Morgunblaðið - 05.03.2000, Side 41

Morgunblaðið - 05.03.2000, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 5. MARS 2000 41 + Magnús Guðjóns- son fæddist á Kjörvogi í Árnes- hreppi í Stranda- sýslu 27. júní 1936. Hann lést á Líknar- deild Landspítalans 24. febrúar síðastlið- inn. Magnús var sonur hjónanna Guðmundu Þor- bjargar Jónsdóttur frá Kjörvogi, f. 2. apríl 1916, og Guð- jóns Magnússonar frá Kjörvogi, f. 28. júní 1908, d. 23. jan- úar 1993. Systkini Magnúsar eru: 1) Alda, f. 14. september 1933, maki Ásgeir Gunnarsson. 2) Guðfinna Elísabet, f. 15. des- ember 1937, maki Bragi Egg- ertsson. 3) Sólveig Jóna, f. 17. júlí 1939, maki Sigurður Blönd- al. 4) Guðmundur Hafliði, f. 22. desember 1940, maki Dagný (Deng) Pétursdóttir. 5) Guðrún Magnea, f. 26. september 1942, maki Óskar Pétursson. 6) Hauk- ur, f. 20. ágúst 1944, maki Vil- borg G. Guðnadóttir. 7) Fríða, f. 11. mars 1946, maki Karl Ómar Karlsson. 8) Jörundur Finnbogi, f. 12. júní 1948, d. 4. ágúst 1999, maki Rannúa Leonsdóttir. 9) Kristín, f. 9. júní 1950, maki Þór- ir Stefánsson. 10) Daníel, f. 30. júní 1952, maki María Ingadótt- ir. 11) Þuríður Helga, f. 25. des- ember 1955, maki Garðar Karls- son. Hinn 16. maí 1959 kvæntist Magnús eftirlifandi eiginkonu sinni Laufeyju Kristinsdóttur, f. 25. júlí 1933, frá Hjalla í Grýtu- Svo snöggt, svo snöggt er snilld og hæfhi felld og snöfurlegur maður niður sleginn, sem átti til þann styrk og innri eid sem oft og tíðum sendi birtu um veginn. Mérfinnstsvoerfitt oft að skilja það hvað örlög manna geta þungbær verið, hvað mannlegt líf er bundið stund og stað og staðan tæp hjá þeim sem byggja skerið. (Rúnar Kristjánsson.) Enn myndast skarð í hópinn, hóp systkina og í nánasta vinahóp okkar hjóna. Á hálfu ári falla bræður í val- inn, annar af slysforum, hinn af völd- um óvægins sjúkdóms. Það er alltaf viss áhætta að tengjast öðrum traustum vináttuböndum vitandi það að ekkert varir að eilífu og að “eftir bjartan daginn kemur nótt“. Úr hópnum má enginn hverfa, skarðið verður ekki fyllt, það kemur ekki maður í manns stað. Það er kalt úti, kuldinn laumast inn, miðstöðin hefur ekki undan. Eftir stendur draumur þar sem fram koma margvíslegar minningar liðinna stunda, sem ná yf- ir rúmlega 30 ára tímabil. Minning- amar tengjast Magnúsi mági mín- um, sem ekki var eingöngu kær vinur heldur ígildi eldri bróður sem var fyrirmynd, veitti leiðsögn og allt- af tilbúinn að aðstoða hvernig sem á stóð. Ég lít á það sem forréttindi og gott veganesti í lífinu að hafa átt Magnús að nánum vini allt frá því að ég kom inn í fjölskylduna þá vart af bamsaldri. Á þeim tíma bjó Magnús og fjölskylda í Fellsmúlanum. Þang- að var gott að koma og em mér sér- lega minnisstæðar stundirnar þegar bræðumir voru samankomnir, bræður sem á margan hátt voru sér- stakir í samskiptum bæði út á við og þá ekki síður sín á milli. Ef til vill þykja það dálítil öfugmæli að segja að þeir hafi verið notalega stífir, með sérstaka kímnigáfu og snögg tilsvör. í gegnum árin em það einmitt þessi einkenni sem