Morgunblaðið - 05.03.2000, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. MARS 2000 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
Isl-enskan í 24-7
Frá Gísla Ásgeirssyni:
Á FIMMTUDÖGUM fylgir Mbl.
blöðungur að nafni 24-7. Þar kennir
margra grasa og eru ekki öll jafnfög-
ur. Málfarið er sérkennileg blanda af
ensku og íslensku og þrátt fyrir að í
blaðhaus sé getið um prófarkalesara
virðist hann lítið hafa að gera eða
ekki vita betur en raun ber vitni.
Blaðamenn eru misjafnlega leikn-
ir að troða ensku inn í greinar sínar
en sumir eru svo duglegir við þá iðju
að lesandi þarf helst að hafa orðabók
nærtæka. Jafnvel þegar rætt er við
enska viðmælendur er þess gætt að
þýða ekki allt til að viðhalda
ísl-enska stílnum.
Eftirfarandi dæmi eru af síðu 9.
Þar er fjallað um tísku.
inspíraði, fasjön indöstríinu, fríl-
ans, hæpi, óinspírandi, extrímið,
over the top, minimalisminn, intell-
ektjúal, dekoratív, stíliseraða,
streetwear, second hand, tradissjón-
al, vamp, materíalískt attitjúd, ak-
sjúlí, generalt, steitment, inspíreisj-
ónelt, kommentera á kúlið, bæjer,
kolleksjóni, beisikklí, pjúk, plein,
highstreetið, kópera.
Hér eru ekki allar sletturnar til-
færðar og væri ærið verkefni fyrir
prófarkalesara að snúa þessum frá-
sögnum á skiljanlegt mál. Mál- og
stafsetningavillur eru svo til á hverri
síðu.
I þætti Gísla Jónssonar um ís-
lenskt mál 26.2. segir: „Hverju sætir
nú þessi þjónkun við enska tungu?
Besta skýringin, sem ég hef heyrt,
var svona: „Við erum náttúrlega
ekkert að þýða ensku nöfnin fyrst
við skiljum ensku.“ Þetta viðhorf
finnst mér dapurlegt. Það ber ýmsu
óæskilegu vott: virðingarleysi við
móðurmálið, hroka og sýnda-
rmennsku því þau sem svona tala
vilja sýnast lærð eða fróð eða fín að
fara með nafnið á ensku, leti því þau
nenna ekki að gá að íslenska nafninu,
þekkingarleysi því þau geta ekki
þýtt nafnið á íslensku."
Þetta eru orð í tíma töluð.
GÍSLIÁSGEIRSSON,
móðurmálskennari
og þýðandi.
Kennitölur Samherja
Frá Sigurði Haraldssyni:
SKV. efnahagsreikningi eru eignir
umfram skuldir 4,5 milljarðar (sjá
www.samherji.is).
Skv. markaðsverði er kvótinn 16-
20 milljarðar.
Skv. hlutabréfamarkaði er mark-
aðsverð fyrirtækisins 14 milljarðar.
Skv. efnahagsreikn. eru lang-
tímaskuldir 8 milljarðar
Fyrirtækið hefur haft afnotarétt
af kvóta í 16 ár án gjalds sem mætti
áætla á núvirði 15-20 milljarðar.
Hvert er nú verðmæti fyrirtækis-
ins - endurskoðandi segir 4,5,
markaður 14, kvótalaust virði -4 og
sé tekið tillit til afturvirkni laga -24
milljarðar. Eru þetta ekki mestu
sjónhverfingar sögunnar?
Falli dómur hæstaréttar sægreif-
um í óhag er fyrirtækið stórskuld-
ugt - já margfalt gjaldþrota, en svo
ganga menn út með árslaun u.þ.b.
1500 fjölskyldna. Hvað er að, Davíð
Oddsson?
Þetta er aðeins stórfelldasta
dæmið, en mörg minni hafa gerst
og farið fram með þögn t.d. hafa
„gjafakvótaeigendur" verið að
kaupa (fyrir okkar fé þ.e. lögleyfður
þjófnaður - ennþá) fasteignir í
Kringlu og Fenjum.
Nú þarf Hæstiréttur að hafa
djörfung og dug til þess að sporna
við fótum og gera dóm sinn aftur-
virkan þannig að hægt verði að ná
til þess fjár, sem þjóðin á - en það
mun eflaust skipta tugum milljarða,
sem gjafakvótaþjófar hafa stungið
undan.
Hvað skal svo gera við alþingis-
menn sem hafa lagt hönd á Stjórn-
arskrá og varðveizlu hennar - en
þráfaldlega höggvið í sama knérunn
þ.e. brotið gegn henni - já, ef óbr-
eyttur væri þá myndi hann fá fang-
elsisdóm. Skora ég hér með á al-
þingismenn að sjá raunveruleikann,
því þetta er svívirða og misbýður
öllum sem á horfa, nema sægreif-
um, sem reyna að slá ryki í augu
okkar og keyrir um þverbak þegar
forstöðumenn fyrirtækisins segja
að þetta sé rógur einn, öfund og
vanþekking. Ætti hann ekki að
segja endurskoðandanum upp sem
metur (í sinni veruleikafirringu)
fyrirtækið á 4,5 milljarða þegar
markaður segir 14 en kvótalaust -4
milljarðar.
Nöturlegt yrði ef Davíð beygði
dómara og Strassborg þyrfti að
hirta þá, því efalaust mun dómnum
verða skotið þangað ef dómara
brestur áræði og heilindi.
SIGURÐUR HARALDSSON,
Melgerði 10, Kópavogi.
arangur
í uppsetningu
♦ Tryggöu þér betri
einkunn með því að
láta okkur ganga frá
ritgerðinni þinni á
skemmtilegan og
glæsilegan hátt.
Kennarar eru mannlegir.
-Góð framsetning skapar
jákvæðari afstöðu þeirra
sem annarra.
^Þú þarft aðeins að koma
með ritgerðina þína á
diski. Við setjum hana upp
fyrir þig, litljósritum og
bindum inn.
Allt til árangurs!
Félag harmonikuunnenda
heldur skemmtifund kl. 3 í dag í Hreyfilshúsinu.
Meðal þeirra sem koma fram eru:
Félagar FHUR og félagar frá
Harmonikufélagi Rangæinga.
Allir eru velkomnir. Félag harmonikuunnenda
<h
£
0)
%
ai
o
NeffOt „,,
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
SOLUSYNING
HELGINA
LAUGARDAG 10-18
SUNNUDAG 13-17
AÐRADAGA 9-18
Frífonn
HÁTÚNI 6A (í húsn. Fönix) SÍMI: 552 4420
FUÍiTSU COMPUTERS
^SIEMENS
Smith & Norland
eykur enn vöruval sitt
og býður nú Fujitsu
Siemens gæðatölvur þar
sem japanskt hugvit og
hagkvæmni sameinast
þýskum gæðum og
nákvæmni.
Bjóðum einnig gott
úrval af prenturum o
faxtækjum frá Olivet
Skrefi
lengra
með Fujitsu Siemens
tölvum
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • Fax 520 3011 • www.sminor.is