Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 6. APRIL 2000 55
Stærðfræðikeppni
Fj ölbrautaskólans
í Garðabæ
STÆRÐFRÆÐIKEPPNI Fjöl-
brautaskólans í Garðabæ fyrir
Garðaskóla fór fram 28.
mars s.l., þriðja árið í röð. Alls
tóku 138 nemendur í Garðaskóla
þátt í keppninni sem fram fór á
tveimur stigum, neðra stigi fyrir 7.
og 8. bekk og efra stigi fyrir 9. -
10. bekk.
Sigui'vegari á efra stigi var
Hulda Þorbjörnsdóttir, 10. bekk, í
2. sæti var Linda Ösp Heimisdótt-
ir, 10. bekk og í 3. sæti var Hulda
Guðjónsdóttir í 9. bekk. Á neðra
stigi varð sigurvegari Inga Auð-
björg Kristjánsdóttir, í öðru sæti
varð Sigrún Birgisdóttir og Guð-
rún Tómasdóttir í 3. sæti. Sér-
Stærðfræðikeppni FG í Garðaskóla: Stefán Árnason, deildarstjóri í
stærðfræði í FG, Kristín Bjarnadóttir, áfangastjóri í FG, Hulda Þor-
björnsdóttir, Linda Ösp Heimisdóttir, Hulda Guðjónsdóttir, Inga Auð-
björg Krisljánsdóttir, Helga Daníelsdóttir, Guðrún Tómasdóttir og
Kristín Bjarnadóttir, fagstjóri í stærðfræði í Garðaskóla. Á myndina
vantar Sigrúnu Birgisdóttur.
staka viðurkenningu hlaut Helga
Daníelsdóttir fyrir efsta sæti í 7.
bekk.
Á sama tíma var einnig haldin
innanhúskeppni í FG og varð sig-
urvegari í henni Björn Sighvats^
son, en þeir G. Haukur Guðmunds-
son, Baldur Malmberg og
Guðmundur Vignir Rögnvaldsson
komu í næstu sætum.
Verkefnin í keppninni reyndu
fyrst og fremst á talnaskilning og
útsjónarsemi en minna á þekkingu
eins og t.d algebrukunnáttu. Ein
spurningin var t.d. um hvernig rita
mætti töluna 1.000.000 sem marg-
feldi tveggja talna þar sem hvorug
endar á núlli.
AUGLÝS INGA
TILBOÐ / LITBOa || KEIMMSLA
ngafélag
nsmonna
Útboð
Byggingafélag námsmanna óskar eftir tilboð-
um í að byggja og ganga að fullu frá 1. áfanga
félagsins í byggingu leiguíbúða fyrir náms-
menn á Laugarvatni. Fyrsti áfangi er8 íbúða
fjölbýlishús sem rísa á við Laugarbraut 3,
Laugarvatni.
Húsið er um 240 m2 að grunnfleti og um 1.540
m3. Húsið er á tveimur hæðum og er heildar-
flatarmál þess um 480 m2. Á fyrstu hæð verða
2 eins herbergja og 2 tveggja herbergja íbúðir
ásamt sameiginlegri geymslu og þvottahúsi.
Á annarri hæð verða 4tveggja herbergja íbúð-
ir.
Verkið getur hafist 1. maí 2000 og skal húsinu
skilað fullgerðu ásamt frágenginni lóð eigi
síðar en 20. desember 2000.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 10.000
á skrifstofu Byggingafélags námsmanna,
Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík, frá og með
þriðjudeginum 4.apríl 2000.
Tilboðum skal skila á sama stað eigi síðar en
26. apríl 2000 kl. 14.00, þar sem þau verða
opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
NAUÐUNQARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins ■ Hnjúkabyggð
33, Blönduósi, þriðjudaginn 11. apríl 2000 kl. 11.00 á eftirfar-
andi eignum:
Bankastræti 3, þakhæð, Skagaströnd, þingl. eig. Rögnvaldur Ottósson,
gerðarbeiðandi Vátryggingafélag íslands hf.
Blöndubyggð 9, Blönduósi, þingl. eig. Skafti Fanndal Jónsson, gerð-
arbeiðandi Blönduósbær.
Gröf, Húnaþingi vestra, þingl. eig. Skúli Ástmar Sigfússon, gerðar-
beiðandi íbúðalánasjóður.
Mánabraut 3, Skagaströnd, þingl. eig. Sigurbjörg írena Rúnarsdóttir
og Einar Haukur Arason, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður.
Neðri-Þverá, Húnaþingi vestra, þingl. eig. Jarðasjóður ríkisins, gerð-
arbeiðandi Lánasjóður landbúnaðarins.