hafa einna helst sam- einað þá sem góða vini og laðað mig að návist þeirra. Það sem einnig hef- ur verið lærdómsríkt að fylgjast með er að sterkir og sjálfstæðir einstakl- ingar geta líka verið ósammála og deilt, en um leið haldið vináttunni bakkahreppi. For- eldrar hennar voru hjónin Brynhildur Askelsdóttir, f. 13. janúar 1906, d. 30. júlí 1938, og Krist- inn Jónsson, f. 4. október 1894, d. 21. september 1975, frá Hjalla í Grýtu- bakkahreppi. Dætur Laufeyjar og Magn- úsar eru 1) Bryn- hildur, f. 11. ágúst 1960, og Þorbjörg, f. 4. apríl 1966, niaki Rúnar Reynis- son, f. 18. nóvember 1962. Börn Þorbjargar og Rúnars eru Magn- ús Reynir, f. 24. febrúar 1994, og Laufey Svafa, f. 14. júlí 1996. Magnús stundaði nám í Reyk- holtsskóla í Borgarfirði og íþróttaskólanum í Haukadal. Hann lauk sveinsprófi í vél- virkjun 1961 og hlaut síðan meistararéttindi í þeirri grein og starfaði við það í tíu ár. Árið 1972 lauk hann prófi í tækni- teiknun frá Iðnskólanum í Reykjavík og ári síðar hóf hann störf hjá Mjólkursamsölunni þar sem hann starfaði fram til haustsins 1999 þegar hann hætti sökum veikinda. Magnús var í stjórn skíða- deildar Fram og var formaður um skeið, og auk þess gegndi hann formennsku og sat í stjórn Félags Árneshreppsbúa í Reykjavík um tíma. Utför Magnúsar fer fram frá Neskirkju í Reykjavík á morgun, mánudaginn 6. mars, og hefst at- höfnin klukkan 13.30. hreinni og óskertri - nokkuð sem er einstaklega mikilvægt eigi fjölskylda að geta staðið undir nafni og haldið velli. Fjölskyldur okkar Magnúsar hafa frá upphafi verið tengdar djúpum vináttuböndum, sem aldrei hefur fallið skuggi á. Margar góðar sam- verustundir koma í hugann meðal annars í tengslum við skíðaferðir, vinnuferðir í sumarhúsið á Storð, ár- leg jólaboð, brúðkaupið hennar Þorbjargar og þá ekki síst notalegar og hversdagslegar samverustun- dimar án nokkurs sérstaks tilefnis. Þær eru ekki síður dýrmætar, þó á annan hátt sé, samverustundimar þegar ljóst varð að leiðin til heilsu var Magnúsi ekki lengur fær. Vina- samtöl í skugga dauðans eru einstök og skilja eftir djúpa reynslu. Þeim sem voru samferða Magnúsi í gegn- um tíðina duldist ekki að hann lifði af einstakri reisn og af þeirri sömu reisn gekk hann í gegnum endalokin - heill, sannur og trúr sjálfum sér. Samferðamenn Magnúsar áttuðu sig jafnan fljótt á því hve sérstaka persónu hann hafði að geyma. Það var til að mynda áberandi hvað hann hafði einfaldan, vandaðan og fágað- an smekk og var með eindæmum ná- kvæmur, vandvirkur og skapandi í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Heimili þeirra hjóna ber þessa glöggt vitni, sem og önnur handverk er hann kom nærri. í þessum efnum vissi Magnús alltaf nákvæmlega hvað hann var að gera og hvemig hlutirnir kæmu best út. Við hjónin nutum góðs af hugviti hans, hand- verki og ósérhlífni, nokkuð sem seint verður fullþakkað. Magnús var sérstakur fagurkeri á fleiri sviðum en í eigin sköpun og hugverkum, hann hafði til að mynda yndi af ýmiss konar list, góðum mat og eðalvínum. Með fáum var jafn- gaman