæðu verkum hennar en t.d. kennarans, Kræstens Iversens, en áhrif hans voru í raun vart merkjanleg. Það stóð líka mun nær upplagi hennar að vera móttækileg fyrir óformleg- um hröðum tjákraftinum, eins og hún kynntist honum í vinnubrögð- um Louisu Matthíasdóttur, sem hún hitti í París, og bast strax nán- um vináttuböndum. Munurinn á þeim Svavari og Nínu er sá helstur, að fram koma mun fjölþættari og skólaðri vinnubrögð í myndverkum hennar á meðan Svavar hélt sig alla tíð við óheft hugsætt myndferli sem hann beislaði þó á ýmsa vegu, en gekk þar kannski full langt á tímum strangflatalistarinnar, en slík vinnubrögð áttu öllu síður við skap- höfn hans. Þó gerði hann einnig ris- mikil verk sterkrar burðargrindar, en þá var það safaríkur liturinn, sem bar þau helst uppi, en Svavari var meistaralega lagið að binda liti í sterkar áhrifaríkar formheildir og þurfti sist reglustriku við. í elstu myndunum á sýningunni, Styrbjörg frá 1938 og Skip og haf frá 1939 má greina súrrealistísk áhrif og þá einkum frá hópnum í kringum Vilhelm Bjerke Petersen, en sá var mikill áhrifavaldur á þess- um árum, þótt menn væru sem óð- ast að rífa sig frá honum sem gerð- ist ekki átakalaust. Harkalegar innbyrðis deilur sem upp spruttu af því tilefni eru frægur kafli í þróun danskrar nútímalistar sem oft er vitnað til og á sér enga hliðstæðu hér á landi hvað opna samræðu snertir. Þessar tvær myndir njóta sín mun betur í upphengingunni á safninu en ég hef séð í annan tíma og næstu árin spratt upp hvert lyk- ilverkið á fætur öðru og öll eru þauá sýningunni, svo sem Fansað í fúg- ustíl 1939-40, íslandslag 1944, Steðjinn og Gullfjöll 1946, Stuðla- berg 1949, Isabrot 1953, Næturútv- arp á Öræfajökli 1954-55 og Hallast upp við dogg 1975-80. Hér er lista- maðurinn kominn aftur á fornar slóðir, jötunefldur sem aldrei fyrr. Ekki skortir heldur lykilverkin hvað Nínu snertir og nefni ég hér andlistsmyndirnar þrjár; af Erlendi í Unuhúsi frá 1939, Selmu Jónsdótt- ur 1946 og Holger Cahill 1962. Kon- umyndirnar tvær; Inni 1944 og Konumynd 1945. Þá ber að nefna verk eins og, Gatan 1940-41(?), Frá Ólafsvík 1942, Komposítion 1947, 1959 og 1959. Sér á báti er græna myndin, Abstrakt frá 1956 og líkust undanfara loftkenndu flatamynd- anna, sértæka úthverfa innsæisins, þar sem ég þykist kenna síðbúin áhrif frá Edvard Weie, sem kemur enn skýrar fram í myndunum Komposition 1960 og Gos 1964. En hvað sem öllum áhrifum líður, voru þau Svavar Guðnason og Nína Tryggvadóttir sterkir og rammís- lenzkir listamenn sem þessi mjög svo lifandi framningur undirstrikar rækilega. Safnið hefur mikinn sóma af báðum sýningunum og mun meiri en sýningum útlendinganna en þær standa þó alltof stutt. í raun er glæpur að þjóðin skuli ekki geta nálgast hluta verkanna allan ársins hring, svo og fleiri verk brautryðj- enda íslenzkrar myndlistar, slíkt gerist hvergi nú um stundir þar sem þjóðir vilja á annað borð telja sig til menningarríkja. Bragi Ásgeirsson Ögrar bæði sjón og huga Svava Björnsdóttir: Nafnlaust, 1987. MYJVDLIST L i s I a s a I n íslands HÖGGMYNDIR SVAVA BJÖRNSDÓTTIR Sýningin er opin frá 11 til 17 alla daga nema mánudaga