Neðri-Þverá, íbúðarhús og lóð, Húnaþingi vestra, þingl. eig. Björn
Viðar Unnsteinsson, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður.
Skagavegur 21, Skagaströnd, þingl. eig. Valur Smári Friðvinsson,
gerðarbeiðandi Vátryggingafélag íslands hf.
Skúlabraut 15, Blönduósi, þingl. eig. Hekla Birgisdóttir, gerðarbeiðandi
Blönduósbær.
Snæringsstaðir, 2/3 hluti, Svínavatnshreppi, þingl. eig. Benedikt
Steingrímsson, gerðarbeiðendur sýslumaðurinn á Blönduósi og
Lögmannsstofa Stefáns Ólafs ehf.
Sýslumaðurinn á Blönduósi.
Blönduósi, 4. apríl 2000.
Kynnist Syddansk Uni-
versitet á námskynningu
í Háskóla íslands hinn 9. apríl kl. 13—17.
Komið í Aðalbyggingu Háskóla (slands og
kynnið ykkur sextíu námsleiðir Syddansk há-
skóians í grunnháskólanámi, en þær geta leitt
til yfir eitt hundrað mismunandi möguleika
á samsetningu náms við skólann.
Einnig getið þið kynnt ykkur þjónustu við stúd-
enta og umhverfið í bæjunum Óðinsvé, Kold-
ing, Esbjerg og Sönderborg.
Allar upplýsingar um nám við skólann er hægt
að fá í síma 45-6550 1050, eða í tölvupósti
studie@adm.sdu.dk.
Vefslóð skólans er www.sdu.dk.
TILKYISIIMIIMGAR
Tillaga að breytingu
á aðalskipulagi
Vestmannaeyja
Bæjarstjórn Vestmannaeyja auglýsir hér með
tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Vest-
mannaeyja 1988—2008 skv. 1. mgr. 21. gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Breytingin felst í því að svæðið umhverfis
vatnstankinn í Löngulág 0-3.4, svæði opin-
berra stofnana/félagsheimili, verður skipulagt
sem svæði opinberra stofnana/félagsheimili/
verslunar- og þjónustusvæði O/M—3.4.
Svæðið afmarkast af þeirri byggingu sem fyrir
er á svæðinu og nánasta umhverfi þess.
Breytingartillagan verðurtil sýnis á skrifstofu
skipulags- og byggingafulltrúa á Tangagötu
1 og í Ráðhúsinu á Kirkjuvegi 50, frá og með
fimmtudeginum 6. apríl nk. til fimmtudagsins
27. apríl 2000.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
er hér með gefinn kostur á að gera athuga-
semdir við breytingartillöguna, eigi síðar en
fimmtudaginn 27. apríl 2000.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu skipu-
lags- og byggingafulltrúa á Tangagötu 1.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við breyt-
ingartillöguna fyrir tilskilinn frest telst
samþykkur henni.
Bæjarstjóri Vestmannaeyja.
TIL LEIGU
Laugavegur 51
Til leigu (til sölu)
Laust frá og með 1. maí
Kjallari 130 fm.
Jarðhæð 100 fm.
2. hæð 130 fm.
Samtals 360 fm.
Upplýsingar í síma 511 1720,
María Sigurðardóttir.
HÚSNÆQI í 6001
Barcelona
Ibúðirtil leigu í miðborg Barcelona.
Gott fyrir fjölskyldur og hópa.
Upplýsingar í síma 899 5863 f.h. (Helen).
Sálarrannsóknarfélag
_ íslands
Sálarrannsóknar-
« félagið Sáló,
1918-2000,
Garðastræti 8,
Reykjavík.
Hugleiðslukvöld í kvöid i um-
sjá Jórunnar Sigurðardóttur
og Agnesar Þórhallsdóttur í
Garöastræti 8 kl. 20.30.
Húsið opnað kl. 20.10.
Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
SRFÍ.
FÉLA6SLÍF
Landsst. 6000040619 VII
ÉSAMBAND (SLENZKRA
____' KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58.
Kristniboðsvika
Himnarfki.com
Upphafsorð og bæn: Ingibjörg
Gísladóttir, nemi. Nýbúar frá
Konsó í Eþíópiu segja sögu sína
og syngja lög af heimaslóðum.
Ræðumaður: Bjarni Gíslason,
kristniboði.
Allir hjartanlega velkomnir.
http://sik. torg.is/
I.O.O.F. 5 = 180468 = br.
Hjáipræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Kl. 20.30 Lofgjörðarsamkoma í
umsjón brig. Óskars Jónssonar
og Ingibjargar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Lækningasamkoma kl. 20.
Erna Eyjólfsdóttir talar. Beðið
fyrir sjúkum.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.vegurinn.is.