að njóta og em í þessu sam- bandi ferðimar á Storð einna ógleymanlegastar. Fas Magnúsar og framkoma var þannig að ekki var hægt annað en taka eftir honum og bera virðingu fyrir honum. Það var alltaf yfir honum einhver fágaður virðuleikablær - og ósjálfrátt vand- aði fólk sig í nærveru hans. I sam- skiptum var hann ekki allra og gat á stundum virkað fáskiptinn og jafnvel dálítið kuldalegur. Hann var alltaf hreinn og beinn þannig að þeir, sem vom mjög viðkvæmir á því sviði, áttu það til að sáma og stundum mislíka. Þessi heilindi Magnúsar og hreinleiki í öllum samskiptum vom aðalsmerki hans og einstaklega að- laðandi mannkostir. Ekki er hægt að kveðja góðan vin án þess að geta þess að götuna sína gekk hann ekki einn. Laufey gekk alla tíð samstiga honum og dætumar Brynhildur og Þorbjörg. Fyrir nokkrum árum bættist Rúnar tengdasonur þeirra í hópinn og síðan bamabörnin tvö Magnús Reynir og Laufey Svava. I lokin komu forlögin því svo fyrir að Magnús Reynir kvaddi afa sinn hinstu kveðju á sex ára afmælisdegi sínum. í framtíðinni hefur þessi dagur því tvöfalda og dýrmæta merkingu hjá samheldinni fjölskyldu. Það er komið að leiðarlokum, fjöl- skyldan á Haðarstígnum kveður einn úr hópnum með söknuði og innilegu þakklæti. Við biðjum góðan Guð að umvefja Magnús í nýjum heimkynnum og styrkja þá sem eiga nú um sárt að binda. Það kemur eng- inn í staðinn fyrir þann sem kveður og því verður skarðið ekki fyllt. Það kemur samt að því að það hlýnar og birtir að nýju, samverastundir fjöl- skyldnanna halda áfram - við kerta- ljós og yl góðra minninga. Andartak er úti, upphaf er aldar. Er að enda einn tímans hringur. Eitt örlagaskeið í tómið hnigið. Eitt lífshlaup væntingar liðið. Eftir stendur draumur, dijúgur straumur mynda. Liða um hvolfið muna, málverk liðinna stunda. (Andri Laxdal) Vilborg G. Guðnadóttir og fjölskylda. Magnús frændi minn er dáinn. Þessi sterki Strandamaður er fallinn frá. Ég og Margrét kona mín vorum svo heppin að kynnast Magnúsi. Pabbi Magnúsar og afi minn vora samtíðarmenn í Arneshreppi þar sem fyrstu kynni mín af Magnúsi vora. Það litu alltaf allir upp til hans. Hann var verklaginn með afbrigð- um. Skíðaáhugi hans var mikill og naut skíðafélagið Fram krafta hans, það var sama hvað það var sem á bjátaði, alltaf var Magnús með réttu lausnina. Það var ómetanlegt fyrir Fram að hafa hann þegar lyftan og síðan skálinn vora reist. Það komu margir að því verki en að öllum ólöstuðum var Magnús þar fremst- ur. Magnús og Laufey byggðu sér stórkostlegt sumarhús í Tréketilsvík á Ströndum ásamt systkinum hans. Þar var hugsað fyrir öllu. Við voram svo heppin að fá að koma þangað í heimsókn undanfarin sumur ásamt Guðmundi Kr. og Ólöfu konu hans en Guðmundur hannaði bústaðinn með Magnúsi. Þetta voru ferðir sem allir biðu eftir. Enda hvergi eins mikill friður og ró eins og á Storði en það heitir húsið. Þar var farið í gönguferðir um alla sveit og Magnús þekkti hvern stein, hverja þúfu og hvert fjall. En síðast- liðið sumar sáum við að það var ekki allt með felldu, Magnús