og stendur til 2. apríl. VERK Svövu Bjömsdóttur virðast við fyrstu sýn afar einföld og að- gengileg, næstum innihaldslaus, en eru það alls ekki þegar betur er að gáð. Hún býr til stóra hola pappírs- skúlptúra sem hún litar oftast með dufti svo áferðin verður mött og yfir- borðið drekkur í sig ljósið, en það styrkir tilfinningu áhorfandans fyrir efninu og massa verksins. Formin sem hún mótar eru nú orðið einkum byggð á geómetríu og endurtekning þeirra er sterkt einkenni í flestum verkunum. Skúlptúramir sem sýndir era á sýningunni í Listasafni íslands - annarri sýningunni sem þar er haldin á verkum Svövu - era stórir og rýmismiklir þar sem þeir rísa fram frá veggjum og gólfi salarins. Ef setja á verk Svövu í Hstsögulegt samhengi þarf að tengja saman margar þær stefnur sem verið hafa hvað atkvæðamestar í myndlist síð- ustu aldar. Formrænt séð era verkin skyld þeim flatarmálsfræðilega min- imaHsma sem á upphaf sitt í verkum rússnesku afstraktlistamannanna sem störfuðu á öðram áratug aldar- innar og náði líklega hátindi sínum með Donald Judd og fylgismönnum hans á sjöunda áratugnum. Efnisval- ið og -meðferðin eiga hins vegar meira skylt við aðra tilhneigingu sem verið hefur að þróast í myndlist allt frá ready-made verkum Duchamps á öðram áratugnum, gegnum Arte Povera hreyfinguna á Italíu, popp- listina í Bandaríkjunum og Evrópu, Fluxus-hreyfinguna og loks það sem nú er stundum nefnt konsept-min- imalismi. Lesandanum er fyrirgefið ef hann hefur tapað þræðinum í þess- ari isma-upptalningu, enda er hún fyrst og fremst til að undirstrika það að Svava Bjömsdóttir hefur beinni tengsl inn í meginstraum vestrænnar myndlistar en aðrir íslenskir lista- menn - jafnvel beinni en nokkur ann- ar - svo vart verður um hana fjallað án þess að til komi nokkur greinar- gerð um slík mál. En verkin tala samt sínu máli. Þau era ekki bara vitnisburður um listsögulega atburð- arás. Tærleiki og fullkomið samræmi efnis, umfangs og yfirborðs era helstu einkenni verka Svövu. Hún ögrar bæði sjón og huga áhorfandans með því að tefla fram greinilegum andstæðum: Miklu umfangi sem stangast á við léttleika efnisins, mött- um djúpum Ht sem samræmist illa hreinum geómetrískum formunum sem hún byggir upp, og hátíðleika í framsetningu sem stangast á við það að við fyrstu sýn líkjast sum verkin einna mest ofvöxnum eggjabökkum. Hárnákvæm meðferð Svövu á þess- um andstæðum skapar það full- komna samræmi sem gerir verk hennar að Ust, skilningur hennar á samspili skynveraleika og hugsunar gerir henni kleift að ganga fram úr því listsögulega samhengi sem sagan hefur búið henni og vinna verk sem era í senn tímanleg og tímalaus - verk sem tala til samtímans og munu tala áfram til ókominna kynslóða. Framsetning sýningarinnar er til fyrirmyndar og verk Svövu njóta sýn afar vel í stærsta sal Ustasafnsins þar sem allir milliveggir hafa verið fjar- lægðir. Vönduð og falleg sýningar- skrá hefur verið gefin út í tilefni af sýningunni eins og vera ber og í heild er þetta framtak með því besta sem Listasafn íslands hefur unnið síðustu misseri. Jón Proppé

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.