varð að taka það rólega og það átti ekki við hann að geta ekki hlaupið um allt eins og hann hafði alltaf gert. í síðustu ferð okkar norður fannst mér ég stela frá honum verld þegar ég sló útihúsið með orfi og ljá en það gerði hann alltaf sjálfur. Það var svo ólíkt Magga að geta ekki alltaf verið á fullu. En Maggi minn, við munum áreiðanlega fara norður og taka nokkrar aríur og minnast þín. Elsku Laufey mín, megi góðar vættir vera með þér og þínum um ókomna framtíð. Margrét og Sveinn Sveinsson. Látinn er langt um aldur fram góður samstarfsmaður til margra ára, Magnús Guðjónsson, eftir erfið veikindi og baráttu við sjúkdóm sem margan leggur að velli. Mig langar að kveðja nafna minn með örfáum orðum og þakka honum samfylgdina, en við störfuðum sam- an í fjölda ára. Magnús kom til starfa hjá Mjólkursamsölunni í MAGNUS GUÐJÓNSSON Reykjavík árið 1972 og starfaði þar til dauðadags eða í 28 ár. Hann hafði umsjón með fasteignum Mjólkur- samsölunnar og fyrirtækja hennar allan þennan tíma. Magnús var ennfremur eftirhts- maður við nýbyggingar fyrirtækis- ins á Bitrahálsinum á áranum 1981 - 1986 og byggingarstjóri við nýbygg- ingu Emmessíss hf. á áranum 1993 - 1995, en þar áttum við nafnamir mikið og náið samstarf, sem ég vil þakka sérstaklega fyrir hönd okkar sem að því unnum. Magnús Guðjónsson var vinur vina sinna og við sem þekktum hann vel, vissum að þar fór vandaður mað- ur og á orðtakið, „Hann var vandað- ur til orðs og æðis“ vel við um nafna minn. Öll mannvirki þessara fyrirtækja sem Magnús kom nálægt bera vinnubrögðum hans glöggt merki. Ailt skyldi vera vandað og vel gert og ekki skyldi kastað höndum til, enda áttu hlutimir að endast vel. Að leiðarlokum þakka ég honum gott samstarf sem aldrei bar skugga á. Ég á eftir að sakna þess að heyra ekki ávarpið hans í símann, „Sæll, nafni!“ Ég kveð þig með virðingu og þakklæti fyrir þær stundir sem við áttum saman. Fjölskyldu Magnúsar votta ég mína dýpstu samúð. Magnús Ólafsson. Nú er fallinn frá góður drengur sem við öll söknum sárt. I þeim hópi erum við mörg sem höfum kynnst Magnúsi við störf og leik í skíðadeild Fram. Það er ein- kennilegt að hugsa til þess að sjúk- dómur geti lagt að velli, fyrirvara- laust og á skömmum tíma, hraustmenni eins og Magnús. Hann var mjög sérstakur pers- ónuleiki. Hann var ekki allra en þeir sem fengu að njóta vináttu hans og eiga samleið með honum áttu traust- an bakhjarl. Alltaf var hann jafn kurteis og geðprúður en fastur fyrir með sínar skoðanir. Þannig menn ná oftast langt í lífinu. Það era ekki ýkjur að tala um hraustmenni þegar Magnús var ann- ars vegar. Hann var Strandamaður. Að vera Strandamaður hefur ákveðna merkingu í okkar huga. Til þess þarf ákveðna eiginleika og burði sem við munum alltaf tengja við persónu hans. Magnús var ættaður frá Kjörvogi á Strönd- um en fluttist síðan ungur til Reykjavíkur. Eftir að gamall kjami Framara kom úr skíðaferð frá Noregi í febr- úar 1972 var ráðist í stofnun skíða- deildar Fram. Ýmsir góðir og áhuga- samir menn komu að þeim störfum fyrstu árin. Skíðadeildin starfað í nokkur ár í Eldborgargili við nokkuð frumstæð- ar og bágbomar aðstæður. Það á®X við bæði hvað varðaði húsakost og lyftubúnað. Magnús Guðjónsson gekk í skíðadeild Fram nokkra eftir að deildin var stofnuð. Það var mikill happafengur fyrir skíðadeild Fram og komandi kynslóðir. Deildin var upphaflega ekki stofn- uð með æfingar og keppni í huga, heldur átti þessi félagsskapur að þjóna þörf Framara sem vildu stunda skíði sér til ánægju og heilsu- bótar og þetta væri fyrst og fremst fjölskylduíþrótt í félaginu. Það var í þessum anda sem að Magnús kom í skíðadeildina og léði henni sífla starfskrafta og fítonsanda, og ávallt síðan þar til yfir lauk. Með Magnúsi komu í skíðadeild- ina fjöldi ættingja og vina hans, sem allir lögðu hönd á plóginn af sömu eljunni. Fljótlega fóra ýmsir hlutir að þróast til betri vegar. Á ár- unum 1980 til 1990 risu mannvirki á borð við fullkomna skíðalyftu og skíðaskála í Eldborgargili í Bláfjöll- um. Það er á engan hallað að eigna Magnúsi mikið framkvæði hvað þessa uppbyggingu varðar og er hann ávallt nefndur guðfaðir deild- arinnar. Ekkert okkar hafði órað fyrir að skíðadeildinni ætti eftir að vaxa svo fiskur um hrygg. Fram hafði eigna^fQ „alvöra“ skíðadeild. Eftir að upp- byggingu lauk fóra fjöldamörg ár í hönd með æskulýðsstarfi, æfingum, keppni og umfram allt fjölskyldu- samfundum í fjalli og í útilegum að sumarlagi. Magnús hafði alltaf sterkar taug- ar til skíðadeildarinnar. Jafnvel þeg- ar hann var þjakaður af ólæknandi skjúkdómi sl. haust hafði hann taug- ar til og frumkvæði að kalla saman nokkra framkvöðla. Hann vildi minna menn á að láte ekki vináttubönd og samskipti fruw> herjanna lognast út af. Margir era hættir að koma í skíðaskálann góða í Eldborgargili og hittast eins og í gamla daga. Á því vill Magnús að verði bragar- bót. Það var ekki eina erindið sem hann átti við okkur. Hann vildi klára lítið verkefni sem tengdist skála- byggingunni. Jákvæður hugur og eftirfylgni Magnúsar varð til þess að framherjarnir hafa nú komið þessu ætlunarverki hans í framkvæmd. Allir liðsmenn skíðadeildar Fram senda eiginkonu og öllum aðstan- dendum Magnúsar innilegustu sam- úðarkveðjur. Skíðadeild Fram. __________________________________yi t GUÐJÓN GÍSLI MAGNÚSSON frá Skansinum, Hásteínsvegi 2, Vestmannaeyjum, sem lést sunnudaginn 27. febrúar sl., verður jarðsunginn frá Landakirkju miðvikudaginn 8. mars kl. 14.00. Þórunn Vaidimarsdóttir, Valdimar Þór Gíslason, Þuríður Helgadóttir, Ásgerður Jóhannesdóttir, Valdimar Karl Sigurðsson. —i, -,1 * t Hjartanlegar þakkir færum við þeim fjölmörgu er auðsýndu okkur hlýhug og vináttu og studdu okkur á ótal vegu vegna andláts og út- farar elsku drengsins okkar, FREYSTEINS HARALDSSONAR. Haraldur Bernharðsson, Hanna Óladóttir, Þóroddur Haraldsson, Ragnheiður Hansdóttir, Inga Teitsdóttir, Bernharð Haraldsson, Óli Jóhann Ásmundsson, Hans Bragi Bernharðsson, Ásmundur Ingvi Ólason, Arndís Bernharðsdóttir, Þórdís Bernharðsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.